Dagur - 04.08.1989, Page 9

Dagur - 04.08.1989, Page 9
£861 íaugé > lu^sbuíaö??1- SHJffA'Q - 0 y Menntamalaráðuneytið: Átak til eflingar náms- og starfsráðgjöf - og náms- og starfsfræðslu á öllum skólastigum Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera sérstakt átak til eflingar náms- og starfsráðgjafar og náms- og starfsfræðslu á öllum skólastigum. Á undanförnum árum hafa Veiðivatna- handbókin - ný handbók um silungsveiðivötn á íslandi Frjálst framtak hf. hefur sent frá sér bókina Veiðivatnahandbókin eftir Guðmund Guðjónsson blaðamann. f bókinni eru upplýs- ingar um flest silungsveiðivötn á íslandi, samtals rösklega hálft þriðja hundrað, og veitt er leið- sögn um veiðar í þeim og hvar unnt er að fá veiðileyfi. í bókinni eru fjölmargar loftljósmyndir af veiðivötnum og veiðisvæðum, þannig að auðvelt á að vera fyrir fólk að átta sig á staðháttum. Þá er í mörgum tilfellum lýst hvernig auðveldast er að komast að umræddum veiðivötnum og hvar sé líklegast að reyna veiðar í þeim. í bókinni eru einnig sérkaflar um íslenska vatnafiska, meðferð afla, umgengni við ár og vötn og það sem veiðimenn þurfa að hafa með sér í veiðiferðir. Bókin ætti að vera kjörgripur fyrir ferðafólk sem hefur stöng- ina með sér í ferðalagið og hefur hug á að renna í silungsveiðivötn eða veiðiár á ferðum sínum. Höfundur bókarinnar, Guð- mundur Guðjónsson, hefur um árabil ritað mikið um lax- og sil- ungsveiðar. Hann hefur séð um fastan veiðiþátt í Morgunblaðinu og ritað nokkrar bækur um veiði- skap og veiðimenn. tækifæri til náms orðið æ fjöl- breyttari og í kjölfar nýrra laga um framhaldsskóla er stefnt að því að gera sem flestum kleift að finna þar nám við sitt hæfi. Er námsráðgjöf nauðsynlegur þáttur í því að aðstoða nemendur við að átta sig á hvað þeim hentar best af þeim námsleiðum, sem í frarn- boði eru þannig að nám þeirra verði sem markvissast. Einnig er mikilvægt að aðstoða nemendur sem þess óska við að finna störf við hæfi. Gert er ráð fyrir náms- og starfsráðgjöf og náms- og starfs- fræðslu á öllum skólastigum. Til þessa hefur slík ráðgjöf og fræðsla einkum farið fram á framhaldsskóla- og háskólastigi, en mikilvægt er að efla hana á grunnskólastiginu, þannig að nemendur viti meira um náms- framboð framhaldsskólanna og atvinnulífið og geti fengið aðstoð við að velja sér námsleiðir,- Til þess að stjórna fyrirhuguðu átaki til eflingar náms- og starfs- ráðgjöf og náms- og starfsfræðslu hefur menntamálaráðuneytið ráðið Harald Finnsson, skóla- stjóra og hefur hann störf 1. ágúst nk. Honum verður m.a. falið að vinna að stefnumótun, afla upp- lýsinga um námsleiðir og störf, hafa umsjón með gerð náms- gagna, hafa samstarf við Háskóla Islands og Kennaraháskóla íslands um sérnám og endur- menntun námsráðgjafa og starfs- fræðslukennara. Þá mun hann hafa umsjón með þróunarstarfi á sínu starfssviði í ákveðnum skól- um og hafa samstarf við alla þá aðila, er þessi mál varða, m.a. starfandi námsráðgjafa og starfs- fræðslukennara. Auk ráðningar Haralds, hyggst menntamálaráðuneytið skipa með haustinu samráðsnefnd til, að vinna að þessum málum. Um daginn héldu þau Sigurður Hlynur Sigurðarson, Kristín Pálsdóttir og Páll Brynjar Pétursson hlutaveltu í þágu félags sykursjúkra á Akureyri. Þau söfnuðu kr. 3.920,-. Kærar þakkir. Föstudagur 4. ágúst 1989 - DAGUR - 9 Starfsfólk Bylgjunnar/Stjörnunnar um verslunarmanuahelgina. Efri röð frá vinstri: Hafþór Freyr, Pia Hanson, Kristófer Helgason, Sigurður H. Hlöðversson, Bjarni Haukur Þórsson, Gunnlaugur Helgason, Páll Þorsteinsson, Arnþrúður Karlsdóttir. Neðri röð: Margrét Hrafnsdóttir, Bjarni Ólafur Guðm., Jón Axel Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson. Bylgjan/Stjarnan: Iiflegt útvarp um verslunarmannahelgina Um verslunarmannahelgina munu Bylgjan og Stjarnan halda úti líf- legu helgarútvarpi livor með sín- um hætti. Rekin verður upplýsingamið- stöð í samráði við Umferðaráð, um allt er viðkemur umferðinni. Þá verða þjónustusímar opnir þar sem koma má á framfæri upplýsingum og skilaboðum. Á Bylgjunni er síminn 611111 og á Stjörnunni 681900. Eins og kunnugt er hefur Bibba veriö í heimsreisu og lætur daglega í sér heyra. Hún eins og aðrir gerir sér dagamun um versl- unarmannahelgina og munu hlustendur Stjörnunnar og Bylgj- unnar komast að raun um það. Hreindýraveiðar: Veiðitíma- bilið hafið Menntamálaráðherra hefúr gefið út reglur um hreindýraveiðar árið 1989. Veiðitími verður eins og undanfarin ár frá 1. ágúst til 15. september. Heimilað verður að veiða 353 dýr og er það 23 dýrum fleira en heimilað var að veiða á síðasta ári. Verður Bæjarhreppi, Nesjahreppi, Hafnarhreppi, Mýrarhreppi og Borgarhafnar- hreppi heimilað að veiða fleiri dýr en í fyrra og er sú breyting ejnkum byggð á nauðsyn þess að hefta útbreiðslu hreindýra í vest- ur og því mati að þessi lands- svæði beri ekki mikinn fjölda hreindýra. Fyrirkomulag hreindýraveiða verður óbreytt frá því sem verið hefur, en þó er að finna tvenn nýmæli í hinum nýju reglum um hreindýraveiðar, er lúta að góð- um siðum við veiðarnar. I fyrsta lagi er sérstaklega tekið fram að óheimilt er að skjóta hreindýr úr vélknúnu farartæki eða nota slík tæki til að smala hreindýrum á ákveðinn veiðistað. í öðru lagi er áréttað að sá sem særir dýr er skyldur til að gera allt hvað hann getur til að aflífa það. Menntamálaráðherra mun leggja fram frumvarp til nýrra laga um friðun hreindýra á næsta löggjafarþingi. Þá munu gamlir kunningjar úr umferðinni á vegum landsins koma við sögu á báðum stöðvum. Það eru Jónas og fjölskylda sem enn eru á ferð um landið. Til að fylgjast með útihátíðum og öðrunt samkomum verður tlugvél í förum á vegum Stjörn- unnar og Bylgjunnar. Efnið verð- ur sótt til hinna ýmsu staða og því lýst úr lofti sem fyrir augu ber. Akureyringar - nágrannar! Vinsamlega athugið! Við höfum lokað laugardaginn 5. ágúst. HAGKAUP Akureyri Lauqardaqur kl.13:25 31 LÉlkVI 5.águst 1989 Leikur 1 Gladbach - B. Munchen_____________ Leikur 2 Karlsruher - B. Uerdingen ____________ Leikur 3 Homburg - Kaiserslautern__ Leikur 4 Niirnberg - Leverkusen______ Leikur 5 W. Bremen - Diisseldorf____________ Leikur 6 Mannheim - Bochum_________________ Leikur 7 Bröndbv - BrönshöjDanm _______________ Leikur 8 Silkeborg - NæstvedDanm____________ Leikur 9 Herfölge - A.G.F.Danm ________ Leikur 10 Moss - Brann ^0f ________ Leikur11 Molde - LilleströmNor__________ Leikur 12 Kongsvinger - TromsöNor ________ Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002 Ath. Tvöfaldur pottur H

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.