Dagur - 19.08.1989, Side 7
Uugatctasur 19, ágýsl^ = ÐAGUR = 7
Kristinn G. Jóhannsson skrifar
Ba k þan kar
Gullaugu
Það var ekki björgulegt hjá mér
ástandið eftir að ég hafði birt
síðustu bakþanka mina. Ekki
voru þeir fyrr komnir út á þrykk
en tilkynnt var að Dagur hefði
fengið heimild til greiðslustöðv-
unar vegna offjárfestingar.
Þetta virðist fylgja mér þar sem
þetta er ekki fyrsta Akureyrar-
blaðið sem ég skrifa í sem lend-
ir jafn harðan í verulegum erfið-
leikum með lausafé og svaka-
legan fjármagnskostnað.
Þá bætti ekki úr skák að mér
hafði orðið á þegar ég var að
lýsa heyskapnum á lóðinni
minni að líkja frú Guðbjörgu viö
„vissan stjórnmálaforingja" og
nefnt þau í sömu málsgreininni.
Frú Guðbjörg hefur ekki yrt á
mig síðan og á þessari stundu
ekki neinna breytinga að vænta
í þeim efnum. Síðan kom versl-
unarmannahelgin með hefð-
bundinni dagskrá og eftirleik
sem hefur veirö sá sami frá því
ég man eftir mér fyrst fyrir utan
það að nú eru fjölmiðlarnir fleiri,
fyrirsagnirnar stærri og unga
fólkið fjölmennara og betur búiö
farartækjum.
Verslunarmannahelgarfárið
minnir mig aftur á það að í lóð-
inni minni birtist þegar hún kom
undan snjó í vor dálítið horn
syðst sem reyndist þegar vora
tók með fjölbreyttari gróðri en
aðrir garðpartar. Ég þóttist sjá
vegna glöggskyggni minnar aö
þarna væri aðallega arfi, njóli,
rabbarbari og síðan fíflar og
annar skrautgróður. Mér fannst
þetta býsna fallegt garðshorn
og ákvað með sjálfum mér að
friða þaö í þessu upþrunalega
ástandi. En aldeilis ekki.
Ég var ekki fyrr búinn að taka
ákvörðun um þessa náttúru-
vernd en frú Guðbjörg uppgötv-
ar að þarna muni fundinn
kartöflugarður landareignarinn-
ar. Það var nú Ijóta aflagið.
Umhverfisverndin mín og óspillt
náttúran var þar með fyrir bí.
Flestir þekkja af eigin reynslu
framhaldið. Það þarf aö hvolfa
við moldinni, búa til beð og í
stuttu máli eyðileggja allan fyrri
gróður nema rabbarbarann sem
fékk að vera i friöi í sínum reit.
Síðan fékk ég í hendurnar kart-
öflurnar sem um þetta leyti líkj-
ast einna helst risakóngulóm,
ósköp ólystugar að sjá meö
spírur í allar áttir. Þær voru nú
jarðsettar, viðhafnarlítið. Þeirri
hugsun skaut að vísu upp hjá
mér aö greftrun lokinni 96 nú
yrðu þær vonandi til friðs. En nú
hófst meðgöngutíminn sem er
karlmönnum erfiður eins og
kunnugt er. Brátt fór að grænka
á ný og óx nú upp samtímis
tvenns konar gróður og var
annar fljótsprottnari en hinn.
Það var arfinn. Þegar ekki sá
lengur í kartöflugrösin sem áttu
þó að vera aöalatriðið voru
gerðar viðeigandi ráðstafanir
og farið aö reita upp á gamla
móðinn. Það er kengbogið verk
og reyndist harla tilgangslaust
þar aö auki þar sem beðin urðu
brátt aftur ósköp húnaversleg
ásýndum svo aö endurtaka
þurfti aðgerðina og svo aftur og
aftur. Ég léttist um þrjú kíló og
var orðinn ögn hokinn í göngu-
lagi þegar ég gafst endanlega
upp. En mikið varð ég samt
hissa eins og „viss stjórnmála-
foringi" veröur líka stundum
þegar mér verður í örvæntingu
minni kraflað niður í eitt beðið
og kem upp með þessa dýrindis
kartöflu sem hafði gullaugu og
hafði þrátt fyrir óhrjálegt yfir-
borð garðholunnar náð þessum
góða þroska og drengilega
augnaráði. Það er skemmst frá
því að segja að þrátt fyrir það
að í matjurtaakri mínum örli
tæpast fyrir kartöflugrösum
vegna þess að annar gróður
hefur yfirgnæft þau, tek ég dag-
lega upp þessar fagureygu
ávexti sem hafa ekki látið ill-
gresisflækjuna hefta eðlislæga
glaðværð sína og þroska held-
ur vaxið rótt eins og þeir hafi
verið í dýrindis gróörarmold og
stjanað við þá á alla lund.
Af þessu máttu þjóð mín sjá
að þrátt fyrir að arfinn verði
stundum svo áberandi í garðin-
um okkar að hann virðist ætla
að kæfa annan og eftirsóknar-
verðari gróður er óþarft að
örvænta. Það koma stundum
yfir okkur verslunarmannahelg-
ar þegar okkur finnst yfirborðið
ekki ýkja ræktarlegt. Við fár-
umst yfir þessu í nokkra daga
en látum þó eins og allt sé þetta
sjálfsprottið og komi okkur varla
við nema sem fyrirsagnaefni og
söluvara. Til allrar hamingju vit-
um við líka aö þrátt fyrir það
sem mest er áberandi á yfir-
borðinu þá eru gullaugun þarna
alls staðar og halda áfram að
þroskast hvað sem hver segir.
Það skaðar hins vegar ekki
að við léttum þeim vöxtinn með
því að hirða dálítið betur um
garðinn sem við þykjumst eiga
og viljum ráða yfir.
Það standa nokkrir njólar við
syðsta beöið í kartöflu- og arfa-
garðinum mínum. Þeir minna
mig einna helst á fjölmiðla þar
sem þeir standa hnarreistir,
trénaðir og gráðugir og halda
að garöurinn sé til þeirra vegna.
Kr.G.Jóh.
Húsnædi!
Til sölu endaíbúð í 2ja hæða raðhúsi í Lundarhverfi,
5 herb. og bílskúr.
Vil kaupa 4-5 herb. sérhæð í tvíbýlishúsi á Brekk-
unni. Skipti ntöguleg.
Uppl í síma 22431 um helgina og eftir kl. 19.00 virka
daga.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Öldungadeild
Innritun hefst mánudaginn 21.
ágúst og stendur til 31. ágúst.
Skólameistari.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Framlengdur umsóknarfrestur
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi er laus til
umsóknar kennarastaða í rafeindavirkjun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4,
150 Reykjavík fyrir 25. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
LANDSBANKA
Gott veður en erfið færð
- segja hjónin Georg og Ellen Popping frá Hamborg
Þau hjónin Georg og Ellen
Popping frá Hamborg í
Þýskalandi urðu á vegi blaða-
manns þar sem þau voru að
taka saman föggur sínar á
tjaldstæðinu á Hvammstanga.
Fararskjóti þeirra hjóna vakti
athygli og þó svo að ekki sé um
að ræða nema 17 hestöfl sem
knýja hjól og hliðarvagn þá hefur
gripurinn staðið fyrir sínu á
íslenskum vegum. Víða máttu
þau þó hverfa frá vegna ófærðar;
komust til að mynda ekki í Land-
mannalaugar og á Hveravelli
vegna þeirra óbrúuðu áa sem
þarf að leggja að baki.
Þau hjón höfðu verið hér á
landi í um tvær vikur. Hjólið
kom með skipi til landsins en
sjálf komu þau fljúgandi. Þau
höfðu farið um Suður- og Aust-
urland og líkað vel. Sérstaklega
voru þau ánægð með tjaldstæðið
á Hvammstanga og þá kyrrð sem
þar ríkti.
Þetta er í annað sinn sem
Georg heimsækir ísland. „Ég var
hérna fyrir sex árum í júlí og
ágúst og þá lenti ég í snjókomu.
Við höfum hins vegar verið mjög
heppin með veður núna,“ sagði
hann og um leið byrjaði að rigna
á Hvammstanga. ET
Þau treystu sér ekki yfir Kjöl og ætluðu því að fara þjóðvt-ginn áleiðis til
Reykjavíkur. Mynd: et
ÍSLANDS
Landsbréf hf. er nýstofnaður verðbréfamarkaður
Landsbankans. Auglýst er eftir umsóknum um
starf framkvcemdastjóra. Umsækjandi þarf að
hafa viðskiptafrceði-, hagfrceði- eða aðra
sambœrilega menntun. Frumkvæði og sjálfstœði
í starfi er nauðsynlegt. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf
berist fyrir 1. september n.k. stílaðar á:
Stjóm Landsbréfa hf,
do Landsbanki íslands,
Austurstræti 11, 3- hæð,
Póstbólf 170,
155 Reykjavík.
Nánarí upplýsingar um starfið veita
Bjöm Líndal og Brynjólfur Helgason
aðstoðarbankastjórar.
LANDSBRÉF HF.
Verðbréfamarkaður Landsbankans