Dagur - 19.08.1989, Blaðsíða 5
tómstundir
Laugardagur 19. ágúst 1989 - DAGUR - 5
l
nant *s>,',n± Qí ' " " ' - StlOAQ -
Með ílag í fóstri - spjallað við Brynhildi Bjarnadóttur:
„Það gefur mér gleði í
hjarta að sjá gróa upp“
Gróskumikið gras og blóni vaxa nú þar sem í fyrra var moldarbarð og fer-
metri eftir fermetra af flagi er nú gróðri þakið. - Brynhildur virðir fyrir sér
landvinningana. Myndir: im.
Fasteigna
Glerórgötu 28
2. hœð
torgið
Sími 21967
Sölustjóri Björn Kristjönssson, heimasími 21776 logmadur Asmundur S. Jóhonnsson
Fp
Fé'ag
(asleignosala
Fjöldi fólks ver drjúgum hluta
sinna tónistunda til garðyrkju
og unir sér hvergi betur en úti
á Ióð, vinnandi öll þau hand-
tök sem vel hirtur garður
krefst af sínum umsjónaraðila.
Garðurinn hennar Brynhildar
Bjarnadóttur, Ijósmóður að
Garðarsbraut 38 á Húsavík er
fallcgur og vel hirtur. Sunnan
undir vegg hússins er rósabeð,
pottur með eyrarrós stendur á
hlóðum og umhverfis hann
skiptast á blómplöntur og aust-
fírskir steinar. En Brynhildur
lætur sér ekki nægja að yrkja
garðinn sinn, hún heldur vel til
haga öllu Iífrænu efni sem til
fellur í garðinum og færir flag-
inu sínu það. Brynhildur til-
heyrir nefnilega hópi þess
ágæta fólks sem tekið hefur
flag í fóstur.
- Brynhildur er beðin að segja
frá fósturbarninu sínu og hvenær
hún hafi tekið það að sér.
„Það var ábyggilega í fyrravor
sem mér datt þetta í hug, mér
fannst svo heillandi það sem ég
las um í blöðunum að fólk á
Suðurnesjum hefði gert með því
að taka flag í fóstur. Þessi sár eru
alls staðar í kring um mann og
mér finnst alveg grátlegt að
henda, eða grafa niður í jörðina
allt það efni sem hægt er að nota
til að græða upp sádn með. Það
má nota allt mögulegt til upp-
græðslunnar, ég fer með þökur,
grasið af lóðinni, arfann sem ég
reiti, grastodda og blóm sem þarf
að grisja. Rabarbarablöðkurnar
eru aldeilis ljómandi góðar, því
þær verða að þessum fína áburði
svo fljótt.“
- Er mikil vinna að koma
þessu fyrir í flaginu?
„Nei, ekki nein fyrirhöfn.
Þetta er svo ótrúlega lítið verk,
það er ekkert meira verk en að
fara með þetta á ruslahaugana.“
Flagið hennar Brynhildar er
sunnan við Húsavíkurbæ, ofan
við veginn skammt vestan
Gvendarsteins. Það er ekkert
smáflag sem Brynhildur hófst
handa við að græða upp, enda er
hún ekki vön að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur. Bryn-
hildur segir að ekki beri mikið á
ræktunarframkvæmdunum sín-
um þegar að flaginu er komið, en
þegar komið er upp að horninu
hennar sést að landvinningarnir
nema býsna mörgum fermetrum.
Þarna kennir margra grasa, bók-
staflega, og blómplöntur og
steinbrjótar virðast ætla að dafna
vel.
- Ertu ákveðin að halda áfram
við uppgræðsluna og hvað held-
urðu að margar gerðir af plöntum
hafi tekið sér bólfestu í flaginu nú
þegar?
„Já, ég ætla að halda þessu
áfram. Það fer allt dót þarna í,
allt sem hægt er að nota og nýta.
Eg veit ekki hvað plönturnar eru
margar; það er grasið, fleiri teg-
undir af því cn ég kann að nefna,
og svo eru komin þarna, smá-
blóm. Ég get aldrei munað nöfn á
blómum, en sum blóm æða um
allt og þá er ágætt að taka það
sem maður vill ekki hafa og
finnst vera til óþurftar og sctja í
flagið í stað þess aö henda á
haugana. Garðabrúða dafnar vel
þarna og gleym mér ei, fjóla og
valmúi.“
- Hvað gefur það þér að verja
tómstundum á þennan hátt?
„Það gefur mér gleði í hjarta
að sjá gróa upp. Það er svo mikið
hægt að gera og ég er búin að
hugsa um það í mörg ár hvernig
öllu er hent. Svo sá ég úti í
Noregi í fyrrasumar hvernig gras
og fleira er notað til uppgræðslu
og eins sag og kurl frá timbur-
verksmiðjum sem er hrært saman
við moldina. I Noregi er ekki
uppblástur eins og hérna en ég sá
þetta í beðum í bæjum og þar
sem verið var að græða upp eftir
vegagerð. Allt svona var nýtt.
Það er auðvitað mikið verk og
erfitt að dreifa öllu moði sem til
fellur á sveitabæjunum : mela og
svæði sem eru að blása upp. Þetta
er hægt og talsvert gert af því en
það þarf miklu meira til. Það er
ekkert betra til uppgæðslu en
moðið.“
- Nú í sumar hefur fólk verið
beðið að losa úrgang úr görðum
sínum í gám við sundlaugina, og
Rimasíða: 114 fm raðhús á einni hæð.
Hvannavellir: 5 herb. e.h. í tvíbýlishúsi ásamt
bílskúr. Góð eign á góðum staö.
Hvammshlíð: Einbýlishús, 259 fm 9 herb. á
tveimur hæðum. Innbyggður tvöf. bílskúr i kjall-
ara. Möguleiki á að innrétta litla ibúð.
Bakkasíða: Einbýlishús, 109 fm 5 herb. ásamt
bílskúr. I smíðum, selst á öllum byqqinqastiqum,
í dag fokhelt.
Grenivellir: Parhús, 118 fm hæð og ris. 5 herb.
Bílskúrsréttur mögul. Til afh. strax.
Tjarnarlundur: Einstaklingsib. ájarðhæð, 39 fm.
Seljahlíð: 3ja herb. raðhúsíbúð ásamt bflskúr.
Góð eign.
BJARMASTÍGUR: Einbýlishús á þremur
hæðum, 435 fm.
EIKARLUNDUR: 240 fm einbylishus á
tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr.
RÁNARGATA: 3ja herb. e.h. 101 fm.
TUNGUSÍÐA: 237 fm einbýlishús á
tveimur hæðum með innbyggðum bíl-
skúr.
hann síðan notaður til upp-
græðslu. Hefur þú orðið vör við
að margir einstaklingar séu búnir
að taka flög í fóstur?
„Ég hef ekki tekið eftir því, en
ég fer ekki víða svo það getur vel
verið án þess að ég verði vör við.
Langt frá séð finnst mér t.d. ekki
takast nokkur skapaður hlutur
eftir því sem ég er að gera þarna
í flaginu. Þegar ég hef ferðast um
landið og hér fram um sveitir hef
ég tekið eftir að gamalt hey hefu'r
verið sett í rofabörð. Það er fljótt
að gróa upp þar sem þetta er
gert, því í þessu er mikið af fræi
og svo fýkur í þetta líka.“
- Heimsækirðu flagið þitt oft?
„Alltaf annað slagið, og þegar
ég er búin að safna einhverju fer
ég með það í flagið.“
- Hvernig finnst þér hafa til
tekist með átakið í ræktunarmál-
um á Húsavík í sumar?
„Ég veit ekki nóg um allt sem
búið er að gróðursetja til að segja
til um það. En ég sé ekki að neitt
hafi veriö unnið í sárunum sem
eru meðfram vegunum hér í
kring. Það þyrfti að tala við þá
sem eru með fjárbúskap hér í
nágrenninu og fá hjá þeim allt
moð sem til fellur yfir veturinn og
setja það í sárin, en láta ekki
henda því eða brenna. Það er
hægt aö græða upp með því og
fegra ásýndina á landinu.“
- Nú er garðurinn þinn falleg-
ur. Hefurðu mikinn áhuga á
garðyrkju?
„Já, mér finnst óskaplega gam-
an að þessu en það verður að
Brynhildur við bóndarósina í garðinum viö Garðursbraut 38.
gæta að því að þetta vaxi manni
ekki yfir höfuð svo ekkert sé
hægt að komast frá. Það er
kannski svolítil freisting
stundum, að bæta við í garðinn.
Það ætti cnginn að vera með
blóm sem ekki hefurgaman af að
hugsa um þau því annars verður
þetta eins og villigróður. Mörg-
um finnst leiðinlegt að reita arfa,
en mér finnst gaman að reita
arfa. I fyrsta lagi er gaman að
hreinsa og sjá moldina hreina á
eftir, og í öðru lagi kann ég ekki
að liggja í sólbaði. Ég lærði það
aldrei. Þegar ég var að alast upp
voru sumargestir í sveitinni og
aldrei meira að gera en þá. Mér
finnst gott að vera úti og að hafa
eitthvað að gera í garðinum og þá
getur verið vont að vera búin að
rcita allan arfa og hafa ekkert að
gera.
Það voraöi svo seint að garður-
inn verður ekki virkilega fallegur
í sumar, mér finnst allt vera mán-
uði seinna en venjulega."
- Hefurðu ort eitthvað um
flagið þitt?
„Nei, það held ég ekki, bara
yrkt það með puttunum. Það er
fallegt erindið hans Bjarna
Ásgeirssonar:
Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð.
Sveit er sál manns kirkja. sáning bænargjörð.
Vorsins söngvaseiður, sálmalögin hans,
blómgvar akurbreiður, blessun skaparans."
Þetta finnst mér aldrei nógu oft
sungið.“ 1M