Dagur - 02.09.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 2. september 1989
kvikmyndarýni
Umsjón: Jón Hjaltason
Barist til þrautar
Borgarbíó sýnir:
Barist til þrautar (Bloodsport).
Leikstjóri: Newt Arnold.
Handrit: Sheldon Lettich.
Hclstu leikendur: Jean Claudc Van Damme,
Donald Gibb og Bolo Yeung.
Cannon International 1987.
Allt er í heiminum afstætt. Gæði
bíómynda verða að mælast við
eitthvað, þær eru ekki af sjálfum
sér góðar. Jafnframt gefur þaö
augaleið að ekki dugir að leggja
sama kvarðann á allar myndir.
Tökum sent dæmi Rocky Horror
Picture Show, Gaukshreiðrid,
Die Hard og Dirty Dancing.
Hver þessara mynda hlýtur að fá
fyrstu einkunn hjá kvikmynda-
gagnrýnanda en þó engar tvær á
nákvæmlega sömu forsendum.
Vitaskuld má dænta þær eftir
kvikmyndatöku, leik og klipp-
ingu en þegar öllu er á botninn
hvolft þá er ekki nóg að hafa
þessi atriði í lagi til að myndin
geti talist í skárri kantinum. Að
spyrja hvor sé betri spennumynd-
in Lethal Weapon eða nýjasta
mynd Þráins Bertelssonar, um
heimilisföðurinn Magnús, er
álíka og að spyrja hverjir þeirra
séu bestir á skautum listhlaupar-
inn, hraðhlauparinn eða íshokkí-
spilarinn.
Vandinn við að dæma mynd
eins og Barist til þrautar felst í
viðmiðuninni. í öllu bíóinu
bregður aðeins fyrir einum
leikara, Donald Gibb, hinir ráða
engan veginn við hlutverk sín eða
öllu heldur þann part þeirra sem
ekki fer fram á bardagavellinum.
Söguþráðurinn er ömurlega
vandræðalegur og bætir ekki úr
skák að höfundurinn reynir að
fjörga hann með örlitlu ástar-
ævintýri. En það verður ekki
skafið af þessari mynd Newt Arn-
olds að bardagaatriðin eru spenn-
andi og í slagsmálunum sýnir
Jean Claude Van Damme hvað í
honum býr þó að leikarakúnstin
sé honum ekki sérlega töm. Það
hvarflaði raunar stundum að mér
að enskan væri ekki móðurtunga
Van Dammes og ef svo er
skemmir það vitaskuld fyrir hon-
um þá leikhæfileika sem kunna
þrátt fyrir allt að búa rneð
honum.
Barist til þrautar snýst í kring-
um bardagakeppni í Hong 'Kong
þar sem allt er leyfilegt. Bardag-
inn er myndin og lítið annað
kemst að. Bolo Yeung leikur
vonda manninn, rakinn óþokka
sem gerir flest til að meiða and-
stæðinga sína. Hann hefur aldrei
verið sigraöur í þessari árlegu
útsláttarkeppni en Van Damme
og vinur hans Donald Gibb eru
staðráðnir í því að enda sigur-
göngu Yeungs. Gibb bíða hins
vegar þau örlög að tapa fyrir
vonda manninum sem síðar berst
til úrslita við Van Damme.
Eins og áður er sagt þá hljóta
bardagaatriði Barist til þrautar
að teljast býsna spennandi en þau I
eru hrottaleg og ansi blóöug og
því varla viö allra hæfi. Að öðru
leyti er þessi mynd vcl fyrir neð-
an meðallag.
Ég get bætt því við að enga
hugmynd hef ég um sannleiks-
gildi auglýsingarinnar sem segir
að Barist til þrautar sé byggð á
sönnunt atburðum í lífi bardaga-
hetjunnar Franks Dux. Geti ein-
hver bætt úr þessari vanþekkingu
minni þá þigg ég þær upplýsingar
með þökkum. Hafið samband við
Dag og spyrjið eftir kvikmynda-
rýninum.
Beint flu.gr: Akureyri-Mallorca-
Akureyri 14,-21. október.
Verð frá kr. 37.800,-
★ Góð cjreiðslukjör
★ Góðar baðstrendur
★ Gott hótel
★ Verslunarferðir
til Palma
Upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar, sími
25000.
FERÐASKMFSTOFA
AKUREYRAR
RÁÐHÚSTORGI 3 • SÍMI 25000.
Bridgefélag Akureyrar:
„l>jófstartar“ með
haustmóti 9. sept.
- Sumarbridds fellur niður á þriðjudaginn
Bridgefélag Akureyrar hefur
vetrarstarlið með Haustmóti
laugardaginn 9. september
n.k. Um er að ræða eins dags
tvímenningsmót með Baro-
meter-fyrirkomulagi og er 24
pörum heimil þátttaka.
Vetrarstarf Bridgefélags Akur-
eyrar hefst því óvenju snemma
að þessu sinni og segja má að um
hálfgert þjófstart sé að ræða. En
vegna mjög góðrar þátttöku í
sumarspilamennsku félagsins var
ákveðið að gefa briddsspilurum
kost á einu heilsdags móti áður
en hið hefðbundna vetrarstarf
hefst. Sem fyrr segir er 24 pörum
heimil þátttaka og er tekið við
þátttökutilkynningum í sírna 96-
24624 frá kl. 19.00-21.00 næstu
kvöld, þar til þeirri tölu er náð.
Haustmótið fer fram í Félags-
borg á Akureyri og hefst spila-
mennska kl. 10.00 árdegis laugar-
daginn 9. september og lýkur síð-
degis. Boðið veröur upp á kaffi
meðan á spilamennsku stendur.
Varla þarf að taka það fram að
verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin í mótinu. Þátttöku-
gjald er kr. 2.000 á par og er öllu
spilafólki á Eyjafjarðarsvæðinu
heimil þátttaka.
Stjórn Bridgefélags Akureyrar
vill að lokum koma því á fram-
færi að sumarbridds, sem halda
átti í Félagsborg n.k. þriðjudag,
5. september, fellur niður vegna
landsleiks íslands og Finnlands í
knattspyrnu u-21 árs, sem fram
fer á Akureyrarvelli þann dag kl.
19.00. Reynslan hefur sýnt að
mjög margir briddsáhugamenn
eru einnig forfallnir knattspyrnu-
áhugamenn og því telur stjórn
B.A. vænlegt að láta í minni pok-
ann þegar landsleikur í knatt-
spyrnu er annars vegar . . .