Dagur - 12.07.1989, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 12. júlí 1989 - DAGUR - 5
^faviöskipti og veitum
á sviði fjármála
• Sími 96-24700
lesendahornið
Um gúrkutíð og teiti
Hávaði í SjaUaimm
„Nýlega birtist frétt í Degi þar
sem rætt var viö Ólaf Laufdal um
veitingahúsið Sjallann. Hann
sagði að reksturinn væri þungur
og það þætti hreinlega ekki fínt
lengur að fara út að borða. Ég er
sannfærður um að ein af ástæð-
unum fyrir minnkandi aðsókn er
hávaðinn. Hljómsveitir sem leika
fyrir dansi fremja yfirþyrmandi
hávaða þannig að vonlaust er að
tala saman nema að kalla upp í
eyra þess sem ræða á við. Svo er
það lagavalið. Um 80-90% af lög-
unum er svokölluð graðhesta-
músík, þar sem parið stiklar sitt í
hvoru lagi sér og öðrum til leið-
inda. Ég vil því skora á hljóm-
sveitir að bæta lagavalið og
minnka hávaðann og þá mun
aðsókn aukast á ný.“
Þakkir fyrir
skemmtíférð
„L“ skrifar:
„Mig langar til að þakka fyrir
dásamlega ferð sem var farin
með gamla fólkið í Hlíð og
Skjaldarvík fyrir skömmu. Þetta
var skemmtiferð, og var farið í
Blómaskálann Vín og upp að
Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. Sér-
staklega vil ég þakka Helgu
Frímannsdóttur fyrir frábæra
þjónustu og liðlegheit við okkur
gamla fólkið við þetta tækifæri,
en hún var fararstjóri."
Stefán Karlsson íslenskufræð-
ingur hringdi og sagðist hafa les-
ið lesendabréf frá Ingimar Ey-
dal, þar sem hann hélt því fram
að orðið gúrkutíð væri rammís-
lenskt fyrirbæri sem ætti rætur að
rekja til auglýsingarherferðar
Sölufélags garðyrkjumanna fyrir
20 árum.
Að sögn Stefáns er orðið
gúrkutíð ættað úr þýsku, þar sem
talað er um „saure gurken zeit,“
eða súrgúrkutíð. Orðasambandið
er myndað af kaupmönnum í
Berlín og notað um sumarið,
þegar gúrkur voru aðalmatur
Berlínarbúa. Síðar er farið að
nota þetta um sumar yfirleitt og
alveg sérstaklega í blaðamáli. í
þeirri merkingu er það komið inn
í dönsku um aldamótin, agurke-
tid, um sumarið sem þann tíma
þegar lítið er um fréttir, vegna
sumarleyfa stjórnmálamanna og
annarra. Aðeins í þessu sam-
bandi er orðið notað í dönsku og
þaðan er orðið komið til íslands,
líklega ekki fyrr en á seinni
árum. Notkunin hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna er auðvitað í
fullu samræmi við upphaflega
Hættuleg rólurenni-
braut í Kjama
Ijós hér í lesendahorninu.
Síminn er 24222
Ung kona kom á ritstjórnarskrif-
stofu Dags fyrir stuttu og vildi
koma á framfæri kvörtun vegna
rólurennibrautar í Kjarnaskógi.
Hún hafði farið þangað kvöldið
áður og í róluna. Þegar hún síðan
var komin út á enda slengist hún
með andlitið í keðju sem heldur
dekkinu, sem setið er á, uppi.
„Ég er með gleraugu og glerið
í þeim brotnaði og skarst í annað
augnlokið á mér og það þurfti að
sauma. Mér finnst þetta bilun,
það er ætlast til að börn leiki sér
í þessu og svona er tækið stór-
hættulegt. Ég ætlast þó ekki til að
tækið verði tekið niður, heldur
væri hægt að lagfæra róluna svo
hún verði ekki neinum til skaða.“
merkingu orðsins í Þýskalandi.
En að gúrkutíð merki upphaflega
gott ástand á markaðinum og
ekki hið gagnstæða, segir Stefán
ekki vera rétt.
Varðandi ábendingu sem birt-
ist sama dag í blaðinu frá mál-
rækt '89, vildi Stefán benda á að
talið væri réttara að tala um teiti
í kvenkyni. í ábendingunni er tal-
að um „venjulegt teiti" þar sem
réttara er að segja „venjulega
teiti“. í orðabók Menningarsjóðs
er teiti gefið upp sem kvenkyns-
orð en þó en hvorugkynsmyndin
j sviga. Hún er því ekki alröng.
íslenskukennarar hafa hins vegar
að sögn Stefáns lengi barist við
að koma kvenkynsmyndinni inn
hjá nemendum sínum.
Blessaðar agúrkurnar hafa stundum komið fréttamönnum til bjargar í tíðinni
sem heitin er í höfuðið á þessu ágæta grænmeti.
Þetta leiktæki er storhættulegt að mati lesanda.
Við hvetjum lesendur
til að koma úr felum og láta
skoðanir sínar í
AKUREYRARB/ER
Jafnréttisráðgjafi
Jafnréttisnefnd Akureyrarbæjar auglýsir
laust til umsóknar starf jafnréttisráðgjafa.
Helsta verkefni ráðgjafans er að vinna að fram-
kvæmd jafnréttisáætlunar sem bæjarstjórn sam-
þykkti 6. júní sl. Tilgangur jafnréttisáætlunar
Akureyrarbæjar er að jafna stöðu karla og
kvenna á vinnumarkaði Akureyrar. Ráðgjafinn
mun einnig vinna önnur verkefni fyrir jafnréttis-
nefnd og veita jafnréttisráðgjöf fyrirtækjum, stofn-
unum og einstaklingum á Akureyri.
Um er að ræða 50% starf, en gert er ráð fyrir að
í upphafi geti verið um að ræða hærra starfshlut-
fall, tímabundið. Einnig er mögulegt að viðkom-
andi geti átt kost á hlutastarfi til viðbótar hjá
starfsmannadeild. Ráðningartími fer eftir sam-
komulagi og laun eru samkvæmt kjarasamningi
Akureyrarbæjar og STAK.
Meirihluti þeirra sem nú gegna ábyrgðarstöðum
hjá Akureyrarbæ eru karlar, og eru konur því
hvattar til að sækja um.
Krafist er a.m.k. þriggja ára háskólanáms í félags-
vísindum, sálfræði, uppeldisfræði eða sambæri-
legum greinum. Einnig verður umsækjandi að
eiga auðvelt með, og hafa ánægju af, að vinna
með öðru fólki.
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður
Jafnréttisnefndar, Aðalheiður Alfreðsdóttir í síma
96-22879 eftir kl. 20.00 eða starfsmannastjóri
Akureyrarbæjar í síma 96-21000.
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst og skal umsókn
send undirrituðum á umsóknareyðublöðum sem
fást hjá starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, s. 96-21000.
Starfsmannastjóri.
Tegund bréfs Vextir umfram verðtryggingu
Einingabréf 1,2 og 3 8,3-12,5%
Bréf stærri fyrirtækja 9,0-11,5%
Bréf banka og sparisjóða 7,0-8,0%
Spariskírteini ríkissjóðs ... 5,5-6,0%
Skammtímabréf 8,0-8,5%
| Hlutabréf ?
Gengi Einingabréfa
12. júlí 1989. Einingabréf 1 4.031,-
Einingabréf 2 2.235,-
Einingabréf 3 2.631,-
Lífeyrisbréf 2.027,-
Skammtímabréf .. 1,387
Verbbréf er eign
sem ber arb
,-------------------------------v
Dýnur — Dýnur!
Rúmdýnur allar stærðir.
Heilsudýnur, tjalddýnur, dýnur í
hjólhýsi og tjaldvagna.
Svampur og bólstrun,
Austursíða 2, sími 25137.
Ath. Lokaö frá 1.-21. ágúst.