Dagur - 02.09.1989, Page 8

Dagur - 02.09.1989, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 2. september 1989 „Jæja strákar, þá er það kalda sti - Ingi sturta lítur yfir árin 43 í íþróttahúsinu við Laugargötu Flestir Akureyringar kannast við Inga sturtu. Sérstaklega strák- ar sem gengu í Barnaskólann og Gagnfræðaskólann og voru í leikfimi í Iþróttahúsinu við Laugargötu. Far réði Ingi ríkjum og sá til þess að allir færu í sturtu eftir leikfimina. Undirritaður man vel eftir því að það var lengi vel skylda að fara í ískalda sturtu eftir að maður var búinn að þvo sér undir heita vatninu og Ingi varð að sjá til þess að enginn kæmi sér undir því, enda var talið bráðhollt að láta kalda vatnið buna á sig. En þetta var ekki vin- sæl ákvörðun og urðu oft sviptingar í sturtuklefanum og mikið gólað. Á fullorðinsárunum hef cg stundum iðkuð íþróttir í Laugargötunni og Ing heit i gjarnan minnt rnann góðlátlega á ao fara líka í köldu sturtuna. Sent betur fer er hann bara að spauga því þessi siður er löngu aflagður. En hver er Ingi sturta, hvað heitir hann fullu nafni, hvar og hve- nær fæddist hann? „Ég heiti bara Ingi sturta," segir hann og hlær. „Nei, fullt nafn er Ingólfur Magnússon. Ég er fæddur á Akureyri árið 1928 og alinn upp í Innbænum, cn ég er ættaður að austan. Það var ljómandi gott að alast upp í Innbænum og þar bjó ég allt fram til ársins 1972 og við hjónin ólum þar upp okkar börn. Þetta var heimur út af fyr- ir sig.“ Strákarnir hændust að Bretanum - Þetta var á „gömlu" Akurcyri, ekki satt? „Jú, ég var ekki Fjörulalli, heldur ólst ég upp rétt við gilkjaftinn þar sem Akureyri byggðist fyrst. Við krakkarnir lékum okk- ur mikið í alls konar útileikjum á þessunt árum, t.d. var jakahlaup vinsælt á veturna. Þá var fjaran allt öðruvísi en hún er núna. Á sumrin var farið í ýmsa boltaleiki, fallin spýta og fleira.“ - Þú varst 12 ára gamall árið 1940. Manstu eftir hernámsárunum? „Já, já. Það var meira segja kampur rélt á móti húsinu sem ég bjó í. Bretinn var oft í boltaleikjum þarna líka og þeir spiluðu mikið „baseball“, eða hafnabolta eins og leikurinn heitir á íslensku. Strákarnir hændust margir hverjir að þeim en ég var blessunarlega laus við það samt. Hins vegar var ég skáti á þessum árum og starfaði rnikið nteð þeim. Það var mjög góður tími, mikið um útilegur og annað skátastarf, cn ég hætti í skátunum um tvítugt." Ingi gekk í Barnaskóla íslands, eins og hann var gjarnan kallaður, og fór síðar í Laugaskóla. En livað ætlaði hann að verða þegar hann yrði stór? „Ég held að það hafi alltaf hvarflað að mér að verða bóndi. Það var númer eitt, tvö og þrjú, en það gat bara ekki orðið. Maður var alinn upp með skepnum, enda voru á þessum árum t.d. um hundrað kýr í haga í Innbænum, á höndunr margra eig- enda. Þá var ég fjögur sumur í sveit og það blundaði alltaf í mér að verða bóndi, þang- að til ég varð of gamall til að hugsa um það.“ ■ Búinn að „hokra“ í Laugargötu frá 1946 - Hvað fórstu að gera eftir að þú laukst námi í Laugaskóla? „Ég fór í vegavinnu 15 ára gamall og tvo vetur var ég búðarloka hjá Indriða gamla Helgasyni í Kóinu við Ráðhústorg og árið 1946 byrjaði ég í íþróttahúsinu við Laug- argötu og er búinn að hokra þar síðan. Það er nú allur búskapurinn. Reyndar var ég alls 19 sumur í vega- vinnu, þar af 5 sumur sem almennur verkamaður en síðan var ég vörubílstjóri í 14 sumur. Ég var ekki ráðinn sérstaklega hjá Vegagerðinni heldur var ég hjá Stefni eins og hver annar vörubílstjóri, en við-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.