Dagur - 04.08.1989, Blaðsíða 11
„ *<
Föstudagur 4. ágúst 1989 - DAGUR - 11
1
íþróttir
i
Landsmót í golfi:
Misjafnt gengi
hjá golfurunum
Um helgina lýkur Landsmóti
ísland í golfi sem nú stendur
yfir á Hólmsvelli í Leiru. Kylf-
ingum frá Norðurlandi hefur
gengið frckar illa á fyrstu
keppnisdögunum og virðast
þeir ekki kunna mjög vel við
sig í rigningunni á Suður-
nesjunum.
Eftir þrjá keppnisdaga er Har-
Blóðtaka hjá
Völsungum:
Skarphéðinn
undir hníflnn
Völsungar urðu fyrir miklu
áfalli síðastliðið mánudags-
kvöld þegar Skarphéðinn
ívarsson, einn af þeirra sterk-
ustu varnarmönnum, sleit
krossband í hné í fyrri hálfleik
í leik Völsunga og Stjörnunnar
sem fram fór í Garðabæ.
Skarphéðinn fór undir skurð-
arhnífinn á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri í fyrradag og er
Ijóst að hans krafta njóta Völs-
ungar ekki á knattspyrnuvellin-
um það sem eftir lifir keppnis-
tímabils. Petta er mikið áfall fyrir
Völsunga sem berjast á botni 2.
deildar og mega þeir vart við að
missa fasta leikmenn út úr liðinu
nú þegar grimmasta fallbaráttan
er framundan. JÓH
Skarphéðinn ívarsson er nú úr leik
hjá Vðlsungum.__________________
aldur Júlíusson GA í öðru sæti í
3. flokki karla, Páll Pálsson GA í
18. sæti í sarna flokki og Guð-
björn Garðarsson GA í 19. sæti.
I 2. flokki karla situr Kjartan
Bragason GA í 24. sæti eftir þrjá
daga.
Eftir tvo daga var Örn Arnar-
son GA í öðru sæti og Eiríkur
Haraldsson í 10. sæti í 1. flokki.
í fyrsta flokki kvenna var
Andrea Ásgrímsdóttir GA í
þriðja sæti eftir fyrsta dag með 92
högg og í meistaraflokki kvenna
var Árný Árnadóttir GA í sjö-
unda sæti eftir fyrsta keppnisdag.
í meistaraflokki karla gekk
Birni Axelssyni best norðan-
manna og var hann í 14. sæti eftir
fyrsta dag. JÓH
Lára Eymundsdóttir skoraði sigurniark Þórs í leiknum við KA í fyrrakvöld. Hér hefur hún snúið eina KA-stúlkuna
af sér og geysist upp að niarki KA. MyndJÓH
Bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki kvenna:
Baráttan skílaði Þórsstúlkum
í úrslitaleikinn við ÍA
- Þór vann KA verðskuldað í undanúrslitum í fyrrakvöld
Þórsstúlkur tryggðu sér í fyrra-
kvöld rétt til að fara í úrslita-
leik bikarkeppninnar í meist-
araflokki kvenna en liðið sigr-
aði KA í undanúrslitaleik á
Akureyri. Þór mætir því IA í
úrslitaleiknum en IA siraði Val
í hinum undanúrslitaleiknum.
Sigur Þórs í fyrrakvöld var
sanngjarn, þrátt fyrir að KA
hefði öllu meiri tök á leiknum í
fyrri hálfleik óx Þórsurum
ásmegin í þeim síðari og bar-
áttan skilaði þeim góðum
mörkum sem nægðu til sigurs.
Fyrstu mínúturnar fór leikur-
inn að mestu fram á miðjunni og
leikmenn reyndu að finna glufur
á vörnum andstæðinganna. Þegar
um sjö mínútur voru liðnar af
leiknum braut ein Þórsstúlkan af
sér út undir hliðarlínu á miðjum
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
„Nú bursta ég hann!“
„Ég burstaði hann í getraunum um daginn og nú bursta ég
hann bara aftur,“ sagði Soffía Jóhannsdóttir þegar Steingrímur
Björnsson, tengdafaðir hennar og getspekingur, hafði skoraö á
hana í getraunaleik blaðsins. Steingrímur hafði á orði í gær að
nú væri kominn tími til aö hann færi að komast út úr þessu en
jafnframt þyrfti að láta Soffíu sýnaþað og sanna að hún væri
honum snjallari á getraunasviðinu. Óhætt er að segja að seðlar
þeirra séu mjög ólíkir og því líklegt að annað standi uppi sem
öruggur sigurvegari eftir helgina.
Á seðli vikunnar eru leikir úr norsku, dönsku og þýsku deild-
arkeppninni. Steingrímur náöi sjö réttum um síöustu helgi þeg-
ar einnig voru erlendir leikir á seðlinum en þá varð Guöbjörn
Gíslason hins vegar að játa sig sigraðan með sex stig.
Steingrímur:
Gladbach-B. Munchen 2
Karlsruher-B.Uerdingen x
Homburg-Kaiserslautern 2
Nurnberg-Leverkusen 1
W.Bremen-Dusseldorf 1
Mannheim-Bochum x
Bröndby-Bronshöj 1
Silkeborg-Næstved 2
Herfölge-A.G.F. 2
Moss-Brann 1
Molde-Lilleström 1
Kongsvinger-Tromsö x
SoffÍQ:
Gladbach-B. Munchen 1
Karlsruher-B.Uerdingen 1
Homburg-Kaiserslautern 2
Nurnberg-Leverkusen x
W.Bremen-Dusseldorf 1
Mannheim-Bochum 1
Bröndby-Bronshöj 2
Silkeborg-Næstved x
Herfölge-A.G.F. 1
Moss-Brann 1
Molde-Lilleström 2
Kongsvinger-Tromsö 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
eigin vallarhelmingi. Hjördís
Úlfarsdóttir tók aukaspyrnu fyrir
KA, gaf háan bolta að marki sem
fór í jörðina fyrir framan Evu
Eyþórsdóttur í marki Þórs og
þaðan yfir hana í markið. Þórs-
arar lögðu ekki árar í bát þrátt fyr-
ir þetta óvænta mark heldur sóttu
að marki KA og uppskáru víta-
spyrnu skömmu síðar. Steingerð-
ur Jónsdóttir sköraði örugglega
úr vítinu og jafnaði, 1:1.
Um miðjan hálfleikinn bætti
KA við öðru marki sínu. Sending
fyrir Þórsmarkið virtist saklaus
og örugglega í höndum Evu
markvarðar en skyndilega missti
hún boltann frá sér fyrir fætur
Birnu Hákonardóttur sem skilaði
boltanum í netið.
í síðari hálfleikinn komu Þórs-
arar öllu grimmari en heldur virt-
ist draga af KA. Eftir ágætan
kafla hjá Þór kom jöfnunarmark
þegar mikil þvaga skapaðist við
markteig KA en loks kom Ellen
Óskarsdóttir skoti á markið sem
Bára markvörður réð ekki við.
Þessu fylgdu Þórsstúlkurnar
eftir með mikilli baráttu og sigur-
markið lá í loftinu. Það kom á 26.
mín. hálfleiksins þegar Lára
Eymundsdóttur skoraði eftir
góða fyrirgjöf frá samhe'-ja,
Sanngjarn Þórssigur og farseðill-
inn í úrslitin í farteskinu. JÓH
Skíðalandslið íslands í alpagreinum:
Þrír skíðameiui frá Akureyri
settir út úr landsliðinu
Þrír akureyrskir skíðamenn
haf'a verið settir út úr landsliði
Islands í alpagreinum á
skíðum. Þetta eru þau Guðrún
H. Kristjánsdóttir, Vilhelm
Þorsteinsson og Jóhanncs
Baldursson. Ástæða þessa er
sú að þau, ásamt tveimur öðr-
um landsliðsmönnum mættu
ekki til æfínga í KeriingafjöII-
um um síðastliðna helgi.
„í fyrra var ákveðið hjá Skíða-
sambandinu að fara ekki í Kerl-
ingafjöll aftur vegna þess hve illa
tókst til þá og ég ákvað að halda
mig við þá ákvörðun. Miðað við
hvernig þetta var þá fannst mér
Guðrún H. Kristjánsdóttir komin út
úr skíðalandsliðinu.
ekki borga sig að fara einu sinni
enn í Kerlingafjöll. Þetta er dýrt
og að mínu mati mætti nota pen-
ingana betur með því að leggja
þá í góðar æfingaferðir erlendis.
Þegar ég sagðist ekki ætia að fara
hringdi nýi landsliðsþjálfarinn í
mig og sagði að ég væri kominn
út úr liðinu,“ sagöi Guðrún í
samtali við Dag.
Aðeins eru nú fjórir skíða-
menn af 13 á æfingunni- Fimm
neituðu að fara, og fjórir hafa
löglega afsökun. Sigurður Ein-
arsson, formaður Skíðasam-
bandsins, segir að þetta mál verði
tekið fyrir hjá alpagreinanefnd
og landsliðsþjálfaranum þegar
æfingunni ljúki um næstu helgi.
Nefndin hafi nú þá vinnureglu að
setja fólk út úr landsliðinu, mæti
það ekki á æfingu en endanlega-
ákvörðun þurfi að taka hjá stjórn
sambandsins. Því sé ekki útilok-
að að áðurnefnt skíðafólk fái aft-
ur inni í liðinu. JÓH
Knattspyrna/4. deild:
SM náði í dýrmæt
stig á Laugum
í fyrrakvöld fór fram leikur
Eflingar og SM í 4. deildinni í
knattspyrnu. Þessi leikur átti
að fara fram í 2. umferð en var
frestað þar til nú. SM sigraði í
leiknum með þremur mörkum
gegn tveimur og náði sér þar
með í tvö dýrmæt stig. Með
sigrinum hefur liðið lyft sér
upp fyrir Æskuna og UMSE-b
og situr í fjórða sæti.
í leiknum í fyrrakvöld voru
SM-menn alltaf fyrri til að skora.
Staðan í hálfleik var 1:1 en fljót-
lega í þeim síðari bætti SM við
örðu marki. Guðmundur Jónsson
jafnaði fyrir Eflingu en sigur-
mark SM kom skömmu fyrir
leikslok. Eflingarmenn áttu tals-
vert í leiknum en þau tækifæri
sem SM fékk voru nýtt til fulln-
ustu og fyrir það lenda stigin þrjú
hjá þeim. JÓH