Dagur - 02.09.1989, Page 5
Laugardagur 2. september 1989 - DAGUR - 5
tómstundir
,yerður að ólæknandi sjúkdómi hjá flestum“
- segir Gunnar Sólnes formaður Golfklúbbs Akureyrar
Hvað er það sem fær fólk til þess að rölta á eftir
litlum hvítum kúlum um græna velli í allt að sex
mánuði á ári? Þetta er stór spurning sem heyrist oft
frá þeim sem ekki þekkja til, en ætlunin er að
reyna að svara henni á tómstundasíðunni í dag. Til
aðstoðar eru Gunnar Sólnes formaður Golfklúbbs
Akureyrar og Guðjón Jónsson framkvæmdastjóri
klúbbsins.
Gunnar formaður í jjúriri sveitlu á .laóri en völlurinn þar er eiustaklejja skcmiutilcgtir.
„Petta er fyrst og fremst úti-
íþrótt, hún er frekar róleg og
henni fylgir mikil spenna sem
felst bæði í keppni við sjálfan sig
og aðra," sagði Gunnar þegar
hann var beðinn unrað lýsa golfi
í fáum orðum. „Pað er bæði hægt
að líta á golf sem íþrótt og tóm-
stundagaman því það er fyrir alla
fjölskylduna, aldurinn skiptir
ekki mált'Og það er meira um að
fólk iðki golf sem tómstund en
íþróttagrein." Aðspurður um
hvað það væri sem gerði fólk að
golfsjúklingum sagði liann áð
þeir væru mjög margir sem hcfðu
gaman af að ganga eða rölta úti
langar vegalengdir. golfi fylgi
mikil ganga „og við höfum
ánægju af áð slá þennan hvíta
bolta á meðan við göngum. bað
er afskaplega erfitt að lýsa þeirri
tilfinningu sem hríslast í gegnum
mann þegar virkilega góðu höggi
er náð. betta er geysilega góð
hreyfing og ég minnist þess að
hafa lesið einhversstaðar að golf-
ið kæmi næsl á eftir sundi hvað
varðar alhliða hreyfingu. Nú,
félagsskapurinn er líka stórt
atriði því það er lítið um að menn
séu að leika einir, oftast fara þeir
um í hópum og skipta oft um
félaga. í gegnum golf skapast
mjög almenn kynni bæði heima
og erlendis því það er þó nokkuð
um að kylfingar sæki erlenda
golfvelli heim og öfugt."
Byrjunarkostnaður
ekki hár
Hægt er að leika golf í allt að 6-7
mánuði á ári, en það fer vissulega
eftir árferði. Dæmi eru um að
menn hafi verið að slá á Jaðars-
velli í kringum áramót, en svo
koma slæmir tímar eins og t.d. sl.
vor þegar menn voru orðnir það
óþreyjufullir að fengin var að-
staða á Melgerðismelum, þar
útbúinn 9 holu völlur og t.a.m.
haldin þar mót.
Nýliði í golfi þarf að byrja á að
græja sig og segja þeir Gunnar og
Guðjón, að vel sé liægt að kom-
ast af með byrjendasett sem kost-
ar nýtt frá 5-10 þúsund krónum,
en einnig sé hægt að kaupa notað
sett fyrir minna verð. Síðar meir,
ef raunverulegur áhugi kviknar
er hægt að eyða stórum upphæð-
um í golfvörur og segja þeir
félagar lítinn vanda að fara upp í
200 þúsund krónur með því að
kaupa sér fínustu golfsett, klæðn-
að og fleira, en að þetta geri ekki
margir. „Þá geta þeir sem vilja
kynnast íþróttinni, farið í tíma til
David Barnwell og fengið lánuð
hjá honum nokkur járn til .þess
að æfa sig með áður en farið er út
í fjárfestingu," sagði Gunnar.
David er bæði með einstaklings
og hópakennslu á sumrin, auk
þess sem hann kennir inni á vet-
urna.
Golf er feikilega vinsælt
Það geta allir gerst aðilar að
Golfklúbbi Akureyrar, en klúbb-
urinn er aðili að ÍSÍ. Árgjald fyrir
fullgilda meðlimi er nú 18.000
krónur fyrir einstaklinga, hjóna-
gjald er 16.250 krónur á mann,
unglingar 16-20 ára greiða 9.500,
14-15 ára 7.500 og 0-13 ára börn
greiða 3.500 krónur á ári. Nýliðar
senr skrá sig í klúbbinn að vori
greiða hálft gjald fyrsta árið en
litið er á það sem aðlögunartíma.
Meölimir fá ótakmörkuð afnot af
golfvellinum að Jaðri og afdrep í
golfskálanum auk þátttökuréttar
í keppnum á vegum klúbbsins.
Þá er á veturna heilmikið félags-
líf í skálanum og þar er lfka að-
staða til æfinga inni. í Golfklúbbi
Akureyrar eru skráðir 360 félag-
ar í dag og hefur orðið talsvérð
aukning í sumar. „Golf hefur náð
feikilegum vinsældum á skömm-
um tíma og hefur áhugi aukist
mikið. Það hefur vakið athygli
okkar að í sumar hefur aukning
af hálfu kvenna veriö töluverð og
mikið um að þa*r séu hér að leika
sér til skemmtunar og heilsubót-
ar, en þær hafa því miður ekki
t'engist mikið til þess að keppa.
Það er t.d. hefð hjá þeim að hitt-
ast á miðvikudögum og vera þá
hér sem flestar saman, þó þær
spili auðvitað líka á öðrum
dögum. Ef litið er yfir hópinn
sem bæst hefur í klúbbinn í sum-
ar ber mest á unglingum og síðan
fullorðnu fólki," sagði Guðjón.
Hægt að byrja á hvaða
aldri sem er
Við spurðum þá félaga hvort erf-
itt væri að leika golf; hvort menn
og konur þyrftu að vera líkam-
Iega sterkbyggð til þess. „Nei,
líkamlegur kraftur spilar ekki
stórt hlutverk þó það sé auðvitað
ekkcrt verra að vera sterkur. Það
geta allir leikiö golf sér lil
ánægju, tæknin skiptir miklu máli
og svo verða mcnn að hugsa tals-
vert á meðan leikið er. Þá er
mjög mismunandi livað fólk er
lengi að ná tökum á tækninni,
sumir eru orðnir góðir eftir eitt
surnar en svo vitum við auðvitað
um aðra sem e.t.v. hafa leikið í
10 ár með litlum árangri en hafa
samt gaman af því,“ sagði
Gunnar. Guöjón framkvæmda-
stjóri sagði sömuleiðis að hægt
væri að byrja að spila golf á
hvaða aldri sem er, en sjálfur var
hann korninn yfir fimmtugt þegar
hann sló fyrstu höggin. „Ég var
búinn að koma oft hingað uppeft-
ir og fylgjast með, langaði alltaf
að prófa þetta en var hálf feiminn
í byrjun. En svo dreif ég mig af
stað einn góðan veðurdag og nú
reyni ég að spila eins oft og ég
get.“
Gunnar formaður var hins veg-
ar 7 ára gamall þegar hann byrj-
aði að leika golf. „Þá var golf-
völlurinn við Þórunnarstræti og
ég man vel eftir þessu sumri. Ég
byrjaði reyndar að fylgjast með
föður mínum, Jóni Sólnes, en
þetta fyrsta sumar var ég búinn
að verða mér út um 2-3 járn og
eina trékylfu. Þá voru ekki til
drengjasett svo ég lék með full-
orðinskylfum. Síðan hefurekkert
sumar dottið úr hjá mér.“
Ekki hlegið að nýliðum
- Verður golfið að mikilli dellu
hjá fólki?
„Hjá sumu fólki verður þetta
nánast geðveiki, en við eigum 1
dellukalla á svo mörgum sviðunt,
t.d. má nefna laxveiði í því sam-
bandi. Og það er eins meö það og
golfið, menn geta orðið hclteknir
og hjá flestum er þetta ólæknandi
sjúkdómur."
Nú virðist scm golfíþróttin ætti
að henta mjög mörgum og því
athyglisvert aö enn flciri skuli
ekki stunda hana af kappi. En
hvaða skýringu hafa þeir félagar
á því að félagar séu ekki fleiri?
Jú, rnargir cru feimnir og þora
ekki af stað. „Þaö er ekki hlegiö
að einum einasta nýliða hér því
þetta er það sem allir hafa gengiö
í gegnum. Ég er þeirrar skoðunar
að þetta sé ástæðan hjá mjög
mörgum, þá langi til að koma
hingað en séu hræddir við mót-
tökurnar en þaö er cngin ástæða
til þess því við tökum vcl á móti
hverjum scm cr,“ sagöi Gunnar.
Guðjón bætti viö að benda mætti
nýliöum á það aö mjög gott væri
að byrja á að fara til kcnnara til
þess að ná strax tökum á tækn-
inni. Það sc nefnilega ekki gott
ná sér bara í járn og ganga beint
út á völl og reyna að slá.
„Par, grín, pútt . . .“
Reglur golfíþróttarinnar eru til-
tölulega einfaldar. Leikreglurnar
verða ekki tíundaðar hér en við
báðum um útskýringu á hvaö for-
gjöf væri. „Fólk er misjafnlega
gott í golfi. Byrjendum er því
gefinn kostur á að fá ákveðinn
höggafjölda í forgjöf sem dregst
frá fjölda högga í keppnum.
Karlmenn byrja með 36 högga
forgjöf og konur 42 högg á hverj-
ar 18 holur. Ætlast er til að góður
golfleikari fari hverja braut á
ákveðnum höggafjölda sem kall-
aður er par. Par Jaðarsvallar er
71 högg svo karlmaður með
hámarks forgjöf fær til viðbótar
36 högg. Fari hann hins vegar
völlinn undir pari, lækkar for-
gjöfin eftir ákveðnum reglum.
Annað sem hugsanlega gæti
vafist fyrir byrjendum er málfar
golfleikara. „Par, grín, dræv,
slæs, pútt og bönker,“ er meðal
orða sem venjulegt fólk skilur
e.t.v. ekki. Töluvert hcfur verið
gert í því að reyna að íslenska
þessi orð og hafa nokkur þeirra
þegar tekið fasta bólsetu. Þar á
meöal eru orð eins og teigur, sem
er upphafsstaður hverrar brautar
og lokastaður sem ntargir kalla
„grín" heitir flöt.
„Notuðu stór Ijót prik“
Golfvöllurinn að Jaðri nýtur
síaukinna vinsælda meðal
erlendra kylfinga m.a. fyrir að
vera nyrsti IS liolu golfvöllur í
heimi. Jónsmessumótið „Artic
open“ er orðinn árviss viðburður
og mættu t.d. 30 erlendir gestir á
síðasta mót. Greinar sem birst
hafa í erlendum tímaritum um
mótið hafa vakið mikla athygli og
von er á flciri greinum, m.a. í
golftímaritum í Japan og Frakk-
landi.
Konráðs Bjarnasonar forseta
GSÍ í 50 ára afmælisbók Golf-
klúbbs Akureyrar. „Sagt er að
þær fréttir hafi borist 1934 norður
yfir heiðar að fyrir sunnan væru
menn farnir að lemja einhverja
holta niður um gat á túnum
bænda og notuðu lil þess stór og
Ijót prik.
Akureyringum þóttu þetta
merkileg tíðindi og gerðu út
nokkra menn til að kanna hvaða
„veiki" það væri sem nú væri að
hrjá þá sunnanmerin. Komust þeir
fljótt að því og báru síðan „veik-
ina“ með sér norður lil Akureyr-
ar og liala nú Akureyringar leikið
sér við þcnnan leik í 50 ár.“
Svo er það bara að drífa sig í
golfið . . . VG
Við Ijúkum þcssari umfjöllun
um golf með því að vitna í kveðju
Hvers vegna er
nágranni þinn áskrifandi að
„Heima er bezt"?
- Vcgna pcss að pað cr staðrcynd að ,,Hcima cr bczt“
cr eitt af útbrciddustu og vinsælustu tímaritum hérlendis.
„Heima er bezt“ hefur nú verið gefiö út í 38 ár og á því láni
aö fagna aö hafa að bakhjarli margar þúsundir ánægðra áskrif-
enda, og fjöldi þeirra fer stöðugt vaxandi. Þú ættir að hugleiða
hvort ekki væri skynsamlegt að slást í þennan stóra áskrif-
endahóp, og eignast þar með gott og þjóölegt íslenskt tímarit
við vægu gjaldi, sem þú fengir sent heim til þín í hverjum
mánuði. Útfyllið þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér
fyrir neðan og sendið hann til „Heima er bezt", og þá mun
nafn þitt umsvifalaust verða fært inn á áskrifendaspjaldskrána
og þér mun verða sent blaðið mánaðarlega, en þá munt þú
um leið öðlast rétt til aö njóta þeirra hlunninda sem eru því
samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
- Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
-----------------------------------------------
TIL „HEIMA ER BEZT"
Pósthólf 558, 602 Akureyri
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heima er bezt"
[]] Sendið mérblaðið frá 1. janúar 1989. Verð kr. 1690,00
Nafn_______________________
Heimili______________________________________________