Dagur - 04.08.1989, Síða 4

Dagur - 04.08.1989, Síða 4
$ - HU&Atl - í3ÚgB .{'• lugfibuísö^ 4 - DAGUR - Föstudagur 4. ágúst 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIP, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 3000 tonna kjötflall um mánaðamótin? Lambakjötsútsalan, sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur, hefur gengið mjög vel. Fyrirfram settu menn sér það mark að selja 600 tonn með þessum hætti og virðist það ætla að takast. En betur má ef duga skal, því ef fram fer sem horfir verða lambakjötsbirgðir í landinu rúmlega þrjú þúsund tonn þegar verðlagsárinu lýkur um næstu mánaðamót. Sérfræðingar landbúnaðarráðherra í markaðssetningu og sölu þessa lostætis verða því augljóslega að finna fleiri leiðir til að minnka kjötfjallið. Það, hversu vel almenningur hefur brugðist við útsölutilboði landbúnaðarráðherra, sýnir glögglega hversu mjög verðlagningin stýrir neyslunni. Hátt verð á lambakjöti hefur fælt neytendur frá að kaupa það og þar með átt stóran þátt í að breyta neysluvenjum þeirra. Og það er hægara sagt en gert að breyta þeim venjum á nýjan leik, ef það þá yfirleitt er mögu- legt. Vandinn sem sauðfjárbændur standa frammi fyrir er ekki nýr af nálinni. Snemma árs 1984 tók að síga verulega á ógæfuhliðina. Þá var verð á stykkjuðu lambakjöti gefið frjálst og hafði sú ákvörðun stjórnvalda mikla og tafar- lausa hækkun í för með sér. Ekki bætti úr skák að niðurgreiðslur á lambakjöti stóðu óbreyttar í krónutölu í tvö ár, frá 1984-1986. Sú ákvörðun stjórnvalda að setja kvóta á sauðfjárræktendur en ekki aðra kjötframleiðendur hafði einnig mikil áhrif. Hún gerði það að verkum að sauð- fjárræktin dróst enn frekar aftur úr í sam- keppninni við aðrar búgreinar. Neytendur sneru sér að svína-, kjúklinga- og nautakjöt.i í auknum mæli en létu lambakjötið að mestu lönd og leið. Ljóst er að ef takast á að hefja lambakjötið til vegs og virðingar meðal íslenskra neytenda á nýjan leik þarf að lækka verð þess til mikilla muna. Ekki með tímabundinni útsölu eins og nú er gert, heldur til frambúðar. Að öðrum kosti þarf að draga enn frekar úr framleiðsl- unni. Því hefur verið spáð að til þess að ná jafn- vægi í sölu og framleiðslu á kindakjöti verði að leggja niður allt að 400 sauðfjárbú á þessu ári og sama fjölda sauðfjárbúa á næsta ári. Við því má búgreinin ekki. Hrun sauðfjárræktarinnar er ærið fyrir og hefur þegar haft mjög alvarleg- ar afleiðingar í sveitum landsins svo og í þeim þéttbýlisstöðurn þar sem fullvinnsla sauðfjár- afurða hefur farið fram. Það er nóg komið af niðurskurði. Það hljóta að finnast færar leiðir til að auka neysluna. Hún eykst um leið og verðið lækkar. BB. Hvað er að gerqst Unglingadansleikur í Dynheimum í kvöld: Rokkbandið í villtu fjöri Rokkbandiö á Akureyri held- ur veglcgan unglingadansleik í Dynheimum í kvöld, föstudag- inn 4. ágúst. Annað kvöld spilar það fyrir dansi í Skjólbrekku í Mývatnssveit. í fréttatilkynningu frá Rokk- bandinu segir að um verslunar- mannahelgi undanfarin ár hafi heldur lítið verið gert fyrir akur- eyrsk ungmenni en nú skuli úr því bætt með fjöri í Dynheimum. Svo vitnað sé til slagorðs Rokk- bandsins: „Komið þangað sem Rokkbandið er, þar sem fólkið mætizt, kynnizt, kætizt.“ Skagaprður: Hrossauppboð í Skarðsrétt Laugardaginn 5. ágúst nk., á morgun, standa þeir Sigurður Magnússon og Þórður Þórar- insson frá Sauðárkróki fyrir opinberu hrossauppboði í Skarðsrétt í Gönguskörðum. Uppboðið hefst kl. 16. Boðnir verða upp nokkrir tugir hrossa. Vitað er að Sigurður á mikið af Danska eftirlitsskipið Vædderen lagðist að bryggju á Akureyri í gær og verður þar fram á sunnu- dag. Almenningi gefst kostur á að skoða skipið á laugardag og hrossum, en er hann að bjóða upp allt stóðið sitt? „Nei, ég á fleiri hross en nokkra tugi,“ sagði Sigurður, aðspurður, og er greinilega ekki að láta allt frá sér að þessu sinni. Þeir félagar, Sigurður og Þórður, miða tímasetningu á uppboðinu við hestamannamótið á Vindheimamelum, sem hefst á sunnudag frá klukkan 14-16 báða dagana. Áhöfn skipsins verður um borð í skipinu og svarar fyrir- spurnum fólks. morgun. Um kl. 16, þegar upp- boðið byrjar, verður hlé á Mel- unum, þannig að hestamenn ættu að geta fjölmennt á uppboðið. -bjb Zontakonur á Akureyri: Kaffihlaðborð á siumudag Zontaklúbbur Akureyrar býður upp á rjúkandi kaffi og hnallþór- ur i tugatali á veglegu kaffihlað- borði í Zontahúsinu Aðalstræti 54 á sunnudag, 6. ágúst, frá kl. 14-17. Fólk er hvatt til að líta í kaffi að aflokinni skoðunarferð í Nonnahús og styrkja með því gott málefni. „Vædderen“ til sýnis um helgina ✓ / Arleg Abæjarmessa á sunnudag Árleg messa i Ábæjarkirkju í Austurdal í Skagafirði verður haldin næstkomandi sunnu- dag. Mörg undanfarin ár hefur ver- ið messað einu sinni á ári í Ábæj- arkirkju. Sú venja hefur komist á, og haldist, að velja messunni dag sextánda sunnudag sumars en það var einmitt vígsludagur kirkjunnar árið 1922. Þessi helgi hittist gjarnan á verslunarmanna- helgi enda er það jafnan svo að kirkjugestir eru ferðamenn frá öllum landshornum. Messuna á síðasta ári sóttu nær 60 manns og troðfylltu litlu steinkirkjuna. Séra Ólafur Þ. Hallgrímsson prestur í Mælifellsprestakalli mun þjóna fyrir altari. Ólafur segist búast við góðri kirkjusókn þó svo að færð fram Austurdal- inn sé þyngri en oft áður. í kirkj- unni er ekkert hljóðfæri og því taka kirkjugestir jafnan vel undir í söngnum. Messan hefst klukkan 15.00. ET 31 Verkstjóralaus vinnuhópur Þau áttu að vera að vinna í kirkjugarðinu við hlið tjald- stæðisins á Hvammstanga en voru þess í stað öll saman- komin innandyra. Raunar löglega afsökuð því úti var grenjandi rigning. En upp stytti og út fóru þau og létu hendur standa fram úr ermum, þó svo að verkstjór- inn væri víðs fjarri. „Ágætt," var svarið þegar krakkarnir voru spurð hvernig það væri nú að vinna í unglinga- vinnunni. En var þá ekki hægt að fá aðra vinnu? „Ég hefði get- að farið á sjóinn með pabba en hann vildi frekar að ég byrjaði hér,“ sagði Brynjar og Þórhild- ur sagðist vera að passa að auki. Eins og sjá má á myndinni var rösklega gengið til verks í að klippa kantana á leiðunum í kirkjugarðinum á Hvamms- tanga. Krakkarnir heita frá vinstri: Aldís, Jennýfer, Elvar, Brynjar, Hlynur, Þórhildur og ína Björk. ET

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.