Dagur - 04.08.1989, Qupperneq 3
Föstudagur 4. ágúst 1989 - DAGUR - 3
4
fréftir
F
Magnús Ólafsson, bóndi á Sveinsstöðum,
telur að sveitafólk eigi að leita eftir atvinnu við tölvuvinnslu:
Tölvan heppfleg aukabúgrein
Magnús Ólafssson, bóndi á
Sveinsstöðum í Sveinsstaða-
hreppi, telur að vegna óhjá-
kvæmilegs samdráttar í hefð-
bundnum búgreinum beri
mönnum að huga í alvöru að
nýjum atvinnutækifærum til
sveita. Hann er á þeirri skoðun
að stofnkostnaði vegna nýrra
atvinnutækifæra skuli halda í
lágmarki enda hafi bændur vít-
in að varast í sambandi við
Búið að úthluta húsnæði stúdentagarðs
við Skarðshlíð:
Flestir frá Norður-
og Suðvesturlandi
Framkvæmdum við byggingu
stúdentagarðs við Skarðshlíð á
Akureyri miðar vel og er nú
verið að þekja húsið. Stjórn
Félagsstol'nunar stúdenta á
Akureyri hefur gengið frá út-
hlutun íbúða og herbergja og
af 27 umsóknum sem bárust
fengu 23 jákvætt svar.
Uthlutað var 13 einstaklings-
herberbergjum, 4 paraíbúðum 4
tveggja herbergja íbúðum og 2
þriggja herbergja íbúðum. Þeir
sem fengu úthlutað húsnæði
koma víða að af landinu. Sem
dæmi: Akureyri, Ólafsfirði,
Kelduhverfi, Keflavík, Hafnar-
firði, Blönduósi, Akranesi,
Reykjavík, Mývatnssveit, Svarf-
aðardal, Sauðárkróki, Bessa-
staðahreppi og Húsavík. Skipting
afgreiddra umsókna á deildir
Háskólans á Akureyri er sem hér
segir: Sjö í sjávarútvegsfræði, sex
í rekstrardeild og tíu í hjúkrunar-
deild. óþh
Kælideild Vélsmiðjunnar Odda:
Næg verkefni
fram á næsta ár
Að sögn Elíasar Þorsteinsson-
ar yfirmanns hjá kælideild
Vélsmiðjunnar Odda á Akur-
eryri eru næg verkefni fram-
undan hjá deildinni, sem end-
ast munu fram á næsta ár. Ný
skipulagning framleiðslunnar
mun auka hagkvæmni hennar
og er talin geta skilað sér í
lægra verði.
Nýlega skilaði Vélsmiðjan af
sér kælikerfi í nýbyggingu Agætis
hf. í Reykjavík. Þetta var annað
verkefnið af þessu tagi sem deild-
in vinnur eftir að gerðar voru
skipulagsbreytingar á framleiðsl-
unni. í stað þess að setja vélbún-
að klefanna að mestu leyti saman
hjá kaupandanum er nú gengið
frá vélum, mælum og öllu tilheyr-
andi í lokaða kassa á verkstæðinu
og þessa kassa þarf svo bara að
flytja á áfangastað og stinga í
samband, nánast eins og um
ísskáp sé að ræða. Elías segir að í
þessu felist mun betri nýting á
mannafla og auknir möguleikar á
stöðlun í framleiðslunni. Þetta á
svo að skila sér í lægra verði til
kaupenda. Búnaðurinn getur
tengst ýmsuni gerðum af kæli-
klefum en klefarnir fyrir Ágæti
voru smíðaðir hjá Sæplasti hf. á
Dalvík.
„Við ætlum okkur stóra hluti
í sölu á kæli- og frystikerfum og
markaðurinn er nægur,“ sagði
Elías. Oddi flytur einnig inn
klefa erlendis frá en að sögn
Elíasar er þar um að ræða litla
klefa á verði sem Oddi getur ekki
keppt við. Því má segja að fyrir-
tækið sé í samkeppni við sjálft
sig!
Kælideild Odda er nú að leggja
lokahönd á frystikerfi í rækju-
vinnslu á ísafirði, í samvinnu við
stóran danskan vélaframleið-
anda. Þá hefur verið samið við
niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
sonar á Akureyrar um svipað
verkefni. „Auk þessa eru nokkur
verkefni í siktinu þannig að ég
held að við séum með næg verk-
efni fram á næsta ár,“ sagði
Elías. ET
offjárfestingu í nýbúgreinum.
Tölvuvinnsla hverskonar er
einn þeirra inöguleika sem
Magnús telur að bændur ættu
að huga að. Fjárfesting í tölvu
sé viðráðanleg og hún gefi
núkla niöguleika í tekjuöflun
til hliðar við hefðbundnar
búgreinar.
Með nútíma tækni segir Magn-
ús að unnt sé að tengja tölvuna
við préntsmiðjur og fjölmiðla og
þannig megi koma texta, hvort
sem væri greinum eða þýðingum,
á fljótlegan og öruggan hátt til
réttra aðila. Þá segir hann að
bændur geti með aðstoð tölvunn-
ar unnið ýmislegt sem snýr að
búrekstrinum, sem áður hafi ver-
ið keypt dýru verði frá þjónustu-
aðilum í nærliggjandi þjónustu-
kjörnum. í þessu sambandi nefn-
ir Magnús bókhald, en fullkomin
bókhaldsforrit geri mönnum
kleift að sjá sjálfir um það.
Magnús segist ekki sjá neitt því
til fyrirstöðu að þeir menn til
sveita sem hafi góða þekkingu á
tölvum fari út í forritagerð. Sú
grein þjónustu hafi reynst mörg-
um ábatasöm og ekki sé ástæða
til að ætla annað en hún geti þrif-
1 ist jafn vel í sveitum sem þéttbýli.
„Ég bcndi á að tölvuvinnslan
verður aldrei nema þægileg hlið-
argrein til þess að grípa í með
öðru. Það eru mjög margir sem
vantar atvinnu hluta úr ári og fyr-
ir þá er upplagt að geta gripið í
tölvuna,“ segir Magnús.
Hann bendir á að í Vík í Mýr-
dal séu menn komnir vel áleiðis í
þróun einskonar fjarmiðstöðvar,
þar sem samtengt tölvunet vinni
ýmis verkefni fyrir t.d. aðila á
höfuðborgarsvæðinu. Vel mætti
hugsa sér, segir Magnús, að slík
tölvutenging væri möguleg á
ákveðnum svæðum til sveita.
óþh
Kassi eins og þessi hefur að geyma allan vél- og stjórnbúnað fyrir kæli- eða
frystiklefa frá Odda.
Mál n i iigarvinnan skást
Elva Gunnarsdóttir og Hulda Lilja Guðmundsdóttir úr unglingavinnu
Blönduóssbæjar voru að reyna að hemja ryk í rokinu á dögunum. „Strákarn-
ir áttu að vera búnir að þessu, en þeir hafa sennilega bara gert þetta svona
illa,“ sögðu þær. Þær voru sammála um að rykinokstur væri ekki skemmti-
legasta starfíð sem þær fengjust við í unglingavinnunni og jafn sammála voru
þær um að málningarvinnan væri „lang skást“. ET
Lakari veiði í vötnum
en undanfarin ár
- Lítið um bleikju í Hópinu
Það hefur víðar verið treg
veiði en í laxveiöiám. Sam-
kvæmt upplýsingum Dags hef-
ur veiði í vötnum, jafnt á lág-
lendi sem heiðarvötnum verið
heldur dræm það sem af er.
Framan af sumri var ekkert að
hafa í vötnum á Arnarvatnsheiði
en úr þessu hefur eitthvað ræst og
segir Friörik Böðvarsson, bóndi á
Syðsta-Ósi í Ytri-Torfustaða-
hreppi, að dæmi sé um að fengist
hafi allt aö 200 fiskar á eina stöng
á sjö dögum í Arnarvatni og
nálægum vötnum. Hins vegar
segir Friðrik að ef á heildina sé
litið sé veiði minni í vötnum á
Arnarvatnsheiði cn undanfarin
ár og telji menn að kuldinn í vor
sé þar stærsti áhrifavaldurinn.
Aö sögn Ólafs B. Óskarssonar,
bónda í Víðidalstungu í Þorkels-
hólshreppi, hefur silungsveiði í
vötnum og ám á því svæði verið
upp og ofan í sumar. Sum vötn
hafa verið með mjög álíka veiði
og undanfarin ár en önnur mun
lakari. Ólafur nefndi sem dæmi
að veiöi hafi verið einkar dræm í
Hopinu það scm af er sumri. óþh
Fyrir verslumraiaiináelgma
V Tjöld 3ja til 5 manna
V Svefnpokar
V Bakpokar 65 og 75 1
V Vindsængur
V Tjalddýnur
V7 Tjaldborð
V Tjaldkollar
V Pottasett
V Diskasett
V Tjaldhælar
V Kælitöskur 24, 32 og 401 V Tjaldsúlur
Viðskiptaviwrmsamlegastath. aðlokaðverðurlaugardagiwi5. ágúst
IIIEYFJÖRÐ