Dagur - 06.07.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, fímmtudagur 6. júlí 1989 126. tölublað
Loðdýravandinn ræddur á Akureyri í gær:
Rætt um að afskrifa
hluta af lánum við
Stofnlánadeildina
Eldur varð laus í þessu húsi við Lögbergsgötu í gær.
Mynd: l£HB
Eldsvoði í íbúðarhúsi við Lögbergsgötu á Akureyri:
Hundruða þúsunda króna tjón
af völdum reyks og sóts
- húseigandinn, maður á níræðisaldri,
hringdi á slökkviliðið þegar húsið var að fyllast af reyk
„Það hei'ur nú ekki verið tekin
pólitísk ákvörðun um það að
leggja loðdýraræktina niður.
Það má segja að þær pólitísku
ákvarðanar sem teknar hafa
verið frain að þessu, á síðasta
ári og í byrjun þessa árs, hafi
lotið að hinu gagnstæða, að
tryggja framgang grcinarinnar.
En hinu er ekki að neita að
menn hafa upp á síðkastið
neyðst til aö endurmeta stöð-
una af þcim sökum m.a. að
það hefur verið Ijóst að þær
ráðstafanir sem gripið hefur
verið til myndu ekki duga,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
landbúnaðarráðherra, að
afloknum fundi á Akureyri í
gær með stjórn Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins, forstjóra
Byggðastofnunar og formanni
stjórnar Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins. Á fundinum var
ræddur sá gríðarlegi vandi sem
loðdýraræktin í landinu stend-
ur frammi fyrir.
Stofnlánadeild ásamt Byggða-
stofnun og Framleiðnisjóði eiga
mikilla hagsmuna að gæta í loð-
dýraræktinni. Stefán Valgeirs-
son, formaður stjórnar Stofn-
lánadeildar, sagði í samtali við
Dag eftir fundinn í gær, að frá
Stofnlánadcild hefðu runnið hálf-
ur annar milljarður til greinarinn-
ar, þar af 1300 milljónir til upp-
byggingar loðdýrabúanna og um
200 milljónir til fóðurstöðva.
Stefán sagði að í sínum liuga
kæmi ekkert annað til greina en
að finna þá lausn á vanda loð-
dýraræktarinnar sem fleytt gæti
henni yfir öldudal sem hún væri
nú í. Hann tók fram að það mikl-
ir fjármunir væru bundnir í loð-
dýraræktinni að versti kosturinn í
stöðunni væri að leggja árar í bát.
Stefán sagði að sér virtist menn
hafa almennt verið sammála um
þetta á fundinum í gær. Hann
sagði ekki ráðið til hvaða að-
gerða yrði gripið en stjórn Stofn-
lánadeildar kæmi aftur saman til
fundar í næstu viku og þá yrðu
málin áfram rædd.
Landbúnaðarráðherra sagði að
menn stæðu vissulega frammi fyr-
ir því að hluti fjárins sem lagður
hafi verið í loðdýraræktina væri
tapaður og menn veltu því þeirri
spurningu fyrir sér með hvaða
hætti ætti að gera dæmið upp.
Hann sagði að menn væru m.a.
að ræða um hvort ekki yrði að
afskrifa hluta lána til loðdýra-
ræktarinnar ef það mætti verða til
þess að einhver hluti greinarinnar
gæti haldið áfram. óþh
Slökkvilið Akureyrar var kall-
að að Lögbergsgötu 9 klukkan
10.08 í gærmorgun. Þá var eld-
ur laus í íbúð á neðri hæð húss-
ins og mikill reykur í íbúð á
efri hæð. Ekki urðu slys á fólki
en skaðinn af völdum elds og
reyks nemur vafalaust mörg
hundruð þúsund krónum.
Þegar slökkviliðsmenn komu á
vettvang stóðu íbúar hússins úti á
götu. Eigendurnir, hjón á
níræðisaldri, búa á efri hæðinni
og geröu þau viðvart. Neðri hæð-
in var leigð út til ungrar konu,
sem bjó þar ein meö barn sitt.
Eldurinn mun að öllum líkindum
hafa kviknað út frá cldavél á
neðri hæðinni.
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri, sagði aö fljótt
og vel hefði gengið að ráða niður-
lögum eldsins, burtséð frá glóð
sem leyndist í einangrun í timb-
urgóifi milli hæða. Gólfiö var ein-
angrað með hefilspónum.
„Við urðum að rífa gólfið ncð-
an frá til að komast fyrir þetta.
Hefilspænir eru ekki það besta í
slíkum tilvikum en þó skárri en
reiðirjgur, í honum getur lifað
langtímunum saman. Þarna fór
betur en á horfðist, eldurinn var
ekki þaö mikill en þaö tekur allt-
af lengri tíma aö rífa og leita af
sér allan grun," sagði slökkviliðs-
stjóri.
Vakt var við húsiö fram yfir
hádegi. Slökkviliðsmenn með
reykköfunarbúnað leituðu af sér
allan grun um að fleiri væru inn-
an dyra, en á efri hæðinni sást
ekki handa skil vegna reyks.
Mikiö sót er í húsinu og tjón liel'-
ur orðið tilfinnanlegt. EHB
Ibúðir aldraðra við Víðilund:
„Kemur mér verulega á óvart ef beita á dagsektum“
- Magnús Garðarsson: Lyftan ræður ekki úrslitum
- segir
„Málið er einfalt, frá okkar
hendi getur fólkið flutt inn í
60% af húsinu, í þrjár efstu
hæðirnar,“ sagði Gísli Bragi
Hjartarson, einn eigenda
Híbýlis hf, en nokkrar tafir
hafa orðið á afhendingu íbúða
aldraðra við Víðilund á Akur-
eyri frá því sem upphaflega var
ætlað. Þeirri spurningu hefur
verið velt upp hvort beita eigi
fyrirtækið dagsektum.
Gísli Bragi sagði að jafnvel
þótt Híbýli hefði skilað húsinu
fyrr þá hefði flutningur fólks í
íbúðirnar strandað verulega á
lyftunni, sem ekki er komin upp
ennþá. Umrædd lyfta er á verk-
sviði Framkvæmdanefndar um
íbúðabyggingar aldraðra við
Gisli Bragi Hjartarson
Víðilund. Magnús Garðarsson
hefur yfirumsjón með fram-
kvæmdum fyrir nefndina sem
byggingaeftirlitsmaður.
„Það er álitamál hversu mikinn
rétt við eigum á framlengingu
vegna ýmissa teikninga og
hönnunar, sem ekki lágu fyrir, og
breytinga, eins og oftast kemur
fyrir við húsbyggingar. Það varð
þegjandi samkomulag um hálfan
mánuð fyrst, en okkur fannst það
ekki nægilegt. Mér kemur það
mjög á óvart ef ákveðið verður
að setja dagsektir á verkið hjá
okkur meðan að þeirra vegna er
ekki hægt að flytja inn í húsið því
lyftuna vantar. Þá væri verið að
fara aftan að hlutunum, finnst
mér,“ sagði Gísli Bragi.
Magnús Garðarsson segist ekki
vera sammála Gísia Braga um að
lyftuleysið sé veruleg hindrun
fyrir gamla fólkið. „Lyftan á ekki
að ráða úrslitum um hvort fólk
kemst inn eða ekki. Ef húsið
hefði verið til þá hefði það eflaust
viljað taka á sig smávegis óþæg-
indi við að ganga upp stigana.
Margt af þcssu fólk býr í
blokkum, sumt á 2. eða 3. hæð,
og gengur þar upp og niður á
hverjum degi,“ sagði hann.
Varðandi þrjár efstu hæðir
hússins segir Magnús að búið sé
að taka tvær efstu hæðirnar út og
þar sé eftir að ganga frá ýmsum
smærri atriðum. Þriðja hæðin
verði líkast til tckin út í dag en
tvær neðstu hæðirnar vonandi
fyrir miðjan mánuðinn.
Hvað lyftumálið snertir upp-
lýsti Magnús að menn heföu full-
ýrt að ekki tæki nema tvær til
þrjár vikur að fá inn tilboð í lyft-
una. Annað hefði þó komið í
ljós, og verulegar tafir orðið á
afhendingunni.
Ef framkvæmanefndin ákveð-
ur að beita Híbýli dagsektum er
um tímamótaákvörðun að ræða,
þar sem slíkt hefur alls ekki
almennt tíðkast til þessa á Akur-
eyri, þótt verktakar séu á eftir
áætlun með verklok. Að sögn
Magnúsar er kjarni málsins í
þessu tilviki spurningin um hvort
fólk skaðist vegna tafa á verklok-
um. „Nefndin tekur væntanlega
afstöðu til þess hvort hún ætlar
að beita dagsektum eða ekki,“
sagði hann. „Það er hófleg bjart-
sýni að segja mönnum að þeir
gcti fengið íbúöir afhentar hálf-
um mánuði eftir að vektaki hefur
skilað af sér. Það hefur sýnt sig
að verktakar eru meira og minna
á eftir hérna og ég mun stefna að
því að vara fólk við í síðara hús-
inu þannig að það fari ekki að
selja ofan af sér of snemma."
Sigurður Ringsted, formaður
framkvæmdanefndarinnar, hafði
samband við væntanlega íbúa í
Víðilundi þegar ljóst varð að
íbúðirnar yrðu ekki tilbúnar á
þeim tíma sem umsamið var.
Ekki ntunu nema þrír til fjórir
aðilar vera í verulegum vandræð-
um vegna þessa. EHB