Dagur - 12.08.1989, Qupperneq 7
G. Laugardagur12. ágúst 1989 -r. DAGUR - 7
Sigrún Aadnegaard hreppstjon stjornadi uppbodinu og við hlið hennar situr Sigurgeir bórarinsson skrifari.
Hrossauppboð í Skarðsrétt í Gönguskörðum:
„Þama voru ungar og
fallegar konur úr Reykjavík“
- Sigurður Magnússon og Þórður Þórarinsson með um 100 hross á uppboði
réttunum og seljum hrössin
hverjum sem verða vill,“ sagði
Þörður Þórarinsson í samtali við
Dag. Þórður sagði að það hafi
verið mest um að Húnvetningar
keyptu á uppboðinu, en bætti
við: „Annars keyptu Skagfirðing-
ar líka, þeir hafa alltaf gaman af
þessu.“
í samtali við Dag tók Sigurður
Magnússon undir það með Þórði
að Húnvetningar hefðu keypt
mikið, en sagöi jafnframt að hon-
um hefði tekist að selja þekktum
hrossabændum í Skagafirði, sem
hann átti ekki von á, „Það var
þarna fólk alls staðar frá, jafnvel
ungar og fallegar konur frá
Reykjavík sem keyptu. Þær
hringdu svo daginn eftir til að fá
upplýsingar um ættir hrossanna.
Ég hafði mjög gaman af þessu, í
sjálfu sér,“ sagði Sigurður, kátur
að vanda.
Sigurður var ekkert allt of hrif-
inn af sölunni, en sagði að upp-
boðið hefði þó farið fram. „Ann-
ars fannst mér verðin í lægri
kantinum, en hvað á maður að
gera? Hvað er framundan í
hrossakjötsmálum á komandi
hausti? Kannski að Dagur gæti
svarað okkur um það. Það vantar
meiri markað fyrir mig,“ sagði
Sigurður. Hann sagðist eiga ann-
að eins eftir af hrossum og hann
seldi á uppboðinu, og var greini-
lega ekki allt of ánægður með
það. „Það er annars ekkert til
þess að vera montinn af, að hafa
hrúgað þessum hrossum svona
upp hjá sér,“ sagði Sigurður að
lokum.
Það skal ekki undra að fjöl-
mennt hafi verið á uppboðinu,
því á nær sama tíma var hlé á
Hestamóti Skagfirðinga á Vind-
heimamelum og komu margir
beint þaðan á uppb'oðið. Enda
sögðust þeir kappar, Þórður og
Sigurður, hafa stílað upp á það
að fá hestamenn af Melunum á
uppboðið í Skarðsrétt. -bjb
Það var margt manna sem lagði leið sína í Skarðsrétt í
Gönguskörðum í Skagafirði sl. laugardag. Fram fór opinbert
hrossauppboð á hrossum Sigurðar Magnússonar, Sauðár-
króki, og Þórðar Þórarinssonar frá Rip. Auk Skagfirðinga
mátti sjá þarna Húnvetninga, Akureyringa, Reykvíkinga og
ýmsa fleiri mæta menn. Flestir voru þarna til að fylgjast með
en innan um voru nokkrir kaupa-Héðnar, reiðubúnir til að
punga út nokkrum krónum fyrir góðan hest. Á uppboðinu
voru alls um 100 hross, meiripartur í eign Sigurðar en Þórður
var með 9 hross og 2 folöld. Álls seldust hátt í 60 hross, Þórð-
ur seldi 7 og Sigurður um 50 stykki. Það var hreppstjóri
Skarðshrepps, Sigrún Aadnegaard frá Bergstöðum, sem
stjórnaði uppboðinu og var það í fyrsta skipti sem hún gerir
slíkt því hún er tiltölulega nýtekin við stöðu hreppstjóra. Var
samdóma álit manna að hún hefði staðið sig vel á sínu fyrsta
uppboði.
Þeir Þórður og Sigurður ætl-
uðu sér að slátra hrossunum, ef
einhver markaður yrði fyrir þau,
en ákváðu að prófa hrossaupp-
boð fyrst. „Ég er ánægður með
söluna og ég held að Sigurður sé
það líka. Það er ekki hægt annað
því hrossin seldust á meira en
afsláttarverði. Það var ekki vel
spáð fyrir okkur, um að við
myndum selja eitthvað. Sumir
sögðu að við myndum selja 2-3
hross. Við seljum svo bara
afganginn í haust, verðum kátir í
„Ekkert til þess að vera montinn af,“ segir Sigurður Magnússon m.a. í sam-
tali við blaðið, aðspurður uin hrossaeign sína.
Sigurður sýnir eitt af hrossum sínum og þylur upp ættartöluna. . . og
faðirinn er Rauður minn.“
„Hvernig líst ykkur á þessa meri?“ gæti Einar frá Hólakoti (lengst t.h.) verið
að spyrja félaga sína.