Dagur - 02.09.1989, Page 7
Láug'ardagúr'2. septembér 19*89 - DÁGLÍR -7
-i
fréttir
Athugasemd við viðtal IM í Degi 23. ágúst sl. við Pálma Pálmason:
Mótsögn í máli íþróttaMtrúa
Stjórn Í.F. Völsungs harmar
það að opinber starfsmaður
Húsavíkurbæjar skuli hlaupa í
blöð með ágreiningsmál I.F.
Völsungs og embættis æsku-
lýðs- og íþróttafulltrúa í Ijósi
þess að að morgni þess dags
sem viðtalið er tekið taldi
stjórn Völsungs að þau ágrein-
ingsmál sem upp voru komin
hefðu verið útkljáð. Svo virðist
ekki vera og því er óhjákvæmi-
legt að gera athugasemdir við
viðtalið. Að öðru leyti ætlar
stjórn Í.F. Völsungs ekki að
fjalla um samskiptamál I.F.
Völsungs og embættis æsku-
lýðs- og íþróttafulltrúa í
blöðum, þau mál hljótum við
að leysa á faglegum grunni.
í viðtalinu segir íþróttafulltrúi
m.a. að nánast í allt sumar hafi
völlurinn verið opinn öllum
flokkunt til æfinga og keppni og
nú væri búið að skemma völlinn.
„Ég hef oft sagt að það næði
engri átt sú pólitík sem hefur ver-
ið ráðandi innan félagsins, að það
þurfi allir flokkar að víkja fyrir
þessum fimmtán mönnum í
meistaraflokki karla. Ég gef upp
hversu ntikið æfingaálag megi
vera á vellinum en síðan verður
Völsungur að ráðstafa þeim tíma
og það hefur verið þannig að
meistaraflokkurinn gengur fyrir
öllu öðru. Petta er hlutur sem
þeir verða að svara fyrir sjálfir,
þegar ég sé núna að völlurinn er
orðinn stórskemmdur og loka
honum fyrir þessum litlu guttum,
þá þýðir ekkert að hlaupa upp til
handa og fóta og segja að íþrótta-
fulltrúi sé vondur maður því ég
hefði lokað á meistaraflokkinn
Möðruvellir:
Torfi settur í embætti
Eins og fram hefur komið áður
fór fram prestkosning í Möðru-
vallaklaustursprestakalli í
Eyjafirði í lok júlí. Fjórir
uinsækjendur voru um presta-
kallið og hlaut sr. Torfi Stefáns-
son Hjaltalín kosningu.
Séra Torfi hefur starfað sem
æskulýðs- og fræðslufulltrúi
kirkjunnar um nokkurt skeið, en
hafði áður gegnt störfum sóknar-
prests á Þingeyri. í millitíðinni
stundaði hann framhaldsnám í
Svíþjóð.
Sr. Torfi og kona hans Kristín
Magnúsdóttir kennari eru nú að
flytja í Möðruvelli ásamt börnum
sínum fjórum og á morgun,
sunnudag, mun prófastur sr.
Birgir Snæbjörnsson setja sr.
Torfa inn í embætti við guðsþjón-
ustu sem hefst kl. 14 í Möðru-
vallaklausturskirkju. Prófastur
þjónar fyrir altari fyrir predikun
en hinn nýi sóknarprestur stígur í
stólinn og þjónar síðan fyrir alt-
ari seinni hluta messunnar. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn
Guðmundar Jóhannssonar.
Jóhann Pétur og Valdimar að
koma á föstudag, sem er urn leið
aðalsöfnunardagurinn.
Fólk getur valið um ýmsar leið-
ir til að.koma framlögum sínum
til skila. Dreift verður áheitamið-
um í öll hús, auk þess verða
söfnunarbaukar í verslunum og
fyrirtækjum. Föstudaginn 8.
sept. verður hægt að hringja í
Rás 2 til að tilkynna framlög.
Einnig verður hægt að tilkynna
framlög í farsíma 985 - 22626.
EHB
Landssöfnun Sjálfsbjargar:
Á hjólastólum milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur
Á sunnudaginn kl. 14.00 leggja
þeir Jóhann Pétur Sveins-
son, iörmaður Landssambands
Sjálfsbjargar, og Valdimar
Pétursson á Akureyri, gjald-
keri landssambandins, af stað í
hjólastólaakstur frá Akureyri
til Reykjavíkur. Lagt verður
upp frá Ilótel KEA, en þetta
er gert til að vekja athygli á
landssöfnun Sjálfsbjargar.
Söfnunin fer fram í tilefni af 30
ára afmæli landssambandsins.
Söfnunarféð verður notað til að
fullgera Hátún 12, Sjálfsbjargar-
húsið í Reykjavík.
Til Reykjavíkur ætla þeir
Héraðsfundur
EyjaQarðarprófastsdæmis:
Haldirai í
Hrísey í dag
Héraðsfundur Eyjafjarðar-
prófastsdæmis verður haldinn í
Hrísey í dag, laugardaginn 2.
september. Fundurinn hefst í
Barnaskóla Hríseyjar kl. 10.
Ferjan fer frá Árskógssandi kl.
9.30.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður rætt um útdeilingu
altarissakrámentisins og menn-
ingarmiðstöð á Hólum. Fundin-
um lýkur með guðsþjónustu í
Hríseyjarkirkju kl. 16.30, þar
predikar séra Svavar Alfreð
Jónsson.
Félagsheimili KA:
Breyttur
opnimartími
Vertíð knattspyrnumanna
er senn á enda og því fer öll
starfsemi í kringum fótbolt-
ann að minnka uppúr þessu.
Af þessum sökum hefur ver-
ið ákveðið að breyta opnun-
artíma félagsheimilis KA í
vetur og tekur breytingin
gildi frá og með mánudegin-
nm nk.
Á virkum dögum verður
húsið opið frá kl. 14.00-22.00
á kvöldin og um helgar frá kl.
10.00-18.00. Á þessum tíma
stendur til boða sama þjónusta
og veriö hefur, ljós, sauna,
pottur, veitingar og fleira auk
þess sem hægt verður aö fá
Íeigðan sal til hátíðahalda,
íþróttaiðkanna t.d. leikfimi og
annars. VG
líka viö þessar aðstæður. Pað er
stjórnunaratriði innan félagsins
hvernig þeir deila út þessum
tíma, ég hefði persónulega gjarn-
an viljað sjá meira til þessara
yngri flokka á vellinum en veriö
hefur en ég stýri því ekkert hverj-
ir fá aö nota völlinn." Tilvitnun
lýkur.
Pað er mótsögn í þessu þar
sem íþróttafulltrúi segir í öðru
orðinu að völlurinn væri nánast
öllunt opinn til æfinga og keppni,
en í hinu að hann hafi gefið upp
æfingaálag vallarins og úthlutað
tímafjölda pr. viku sem Völsung-
ur hefur ráðstafað. Þess ber þó
að geta að aldrei hefur verið farið
inn á völlinn til æfinga nema í
samráði starfsmanna vallarins og
íþróttafulltrúa. Sú fullyrðing að
meistaraflokkur liafi setiö fyrir
æfingum er alröng. Leitast hefur
veriö við að gæta sem mests jafn-
ræðis milli allra flokka félagsins í
knattspyrnu enda ber árangur
yngri flokka þcss vitni.
Hvað varðar innri málefni
félagsins og niðurröðun æfinga-
tíma er mál félagsins en ekki
æskuiýðs- og íþróttafulltrúa. Að
öðru leyti teljum við þær fullyrð-
ingar sem fram koma í viðtalinu
ekki svaraverðar, en bendum öl 1-
um þeim sem áhuga hafa á þess-
um málum að lesa viðtalið vand-
lega og þær fullyrðingar og mót-
sagnir sem fram koma í því.
Stjórn I.F. Völsungs
Junaði engu að
léti stöðva tramkvæmdirnar
' Vkurtjm.
t> fuixti *»>««> - ■ !
i , látl> St»va i
i 'áiM» >•» **2* í
1» bl. »» Oddeýfí.
Baldvin Valdemarsson:
Athugasemd vegna fréttar
Vegna fréttar í Degi sl. iímnitu-
dag um nýbyggingu K. Jóns-
sonar & co. vill Baldvin Valde-
marssson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri gera eftirfarandi
athugasemd.
„í fyrsta lagi vil ég svara frétt-
inni efnislega. Pað er rangt að við
séum vísvitandi að komast fram
hjá reglugerðum. í þetta verk
höfum við fengið virtan hönnun-
araðila hér í bæ lil aö sjá um
hönnun á þessum byggingum,
þar á meðal alla brunatækni-
hönnun. Öll bréf sent viö höfum
fengið um þetta frá brunavarna-
eftirlitinu scndum við um hæl til
þess sem sér um hönnun hús-
anna, því við höfðum fengið
hann til þess að sjá alfariö um
þetta fyrir okkur og fyrirmælin
voru þau að vera hér með bruna-
varnakerfi eins og besl þekkist í
dag.
í ööru lagi vil ég minnast
á fréttaflutninginn. Pað er eins og
mönnum þyki það sjálfsagt mál
að tala illa um K. Jónsson & co.
Ég spyr af hverju gerö var stór-
frétt úr þessu máli. Gísli Kr.
Lórenzson bendir á að mörg önn-
ur fyrirtæki í bænum hafa ófull-
nægjandi brunavarnakerfi. Á þau
er ekki minnst. Ég bendi á að
þetta mál varð aldrei að vanda-
máli en samt er gerð úr þessu
stórfrétt.
Rétt er að láta það koma fram
að þetta mál er ekki einsdæmi
hvaö K. Jónsson varðar. Ég minni
á að fyrir nokkrunt vikurn ætlaði
allt vitlaust að veröa útaf litarefn-
um í -kavíar. Við innkölluðum
okkar kavíar og þá hljóðnaði
þessi umræða samstundis. Aðrir
kavíarframleiðendur hafa hins
vegar þessa vöru enn á markaði
án þess að undan því sé kvartað.
I þriðja lagi vil ég gera athuga-
semd við blaðamennskuna í
umræddri frétt. Hún finnst mér
vera fyrir neðan allar hellur.
Parna var brotin sú ágæta blaða-
mannaregla að hafa samhand viö
báða málsaðila.
TIL
FRAMKVÆMDA-
AÐILA
Eindagi umsókna
vegna bygginga eða kaupa
á eftirfarandi íbúðum
eMmoktóber nk
a) verkamannabústöðum
b) leiguíbúðum
c) almennum kaupleiguíbúðum
og félagslegum íbúðum.
Umsóknareyðublöð fást hjá félagsíbúðadeild
Húsnæðisstofnunar.
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI • 696900