Dagur - 12.07.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 12. júlí 1989
Ferðamálaráð íslands
er 25 ára um þessar
mundir og af því tilefni
hefur ráðið staðið fyrir
sérstakri kynningu á
ferðamannastöðum
innanlands í samvinnu
við heimamenn á
hverjum stað. Dagur
fór í kynnisferð til
Austurlands og
kannaði hvað
Egilsstaðir,
Hallormsstaður,
Borgarfjörður eystri
og Vopnafjörður hafa
upp á að bjóða fyrir
ferðafólk í
sumarskapi.
Mikið og fjölskrúðugt fuglalíf er í Hafnarhólma í Borgarfirði eystra og vakti sérstaka athygli að ritan var svo gæf að nærri mátti klappa henni. Hins vegar
lögðu menn ekki i það að klappa fýlnum.
Feréamnmtéir á Austurlani
- heimsókn til Egilsstaða, Hallormsstaðar, BorgarQarðar og Vopnaijarðar
að hina rómaða Atlavík. Lögur-
inn teygir sig upp Fljótsdalinn,
þetta frjósama hérað sem menn
binda miklar vonir við í sam-
bandi við skógrækt.
Milli trjánna í Hallormsstaðar-
skógi, voldugra trjáa á íslands-
vísu, leynist Hótel Edda Hall-
ormsstað. Þar eru 17 rúmgóð
tveggja manna herbergi og auk
þess svefnpokapláss fyrir um 60
manns í skólastofum og. á her-
bergjum. Einnig er þar aðstaða
fyrir funda- og ráðstefnuhald, svo
og árshátíðir og ýmsar veislur.
Veitingasalur Hótel Eddu
Hallormsstað tekur um 100
manns í sæti. Hann er opinn frá
kl. 8 á morgnana til 23 á kvöldin.
í sumar er að venju boðið upp á
kalt borð á laugardagskvöldum,
þar sem finna má úrval fisk- og
kjötrétta, og öll önnur kvöld og í
hádeginu getur fólk valið sér sér-
rétti af matseðli. Á sunnudagseft-
irmiðdögum er boðið upp á kaffi-
hlaðborð og útbúnar eru veislur
fyrir einstaklinga og hópa.
Borgarfjörður eystri
Það er fallegt á Austfjörðum og
gaman að fljúga þar yfir og inn
yfir hálendið. Flugfélag Austur-
lands á nú þrjár tveggja hreyfla
flugvélar. Við fórurn í loftið á
Egilsstöðum og stefnan var tekin
á Borgarfjörð eystri. Flogið var
yfir Fljótsdalshéraðið og út á
Héraðsflóa þar sem Jökulsá á
Brú og Lagarfljót renna til sjávar
í sameiginlegum farvegi. Hin
ljósu, austfirsku líparítfjöll sáust
vel, flogið var fram hjá Njarðvík
og inn Borgarfjörð eystri þar sent
þorpið Bakkagerði var viðkomu-
staður. Yfir staðnum gnæfa hin
tignarlegu Dyrfjöll. Jóhannes S.
Kjarval ólst upp í Borgarfirði og
víða má sjá Dyrfjöll í verkum
hans svo og önnur fjöll, einnig
álfana en álfabyggð er mikil á
þessum slóðum t.d. í Álfaborg.
Þar er sagt að álfadrottning Is-
lands búi. í Kirkjusteini í Kækju-
dal er álfakirkja og álfabiskupinn
býr í Blábjörgum, stuðlabergs-
hömrum milli Húsavíkur og Her-
jólfsvíkur.
Jarðfræði í Borgarfjarðar-
hreppi er kapítuli út af fyrir sig.
Fjöllin í kringum Borgarfjörð
eystra eru meðal þeirra elstu á
íslandi, um 10-15 milljón ára
gömul. Mikið er af líparíti á
svæðinu, ekki aðeins hraun held-
ur einnig gjóska og flykruberg
eins og t.d. í Hvítserki. Ludwig
Eckardt jarðfræðingur segir í
bæklingi að þetta bendi til geysi-
legra sprengigosa sem hafa átt sér
stað á þeim tíma er stór megin-
eldstöð myndaðist. Þessi megin-
eldstöð er næststærsta líparít-
svæði á íslandi. Dyrfjöllin eru
líklegast hluti þessarar megineld-
stöðvar.
Steiniðjan Álfasteinn hf.
Austfirðir eru þekktir fyrir fal-
lega steina og í steiniðjunni Álfa-
steini hf. í Borgarfirði eystra er
ógleymanlegt að litast um. Álfa-
steinn er vaxandi fyrirtæki og var
Helgi Arngrímsson framkvæmda-
stjóri spurður nánar um fram-
leiðsluna.
„Við notum mest borgfirskt
grjót. Um 70-80% framleiðslunn-
ar er venjulegt fjörugrjót, sagað
og slípað, en hér eru líka dýrari
Rúnar Pálsson er umboðsmað-
ur Flugleiða á Egilsstöðum og
jafnframt formaður Ferðamála-
félags Austurlands. Hann tók að
sér fararstjórn og benti á ýmsa
möguleika sem í boði eru fyrir þá
sem komnir eru til Egilsstaða.
Kaupstaðurinn er að mörgu leyti
miðdepill Austurlands. Þaðan
liggja vegir í allar áttir og á Egils-
stöðum er gott gistirými, mat-
sölustaðir, verslanir og mikið
skemmtana- og menningarlíf. Til
dæmis má geta þess að fyrir
skömmu voru fimm málverka-
sýningar í gangi á Egilsstöðum og
um síðustu helgi var þriggja daga
djasshátíð í Hótel Valaskjálf.
Hótel Yalaskjálf og
Hótel Edda Hallormsstað
Hótel Valaskjálf er landsþekkt
hótel og á síðustu misserunt hef-
ur staðurinn aukið hróður sinn
sem fyrirtaks matsölustaður.
Auk gistiherbergja í Valaskjálf
býður hótelið upp á gistingu í
Menntaskólanum á Egilsstöðum,
en að sögn Rúnars Pálssonar var
þessi heimavistarskóli sérstak-
lega hannaður með það í huga að
nýtast sem sumarhótel. Hótel
Valaskjálf hefur því yfir miklu
gistirými að ráða og þar er einnig
stór salur fyrir dansleikjahald,
skemmtanir og ráðstefnur. Hót-
elstjóri er Sigurborg Hannesdött-
ir.
Hallormsstaðarskógur, stærsti
skógur landsins, er spottakorn
frá Egilsstöðum og þar er auðvit-
Rúnar Pálsson, ferðamálafrömuður á Egilsstöðum, gefur flugmanni Flugfélags Austurlands góð ráð.