Dagur - 03.11.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 03.11.1989, Blaðsíða 3
 Föstudagur 3. nóvember 1989 - DAGUR - 3 Ragnar Ólafsson, skipstjóri, segir yfirbygginguna í Slippstöðinni allt of mikla: „Það er auðvitað hrein fjar- stæða að útgerðarmenn séu að gamni sínu að leita eftir við- gerðum á skipum sínum erlend- is. Staðreyndin er að sjálf- sögðu sú að viðgerðir eru mun ódýrari erlendis og miðað við stöðu útgerðarinnar reyna útgerðarmenn að fá sem mest fyrir aurinn án þess þó að það komi niður á gæðum við- gerða,“ segir Ragnar Olafsson, skipstjóri og annar útgerðar- aðila Sigllirðings SI-150. Ragnar segir að umræða um Lambakjötssala: Gamlar birgðir á útsölu skipasmíðaiðnaðinn að undan- förnu hafi verið afar villandi. Hann segir það rétt að útgerðir sæki út fyrir landsteinana með viðgerðir en skýringar á því séu einfaldar, menn fái sambærilegar viðgerðir fyrir mun minni pening erlendis. Ragnar fullyrðir að yfir- bygging skipasmíðastöðva hér sé allt of mikil og bendir á að skipa- smíðastöð í Vestur-Þýskalandi á stærð við Slippstöðina á Akur- eyri, þar sem Siglfirðingi var breytt fyrir nokkrum árum, hafi haft mun minna umleikis í stjórn- un en í Slippstöðinni á Akureyri. „Þetta bákn lítur flott og fínt út en ég er ansi hræddur um að hægt væri að spara nokkrar millj- ónir með því að minnka yfirbygg- inguna. Mér finnst vert að tala hreint út um þetta. Menn eru alltaf að tala um glæsileg fyrir- tæki. Glæsileikinn getur verið á ytra borði en síðan eru menn að veslast upp að innan. Það vantar ekkert upp á gæði vinnu hjá Slippstöðinni á Akureyri. Það hef ég alltaf sagt. Kostnaður í kringum viðgerðir þar er hins vegar úr hófi mikill. Menn hafa einfaldlega ekki efni á því að spreða peningum til skipasmíða- stöðvar bara vegna þess að hún sé fín á ytra borði. Menn verða að gera sér grein fyrir hvað þeir ætla að bjóða kúnnanum. Það þýðir ekkert að koma hvað eftir annað í útvarp og blöð og segja að einhverjir aðrir fái verkefnin. Af hverju er það. Menn verða að höggva að rót vandans í þessum iðnaði, sem er alltof mikill stjórnunarkostn- aður,“ segir Ragnar Ólafsson. óþh 300 290, 280. 270. 260. Fjöldi atvinnuleysisbótaþega á Akureyri 1983-1989 Ákveðið hefur verið að setja gamalt dilkakjöt á útsölu í nóvembermánuði. Um er að ræða birgðir frá haustinu 1988. Verðlækkunin er 5-16%, mis- munandi eftir kjötflokkum. Útsölunni lýkur 30. nóvember, jafnvel þó eitthvað verði eftir af birgðum. Mest verðlækkun er á úrvals- kjöti sem nú verður boðið í hálf- um skrokkum, snyrt á sama hátt og í sumar en með nýrri niður- hlutun. Alls verða um 20.000 slíkir pokar á útsölunni og kostar hver þeirra nálægt 2700 kr. Kíló- verð af úrvalskjötinu verður 480 kr. Kjöt í 1. flokki A verður selt með 5% afslætti í heilum skrokk- um til verslana og kjötvinnslu- stöðva. Úr Dl-B og C verða framhryggir, læri og mjóir hrygg- ir settir á markað eftir að hafa verið snyrtir sérstaklega. Að þessari útsölu stendur Sam- starfshópur um sölu lambakjöts. Verði allar birgðir seldar upp í mánuðinum verður heildarkostn- aður ríkissjóðs rúmar 40 milljón- ir króna. JÓH Sjónvarpið: Sýnir heimildar- mynd um Jónas fráHriflu Á sunnudagskvöld verður sýndur í Sjónvarpinu, fyrri þátturinn af tveimur um stjórnmálamanninn og eldhug- ann Jónas Jónasson frá Hriflu. Þessi tveggja þátta heimildar- mynd hefur hlotið nafnið; Sjö sverðin á lofti í senn. Handrit er eftir Elías Snæland Jónsson og hafði hann einnig umsjón með gerð þáttanna. Jónas Jónasson frá Hriflu (1885-1968), var ótvírætt einn litríkasti stjórnmálaskörungur landsins á fyrri hluta þessarar aldar. Jónas var ákafur talsmaður alþýðunnar og einkum þó íslenskra bænda en í sveitunum taldi hann rætur íslenskrar menningar liggja og því væri sjálfsagt að þar yrðu undirstöður hins pólítíska valds í landinu. Því beitti hann sér fyrir stofnun Framsóknarflokksins 1913. Jafn- framt varð hann skólastjóri Sam- vinnuskólans eftir stofnun hans 1918, auk þess sem hann sinnti ósleitilega ritstörfum við blaðið Skinfaxa en hann var um árabil ritstjóri þess og fleiri blaða. Flestum ber saman um að horfur í atvinnumálum séu afar dökkar á Akureyri um þessar mundir og bera uppsagnir fjölda fyrirtækja á starfsmönnum sínum þess glöggt vitni. Atvinnuástandið í ár hefur verið óvenju sveiflukennt eins og fram kemur á línuriti hér að ofan, en á því má líka greinilega sjá hvert stefnir í ár ef fram fer sem horfir. Sjá má að fyrir aðeins tveimur árum var ástandið til- tölulega gott allt árið en árið, eft- ir 1988 versnaði það nokkuð sér- staklega í lok ársins. í ár hafa sveiflur verið miklar og stefnir allt í að atvinnuleysi verði álíka mikið og 1983 þegar það var sem verst. Svera línan á kortinu tákn- ar meðaltal áranna 1983-1988. VG Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir septembermánuð 1989, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 2. nóvember 1989. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrj- aðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og meö 16. nóvember. Fjármalaráðuneytið. Útsala Vegna eindreginna óska fólks, verður útsala okkar opin n.k. laugardag 4. nóvember frá kl. 11-15 aðeins þennan eina dag. Notið tækifærið. Gerið góð kaup. Sama lága verðið. Tómas Steingrímsson & Co. Furuvöllum 3, Akureyri. Sauðfjárslátrun verður þriðjudaginn 14. nóvember 1989 Tilkynna ber fjölda sláturfjár í síðasta lagi föstudag- inn 10. nóvember 1989 í síma 24306. Tekið verður á móti sauðfé mánudaginn 13. nóvember til kl. 16.30. Þeir framleiðendur, sem vilja slátra fullorðnu fé utan fullvirðisréttar gegn sérstakri greiðslu frá sláturleyf- ishafa, láti okkur einnig vita fyrir 10. nóvember 1989. Sláturhús KEA ★ 7 ára ★ Afmælistilboð meðan birgðir endast Svínahamborgarhryggur kr. 895,- kg Kako-kvikk Verð áður 201,- kr. - Nú 162,- kr. María-kex, tveir pakkar Verð áður 159,-kr. - Nú 109,- kr. Orangesafi Verð áður 93,- kr. - Nú 75,- kr. Tilboöiö gildir aöeins laugardaginn 4. nóvember. Kjörbúö KEA Sunnuhlíö N

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.