Dagur - 12.07.1989, Síða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 12. júlí 1989
ÁRLAND
ANDRES ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
# Á haugunum
Margir eru þeir sem leggja
leið sína á öskuhauga Akur-
eyrarbæjar. Flestir fara til að
henda rusli, en aðrir fara til
að tína rusl. Annars væri
ekki rétt að kalla allt rusi
eða sorp sem á haugunum
er að finna, og sumir hafa
jafnvel efnast á sorphauga-
ferðum. Eldra fólk man ef-
laust eftir Pétri Salómons-
syni Hoffmann, sem þræddi
öskuhauga Reykjavíkur í
mörg ár. Hann fann víst
bæði silfur og gull, fyrir
utan kopar, og lét m.a. slá af
sér mynt á sinum tíma úr
góðmálmum. Það er þó ekki
ætlunin að rifja þetta upp
hér heldur segja sögur af
manni sem var með „hauga-
æði“ á árum áður, og þótti
mörgum nóg um, ekki síst
eiginkonunni.
# Nýtt sjónvarp
Maður þessi var fyrir löngu
búinn að fylla allar geymsl-
ur af gersemum af haugun-
um. Kvöld eitt voru hjónin
að horfa á sjónvarpið og
biðu þau eftir skemmtiþætti
sem átti að hefjast hálftíma
síðar. Þá heyrðist brestur í
sjónvarpinu og blár reykur
liðaöist aftan úr tækinu.
Húsfreyjan fórnaði höndum
og sagði eitthvað á þá leiö
að lítið yrði úr skemmtun
þetta kvöldið; sjónvarpið
ónýtt. Húsbóndinn gerði lít-
ið úr þessu en sagðist þurfa
að skreppa út. 20 mínútum
seinna kom hann aftur með
sjónvarp, skellti því í hill-
una, þurrkaöi af því óhrein-
indin og kveikti á. Tækið var
í góðu lagi, þótt það væri
komið til ára sinna og væri
svarthvítt. Að sjálfsögðu
ferskt af haugunum.
# Segulbandið
Nokkru síðar átti heimil-
isvinur hjónanna fimmtugs-
afmæli og gaf söguhetja
okkar afmælisbarninu kass-
ettusegulbandstæki af því
tilefni. Afmælisbarnið dá-
samaði gjöfina í bak og fyrir
og kvað þetta alltof dýra
gjöf, hann ætti þetta engan
veginn skilið. „Uss, þetta er
nú ekkert, ég hirti það á
haugunum í gærkvöld,"
sagði þá söguhetjan að
bragði.
• Úriö
Maður nokkur á Akureyri
var að stíga í vænginn við
stúlku og vildi gefa henni
einhverja góða gjöf. Hann
var eitt sinn staddur i húsi
og hafði fengið sér í glas.
Tók hann þá forláta borð-
kveikjara af stofuborðinu og
stakk inn á sig. Seinna um
kvöldið gaf hann umræddri
stúlku kveikjarann. Daginn
eftir kom vinkona hennar f
heimsókn og þekkti þá aftur
kveikjarann góöa sem horf-
íð hafði í samkvæminu, því
hann var eign hennar. Eitt-
hvað minna varð úr sam-
skiptum „kærustuparsins“
eftir þetta.
Héraðsmót UMSE:
Svarfdælir sigruðu
1 *X • X #X / •• X
þnðja anð 1 roð
Héraðsmót UMSE var haldið
á Akureyrarvelli um síðustu
helgi. Þar kepptu sjö félög í
karla og kvennaflokkum og
sigraði Ungmennafélag Svarf-
dæla þriðja árið í röð. í öðru
sæti varð Æskan og í því þriðja
Ungmennafélagið Þorsteinn
Svörfuður. Besta afrek móts-
ins var spjótkast Sigurðar
Matthíassonar en hann kastaði
69,20 metra. Sigurður tók
einnig þátt í kringlukasti og
kúluvarpi og sigraði í þeim
greinar báðar.
Önnur félög sem þátt tóku
voru Umf. Skriðuhrepps, Umf.
Framtíðin, Umf. Árroðinn og
Umf. Reynir. Þannig varð röð
efstu manna í hverri grein:
Konur:
100 m hlaup: sek.
1. Snjólaug Vilhelmsdóttir Sv. 14,0
2. Þóra Einarsdóttir Sv. 14,1
100 m grindahlaup: sek.
1. Þóra Einarsdóttir Sv 17,4
2. Jónína Garðarsdóttir Árr 20,5
200 m hlaup: sek.
1. Snjólaug Vilhjálmsdóttir SV. 28,0
2. Þóta Einarsdóttir Sv 28,4
400 m hlaup: sek.
1. Snjólaug Vilhelmsdóttir Sv 66,8
2. Harpa Orvarsdóttir Skr 69,0
Langstökk: metrar
1. Þóra Einarsdóttir Sv 4,64
2. Snjólaug Vilhelmsdóttir Sv 4,62
Hástökk: metrar
1. Þóra Einarsdóttir Sv 1,60
2. Sólveig Sigurðardóttir Þ.Sv. 1,45
800 m hlaup: mín.
1. Sigríður H. Gunnarsdóttir Árr 2.54,8
2. Guðný Jóhannesdóttir Árr 3.01,5
1500 m hlaup: mín.
1. Sigríður H. Gunnarsdóttir Árr 5.58,9
2. Guðný Jóhannesdóttir Árr 6.21,2
Kringlukast: metrar
1. Dóróþea Reimarsdóttir Sv 28,14
2. Aðalheiður Stefánsdóttir Æ 23,72
Kúluvarp: metrar
1. Sólveig Sigurðardóttir Þ.Sv. 7,71
2. Hafdís Jóhannsdóttir Þ.Sv. 7,48
Spjótkast: metrar
1. Sólveig Sigurðardóttir Þ.Sv. 22,42
2. Alda Stefánsdóttir Æ 20,76
1000 m hlaup: mín.
1. Sveit Umf. Skriðuhrepps 2.37,5
2. Sveit Umf. Svardæla 2.45,3
4x100 m boðhlaup: sek.
1. Sveit Umf. Svarfdæla 55,2
2. Sveit Umf. Skriðuhr. Karlar: 56,0
100 m hlaup: sek.
1. Davíð Sverrisson Skr 12,3
2. Hannes Garðarsson Sv 12,4
100 m grindahlaup: sek.
1. Hjörtur Gíslason R 16,4
2. Hallgrímur Matthíasson 20,3
200 m hlaup: sek.
1. Arnar Snorrason Sv 24,3
2. Hannes Garðarsson Sv 25,6
400 m hlaup: sek.
1. Eiríkur Hauksson Æ 64,8
2. Brynjar M. Ottósson Sv 71,3
800 m hlaup: mín.
1. Kristján Þorsteinsson Þ.Sv. 2.25,5
2. Sigurgeir Svavarsson Sv 2.34,3
1500 m hlaup: mín.
1. Kristján Þorsteinsson Þ.Sv 5.26,0
7. Brynjar Már Ottósson Sv 5.58,0
3000 m hlaup: mín.
1. Eggert Ólafsson Æ 10.59,8
2. Jóhannes G. Pálmason Árr 12.50,0
5000 m hlaup: mín.
1. Eggert Ólafsson Æ 18.49,4
2. Sigurgeir Svavarsson Árr 12.50,0
Kúluvarp: metrar
1. Sigurður Matthíasson Sv 14,86
2. Jón Sævar Þórðarson R 11,47
Kringlukast: metrar
1. Sigurður Matthíasson Sv 42,34
2. Jón Sævar Þórðarson R 32,84
Spjótkast: metrar
1. Sigurður Matthíasson Sv. 69,20
2. Hallgrímur Matthíasson Sv. 50,98
Langstökk: metrar
1. Hreinn Karlsson Æ 5,77
2. Hallgrímur Matthíasson Sv 5,32
Þrístökk: metrar
1. Hreinn Karlsson Æ 11,69
2. Gunnar Sigurðsson Þ.Sv 11,59
Hástökk: metrar
1. Þórleifur Björnsson Þ.Sv 1,65
2. Gunnar Sigurðsson Þ.Sv 1,60
1000 m boðhlaup: mín.
1. Sveit Umf. Svarfdæla 2.12,6
2. Sveit Umf. Æskunnar 2.24,5
4x100 m boðhlaup: sek.
1. Sveit Umf. Æskunnar 49,5
2. Sveit Umf. Svarfdæla 50,3 JÓH
Eyjaleikarnir í Færeyjum:
Júdófólk frá Akureyri
hreppti gullin
Júdosveit Islands hefur átt
góða daga á Eyjaleikunum
sem nú eru haldnir í Færeyj-
um. Sveitin er skipuð fímm
keppendum sem allir eru úr
júdódeild KA á Akureyri en
Tindastóll:
Eysteinn í bann
í blaðinu í gær var rangt farið
með nafn eins leikmanna Tinda-
stóls. í greininni sagði að einn
varnarmanna liðsins, Eyjólfur
Kristjánsson, hefði fengið að líta
rauða spjaldið í leik Tindastóls
og lR síðastliðið sunnudags-
kvöld. Ekki hafa Sauðkrækingar
tekið söngvara Bítlavinafélagsins
í varnarmúrinn heldur átti þarna
að standa nafn Eysteins Kristins-
sonar. Hann mun verða í banni í
leik Tindastóls og Selfoss á föstu-
dag. JÓH
upphaflega var ætlunin að
fleiri færu á mótið en sökum
kostnaðar hættu margir við.
Skemmst er frá því að segja að
íslenska sveitin sigraði í fjórum
þyngdarflokkum og í þeim
fímmta náði sveitin silfurverð-
launum.
í íslensku sveitinni eru Bene-
dikt Ingólfsson, Guðlaugur Hall-
dórsson, Hilmar Trausti Harðar-
son, Svala Björnsdóttir og Fjóla
Guðmundsdóttir, öll úr KA.
Benedikt keppti í mínus 95
kílógramma flokki og náði gull-
verðlaunum, Guðlaugur Hall-
dórsson keppti í mínus 86 kíló-
gramma flokki og sigraði einnig
og loks náði Hilmar Trausti
Harðarson öðru sæti í mínus 71
kílógramma flokki.
Stúlkurnar létu ekki sitt eftir
liggja og sigruðu þær báðar í sín-
um flokkum, Svala í mínus 56
kílógramma flokki og Fjóla í
mínus 66 kílógramma flokki.
JÓH