Dagur - 02.09.1989, Side 2

Dagur - 02.09.1989, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 2. september 1989 Undarleg ellistefiia í neyslumáium Hallfreður Örgumleiðason: Góöan daginn, mínir hjart- fólgnu lesendur. Ég ætla ekki að fjalla um öldrunarmál í þessum pistli mínum heldur stórfurðulega ellistefnu sem gripið hefur um sig í ncyslu- háttum okkar Islendinga. Besta dæmið um hina nýju stefnu er sala á lambakjöti. Nú selst ársgamalt lambakjöt grinnnt á niðursettu verði og skal ég fúslega viðurkenna að ég var einn af þeim sem keypti ríllega af þessu útsölukjöti. Á hinn bóginn verða menn að gera sér grein fyrir því að nú er sláturtíðin að renna upp. Sú staðreynd þýðir að brátt fyllast verslanir af glænýju og góm- sætu lambakjöti á glænýju og uppsprengdu verði. Nýja kjöt- ið er ekkert slor en frekar dey ég úr hor en að kaupa þaö dýr- um dómum, enda vel birgur af gömlu kjöti. Ég veit að margir hugsa eins og ég, sérstaklega skynsamir menn, og því blasir sú staðreýnd við að nýja lambakjötið mun ekki seljast. Þess í stað verður það fryst og selt sem útsölukjöt að ári. Stefnan er greinilega sú að láta Islendinga ávallt kaupa árs- gamalt kjöt. Ég hef að vísu lít- ið vit á landbúnaðarmálum þótt ég hafi verið þrjár vikur í sveit sem unglingur en ég lield þó að einhverjir hljóti að tapa á því að ekki skuli vcra hægt að selja kjötið meðan það er í hæsta verðflokki. Kallast þetta ekki að velta vandanum á undan sér? Við getum sjálfsagt framleitt mý- grút af alls konar kjöti. hlaðið því síðan í frystigeymslur og selt það að ári á útsölu. Þá minnkar kjötfjallið í bili og hringrásin hcfst á ný. Annars hneyksli að borga 5 þúsund krónur fyrir matarkörfu helg- arinnar,“ sagði þriggja barna faðirinn klökkur og pantaði sér nýjasta undratækið frá póst- versluninni Pjátur fyrir aðeins 6.999 kr. Fólk lætur auglýsing- ar stjórna sér gegndarlaust auk þess senr það er alltaf að bera tækja- og húsbúnaðareign sína saman við samsvarandi eign náungans. Þetta er hin hroða- lega munaðarsamkeppni sem hefur einkennt íslensku jrjóð- ina á síðustu árum. „Ég má ekki vera minni maður en Guttormur í næsta húsi,“ hugs- ar hinn dæmigerði íslendingur nútímans mcð sér. Já, ég gleymdi að minnast á fötin áðan. Auðvitaö kaupir enginn ný föt á fullu verði heldur bíða nienn eftir út- sölunum. Fæði og klæði eru nauðsynlegustu vörur okkar og ætli farkostur fylgi ekki í kjöl- farið. En þetta eru allt vörur sem eru brennimerktar af elli- stefnunni og við tímum ekki að kaupa þær fyrr en þær eru konmar á útsölu. Munaðar- vörurnar innfluttu kaupum við hins vegar strax og á hæsta mögulega veröi. því lögmálið cr: Pví dýrari sem munaðar- varan er þeim mun meiri verð ég í augum náungans. Jere- mías, hvílíkt þjóðfélag! Pað er greinilega ekki sama hvaða vara á í hlu't. Ekki förum við að bíða eftir því að brennivín- ið fari á útsölu! Já, þvílík og önnur eins dómgreind er fáheyrð. Ef þið eruð ekki sammála mér, lesendur góðir, þá verður bara að hafa það. Mér kæmi það samt á óvart. Góðar stundir. er ég alvcg sáttur við þetta kerfi sem neytandi, því ég vil auðvitað fá kjötið sem ódýrast. Hins vegar ber ég hag fram- leiðenda og þjóðarinnar allrar fyrir brjósti og ég held að þjóð- arbúið tapi á þessu fyrirkomu- lagi. Lítum næst á bílana. Bif- reiðaumboðin tlytja ár hvcrt inn ógrynni af nýjum og rán- dýrum bílum. Nú sitja þau uppi meö þúsundur óseldra bifreiða af árgerð 1987-1989 og árgerð 1990 er að koma til landsins. Af hverju þurfum við að vera svona stórtækir í öllu? Fáir geta keypt nýja bíla á fullu verði, auk þcss scm markaðurinn þolir ekki allan þcnnan fjölda, og þá er gripið til þess ráðs að selja árgerðirn- ar sem ekki gengu út með af- slætti til að örva söluna og rýma til fyrir nýrri árgerð. Sal- an eykst þá í bili og markaður- inn verður yfirfullur enn á ný, sem þýðir að enginn kaupir nýju bílana fyrr en þeir verða boðnir með afslætti eftir 1-2 ár. Við erum sum sé alltaf að kaupa gamlar vörur á sama tíma og nýjar streyma á mark- aðinn. Gaman væri að heyra hvað spekingar á borð við Hanncs Hólmstcin segja við þessu. Peir heimta sjálfsagt frelsi og fordæma hvers kyns stýringu, enda segja þeir að markaðurinn eigi að ráða, þetta sé lögmálið um framboð og eftirspurn o.s.frv. Við þekkj- unr öll þennan frjálshyggju- grátkór. Við þekkjum líka hve vel liinn svokallaði „markað- ur“ vinnur úr offramleiðslu og hömlulausum innflutningi. Frelsið kallar á ellistefnu og verðhrun. Ég verð líka að gagnrýna hina íslensku þjóð. A sama tíma og við veigrum okkur við að kaupa í matinn getum við sankað að okkur innfluttu fá- nýti og munaði. „Æ, það er Nii kaupiim við bara gamalt lainhakjiit, guniul föt og gamla bíla. Þctta kalla ég cllistcfnu. Hins vegar spáuiii við aldrci í vcrð þegar úþarfa munaðarvörur cru kcvptar. matarkrókur Hollur og góður matur Lifur er fjarskalega hollur og góður matur, ekki síst fyrir hörn og vanfœrar konur, enda er lifur járnrík. Við bjóðum upp á lifrarrétt í mat- arkróknum í dag og einnig inegrunarfiskrétt. Það inætli halda að við værum að lutgsa um línurnar en til að vega upp á móti hollustunni fylgja með uppskriftir af kaffi- brauði sem þó er ekki neitt sérstaklega fitandi. Lifur nieð grœnmetishrísgrjónum I kálfalifur 1 gúrka 100 g sveppir 1 paprika 1 bolli lirísgrjón 2 bollar teningssoð 1 tsk. tirnian 1 tsk. rósmarín Grænmetið er skorið í bita og soöið ásamt hrísgrjónum og kryddi. Lifrin skorin í þunnar sneiöar, krydduö með salti og pipar og sneiðarnar steiktar í 5 mínútur á livorri lilið. Lifrarbit- arnir eru síðan settir ofan á græn- metislu ísgrjónin og rétturinn gjarnan borinn fram með glóðuð- um hrísgrjónum og sítfónusneið- um. Megrunarfiskréttur 1 fiskflak 2 ál vatn / súputeningiir 4 gulrœtur 1 gulrófa (líiil) 200 g hvítkál salt, pipar Rífið gulrætur og gulrófu frekar gróft og saxið hvítkálið. Setjið grænmetið á pönnu í súputen- ingsvatn. Fiskflakið er skorið í litla bita og þeir settir oían á grænmetið. Stráið salti og pipar yfir. há er lok sett á pönnuna og rétturinn soðinn við vægan hita í u.þ.b. 12 mín. Fiskstykkjunum er snúið við þegar suðutíminn er hálfnaður. Síðan eru soðnar kart- öflur snæddar nreð. Hversdagsvöfflur 375 g Itveiti 5 dl súrmjólk 102 msk. flórs.ykur 2 (II vatn 150 g smjörlíki I egg 1 tsk. rijinn sítrónubörkur Égg, súrmjólk og sykur er þeytt saman. Hveiti. sítrónuherki og •vatni blandað í og að síðustu er bræddu smjörlíki blandað saman viö. Þttr með er deigið tilbúið til steikingar. Kókosmuffins 11)0 g smjörlíki 2 (II sykur 1 msk. vániílusykur egg 200 g kókosmjöl heytið; saman egg og sykur. Blandið stðan bræddu smjörlíki saman við, svo og vanillusykri og kókosmjöli. Þetta er bakað í litl- um pappírsformum í miðjum ofni í u.þ.b. 12 mínútur. Muffins er einfalt og fljótgert kaffibrauð. Verði ykkur að góðu. SS Lifur mcð grænnictishrísgrjöniim cr afar Ijúffengur og hollur rcttur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.