Dagur - 16.06.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 16.06.1989, Blaðsíða 7
Gistiheimili opnað í Ytri-Vík á Árskógsströnd í kvöld: Pizzur og smáréttir á opnunarhátíð í Ytri-Vík Tvenn hjón af Árskógssandi ætla að opna gistiheimili í Ytri- Vík á Árskógsströnd í kvöld. Þetta er sjötta sumarið sem íbúðarhúsið í Ytri-Vík er not- að fyrir ferðaþjónustu bænda en eigandi Ytri-Víkur, Sveinn Jónsson í Kálfsskinni, hefur leigt þeim Rafni Gunnarssyni, Bryndísi Friðriksdóttur, Hildi Marinósdóttur og Gylfa Bald- vinssyni reksturinn. Þegar Dagur leit við í Ytri-Vík í fyrrakvöld var verið að leggja síðustu hönd á undirbúning- inn fyrir sumarið. Þær Hildur og Bryndís ætla að hafa ferðaþjónustuna mestmegn- is á sinni könnu í sumar „dyggi- lega aðstoðaðar af eiginmönnun- um“ eins og þær komust að orði. „Já, það má segja að við verðum með þetta jafnframt öðrum störfum,“ segir Hildur en Gylfi bætir við að húsmóðurstarfið á heimilunum verði í höndum eig- inmannana í sumar. Þær stöllur segja að alltaf þurfi að vera ein- hver við í Ytri-Vík til að líta eftir gestum og taka á móti pöntunum þannig að þær verði mikið að heiman. „Ja, við erum nú orðnir svo vanir því að sjá lítið af konunum að það verða lítil viðbrigði fyrir okkur,“ skjóta þeir Rafn og Gylfi inn í en þeir hafa báðir verið á sjó en ætla að helga sig störfum í landi næstu mánuðina, sinna húsverkunum og aðstoða eigin- konurnar þegar á þarf að halda. Bryndís og Hildur segja að margt standi til boða í Ytri-Vík í sumar. Þeir sem vilji gista geti fengið uppábúin rúm eða svefn- pokapláss, kjósi þeir það heldur. Góð eldunaraðstaða sé fyrir hendi og jafnframt geti gestirnir pantað mat en þær munu sjálfar sjá um matseldina. „Skemmtileg vinna framundan,“ segja þær Hildur Marinósdóttir og Bryndís Frióriksdóttir sem, ásamt eigin- mönnunum, reka í sumar gistiheimili í Ytri-Vík á Árskógsströnd. Frá hægri: Rafn Gunnarsson, Bryndís Friðriks- dóttir, Hildur Marinósdóttir og Gylfi Baldvinsson. Mynd: JÓH „Við getum tekið viö allt að 20 manns í mat þannig aö þetta er ekki eingöngu fyrir t'ólk sem vill gista heldur ekki síður fyrir fólk sem vill stoppa á feröalaginu og borða á rólegum og góðum stað. Á sunnudögum ætlum við síðan að vera með kaffihlaðborð og í tengslum við það veröur hér hestaleiga, seglbrettaleiga og sjóskíði, ef veður leyfir. Síðan getur fólk pantað hér kvöldkaffi og komið hér við á kvöldbíltúrn- unt,“ segja þær Hildur og Bryn- dís og bæta við aö framundan sé spennandi verkefni, undirbún- ingurinn hafi veriö skemmtilegur og framhaldið verði örugglega ekki síðra. Árskógsstrendingar geta tekið forskot á þjóðhátíðarsæluna í kvöld því í Ytri-Vík verður opið fyrir alla á opnunarhátið þar sent boðið veröur upp á pizzur og smárétti til sölu. „Þetta verður sko ekkert „prívatpartí" þannig að það er um að gera fyrir fólk að líta hér við og byrja þjóðhátíðina í Ytri-Vík," segja Hildur og Bryndís. " JÓH F ræðslustarf Krabbameinsfélagsins: Flestir reyklausir 9. bekkir á Norðurlandi eystra - margir reyklausir skólar og bekkir Krabbameinsfélagið stendur sem kunnugt er fyrir viðamiklu tó- baksvarnastarfi í grunnskólum landsins. Skipulag þess og megin framkvæmd er í höndunt Krabbameinsfélags Reykjavíkur og starfsmanna þess sem fóru í vetur í 97 grunnskóla víðs vegar unt landið með fræðslu um skað- semi tóbaks og gildi heilbrigðra lífshátta. Starfsmaður Krabba- meinsfélags Akureyrar sem ráð- inn var til þess félags í haust, tók ennfremur mikinn þátt í fræðslu- starfinu á Akureyri og í Eyja- firði. í heild náðu heimsóknir til meira en eitt hundrað skóla og tæplega 14 þúsund nemenda, einkum í 5.-8. bekk. Auk þess voru mörgum skólum lánaðar fræðslumyndir og útvegað fræðsluefni. Það er Happdrætti Krabbameinsfélagsins sem að langmestu leyti stendur undir fræðslustarfi samtakanna. Flestir reyklausir 9. bekkir á Norðurlandi eystra Mikilvægur þáttur í þessu starfi Krabbameinsfélagsins er að fylgj- ast með ástandi tóbaksmála í skólum. Meðal annars leitar fé- lagið upplýsinga um reyklausa bekki og reyklausa skóla. Komu þær að þessu Sinni úr 89 skólum. Eins og í fyrra var leitað sérstak- lega eftir reyklausum 9. bekkjum og voru þeir verðlaunaðir. Aðal- verðlaun voru nokkrar bekkjar- ferðir í Þórsmörk sem Bifreiða- stöð íslands, Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Tóbaksvarna- nefnd gáfu, en auk þess gaf B.S.Í. „hringmiða“ með áætlun- arbifreiðum sínum, tveimur nemendum í hverjum reyklaus- um 9. bekk. Tilkynnt var um 40 bekki og var þriðjungur þeirra á Norður- landi, þar af átta á Akureyri. Norðlensku bekkirnir voru þessir: Norðurlandsumdæmi vestra: 9. bk. Laugarbakkaskóla. Norðurlandsumdæmi eystra: 9. A, 9. B, 9. E og 9. G Gagn- fræðaskóla Akureyrar. - 9. bk. Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar. - 9. J, 9. JE og 9. Ú Glerárskóla Akureyri. - 9. bk. Grenivíkur- skóla. - 9. bk. Grunnskólanum í Lundi Öxarfirði. - 9. bk. Síðu- skóla Akureyri. - 9. bk! Stóru- tjarnaskóla. Dregið var um Þórsmerkur- ferðirnar 8. maí og komu þær í hlut eftirtalinna bekkja: 9. Á. P. Hlíðaskóla Reykjavík, 9. bk. Grunnskóla Eyrarsveitar Grund- arfirði, 9. bk. Grunnskólanum á Hellissandi, 9. B. Gagnfræða- skóla Akureyrar, 9. bk. Greni- víkurskóla, 9. S. J. Gagnfræða- skólanunt Selfossi og 9. bk. Laugalandsskóla Holtum. Reyklausir skólar Nú fékkst staðfest vitneskja um 46 skóla þar sem enginn nemandi reykti. Skólarnir eru teknir á skrá án tillits til aldurs nemenda. Tíu þeirra eru á Norðurlandi og skiptast þannig eftir fræðslu- umdæmum. Norðurlandsumdæmi vestra: Barnaskóli Staðarhrepps (V,- Hún.), Grunnskóli Akrahrepps, Grunnskólinn að Hólum í Hjaltadal og Laugarbakkaskóli. Norðurlandsumdæmi eystra: Grunnskóli Hríseyjar, Grunn- skólinn í Lundi Öxarfirði, Grunnskóli Saurbæjarhrepps, Grunnskóli Svalbarðshrepps, Reyklaus 9. bekkur í Gangfræðaskólanum á Ákurcyri. Þau fengu ferð í Þórsmörk að launuin. Grunnskólinn á Svalbarðsströnd og Oddeyrarskóli Akureyri. Frá 28 skólum á landinu bárust þær upplýsingar að enginn kenn- ari reykti, a.m.k. ekki þeir fast- ráðnu, og í 39 skólum (af þeint 89 sem svöruðu) er alls ekki reykt innan dyra, a.m.k. ekki meðan skólastarf fer fram. Reyklausir 6.-8. bekkir í öðrum skólum Frá skólum sem ekki voru með öllu reyklausir barst fjöldi til- kynninga um reyklausa 6.-8. bekki, þar á meðal þessar frá skólum á Norðurlandi: Norðurlandsumdænti vestra: 6. bk. Grunnskólanum á Blöndu- ósi. - 6. bk. og 7. bk. Grunnskóla Hvammstanga. -6. bk., 7. bk. og 8. bk. Húnavallaskóla. Norðurlandsumdæmi eystra: 6. bk. 6. st. og6. bk. 8. st. Barna- skóla Húsavíkur. - 7. A og 7. X Framhaldsskóla Húsavíkur, grsk.deild. -7. A, 7. B, 7. C, 7. D, 7. E, 7. F, 7. G, 8. A, 8. B, 8. C og 8. G Gagnfræðaskóla Akur- eyrar. - 6. bk. og 7. bk. Gagn- fræðaskóla Ólafsfjarðar. - 6. 17, 6. 18,7. H, 7. M, 7. St, 8. Fog8. S Glerárskóla Akureyri. - 6. 1, 6.2, 7. 1,7. 2, og 8. 1 Síðuskóla Akureyri. - 7. bk. og 8. bk. Skútustaðaskóla. - 6. bk. og 7. bk. Stórutjarnaskóla.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.