Dagur - 04.08.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 4. ágúst 1989
Bakka§örður:
Hægist um í fiskinum
„Það er nú heldur lítið að
segja eins og er. Nú er að
koma fríhugur í fólk. Þetta
gekk heldur erfiðlega framan
af vetri en síðan rættist úr og
þeir hörðustu eru búnir með
kvótann,“ sagði Kristinn Pét-
ursson, framkvæmdastjóri
Útvers á Bakkafirði í samtali
við Dag í gær.
Veiði smábáta hefur gengið
mjög vel þar eystra að undan-
förnu en nú hafa menn lagt árar
tímabundið í bát því þann 30.
júlí sl. tók gildi veiðibann á smá-
báta. Bannið stendur til 8. ágúst
nk.
Einn smábátaeigandi á Bakka-
firði er nú þegar búinn með út-
hlutaðan kvóta og annar er mjög
langt kominn með hann. Það
kann því að verða heldur dauft
yfir útgerðinni á Bakkafirði á
haustdögum. Menn sjá þó alltaf
björtu hliðarnar á tilverunni og
hugga sig við að þessa dagana er
verið að gera verulegar úrbætur á
hafnarmannvirkjum á staðnum.
Ef allt gengur að óskum lýkur
framkvæmdum í haust og því
binda menn vonir við að bátar
heimamanna standi af sér öll
stórviðri næsta vetur, en bátar
Bakkfirðinga hafa eins og fram
hefur komið skemmst hvað eftir
annað í veði ráhlaupum og má í
flestum tilfellum rekja það til
ónógrar hafnaraðstöðu. óþh
Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúírum:
Tjaldstæðið í Vesturdal
ennþá lokað
Góð aðsókn hefur verið að
tjaldstæðunum í Ásbyrgi í sum-
ar en tjaldstæði við Vesturdal
er ennþá lokað. Boðið er upp á
dagskrá fyrir tjaldstæðisgesti
sem og aðra sem leið eiga um
og er þar um að ræða göngu og
röltferðir undir leiðsögn land-
varða.
Að sögn Ingólfs Jóhannesson-
ar landvarðar í þjóðgarðinum í
Jökulsárgljúfrum hefur verið
mikil umferð í sumar en mest var
þó um að vera um næst síðustu
helgi og dvöldu þá um 600 manns
á svæðinu, þar af 500 íslendingar.
Tjaldstæði í þjóðgarðinum eru
leyfð við þjónustumiðstöðina í
Ásbyrgi og íþróttavelli á Ásbyrgis-
isbotni. Tjaldstæðiö í Vesturdal,
við Hljóðakletta, er hins vegar
ekki búið að opna enn, en það
fór mjög illa þegar Vesturdalsá
flæddi yfir bakka sína í vor.
Undantekning er þó gerð fyrir þá
sem ætla að ganga yfir þjóðgarð-
inn, frá Dettifossi að Ásbyrgi eða
öfugt, og einnig geta húsbílaeig-
endur fengið að leggja bílurn sín-
um við tjaldstæðið.
Boðið er upp á gönguferðir
undir leiðsögn landvarða á hverj-
um degi og eru settar upp auglýs-
ingar en auk þess veita landverðir
í Ásbyrgi og Vesturdal upplýsing-
ar. Um verslunarmannahelgina
er boðið upp á miðdegisrölt á
laugardag og sunnudag úr Vest-
urdal. Úr Asbyrgi er ganga á
laugardag og morgunrölt á
sunnudagsmorguninn. KR
Fjölbýlishús við Grundargarð á Húsavík varð fokhelt í síðustu viku og í tilefni af fokheldisáfanganum blakti íslenski
fáninn við hún á þrein stöðum á húsinu. í húsinu verða 12 íbúðir, 7 þeirra eru byggðar á vegum Stjórnar verka-
mannabústaða en 5 sem kaupleiguíbúðir á veguin Húsavíkurbæjar. Aðalverktaki við bygginguna er Fjalar hf.
Mynd: IM
Bændur fógnuðu rigningunni á dögunum:
„Inginn vafi að votviðrið
gjörbreytti ástandinu
- segir Ólaíur Vagnsson, ráðunautur
„Það er ekki nokkur vafi á því
að þessi votviöriskafli hefur
gjörbreytt ástandinu. Þurrkur-
inn átti stóran þátt í að hægt
spratt á sumunt svæðum og
bændur biðu lengi eftir grasi
en sérstaklega er þetta gott fyr-
ir þá sem búnir voru með fyrri
sláttinn og ætíuðu sér að slá
Góð við þorsta
p
r P“'Vce
Blanda
Dinn^PPels|nusefi
Pure Orange Juice
■
seinni slátt. Fyrir þá skipti
þetta sköpum því túnin voru
að skrælna upp. Það hefur
enginn verið óhress með þessa
rigningu, sama hvernig á það
er litið,“ segir Ólafur
Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarð-
ar, um rigningarkaflann sem
kom á Norðurlandi á dögun-
um.
Ólafur segist trúaður á að væt-
an hafi verið nægilega mikil til
hleypa sprettu í túnum í fullan
gang og þó veður hlýni verulega á
ný nægi það ekki til að þurrka tún
strax upp aftur. Ólafur segir að
margir bændur á Eyjafjarðar-
svæðinu séu komnir talsvert
áleiðis með heyskap. Lengst
komnir eru bændur í nágrenni
við Akureyri en lengra út með
firði er heyskapur stutt kominn.
„Ef brigði til góðrar tíðar á ný þá
gætu bændur klárað aðal hey-
skapinn frá á næsta hálfa mánuði.
Og ég hef trú á að þessi rigning
bjargi því að þeir sem treystu á
seinni slátt fái ágætan slátt og geti
endað í meðalheyskap," segir
Ólafur.
Stefán Skaptason, ráðunautur
í S-Þingeyjarsýslu, tekur undir
þau orð að regnið hafi komið eins
og samkvæmt pöntun. „Nú vant-
ar bara þurrkinn. Hér eru bænd-
ur almennt komnir af stað en
algengast er að menn séu skammt
komnir. Til er þó að menn séu
komnir vel á veg. Þessi væta er
alveg nægileg, nú þarf bara sólina
og hitann og þá eru menn fljótir
að ljúka þessu af,“ segir Stefán
Skaptason. JÓH
Verslunarmannahelgin:
Hestamenn íjölmenna
á Vindheimamela ’89
- á Hestamót Skagfirðinga
undanrásir kappreiðanna. í gæð-
inga- og unglingakeppni leiða
saman hesta sína; Ólafsfirðingar,
Siglfirðingar, Húnvetningar og
Skagfirðingar. íþróttakeppnin er
öllum opin, svo og kappreiðar.
Á sunnudag hefjast kappreiðar
kl. 10 um morguninn. Einnigfara
fram úrslit í greinum fyrri keppn-
isdags, auk 2ja spretta í gæð-
ingaskeiði. Hestamóti Skagfirð-
ingar lýkur svo seinni partinn á
sunnudag.
Ekki ætla hestamenn að koma
saman án þess að bregða sér á
dansleik um helgina. Dansleikir
verða í Miðgarði föstudags- og
laugardagskvöld og í Árgarði í
„Lýdó“ á sunnudagskvöld. Það
er hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar sem mun leika öll
kvöldin, eins og henni einni er
lagið. Það verður þvf mikið fjör í
Skagafirði um verslunarmanna-
helgi, sem endranær. -bjb
Hestamenn víðs vegar að af
landinu munu eflaust fjöl-
menna á Vindheimamela ’89
um verslunarmannahelgina, en
dagana 5. og 6. ágúst fer fram
Hestamót Skagfirðinga, sem að
venju er haldið um þessa helgi.
Búast má við að hestamenn af
Norðurlandi verði fjöl-
mennastir. Á Vindheimamel-
um verður keppt í gæðinga-
keppni, unglingakeppni,
hestaíþróttum og kappreiðum.
Keppni hefst kl. 9 á laugar-
dagsmorgun.
Á 300 metra vellinum byrjar
keppni á laugardagsmorgun á B
flokki gæðinga. Síðan tekur við
eldri og yngri flokkur unglinga og
loks A flokkur gæðinga. Á 200
metra vellinum verður keppt í
tölti fullorðinna, fjórgangi ungl-
inga, fjórgangi og fimmgangi full-
orðinna og tölti unglinga. Um kl.
18 á laugardag fara svo fram