Dagur - 02.09.1989, Side 1

Dagur - 02.09.1989, Side 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 2. september 1989 167. tölublað Mynd: KL Fólskuleg árás í miðbæ Akureyrar Um kl. 02.00 aðfaranótt föstudags var ráðist á tvo inenn í ntiðbæ Akureyrar með þeim afleiðingum að flytja þurfti þá á slysadeild FSA þar sem þeir dvöldu um nóttina. Árásarmönnun- um tókst að koma sér undan, en rannsóknarliig- reglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins. Báðir mcnnirnir hlutu alvar- lega áverka og lcikur grunur á að annar hafi hlotið hrygg- mciðsli og að sögn þeirra var árásin tilcfnislaus. Þar scm athurðarrásin cr óljós óskar rannsóknarlögreglan cftir vitnum aö athurðinum. Sömu nótt (>k fólkshifrciö út af vcginum á Mo|dhaugahálsi rctt norðan Akurcyrar. Öku- maöur var einn í hílnum, hann slapp ómciddur og skcmmdist hifrciöin lítiö. Grunur lcikur á að um ölvunarakstur Itafi ver- iö aö ræöa. Þá var ökumaöur sviptur ökulcyfi á staönum cftir aö hafa ekiö á 100 krn hraða cftir Hlíðarhraut síödcgis á fimmtu- dag. VG Munaðarvörur ofarlega á innkaupalistanum: Aminning um árstíð. Myndbandsupptökuvélar og önnur tæla rjúka út - var einhver að tala um kreppu og kaupmáttarskerðingu? Þrátt fyrir að fólk kvarti yfir dýrtíð og minnkandi kaup- mætti virðist sala á ýmsum munaðarvörum vera töluverð. Sjónvarpstæki, myndbands- tæki, myndbandsupptökuvélar og hljómtæki eru gjarnan tekin sem dæmi um dýrar munaðar- vörur og á Akureyri fer sala á þessum tækjum vaxandi eftir að hafa verið frekar dræm yfir hásumarið. Við höfðum samband viö nokkrar verslanir á Akureyri sem selja slík tæki og var hljóðið yfir- leitt gott í mönnum. Þeir voru þó sammála um að salan dytti alltaf niður yfir hásumarið en glæddist aftur með haustinu. Greinilegt er þó að upptökuvélarnar eru nýjasta nýtt hjá fólki þótt varla sé hægt að tala um „æði“ ennþá. „Það er alveg ótrúlegt hvað upptökuvélarnar seljast vel, mið- að við hvað þær eru dýrar. Mað- ur hefði ekki trúað því að fólk hefði efni á þessu, ekki í öllu þessu tali um samdrátt og atvinnuleysi,“ sagði starfsmaður í Japis. Hann sagði að það hefði verið þokkaleg sala í öörum tækjum, sérstaklega sjonvarps- tækjum. í Hljómdeild KEA fengust þær upplýsingar að salan hefði verið hæg í sumar en ávallt einhver hreyfing á tækjunum, t.d. væri nokkuð algengt að skólafólk fjárfesti í hljómtækjum fyrir sumarhýruna. Þá vakti það athygli starfsmanns Hljómdeild- arinnar að útibúið á Dalvík hefði pantað mikiö af sjónvarpstækj- um, raunar meira en nemur söl- unni á Akureyri. Starfsmaður í Radionaust sagði að salan væri að glæðast og sumarútsalan hefði gengið mjög vel, sérstaklega hvað sölu á sjón- varps- og myndbandstækjum varðaði. Þá sagði hann að upp- tökuvélarnar seldust einnig vel. í Nýja filmuhúsinu fengust þær upplýsingar að upptökuvélarnar hreyfðust töluvert og vaxandi sala væri á öllum tækjum, þó kannski ívið minni en á sama tíma í fyrra. Viðmælendur okkar sögðu allir að mikið væri um það að fólk kæmi í verslanirnar, skoðaði tæk- Þrátt fyrir minnkandi kaupmátt neitar fólk sér ekki um lúxusinn. Mynd: KL in og velti málunum fyrir sér. Það er kannski skiljanlegt því tækin eru dýr, t.d. kosta upptökuvél- arnar um 100-130 þúsund krónur. Ymsir greiðsluskilmálar eru í boði, s.s. þriðjungur út og eftir- stöðvar á skuldabréfi til 6-12 mánaða, eða krítarkortarað- greiðslur, en skilmálarnir eru mismunandi eftir verslunum. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.