Dagur - 12.08.1989, Blaðsíða 4
6 - flUDAQ - 6361 íeugé St lueBbiEje.uB.J
4 - DAGUR - Laugardagur 12. ágúst 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (Iþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJORI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Söluskattur og útihátíðir
Það hefur löngum verið talið til þjóðaríþrótta hér
á landi að stela undan skatti, hvaða nöfnum sem
hann nefnist. Tekjuskatturinn er sniðgenginn
með ýmsum ráðum. Svonefnd „svört vinna“ er
alþekkt, t.d. hjá iðnaðarmönnum og margir sjálf-
stæðir atvinnurekendur hafa löngum kunnað þá
kúnst að skammta sér svo lág laun að þeir greiði
einungis „vinnukonuútsvar" og lítinn sem eng-
an tekjuskatt. Fríðindin eru hins vegar að litlu
leyti færð til tekna og þeim mun meira skrifað á
fyrirtækið.
Margir þeirra fjölmörgu aðila í verslun og þjón-
ustu, sem eiga að innheimta söluskatt fyrir ríkis-
sjóð og skila honum í ríkiskassann, hafa einnig
haft ráð undir rifi hverju til að komast undan að
gjalda keisaranum það sem keisarans er. Svo-
nefnd „nótulaus“ viðskipti er ein leiðin, en þá er
viðskiptavininum boðið að sleppa við að greiða
söluskatt og viðskiptin fara fram utan við kerfið.
Önnur leið — og mjög vinsæl hin síðari ár - er að
innheimta söluskattinn og stinga honum síðan í
vasann. Þetta hefur mikið verið tíðkað hjá ýms-
um hlutafélögum sem síðan eru einfaldlega látin
fara á hausinn. Sumir verslunareigendur hafa
einnig stolið söluskatti og selt verslunina áður
en til innheimtuaðgerða hins opinbera hefur
komið. Það er ekkert því til fyrirstöðu að sömu
aðilar geti leikið þennan „leik“ margoft án þess
það teljist refsivert athæfi. Þriðja leiðin til að
komast hjá að greiða söluskatt er að sækja um
undanþágu frá honum á einhverjum forsendum.
Lengi vel var söluskattskerfið svo flókið og
undanþáguákvæðin svo mörg að því var líkt við
frumskóg. í tíð síðustu ríkisstjórnar var þetta
kerfi einfaldað mjög og undanþágum fækkað.
Samt sem áður leynast enn ýmsar smugur á
kerfinu. Besta dæmið um slíka smugu er sá
ágreiningur sem nú er risinn um það hvort
aðstandendum útihátíða beri að greiða söluskatt
af aðgangseyri. Deilan snýst um það hvort slíkar
samkomur teljist til tónleika ellegar dansleikja.
Þorri almennings er ekki í vandræðum með að
kveða upp úrskurð í þeirri deilu: Útisamkomur
um verslunarmannahelgi geta naumast talist til
tónleika og því ber aðstandendum að greiða
söluskatt af innkomunni. Þeir hafa líka gert það
svo lengi sem elstu menn muna. En aðstandend-
ur útihátíðarinnar í Húnaveri voru með reglurnar
á hreinu. Þeir sóttu um undanþágu frá söluskatti
og fengu. Og nú vilja aðstandendur hinna úti-
hátíðanna sitja við sama borð.
Hér kemur til kasta hæstvirts fjármálaráð-
herra. Honum ber siðferðisleg skylda til að láta
eitt yfir alla ganga. Vilji hann sjá af 10-12 milljón-
um úr kassanum nú þegar, veitir hann öllum
þessum aðilum undanþágu frá greiðslu sölu-
skatts og skapar jafnframt fordæmi um gang
slíkra mála í framtíðinni. Vilji hann loka einni
smugu söluskattskerfisins lætur hann aðstand-
endur Húnavershátíðarinnar greiða söluskatt
eins og hina. Ólafur Ragnar Grímsson á völina og
þar með kvölina. BB.
fréffir
Sauðárkrókur:
Saltfiskniitningaíikipid ísnes leggst að bryggju í Sauðárkrókshöfn.
Eins og sjá má er smá auka frakt ofan á lestunum.
Mynd: -bjb
Saltfiskur til Grikklands og Portúgals
í síðustu viku kom saltfiskflutn-
ingaskipið Isnes til Sauðárkróks-
hafnar til að lesta saltfisk til
Grikklands. Alls tók ísncsiö urn
23 tonn af saltfiski, sem verkaður
var í Sandbúðum, saltfiskverkun
Fiskiðju Sauðárkróks. Nokkru
áður fóru 44 tonn af saltfiski frá
Sandbúðum til Portúgals, með
Hvítanesinu. Þess má geta að
það sem af er þessu ári er búið að
verka á milli 500-600 tonn af salt-
fiski í Sandbúðum, sem er mjög
vel tækjum búin saltfiskverkun.
-bjb
Sumarbústaðabyggingar í Eyjafirði:
Mikift byggt en ekki
í skipulögðum hverfum
Sumarbústöðum í Eyjafirði
hefur fjölgað mjög en ekki er
almennt um að ræða skipu-
lagðar byggðir heldur „viH
hver og einn vera út af fyrir sig
í nógu mikilli fjarlægð svo þeir
sjái helst ekki manneskju,“
segir Sigtryggur Stefánsson
byggingafulltrúi Eyjafjarðar.
Síðastliðið sumar og í sumar
hafa fjölmargir bústaðir verið
reistir á svæðinu, mun fleiri en
venjulega hefur verið.
„Pað merkilega við Norðlend-
inga er að þeir vilja ekki reisa
sumarbústaði í skipulögðum
hverfum heldur einangra sig. Hér
á svæðinu eru skipulagðar byggð-
ir í landi Veigastaða, í Svarfað-
ardal og hugmyndir um skipulagt
svæði á Hrísum í Saurbæjar-
hreppi. Síðan eru þetta bara einn
og einn bústaður á stangli á
jörð," sagði Sigtryggur.
Hann sagði oft brenna við að
menn héldu að þeir mættu byggja
kofa hist og her um landið án
þess að nokkur skipti sér af því.
„Þetta er náttúrulega galli og
nienn verða að hlíta landslögum
í þessu efni sem og öðrum. Það
er fjöldinn allur af mönnum sem
þarf að samþykkja bygginguna.
Fólki vex þetta oft í augum en ef
það kemur og leitar sér upplýs-
inga þá er ákaflega auðvelt að
standa að þessu," sagði Sigtrygg-
ur. " KR
Útgerðarfélag Akureyringa:
Vinna hefst á mánudagmn
- togararnir flestir farnir á veiðar
Á mánudaginn hefst vinnsla
hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga að nýju eftir þriggja vikna
stopp. Togarar félagsins eru að
tínast á veiðar að nýju og sá
fyrsti landar strax eftir helgina.
Svalbakur var t'yrstur á veiðar
að nýju eftir stopp en hann fór af
stað á miðvikudag í síðustu viku.
Skipið kemur inn til löndunar á
Fimm vikið
úr landsliði
1 grein í Degi í gær'um að skíða-
mönnum frá Akureyri hefði verið
vísað úr skíðalandsíiðinu var sagt
að fjórir heföu fengið „rauða"
spjaldið. Hið rétta er að fimm
akureyrskum skíðamönnum var
vísað úr landsliðinu. Þeir eru
Guðrún H. Kristjánsdóttir, María
Magnúsdóttir, Vilhelm Þor-
steinsson, Jóhannes Baldursson
og Kristinn Svanbergsson.
mánudaginn en þá hefst vinnsla
að nýju í frystihúsi ÚA. Á laug-
ardaginn fór Hrímbakur svo út,
Haröbakur á þriðjudaginn og
Vinna hefst aftur í sölum Útgerðar-
félags Akurcyringa eftir þriggja
vikna stopp.
Kaldbakur í gær. Sólbakur er svo
síðastur út af ísfisktogurunum en
hann leggur úr höfn á morgun.
ET
íþróttir:
Krakkamót KEA
ámorgun
Á morgun fer fram Krakkamót
KEA í knattspyrnu á Þórsvell-
inum á Akureyri. Þetta mót er
nú orðinn árviss viðburður í
knattspyrnunni á Eyjafjarðar-
svæðinu og er raunar síðasta
stóra mót sumarsins hjá knatt-
spyrnumönnum í 6. flokki.
Það kemur í hlut Þórsara að
halda mótið í ár. Til keppni hafa
skráð sig 7 félög og senda þau allt
upp í fjögur lið hvert. Leikið
verður frá klukkan 9.30 til klukk-
an 17 á morgun. KEA gefur öil
verðlaun á mótinu og fá allir þátt-
takendur þátttökuviðurkenning-
ar frá KEÁ. JÓH