Dagur - 12.08.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, Iaugardagur 12. ágúst 1989 152. tölublað
ýtsala g
Útsala JMJ
Útsala
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Fallin spýta,
Helgarveðrið:
Súld eða
rigning
Veðrið norðan og austanlands
verðnr ekkert sérstaklega
skemmtilegt um helgina og
reyndar hafa íbúar þessa svæð-
is þegar fengið forsmekkinn af
því sem koma skal.
Víðast hvar um allt norðan og
austanvert landið má húast við
norðaustanátt súld eða rigningu.
Hiti vcrður í kring um 10 stig.
„Þið verðið núna að setjast inn
og lesa blöðin sem þið hafið ekki
komist yfir að lesa í sólinni í
sumar," sagði veðurfræðingurinn
sem veitti upplýsingar um þetta
geðþekka helgarveður. KR
Vorönnin kláruð
í ágúst í VMA
- skólaslit og setning
9. september
Nú styttist í að starf hcfjist
aftur í Verkmenntaskólanum á
Akureyri eftir sumarfrí. Skól-
inn byrjar þó óvenju sncmnia
en ástæðan er sú að eftir á að
klára vorönn vegna kcnnara-
verkfallsins sl. vor.
Nemendur eru boðaðir í skól-
ann 26. ágúst og verður kennt í
10 daga. Ekki verða eiginleg
lokapróf heldur byggist námið
þessa daga upp á verkefnum og
smáprófum scm eru í höndum
hvcrs og cins kennara. Loka-
einkunn verður síöan metin út
frá þeim.
Valgerður Guðlaugsdóttir á
skrifstofu skólans sagði að
nemendur þyrftu að mæta til að
klára önnina annars yrði hún
þcim ónýt.
Nemcndur Vcrkmenntaskól-
ans fcngu nýlega sent bréf og þar
kemur fram að skólaslit og setn-
ing færu fram 9. september og
koma nýnemar þá inn. KR
Starfshópur á vegum Iðnaðarráðuneytis skilar skýrslu í haust
um leiðir til jöfnunar á rafmagnsverði í landinu:
Við verðum að gera eitthvað
til þess að rétta okkar hag
- segir Bjarni Pór Einarsson, bæjarstjóri á Húsavík
„Það er orðið Ijóst að Iðnaðar-
ráðuneytið viðurkennir viss
sjónarmið landsbyggðarmanna
í sambandi við heildsöluverð á
raforku, þ.e. að Landsvirkjun
sé hcimilt að gera breytingar á
núverandi fyrirkomulagi,“
sagði Bjarni Þór Einarsson,
bæjarstjóri á Húsavík, en hon-
um ásamt Sigurði Agústssyni,
rafveitustjóra á Sauðárkróki,
var falið af stjórn Fjórðungs-
sambands Norðlendinga sl. vor
að ræða við Iðnaðarráðuneyti
og Landsvirkjun um leiðir til
jöfnunar á rafmagnsverði í
landinu til notenda í framhaldi
af jöfnun á heildsöluverði á
rafmagni.
Nú vinnur starfshópur á vegum
Iðnaðarráðuneytisins að tillögum
um það hvernig unnt sé aö lækka
raforkuverð á landsbyggðinni til
hins almenna notanda. Sá starfs-
hópur skilar væntanlega niður-
stöðuni til ráðuneytisins í haust
og í framhaldi af því verður hald-
inn annar fundur með Jóni Sig-
urðssyni, iðnaðarráðherra, um
málið. „Mérvirðist ráöherra vilja
vera mjög sanngjarn í þessum
málum en á það ber að líta að hér
er um mjög flókið mál að ræða
þar sem raunverulega er verið að
togast á um hagsmuni margra
aðila,“ sagöi Bjarni Þór. „Viö
vonumst til að þetta verði sam-
eiginlegt verkefni landshlutasam-
taka, á Norðurlandi, Suðurlandi
og Austurlandi. Við verðum að
gera eitthvað til að rétta okkar
hag," sagði Bjarni.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar
hafa Sauökrækingar nú unnið
áfangasigur í langvinnu stríði við
stjórnvöld i lækkun á raforku-
verði. Þeir hafa lengi barist fyrir
lækkun á heildsöluverði á
raforku frá RARIK til Rafveitu
Sauðárkróks og 7 annarra sveit-
arfélágsrafveitna í landinu.
„Segja má að fyrir liggi ákvörðun
og skrifleg tilmæli iðnaðarráð-
herra til RARIK um að við fáum
lækkun. Hvenær sú lækkun kern-
ur til framkvæmda er hins vegar
óvíst," sagði Sigurður. Hann
sagðist ekki geta sagt fyrir um
hversu mikið heildsöluverð yrði
lækkað en vonir stæðu til að
lækkunin næmi rúmum 12 prósent-
um. „Hvernig sú lækkun kemur
fram í smásöluverði til neytenda
er erfitt aö segja til um. Stað-
reyndin er sú að þessar veitur eru
margar illa staddar fjárhagslega
og lækkun á heildsöluverði er lið-
ur í því að rétta hag þeirra. Við
getum sagt að þegar til langs tíma
er litið yrði heildsöluverðlækkun
til þess að lækka smásöluverðið,"
sagöi Sigurður. óþh