Dagur - 22.09.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 22. september 1989
Ásmundur Guðnason réði ekki við Árna og Hcimasætuna og hafnaði í öðru sæti í flokki sérútbúinna bíla.
Gunnar Guðjónsson tók vel á í keppninni en varð að gera sér þriðja sætið að
góðu í flokki sérútbúinna bíla.
Torfærukeppni Bílaklúbbs Akureyrar:
Stefán og Árni öruggir sigurvegarar
Höldur sf. Akureyri:
Kynna nýjan Galant hlaðbak
- og nýtt fyrirkomulag lána vegna bílakaupa
Höldur sf hélt nýlega bílasýn-
ingu á Akureyri. Þar var m.a.
sýndur Mitsubishi Galant 5
dyra „Hatchback,“ sem hefur
verið þýtt „hlaðbak“ á
íslensku. Bifreið þessi hefur
hlotið mikla athygli þar sem
hún hefur verið sýnd.
í kynningarbæklingi um bílinn
segir að verksmiðjurnar hafi lagt
sig fram við að láta hanna öku-
tæki framtíðarinnar. Bíllinn hef-
ur mjög mjúkar línur, og brýtur í
rauninni blað hvað Galant merk-
ið snertir.
MMC Galant hefur verið vin-
sæll bíll á íslandi um allangt
skeið, þótt hann hafi auðvitað
tekið mörgum stökkbreytingum
frá því hann kom fyrst á markað
hérlendis á síðasta áratug. 5 dyra
hlaðbak-bíllinn sannar að engin
stöðnun ríkir hjá Mitsubishi, þar
er sífellt verið að reyna eitthvað
nýtt.
Það sem vekur e.t.v. mesta
athygli við þennan bíl er hversu
smekklega fimmta hurðin fcllur
inn í lögun yfirbyggingarinnar.
Hönnuðir Mitsubishi segjast fyrst
og fremst hafa lagt áherslu á
smekklega en um leið framúr-
stefnulega lögun, þægindi öku-
manns og farþega og, síðast en
ekki síst, alhliða notkunarmögu-
leika og skynsamlegt fyrirkomu-
lag stjórntækja. „Bíllinn á að gera
lífið auðveldara," er slagorð sem
kemur oft fyrir hjá Mitsubishi.
Fyrirkomulag í mælaborði
miðast við að auðvelt sé að lesa á
mælana óg gaumljósin, og að allir
takkar eða rofar sem ökumaður
þarf að nota séu staðsettir þannig
að hann þurfi ekki að teygja sig
langt. í bílnum er afar fullkomið
loftblöndunarkerfi, þar sem mið-
að er við að ferskt loft með réttu
hitastigi geti dreifst eftir þörfum
til ökumanns og farþega í öllum
sætum.
Að öðru leyti eru stjórntæki
einföld og auðveld í notkun, og
ekki óþarft skraut eða óhóflegur
íburður í innréttingum. Hönnuð-
ir hafa greinilega frekar kosið að
leggja metnað í frágang stórra
sem smárra hluta, þannig að úr
verði samræmd heild. Auðvelt er
að opna og lyfta fimmtu hurðinni
aftaná, og ekki þarf að kvarta yfir
plássleysi því með einu handtaki
er auðvelt að stækka farangurs-
rýmið um helming með því að
leggja aftursætin niður. Tæplega
er oft þörf á slíku, því farangurs-
rými er ríkulegt fyrir.
Áklæði á sætum eru úr vönd-
uðum efnum, og það sama má
segja um aðra klæðningu inni í
farþegarýminu. Bíllinn er að
sjálfsögðu teppalagður í hólf og
gólf með fyrsta flokks slitþolnum
og brunaþolnum teppum. Hægt
er að velja mismunandi liti á
áklæði.
Framleiddar eru fjórar gerðir
af þessum bílum, með mismun-
andi vélarstærðum. Hægt er að
velja um tvær 2000 cc eða tvær
1800 cc véla, þ.e. 2 lítrá DOHC
vél 16 ventla, 2 lítra ECI-Multi
vél, 1,8 líters vél og 1,8 líters
turbo-diesel vél. Fyrstnefnda
vélin er framleidd í 16 ventla
útfærslu, sem er um leið sú afl-
mesta. Rafeindastýrð innspýting
á eldsneyti hefur í för með sér
góða orkunýtingu, og ýmsar nýj-
ar uppgötvanir sem hafa verið
gerðar auka endingu vélarinnar.
Nokkur tæknileg atriði (2000
keppendur til leiks og því fór
fram forkeppni um morguninn og
þá heltust 4 keppendur úr lest-
inni. Stefán Gunnarsson frá
Reykjavík sigraði í standard
flokki og hann varð jafnframt
Islandsmeistari í þeim flokki.
Stefán keppir á Willys.
Það var Bílaklúbbur Akureyr-
ar sem sá um framkvæmd keppn-
innar, sem þótti fara vel fram og
mættu tæplega 500 áhorfendur til
þess að fylgjast með. Þó voru
veðurguðirnir að stríða Bíla-
klúbbsmönnum og hafa reyndar
gert það í síðustu þremur keppn-
um sem klúbburinn hefur staðið
fyrir. Vonandi verða þeir heppn-
ari með veður næst.
Annars urðu þrír efstu menn f
hvorum flokki þessir:
Flokkur sérútbúinna bíla: (stig)
1. Árni Kópsson 1435
2. Ásmundur Guðnason 1045
3. Gunnar Guðjónsson 960
Flokkur standard bíla:
1. Stefán Gunnarsson 1360
2. Trausti Sigvaldason 1295
3. Gunnar P. Pétursson 1270
Gunnar Pálmi Pétursson prjónar sig yfir eina þrautina en hann liafnaði í
þriðja sæti í flokki standard bíla. Myndir: kl
Trausti Sigvaldason liafnaði í öðru sæti í flokki standard bíla.
Fimmta og síöasta keppnin á
íslandsmótinu í torfæruakstri,
Pepsi-torfæran, fór fram í
Bæjarkrúsunum viö Akureyri
á laugardaginn. Þarna voru
saman komnir flestir fremstu
torfærukappar landsins, með
sín torfæruverkfæri. Keppt var
í flokki sérútbúinna bíla og í
flokki standard bíla og þurftu
keppendur að leysa 6 þrautir.
Árni Kópsson frá Bíldudal
sigraði mjög örugglega í flokki
sérútbúinna bíla en alls mættu 8
keppendur til leiks. Árni var
raunar búinn að tryggja sér
íslandsmeistaratitilinn í flokkn-
um fyrir keppnina hér. Árni
keppir á Heimasætunni, sérsmíð-
uðum bíl, sem hefur vakið mikla
athygli í sumar. Árni fær því nafn
siít á Valdimarsbikarinn sem
keppt var um í flokki sérútbúinna
bíla en bikarinn gaf Steindór
Steindórsson til minningar um
Valdimar Pálsson, sem var einn
af máttarstólpum Bilaklúbbsins
til fjölda ára.
í standard flokki mættu 12
Árni Kópsson sýndi sem fyrr skemmtileg tilþrif á Heimasætunni og sigraði með glæsibrag í flokki sérútbúinna bíla.
Árni varð auk þess íslandsmeistari í flokknum með miklum yfirburðum.