Dagur - 16.06.1989, Page 10
ío
mnÁ - wá^áw'tsarm
myndasögur dags /j
ÁRLAND
ANDRES ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
Ég get ekki beðiö\(Sömuleiðis! En mundu
eftir aö koma upp jl að við eigum hér í
um úrþvættið sem H höggi við einstaklega
veiðir hnisur ólög- 3 hættuleg samtök, hver
# Varð
Ásmundur
hræddur við
bændurna?
Eflaust hafa margir veitt því
athygli að Ásmundur Stef-
ánsson, ASÍ forkólfur, hefur
ekki verið áberandi í síð-
ustu aðgerðum launþega-
hreyfingarinnar. Einhverra
hluta vegna þurfti Ásmund-
ur að bregða sér erlendis,
mitt úr mótmælahasarnum
hér heima, en eins og menn
muna mæddi töluvert á hon-
um í aðgerðunum í síðustu
viku þegar hvatt var til þess
að mjólkurvörur yrðu snið-
gengnar í verslunum í þrjá
daga. Mörgum bóndanum
þótti nóg um þessar að-
gerðir og höfðu sumir uppi
hávær mótmæli. S&S hefur
sannfrétt að Ásmundur hafi
orðið illa fyrir barðinu á ey-
firskum bændum einmitt
þann dag sem mótmælin
hófust. Þannig var að
Ásmundur þurfti að bregða
sér í snöggan túr til Akur-
eyrar og ekki vildi betur til
en svo að einmitt í sömu vél
voru stórbændur úr Eyja-
firði. Ekki vildu bændurnir
vera með neinar óspektir í
vélinni á leiðinni norður en
ákváðu þess í stað að reyna
á þolrifin í forsetanum. Nær
alla leiðina reyndu þeir að
telja Ásmund á að fá sér
eina kókómjólkurfernu hjá
flugfreyjunni en án árang-
urs. Ásmundur stóð fastur á
því að sýna gott fordæmi,
sniðganga alfarið mjólkur-
vörur og þar með að hafna
kókómjólk Eyjafjarðar-
bænda. Sagan segir að Ás-
mundur hafi orðið frelsinu
feginn þegar á Akureyrar-
flugvöll kom en ekki hefur
fengist staðfest hvort
skyndileg utanför leíðtoga
verkalýðsins var til að forð-
ast eyfirska bændur eður ei.
# Titilþreyttir
Framarar
Ormarr Örlygsson, knatt-
spyrnumaður úr KA, var i
viðtali við blaðið í gær og
hafði þar á takteinum
skýringar á slæmri byrjun
sinna gömlu félaga í Fram í
deildinni í sumar. Ormarr
telur skýringuna vera titil-
þreytu, allt sigurhungur
vanti í leikmenn. Það verður
því fróðlegt að fylgjast með
Framliðinu í slagnum við
Val á sunnudaginn og sjá
hvort Ásgeir þjálfari hefur
náð upp rétta hungrinu í
liðið. Án efa yrði það KA
mönnum ánægjuefni ef
Framarar ynnu leikinn enda
standa KA menn næstir Val
( deildinni fyrir umferðina
sem hefst í kvöld.
dagskrd fjölmiðla
h
Sjónvarpið
Föstudagur 16. júní
17.50 Gosi (25).
18.15 Litli sægarpurinn.
(Jack Holborn.)
Fimmti þáttur.
18.45 Táknmálsfréttir.
18.50 Austurbæingar.
19.20 Benny Hill.
19.45 Tommi og Jenni.
19.55 Átak í landgræðslu.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Tímaskekkjan.
(Mannen fra stumfilmene.)
Maður frá tímum þöglu kvikmyndanna
birtist í nútíma flughöfn.
Skemmtiþáttur án orða frá norska sjón-
varpinu.
21.00 Valkyrjur.
(Cagney and Lacey.)
22.00 Nótt í París.
(Paris Minuit.)
Frönsk bíómynd frá árinu 1986.
Aðalhlutverk: Frederic Andrei, Isabelle
Texier og Gabriel Cattand.
Innbrot er framið í Parísarborg um mið-
nætti. Skothvellur heyrist og lögreglan
hefur ákafa leit af tveimur ungmennum
sem hafa komist undan á flótta.
23.35 Sykurmolarnir.
(Sugar Cubes, Living Colour and The
Godfathers.)
Upptaka frá tónleikum Sykurmolanna í
Bandaríkjunum í fyrra.
00.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 16. júní
16.45 Santa Barbara.
17.30 Forboðin ást.
(Love on the Run.)
19.19 19.19.
20.00 Teiknimynd.
20.15 Ljáðu mér eyra ...
20.45 Bernskubrek.
(The Wonder Years.)
21.15 Á dýraveiðum.#
(Hatari.)
Stórleikarinn John Wayne er þekktur fyrir
að eltast við bófa og ræningja í Villta
vestrinu á milli þess sem hann sest niður
og fær sér einn gráan á barnum. Það kom
því mörgum á óvart þegar þessi ókrýndi
konungur vestranna birtist í hlutverki
veiðimanns í óbyggðum Afríku þar sem
hann ásamt vinum sínum veiddi villt dýr
til að afla sér tekna.
Aðalhlutverk: John Wayne, Elsa Marin-
elli, Red Buttons og Hardy Kniger.
23.45 Bjartasta vonin.
(The New Statesman.)
00.10 Travis McGee.
Margbrotin spennumynd um afdrif
manns á litlum bát sem ferst. Maðurinn
sem talinn er af var eigandi bátsins en
skipstjórinn er sviptur prófskírteini sínu
og sakaður um vangá í starfi vegna þess
að vin var haft um hönd í bátnum. Skip-
stjórann grunar að einhver innanborðs sé
með óhreint mjöl í pokahorninu og leitar
aðstoðar hjá vini sínum við að koma upp
um hinn seka. Málið tekur brátt nýja og
óvænta stefnu þegar mennirnir fá spurnir
af hinum „látna" í annarri borg og fregna
af hvarfi ungrar stúlku úr bænum á líkum
tíma og bátsverjinn hvarf.
Aðalhlutverk: Sam Ellitt, Gene Evans,
Barry Gorbin og Richard Farnsworth.
01.40 í strákageri.
(Where the Boys Are.)
Fjórar frískar stúlkur leggja leið sína til
Flórída á vit ævintýranna. Takmark þeirra
er að krækja sér í karlmann sem ýmist á
að vera rikur, greindur, hinn eini sanni
eða ástríðufullur elskhugi.
03.10 Dagskrárlok.
# Táknar frumsýningu á Stöð 2.
Rás 1
Föstudagur 16. júní
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl.
7.30.
Lesið úr forystugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Hanna Maria"
eftir Magneu frá Kleifum.
Bryndís Jónsdóttir les (10).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi.
Umsjón: Haraldur Bjarnason.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Sveitasæla.
Umsjón: Signý Pálsdóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit ■ Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar •
Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Eilífsdalur.
13.35 Miðdegissagan: „Að drepa hermi-
kráku" eftir Harper Lee.
Sigurlina Davíðsdóttir byrjar lestur þýð-
ingar sinnar.
14.00 Fréttir.
14.05 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 ísland og samfélag þjóðanna.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Saint-Saéns,
Grieg Bizet.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir ■ Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Lúðraþytur.
21.00 Sumarvaka.
a. íslensk mannanöfn.
Gísli Jónsson flytur síðara erindi sitt.
b. íslensk þjóðlög i flutningi Karlakórs
Reykjavíkur.
c. Menntafrömuður og skáld á Mosfelli.
Fyrri hluti dagskrár í samantekt Gunnars
Stefánssonar um séra Magnús Grímsson,
ævi hans og verk.
Umsjón: Einar Kristjánsson.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins •
Dagskrá morgundagins.
22.30 Danslög.
23.00 í kringum hlutina.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás2
Föstudagur 16. júní
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Morgunsyrpa.
Skúli Helgason.
Rugl dagsins kl. 9.25.
Neytendahorn kl. 10.05.
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
Sérþarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur
kl. 11.03.
Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit - Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
Gestur Einar Jónasson leikur þraut-
reynda gullaldartónhst.
14.05 Milli mála,
Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju
lögin.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars-
dóttir og Ævar Kjartansson.
Kaffispjall og inrúit upp úr kl. 16.00.
Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsend-
ingu kl. 18.03.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Kvöldtónar.
22.07 Síbyljan.
00.10 Snúningur.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
2.00 Fréttir.
2.05 Rokk og nýbylgja.
3.00 Róbótarokk.
4.00 Fréttir.
4.30 Veðurfregnir.
4.35 Næturnótur.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Á frívaktinni.
7.00 Morgunpopp.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 16. júní
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðuriands.
Bylgjan
Föstudagur 16. júní
07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson
með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt-
um og ýmsum gagnlegum upplýsingum
fyrir hlustendur, í bland við góða morgun-
tónlist.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Valdís er með hlutina á hreinu og leikur
góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri
tónlist eins og henni einni er lagið.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin,
gömlu góðu lögin - allt á sínum stað.
Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu.
18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst
þér?
Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt
í umræðunni og lagt þitt til málanna í
síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert
undan og menn koma til dyranna eins og
þeir eru klæddir þá stundina.
Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum.
Fróttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18.
Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Mein tónlist - minna mas.
20.00 Ólafur Már Björnsson.
Kynt undir helgarstemmningunni í viku-
lokin.
22.00 Haraldur Gíslason.
Harðsnúni Halli kann „helgartökin" á
tónlistinni. Óskalög og kveðjur í símum
681900 og 611111.
02.00 Næturdagskrá.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 16. júni
17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger-
ast í menningu og listum um helgina á
Akureyri.
Stjórnendur eru Pálmi Guðmundsson og
Axel Axelsson.
Fréttir kl. 18.00.