Dagur - 16.06.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 16. júní 1989 - DAGUR - 13
Rauði kross íslands:
Átta íslendingar við hjálpar-
störf víða um heim í sumar
í sumar fara 4 fulltrúar á vegum
Rauða kross íslands til hjálpar-
starfa erlendis og verða þá sendi-
fulltrúar á vegum RKÍ alls 8.
Tveir hjúkrunarfræðingar fara til
starfa á sjúkrahúsum Rauða-
krossins og Rauða hálfmánans
fyrir flóttamenn og stríðssærða í
Thailandi og Afganistan, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríksins er kominn til Grenada í
Vestur-Indíum til að aðstoða
heimamenn við skipulagningu
neyðarvarna og sjálfboðaliði fer
til Gojjam-héraðs í Eþíópíu til
að vinna að þróunarverkefni sem
unnið er í samvinnu Rauða kross
íslands og Rauða kross Eþíópíu.
Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna
ríkisins, fór nýlega til eyjunnar
Grenada í Karabíska hafinu til
mánaðardvalar þar sem hann
mun aðstoða starfsmenn Rauða
kross Grenada við að skipuleggja
og efla neyðarvarnaáætlun
Rauða krossins sem er hluti af
almannavörnum landsins. Gren-
ada er sjálfstætt ríki síðan 1974,
um 375 ferkm. að stærð og íbúa-
fjöldi rúmlega 100.000. Grenada
hefur á undanförnum áratugum
orðið illa úti í fellibyljum og mið-
ast starf Guðjóns við að þjálfa og
undirbúa heimamenn til að mæta
slíkum náttúruhamförum.
Ólafur Guðbrandsson, hjúkr-
unarfræðingur, fór l.júní sl. til
Afganistans til starfa í 6 mánuði
við sjúkrahús Rauða hálfmánans
í Kabúl. Alls vinna nú um 60
útlendingar á vegum Rauða
krossins og Rauða hálfmánans
við hjálparstörf í Kabúl. Þar er
og annar sendifulltrúi RKÍ, Jón
Úthlutun húsnæðis hjá Félagsstofnun stúdenta:
Umsóknir þurfa að
berast fyrir 25. júní
Félagsstofnun stúdenta úthlutar
nú húsnæði fyrir næsta skólaár og
skulu umsóknir hafa borist fyrir
25. júní. Minnt er á að lands-
byggðafólk hefur forgang að her-
bergjum á Görðum. Einnig verð-
ur úthlutað 50 íbúðum á hjóna-
görðum.
Þann 18. maí síðastliðinn var
haldinn 600. stjórnarfundur F.S.
Á þeim fundi var ákveðið að
veita tvo styrki til lokaritgerða að
upphæð 100.000 krónur hvor.
Var þetta jafnframt lokafundur
núverandi stjórnar
Meðfylgjandi mynd er af stjórn
Félagsstofnunar stúdenta. Á
myndinni eru, talið frá vinstri: Halldór Birgisson stjórnarfor-
Tryggvi Agnarsson f.h. ráðuneyt- maður, Kristín Gísladóttir áheyr-
is, Omar Geirsson f.h. stúdenta, endafulltrúi starfsmanna, Dan
Innihald aukefna og umbúðamerking matvöru:
Hert eftirht frá 1. júli
Vernduð lind í Eþíopíu.
Karlsson. Þetta er þriðja ferð
Ólafs á vegum Rauða krossins,
áður hefur hann tvívegis verið í
Thailandi þar sem hann starfaði í
búðum fyrir flóttamenn og stríðs-
ærða við landamæri Kambódíu.
Helena Jónsdóttir leggur af
stað til Eþíópíu 20. júní næst-
kómandi til ársdvalar í Gojjam-
héraði en þar mun hún starfa að
verkefni sem unnið er í samvinnu
íslenska og eþíópíska Rauða
krossins. Verkefnið felst í upp-
byggingu ungmennahreyfingar
Rauðakrossdeildar héraðsins,
kennslu í skyndihjálp og frum-
heilsugæslu, verndun linda,
trjárækt, auk þess verður unnið
að eflingu fiskveiða í Tana-vatni.
Þetta er fyrsta ferð Helenu á veg-
um Rauða krossins og er hún
fjórði sjálfboðaliðinn sem fer til
starfa í Gjjoam-héraði.
Björg Pálsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, fer 2. júlí nk. til starfa
í flóttamannabúðum í Thailandi
þar sem hún hefur verið ráðin til
6 mánaða. Björg tekur við af
Vigdísi Pálsdóttur sem verið hef-
ur þar undanfarna 6 mánuði.
Þetta er fyrsta ferð Bjargar á veg-
um Rauða krossins, en hún hefur
áður starfað í Wollo-héraði í
Eþíópíu á vegum Hjálparstofn-
unnar kirkjunnar. Björg er tutt-
ugasti og þriðji sendifulltrúinn
sem Rauði kross íslands sendir til
starfa á vegum Alþjóðarauða-
krossins í Thailandi.
Auk ofangreindra sendifull-
trúa eru nú 4 aðrir íslendingar
við hjálparstörf á vegum Rauða
krossins. Þeir eru : Jón Karlsson,
hjúkrunarfræðingur, sem starfar
við sjúkrahús Alþjóðaráðs
Rauða krossins í Kabúl, Jónas
Valdimarsson og Sigríður Sverr-
isdóttir í Gojjam-héraði í Eþíó-
píu, en Sigríður snýr heim síðla
sumars, og Lilja Steingrímsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur, í búðum
fyrir afganska flóttamenn og
stríðsærða í Quetta í Pakistan.
Aðalfundur
Fóðurstöðvarinnar S.V.F., Dalvík
veröur haldinn á Sæluhúsinu á Dalvík, föstudaginn
23. júní kl. 20.00.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
AKUREYRARB/ER
Tilkynning
Að gefnu tilefni tilkynnist hér með,
að stranglega er bannað að opna
brunahana bæjarins án leyfis, öðr-
um en Slökkviliði Akureyrar við
slökkvistörf.
Vatnsveita Akureyrar.
Bílstjóri óskast!
Óska eftir aö ráöa bílstjóra til framtíöarstarfa.
Upplýsingar á staðnum ekki í síma.
Einarsbakarí.
Vörumarkaðurinn hf. í Reykjavík
óskar eftir umboðs-
manni á Akureyri
Upplýsingar gefur Hanna í síma 91-688166.
Umsóknir óskast sendar í pósthólf 3160. í Reykjavík.
Vörumarkaðurinn hf.
Kringlunni Reykjavík.
FRAMSÓKN ARMEN N
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður haldinn að Hafnarstræti 90 mánudaginn 19. júní
kl. 20.30.
Rætt um gróðursetningarferð 1. júlí.
Stjórnin.
Brynjarsson f.h. stúdenta. Á myndina vantar Valdimar Her- m n
y r ■: . .-•■"■■■.-.i ' 7 =: ■■ . ■ ■ ~ =
- ... ........ ==
Hollustuvernd ríkisins og heil-
brigðiseftirlit sveitarfélaganna
undirbúa nú hert eftirlit með
innihaldi aukefna og umbúða-
merkingu matvöru hér á markaði
eftir 1. júlí n.k. Ná aðgerðir þess-
ar bæði til innlendar og innfluttar
vöru.
Aðlögunartími vegna gildis-
töku nýrra reglugerða um auk-
efni og umbúðamerkingar er nú
liðinn og það sama gildir í flest-
um tilvikum um þann tíma sem
tilteknum fyrirtækjum var veittur
til að vinna að breytingum.
Matvælaframleiðendur og inn-
flytjendur eru hvattir til að ganga
úr skugga um að vörur þeirra séu
í samræmi við gildandi reglur.
Þeim ber einning að sjá til þess
að vörur sem ekki uppfylla reglur
verði ekki til sölu að loknum
aðlögunartíma. Sama skylda
hvílir á smásölum.
Breytingar á innlendri fram-
leiðslu og innfluttum vörum
vegna nýrra reglna hafa í flestum
tilvikum tekist vel. Má meðal
annars þakka það góðu samstarfi
innflytjenda, framleiðenda og
eftirlitsaðila. Hollustuvernd ríkis-
ins og heilbrigðiseftirlit sveitar-
félaganna hvetja neytendur til að
leita nánari upplýsinga og koma
athugasemdum á framfæri.
Framleiðendum og dreifingar-
aðilum ber að kynna sér gildandi
reglur og leita ráðgjafar ef þörf er
á, þannig að í framtíðinni verði
aðeins á boðstólummiatvara sem
er í samræmi við settar kröfur.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
litla drengsins okkar,
BJARMARS SMÁRA ELÍASSONAR.
Þökkum sérstaklega Grétu fyrir hennar framlag og elsku móð-
ursystur.
Bjarnheiöur Ragnarsdóttir,
Olafur Ingi Hermannsson,
Stefán Hafstein Gunnarsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
VIGDÍSAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.