Dagur - 16.06.1989, Blaðsíða 6
40 Ár
Evrópu-
ráfiiS
Ég bý á reikistjörnunni Jörö
Land mitt er Evrópa
En viS erum 400 milljónir og tölum
16 mismunandi tungumál og eigum
23 þjóShöfSingja, svo ef viS ætlum aS láta
okkur koma saman, verSum viS aS vera viss
um aS viljum þessa Evrópu.
EVRÓPURÁÐIÐ er tilbúiS aS hjálpa okkur.
Og viS getum hjálpaS þvi á þúsund og einn hátt.
SnúiS ykkurtil:
Conseil de l’Europe,
B.P. 431 R6, F-67006 Strasbourg
Hvað er að gerast i
Akureyri:
Fjölbreytt dagskrá
íþróttafélagið Þór sér um há-
tíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn
að þessu sinni og verður dag-
skráin fjölbreytt að venju. Fánar
verða dregnir að húni kí. 8.00 og
kl. 9.30 hefst hópakstur Bíla-
klúbbs Akureyrar um götur
bæjarins og endað verður við
Oddeyrarskóla þar sem fram fer
árleg bílasýning bílaklúbbsins.
Skrúðganga fer frá Ráðhús-
torgi að íþróttavellinum um
13.50 en áður leikur Lúðrasveit
Akureyrar. Á íþróttavellinum
verður mikið um að vera. Sr.
Pálmi Matthíasson sér um barna-
messu, ávarp fjallkonunnar flytur
Steinunn Geirsdóttir og Lúðra-
sveitin leikur létt lög. Guðmund-
ur Bjarnason ráðherra flytur
ræðu dagsins og ræðu nýstúdents
úr M.A. Bergþór Hauksson. Þá
munu dansarar frá Dansstúdíói
Alice sýna dans og fallhlífar-
stökkvarar lenda á vellinum.
Ríó-tríó skemmtir um 15.45 og
Margrét Pétursdóttir leikkona
syngur fyrir börnin. Bjartmar
Guðlaugsson syngur einnig fyrir
börnin, eftirherman Arnar Sím-
onarson mætir á svæðið og einnig
hljómsveitin Rokkbandið en þeg-
ar allt þetta er afstaðið er von á
karamelluregni.
a 17. jmn
Handboltadeild Þórs stendur
fyrir tívolíi og leikjum fyrir börn-
in að aflokinni skemmtuninni á
íþróttavellinum og skráning í
Okuleikni B.F.Ö. fer fram á bíla-
stæði Ú.A. kl. 17.30.
Á Ráðhústorgi hefst gleð-
skapurinn kl. 20.30 með því að
Lúðrasveit Akureyrar leikur létt
lög. Ríó-tríó ætlar að halda
áfram að skemmta og einnig
Arnar Símonarson, Margrét Pét-
ursdóttir og Bjartmar Guðlaugs-
son. Dansleikur hefst síðan kl.
2.00 og leikur Rokkbandið fyrir
dansi.
Blönduós:
Condition ofmountain tracks
yogír 6 skyflgðum svasöum eru fokaölr alirí
umferö þar tll annað verður auglýsi
Tracks iri ihe snadeti xreas ara e!o$ea,~.%{:
[ tor ail traffic 'jntö turihóf nctíce. y, V
Kort nr. 3
Geflð úl 16. júni 1989
Hmsta kort wttwr g$fít> út 22. júrv
Map no. 3
puhiishod I5íh ofJune 1989
Ncxt »;ap m!i bc puhlixketi 22>vl i.fJune
Vegagerö rlkisins
** Puhíii' fírxuis AdnúniítrhHvn
Náttúruverntíarrá&
Naturc Conservation Cpuncíi
Ástand íjallvega
Kurtið hér að ofan er geflð út í samvinnu Vegagerðar ríkisins og Náttúruverndarráðs. Það sýnir ástand hinna ýmsu
fjallvega landsins þann 15. júní sl. Vegir á skyggðum svæðum eru lokaðir allri umferð þar til annað verður auglýst.
Nýtt kort verður gefið út 22. júní nk.
Hér er ekkert
hrafneiþing...
...en hins vegar
erum við fús
að veita ÞÉR
góða þjónustu
Viö bjóðum:
Tölvuprentun
Blaðaprentun
Tímaritaprentun
Bókaprentun
Bókband
Dagsprent
Strandgötu 31 • Akureyrl • S 96-24222
Mikið um dýrðir á 17. júní
Blönduósingar taka forskot á 17.
júní hátíðarhöld með dansleik í
Félagsheimilinu í kvöld, föstu-
dagskvöld, þar sem Rokkbandið
leikur fyrir dansi. Á morgun
verður mikið um dýrðir. Frá kl.
10-12 verður opið hús í Barnabæ
og hestasport í Arnargerði.
Guðsþjónusta verður í nýrri
kirkju Blönduósinga kl. 13.30-
14.00, prestur sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson. Að lokinni messu
verður skrúðganga að íþrótta-
vellinum í Fagrahvammi, þar
sem hátíðarstund hefst kl. 14.30
með ávarpi forseta bæjarstjórn-
ar, Hilmars Kristjánssonar.
Einnig verður söngur, ávarp fjall-
konu, Sveinn Kjartansson flytur
hátíðarræðu og Hjálparsveit
skáta verður með leiki fyrir
börnin. Um kl. 15.20 ætla félagar
úr Hjálparsveit skáta að klifra
upp Bókhlöðuna og sýna listir
sínar, og ætti fólk að sjá þetta úr
Fagrahvammi.
Kl. 15.30 hefst kaffisala í Fé-
lagsheimilinu og eftir hana verður
verðlaunaafhending fyrir Vor-
sprettinn og disktók þar á eftir.
Blönduóssbíó ætlar svo að sýna
myndina Cocktail, sem er fyrir
alla aldurshópa.
Þess má geta að Frjálsíþrótta-
deild USAH ætlar að safna fyrir
vindmæli á skólalóð með þátt-
töku hátíðargesta. Það er
Æskulýðs- og íþróttanefnd
Blönduóss sem sér um hátíðar-
höld á þjóðhátíðardaginn.
17. jum a
Sauðárkróki
Á Sauðárkróki verða þjóðhátíð-
arhöldin með hefðbundnum hætti
á morgun, 17. júní, og byrja á að
fánar verða dregnir að húni kl. 8.
Kl. 10 hefst svo fjörið með
hópreið hestamanna um bæinn
og eftir það verður stanslaus
dagskrá langt fram á kvöld. Há-
tíðarhöldin eru að þessu sinni í
umsjón Ungmennafélagsins
Tindastóls.
Er hestamenn hafa lokið hóp-
reið sinni um bæinn munu þeir
teyma undir börnum á malarvell-
inum. Hátíðarmessa verður í
Sauðárkrókskirkju kl. 11 hjá sr.
Hjálmari Jónssyni. Kl. 13.30
hefst skrúðganga frá gamla
starfsvellinum við Sjúkrahúsið í
umsjá Elífsbúa, gengið verður
um götur bæjarins og inn á
íþróttavöll, þar sem hátíðardag-
skrá hefst kl. 14. Meðal atriða
þar eru fánahylling, helgistund,
hátíðarræða, fjallkona og
skemmtidagskrá.
Hátíðarkaffisala verður í
Bifröst frá kl. 15.30-17.30 og á
sama stað hefjast tónleikar um
kvöldið kl. 19. Hátíðarhöldunum
lýkur svo með dansleik í Bifröst
með hljómsveitinni Herramönn-
um.
Söngskemmtim í
Húsi aldraðra
í kvöld, föstudaginn 16. júní,
skemmtir söngkór eldri borgara í
Reykjavík í Húsi aldraðra á
Akureyri. Skemmtunin hefst um
kl. 20.30. Þar kemur líka fram
Kór aldraðra á Akureyri og
munu kórarnir sameina krafta
sína og taka lagið saman. Eru
eldri borgarar á Akureyri hvattir
til að mæta á þessa skemmtun, en
kórinn úr Reykjavík er nú á
ferðalagi um landið og hann mun
væntanlega einnig taka nokkur
lög á sjúkrahúsinu og dvalar-
heimilunum.
Akureyri:
Kaffisala í Zontahúsinu
Zontaklúbbur Akureyrar stendur
fyrir kaffisölu í Zontahúsinu
Áðalstræti 54 næstkomandi
sunnudag 18. júní. Húsið verður
opið frá kl. 14.00 til 17.00 og ætla
Zontakonur að reyna að hafa.
kaffisölu næstu sunnudaga á eftir
líka. Þær hvetja fólk eindregið til
að koma og fá sér kaffisopa og
fyrir þá sem ætla að skoða
Nonnahús er upplagt að bregða
sér í kaffi í Zontahúsinu.