Dagur - 12.07.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 12. júlí 1989 - DAGUR - 7
Svava Víglundsdóttir í veitingasal Hótel Tanga. Þess má geta að hótelið útvegar ferðmönnum
báta fyrir sjóstangaveiði.
steinar á borð við japis, bergkrist-
alla og amityst. Við búum til
ýmsa skrautmuni, nytjamuni,
skrautsteina, legsteina og fleira.
Legsteinarnir hafa farið mikið til
Akureyrar auk Austfjarða og
framleiðsla á þeim fer vaxandi.
Einnig erum við með erlenda
steina til sölu hjá Álfasteini,"
sagði Helgi.
Hann sagði að fyrirtækið hefði
hafið starfsemi á árinu 1982 í 40
fermetra húsnæði og þá voru
tveir starfsmenn við framleiðsl-
una.
„Nú erum við í 150 fermetrum
og það rými er orðið of lítið. Sér-
staklega vantar okkur pláss fyrir
fleiri vélar. Nú eru hér 8-9 störf í
Álfasteini og er þetta því orðin
mikil atvinnugrein miðað við
íbúafjölda," sagði Helgi, en í
Borgarfirði eystra búa um 220
manns.
Hann sagði að 5000 ferðamenn
hefðu komið í steiniðjuna árið
1987, sami fjöldi árið 1988 og
hann átti von á því að aðsóknin
myndi frekar aukast en hitt á
þessu ári. Fjöldi pantana hefur
líka aukist mjög og ekki hægt að
sinna þeim öllum því stundum
panta menn muni með skömmum
fyrirvara.
Miklar endurbætur
á Hótei Tanga
Margt fleira er að sjá í Borgar-
firði og nágrenni sem ekki er rúm
fyrir að geta hér. Við litum þó
hið fjölskrúðuga fuglalíf í Hafn-
breið að Dyngjujökli og Kverk-
fjöllum og til baka niður Fljóts-
dalinn. Þar mátti sjá hrikalegt
gljúfur Jökulsár, stórbýlið
Skriðuklaustur, Hengifoss og
fleiri áhugaverða viðkomustaði.
„Fjölbreytnin er helsta
aðdráttarafliðu
En eftir hverju eru ferðamenn
sem koma til Austurlands og
Austfjarða helst að sækjast?
Rúnar Pálsson svarar þeirri
spurningu:
„Ég tel að helsta aðdráttarafl
Austfjarðanna og Austurlands sé
fjölbreytnin. Maður þreytist
aldrei á að skoða fjöll og firnindi
hér. Hver fjörður hefur sín ein-
kenni og líkist jafnvel ekki þeim
næsta. Héraðið býður upp á þá
stórkostlegu möguleika að geta
byrjað við sjó og rúllað alveg upp
á ískaldan jökul, jafnvel allt í
einni dagsferð ef menn kæra sig
úm.
Það sem hefur háð Austfjörð-
um við að kynna sig opinberlega
er sú staðreynd að það er svo erf-
itt að draga út einn þátt frekar en
annan. Hér eru margir gullfalleg-
ir staðir. Menn hafa nefnt Borg-
arfjörð, hér eru glæsilegir fossar
á Héraði á borð við Hengifoss,
þar sem hægt er að lesa jarðsög-
una í berginu. Neðar í ánni er
minni foss og hann er þannig
uppbyggður í stuðlabergi að það
er eins og maður sé að horfa inn
í risastórt pípuorgel. Þetta hefur
áhrif á menn, jafnvel þótt þeir
í Álfasteini hf. er mikið úrval fallegra steina, innlendra og erlendra, og einnig alls kyns skraut- og nytjamunir.
arhólma augum áður en haldið
var á næsta áfangastað, Vopna-
fjörð, þar sem maturjnn á Hótel
Tanga freistaði.
Hótel Tangi er gott dæmi um
það hverju atorkusöm úng hjón
geta fengið áorkað. Svava Víg-
lundsdóttir og eiginmaður henn-
ar höfðu rekið hótelið, sem upp-
haflega var verbúð, í nokkur ár
er þau ákváðu að kaupa það og
endurbæta. Pær endurbætur hafa
verið framkvæmdar af miklum
stórhug eins og sjá má þegar
komið er inn í anddyrið og vist-
legan veitingasalinn, en þó hvílir
persónulegur blær yfir hótelinu
og greinilega ekki verið að apa
eftir stórhótelum Reykjavíkur.
„Næst á dagskrá er að taka
herbergin í gegn og eftir áramót,
eða á miðju næsta ári fáum við
skrifstofuhúsnæðið hérna niðri
en við höfum ekki ákveðið
hvernig við breytum því. Senni-
lega liggur beinast við að stækka
veitingasalinn,“ sagði Svavav
Frá hinum veðursæla Vopna-
firði lá leiðin með Flugfélagi
Austurlands yfir Möðrudalsöræf-
in inn hálendið framhjá Herðu-
hafi ekki snefil af neinu sem heit-
ir náttúruunnun. Þetta eru bara
nokkur dæmi, við höfum ekki
Gullfoss og Geysi eða Ferða-
málaráð til að auglýsa slíkt.
Jökullinn á Hornarfirði er líka
glæsilegur, svo er Hallormsstaður
og góða veðrið. Útlendingar eru
hrifnir af Hallormsstaðarskógi
þegar þeir vita af hverju hann er
þar- einn og yfirgefinn í auðn-
inni.“
Ferðamálaráð fær ekki
lögbundna fjárveitingu
- Hvernig gengur sveitarfélögum
að sinna ferðamannaþjónustu?
„Það eru ákveðnir erfiðleikar
sem fylgja þessu gagnvart sveitar-
félögunum. Þau eru misjafnlega
vel sett fjárhagslega og mörg
þeirra telja sig hafa mismunandi
mikilla hagsmuna að gæta, en öll
hafa þau mikilla hagsmuna að
gæta. Ferðafólkið fer um allt.
Vegna fjárhagslegra erfiðleika
hjá mörgum sveitarfélögum hef-
ur þessi þáttur í uppbyggingu
atvinnulífs orðið útundan. Það
eru helst einstaklingar og fyrir-
- En er ekki einhver yfirstjórn
í þessum málum, Ferðamálafélag
eða Ferðamálaráð?
„Ferðamálasamtök sem byggð
hafa verið upp í kringum okkur
hafa að hluta til verið hugsuð sem
einhvers konar leiðbeiningarfyr-
irtæki cn það er eins með þau og
önnur félagasamtök að þau þurfa
fjármagn til aö lifa. Þessi ferða-
málasamtök byrjuðu öll á því að
reyna að koma hlutunum af stað
en flest þeirra skortir úthald til að
halda áfram vegna fjárskorts.
Þess vegna þykir mér sárt til þess
að vita hvernig Ferðamálaráð
íslands er meðhöndlað, en það
fær ekki nema brot að þeim fjár-
veitingum sem við teljum vera
lögbundnar. Hefði Ferðamálaráð
fengið þá peninga sem því var
ætlað þá væru ekki einungis fleiri
ferðamenn hér sem eyddu meiri
peningum heldur væri landið
miklu fegurra og betra en ella því
það hefur alveg skort fjármagn til
þess að undirbúa komu ferða-
manna. Landið þolir miklu fleiri
ferðamenn en undirbúningurinn
þarf að vera í lagi,“ sagði Rúnar Helgi Arngrímsson, framkvæmdastjúri Álfasteins, segir að uinSOOO manns heimsæki steiniðj-
að lokum. SS una árlega. Mýndir: ss
Þetta er flugstöð Borgfírðinga, lítil en skemmtileg.
tæki sem hafa reynt að rífa sig út
úr þessu, en þjónustan er dýr í
uppbyggingu og menn gera ekk-
ert annað á meðan. Þeir hafa
ekki efni á að koma sér á fram-
færi. . Það er kannski inesta
vandamálið í ferðamannaþjón-
ustu í dag, skipulagning á kynn-
ingu og það að koma sér á fram-
færi.“