Dagur - 02.09.1989, Side 16
Skólavörur í
miklu úrvali
Dögun á Sauðárkróki:
að gera
ast til að leyfi fengist fyrir veiði á
innfjarðarrækju, líkt og í fyrra-
haust og eftir áramót. Þá fékk
Dögun að veiða 50 tonn á sitt
hvoru tímabilinu. „Það þýðir
ekkert annað en að vera
bjartsýn. Við vonumst til að fá
ekki minni kvóta af innfjarðar-
rækjunni. Sjómenn sem hafa ver-
ið á snurvoð í sumar segja að það
sé nóg ti! af innfjarðarrækjunni,
því enginn fiskur hafi gengið inn
fjörðinn. Við bíðum spennt eftir
að fá leyfi og það er enginn bar-
lómur í okkur,“ sagði Sigríður í
samtali við Dag.
Svo slegið sé á léttu strengina
þá hafa hlustendur Rásar 2 milli
kl. 13 og 14 á daginn eflaust tekið
eftir símakveðjum stúlknanna í
Dögun og drengjahna í Sæplasti
á Dalvík. Þar hefur stjórnandi
þáttarins „Umhverfis landið á
80“ tekið við „rósóttum“
kveðjum. „Ég hef ekki tekið
eftir neinum trúlofunarhringum
ennþá, en það er um að gera að
létta móralinn, vinnudagurinn er
langur," sagði Sigríður unr þessar
símakveðjur á milli Dögunar-
stúlkna og Sæplastsdrengja.
-bjb
Siglfirðingar vilja að uppbyggingu Lágheiðar verði hraðað:
Kemst vonandi í umræðuna við
Fjórðungsþing Norðlendinga hófst á Akureyri í gær með ávarpi Björns Sigurbjörnssonar, formanns Fjórðungs-
sambandsins. Síðdegis í gær höfðu framsögu Guðmuiidur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, Gerður G. Oskarsdóttir,
Þórður Skúlason og Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra. í dag verður fundinum fram haldið og verður
margt athyglisvert á dagskrá. Sérstaklega skal getið umræðna kl. 14.30 um þemað: „Stefnir norðlcnsk byggðaþróun
í blilldgötll?" Mynd: KL
Brjálað
Þessa dagana er allt brjálað að
gera hjá Rækjuvinnslunni
Dögun á Sauðárkróki. Auk
Hilmis II SU eru þrír aðrir
rækjubátar í viðskiptum við
Dögun, Rauðsey AK, Erling
GK og Haförn ÁR. í síðustu
viku lönduðu bátarnir rúmum
30 tonnum af rækju og liefur
þessi vika farið í að vinna þann
afla, að meðaltali eru unnin um
sex tonn á dag. Það er unnið
alla daga hjá Dögun og frá kl.
8 til 21 á kvöldin virka daga.
Tíu manns vinna við rækju-
vinnsluna, en með löndunar-
fólki og áhöfn Hilmis, vinna
alls yfir 20 manns hjá Dögun.
Að sögn Sigríðar Aradóttur,
verkstjórg í Dögun, er útlit fyrir
næga vinnu fram á veturinn. Þó
munu aðkomubátarnir fara síðar
í mánuðinum á loðnuveiðar og
þá á Hilmir II eftir óveiddan síld-
arkvóta. En Sigríður sagðist von-
endurskoðun
vegaáætlunar
ísak Ólafsson, bæjarstjóri á
Siglufirði, segir að Siglfirðing-
ar hafi margoft bent á nauðsyn
þess að hraða uppbyggingu
vegar yfir Lágheiði, ekki síst
nú þegar skammt er í að jarð-
göng í gegnum Ólafsfjarðar-
múla verði tekin í notkun.
Hann segir að ekki sé hægt að
líta svo á að Siglufjörður komist
í gott vegasamband við byggðir
Eyjafjarðar fyrr en þessi vegur
verði byggður upp.
Lágheiði tengir sem kunnugt
er Ólafsfjörð og Fljót og er hún
að jafnaði lokuð í átta mánuði í\
ári. Það gerir það að verkum að
yfir vetrarmánuðina þarf að aka
um Öxnadalsheiði og úr Skagá-
firði til Siglufjarðar. Þessi
„krókur" lengir leiðina milli
Akureyrar og Siglufjarðar til
muna og gerir það að verkurn, að
margra mati, að samskipti milli
þessara þéttbýlisstaða er ekki
K. Jónsson & Co.:
24 franskir sölu-
menn í heimsókn
Góðir gestir heimsóttu Niður-
suðuverksmiðju K. Jónssonar
& co. í gær en þá komu 24
franskir kavíarsölumenn og
skoðuðu aðstæður hjá fyrir-
tækinu.
Að sögn Baldvins Valdemars-
sonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra, er um að ræða sölumenn
frá Delpierre í Frakklandi sem
sjá um sölu á kavíar frá K. Jóns-
syni. „Yfirmenn fyrirtækisins
hafa komið hingað í heimsókn en
þetta er í fyrsta skipti sem flokk-
ur sölumanna kemur í heimsókn.
Þetta eru mennirnir sem eru í
eldlínunni út í Frakklandi,“ sagði
Baldvin. óþh
jafnmikil og æskilegast væri.
Með jarðgöngum um Ólafs-
fjarðarmúla eygja menn von um
að á þessu vcrði breyting. ísak
Ólafsson segir að bæjaryfirvöld á
Siglufirði hafi síðast í fyrra sent
ýtarlega ályktum um nauðsyn
þess að hraða uppbyggingu Lág-
heiðar til samgönguráðherra og
yfirstjórnar vegamála. „Við-
brögðin við þessu eru nákvæm-
lega engin. Það eina sem þeir
segja er að þessi vegur sé á lang-
tímaáætlun Vegagerðarinnar."
sagði Isak.
Á það hefur verið bent að Lág-
heiðin hafi lent útundan í vega-
framkvæmdum vegna þeirrar
staðreyndar að hún tengir saman
tvö kjördæmi. Þannig hafi luin
lent aftast á forgangslista þing-
manna bæði í Norðurlandskjör-
dæmi vestra og eystra. ísak segir
nokkuð til í þessu og greinilegt sé
að þingmenn feli sig á bak við
langtímaáætlun Vegagerðarinn-
ar. „Þessi endastöðvavegir sitja
alltaf á hakanum."
„Ég geri mér vonir um að við
næstu endurskoðun vegaáætlunar
að tveim árum liðnum komist
Lágheiðin í umræðuna af
alvöru," sagði Steingrímur J. Sig-
fússon, samgönguráðherra. „Eg
held að augu manria hljóti að
dragast að því hversu góð tenging
uppbyggður vegur yfir Lágheiði
er, þó ekki sé nema 8-9 mánaða
vegur borið saman við 3-4 mán-
aða veg í dag.“
Hann sagði að uppbygging
Lágheiðar hafi lengi verið í
umræðunni og sú umræða hafi
aukist eftir að gerð jarðganga í
Ólafsfjarðarmúla hófst. Spurður
um hvort Lágheiði hefði ætíð lent
neðst á framkvæmdalista sökum
þess að hún er millikjördæma-
vegur sagði Steingrímur það vera
vafasamt. „En því er ekki að
neita að það er ákveðin tilhneig-
ing til að láta endavegina rnæta
afgangi," sagði Steingrimur J.
Sigfússon. óþh
Beijaveður!
Norðlendingar þurfa ekki
að kvarta yfir helgarveðrinu
þessa fyrstu helgi í septem-
ber ef marka má spá Veður-
stofu íslands fyrir svæðið.
í dag er gert ráð fyrir að
þykkni upp með sunnanátt og
líklega verður stinningskaldi
sumstaðar. Hætta er á úrkomu
á einhverjum svæðum en litlar
líkur á að hún nái t.d. til
Eyjafjarðarsvæðisins. Hiti
verður á bilinu 8-14 stig.
Á morgun snýst til suð-vest-
an áttar og léttir mikið til, með
hita á bilinu 15-16 stig. Ekki
amalegt veður til berjaferða
enda má búast við að margir
hafi liugsað sér til hreyfings í
þeim efnum um helgina. VG
Nígerískir skreiðarkaupmenn á Dalvík:
Fúsir að kaupa 10 þús. pakka
Tveir nígerískir skreiðar-
kaupmenn, F.l. Omvadike
forstjóri og Uwa Igwe Kalu,
stjórnarformaður, komu í
gær til Akureyrar. Nígeríu-
mennirnir koma á vegum
Fiskmiðlunar Norðurlands,
og tók Hilmar Daníelsson,
forstjóri, á móti þeim, og var
ferðinni heitið til Dalvíkur.
Bragi Eiríksson fylgir skreið-
arkaupmönnunum í þessari inn-
kaupaferð, en hann var áður
framkvæmdastjóri Skreiðar-
samlagsins í 33 ár. „Þeir eru að
leita eftir hausum, fyrst og
fremst, en líka skreið ef hún
fæst nteð góðum kjörunt," sagði
Bragi, og benti jafnframt á að
ekki væri óhugsandi að þeir
keyptu jafnvel eitthvað af Ítalíu-
skreið, eða skrejð sem ekki
Nígeríumennirnir við koniuna til Akureyrar í gær. Frá vinstri: Bragi Eiríks-
son, F.I. Onwadikc, Uwa Iqwe Kalu og Hilmar Daníclsson. Mynd: kl
þætti fullboðleg fyrir Ítalíu-
markað. „Þeir vilja alla skreið,
hvort sem það er ufsi, ýsa,
þorskur, keila eða langa," sagði
hann.
Bragi var spurður þeirra
spurningar hvers vegna hann
væri á ferð nteð Nígeríu-
mönnunum, þar sem hann væri
hættur hjá Skreiðarsamlaginu.
„Ég er búin að vera í þessu í yfir
30 ár. Þessir menn þekkja mig
og báðu mig því að liðsinna
sér,“ sagði hann.
Nígeríumennirnir létu þau
orð falla að þeir vildu kaupa allt
að tíu þúsund pakka af skreið a'f
verkendum við Eyjaförð.
Onwadike var spurður að því
hvað væri efst á baugi varðandi
innkaup á skreið til heimalands
hans. Hann kvað gjaldeyris-
höftin erfiöust, en Seðlabanki
Nígeríu skammtaði innflytjend-
um gjaldeyri þannig að svigrúm
til innkaupa væri takmarkað. Þá
væri gengisskráning nígerísku
nayrunnar óhagstæð gagnvart
Bandaríkjadollar. „Við kaup-
unt hundruði þúsunda skreið-
arpakka árlega, bæði frá Noregi
og íslandi. íslenska skreiöin er
O.K.,“ sagði hann. EHB