Dagur - 22.09.1989, Side 9
Minning:
X Ásta Jóna Ragnarsdóttir
Hanna María Ásgeirsdóttir
Þrátt fyrir að nú sé langt um liðið
frá hinu hörmulega slysi (9. júlí
1989) í Bergvatnskvísl þar sem
þær mæðgur Ásta Jóna og Hanna
María létust og einnig Hulda og
Margrét Hauksdætur þá ætla ég
að láta verða af því að minnast
þeirra.
Ástu Jónu kynntist ég fyrst er
við hófum nám í 4. bekk mála-
deildar M.A. haustið 1980. Við
eyddum öllum stundum saman,
við nám og ýmist gaman. Önnur
lönd og tungumál voru ávallt hátt
skrifuð og talið barst oft að ýms-
um vandamálum hérlendis og er-
lendis. Hún gerðist því snemma
meðlimur í J.C. á Ákureyri og
vann þar af heilum hug. Ferðalög
erlendis urðu nú aldrei eins mörg
og áætluð voru en öllum er
ógleymanleg Spánarferð 5.
bekkjar, þegar Ásgeir stal „sen-
unni“ klæddur kvenmannsfatn-
aði.
Ásta Jóna hélt alltaf góða
skapinu og bjartsýninni þó ekki
allt færi sem áætlað væri og fór í
útilegur og fjallaferðir í stað
utanlandsferðanna. Leiðir okkar
skildu að loknu stúdentsprófi
1983 þegar ég fór erlendis en hún
fór að vinna á Degi. Vináttu-
böndin brustu þó aldrei og þau ár
sem ég var heima, kom hún oft til
Eyja meðal ánnars á þjóðhátíð
og fl. mót. Auðvitað fór ég einnig
norður og kynntist þá litla sólar-
geislanum þeirra Ásgeirs, henni
Hönnu Maríu, sem var ótrúlega
bráðþroska og gáfað barn.
Ég var í Færeyjum er mér bár-
ust hin hörmulegu tíðindi. Fyrsta
hugsunin var „nei þetta getur
ekki staðist. Ekki þau, svo þaul-
vön fjallaferðum“. En forlögin eru
undarleg. Því meir sem ég heyri
um þetta allt og eftir að hafa rætt
við Ásgeir skil ég enn betur hví-
líka raun þið hafið gengið í
gegnum.
Óll mín hugsun og samúð er
hjá ykkur öllum, þér Ásgeir, for-
eldrum Ástu, systkinum, tengda-
foreldrum, öllum vinum og ætt-
ingjum.
En sem Ásgeir orðaði svo vel
„þetta hlýtur allt að hafa ein-
hvern tilgang". Þegar rósin er
tekin í blóma sínum þá gleður
hún hvað mest hug og hjarta með
fegurð sinni og ilmi. Enginn tek-
ur minningarnar frá okkur. Ásta
Jóna og hinar þrjár ungu stúlkur
hafa svo sannarlega fært okkur
gleðistundir og auðgað líf okkar.
Ég er Guði þakklát að hafa
kynnst Ástu Jónu og Hönnu
Maríu.
Megi Guð hjálpa ykkur öllum í
ykkar sorg kæru vinir á Akureyri.
Ásdís Jensdóttir,
476 Gjógv, Færeyjar.
Bókavarðan:
Bóksöluskrá
komin út
Bókavarðan, verslun í Reykjavík
með gamlar og nýjar bækur, gef-
ur reglulega út bóksöluskrár. Að
þessu sinni eru rúmlega 1000 titl-
ar í bókaskránni um margvísleg-
ustu efni: íslensk fræði og
norræn, eldri ævisögur og aldar-
farslýsingar, héraðasaga, ætt-
fræði, þjóðsögur, hestar og reið-
menn, leikrit, bækur eftir Elín-
borgu Lárusdóttur, ýmsar ritrað-
ir o.m.fl. hnýsilegt.
Það er reyndar sérstakt að í
þessari skrá eru tvö merkileg
handrit, hið fyrra eftir Indriða
Einarsson skáld og annað eftir
Gísla fræðimann Konráðsson,
ritað skömmu eftir miðja síðustu
öld.
Af einstökum verkum má geta
um: Hagsögulega úttekt á Islands
Opkomst, Deo, Regi, Patriæ eft-
ir Pál Vídalín lögmann, sem Jón
Eiríksson gaf út í Kaupmanna-
höfn 1768, eintak úr eigu Stefáns
amtmanns Þórarinssonar (föður
Bjarna skálds o.fl.), Vestfirskar
ættir I-III bindi, Sjálfstætti fólk 1-
2, frumútg., í vönduðu skinn-
bandi, Bókaskráin um Fiske-
bókasafnið í Cornell háskóla 1-3
bindi, Tímaritið Hesturinn okkar
frá upphafi, tímaritið Eiðfaxi frá
upphafi, Úr fylgsnum fyrri aldar
1-2 eftir Friðrik Eggerz, Árbækur
Reykjavíkur 1786-1936 eftir Jón
biskup Helgason og mikið úrval
merkra ævisagna og ættfræði- og
uppflettirita, sem sjaldan eru
núorðið á markaði.
Bóksöluskráin er send öllum
sem þess óska utan Stór-Reykja-
víkursvæðis, en öðrum afhent í
versluninni að Hafnarstræti 4 í
Reykjavík.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á eignunum sjálfum,
á neðangreindum tíma:
Karlsrauðatorg 20, Dalvík, þingl.
eigandi Bergur Höskuldsson og fl.,
miðvikud. 27. sept. '89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs.Bene-
dikt Ólafsson hdl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Smárahlíð 18b, Akureyri, þingl. eig-
andi Óðinn Magnússon ofl., mið-
vikud. 27 sept. ’89 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Benedikt Ólafsson hdl. Gunnar
Sólnes hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl.
og Veðdeild Landsbanka íslands.
Smárahlíð 9L, Akureyri, talinn eig-
andi ívar Sigurjónsson, miðvikud.
27. sept. '89 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Guðríður
Guðmundsdóttir og Veðdeild
Landsbanda íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Framvegis verðvir
aígx eiðsla Dags
opin í liádeginvi
Lokað kl. 16 á föstudögum.
auglýsingadeild, Strandgötu 31, sími 24222
Borgarbíó
Föstud. 22. sept.
MÁGN5- S
m
rtisex6«mi
kl. 9.00 og 11.00
Magnús
kl. 9.00
Þrjú á flótta
kl. 11.00
Martröð í álmstræti
Föstudagur 22. september 1989 - DAGUR - 9
Meiraprófsnámskeið
verða haldin á Akureyri og annars staðar á Norður-
landi ef næg þátttaka fæst, og gætu hafist í októ-
bermánuði nk.
Upplýsingar gefur Sigurður Indriðason í síma 96-
26765.
Bifreiðastjóranámskeiðin.
Tilboð
á kjúklingum
aðeins
589 kr. kg
HAGKAUP
Akureyri
póst- OG
SiMAMÁLASTOFNUNiN
FORVAL
Póst- og símamálastofnunin hyggst láta leggja
Ijósleiðarastreng frá Akureyri um Húsavík, Þórs-
höfn, Vopnafjörð til Egilsstaða, um það bil 350 km.
Verkið felur í sér lögn á strengnum ásamt frágangi
og á því að vera lokið í september 1990.
Óskað verður eftir tilboðum í verkið í einingum, milli
100 og 150 km langar, þannig að hægt verði að
semja við einn verktaka um eina eða fleiri einingar.
Til verksins þarf sérhæfðan búnað (plóg, kapalvagn
o.s.frv.). Nánari upplýsingar um framkvæmdirnar
veita Páll Jónsson og Jóhann Örn Guðmundsson í
síma 91-26000.
Þeir sem óska eftir að gera tilboð í fyrrgreind verk
sendi upplýsingar um vinnuvélakost sinn og fyrri
verk til Póst- og símamálstofnunar, Tæknideild,
Landsímahúsinu, 150 Reykjavík, merkt: Forval Ljós-
leiðaraiögn 1990, fyrir 1. október nk.
ATVINNA
Fyrirtæki á Akureyri sem starfar í ferðaþjón-
ustu óskar að ráða starfsmann.
Um er að ræða starf við afgreiðslu auk einhverrar
stjórnunar og að sjá um bókhald fyrirtækisins.
Verslunarmenntun og/eða viðskiptamenntun áskilin
auk góðrar bókhaldskunnáttu.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið
störf í nóv.-des.
Skriflegar umsóknir sendist undirrituðum fyrir
28. sept. 1989.
Öllum umsóknum verður svarað og með þær farið
sem trúnaðarmál.
EndurskoÓunar-
miðstöóin hf.
N.Manscher
Gránufélagsgötu 4,
600 AKUREYRI
Telefax: 27386
Sími: 96-25609.