Dagur


Dagur - 08.11.1989, Qupperneq 2

Dagur - 08.11.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 8. nóvember 1989 Húsavík: fréftir Sex tilboð í bygg- ingu Brekkuhvainms Tilboð í byggingu sambýlishúss að Skálabrekku 19 á Húsavík hafa verið opnuð. í húsinu eiga að vera fjórar verndaðar þjón- ustuíbúðir fyrir aldraða, það verður nefnt Brekkuhvammur og mun standa skammt ofan við Hvamm, dvalarheimili aldraðra. Dvalarheimili aldr- aðra sf. byggir húsið en það verður byggt í svokölluðu „búseturéttarformi“, þar sem væntanlegir íbúar leggja fram Vandi Slipp- stöðvarinnar: Fundað með þingmönnuni Á morgun, fimmtudag, munu formenn og trúnaðarmenn verkalýðsfélaga sem eiga starfsmenn hjá Slippstöðinni á Akureyri, halda fund með öll- um þingmönnum kjördæmis- ins. Miðvikudaginn 1. nóvember sl. komu formenn verkalýðsfé- laganna saman og ræddu stöðuna sem upp var komin. Með þeim á fundinum var Sigurður Ringsted framkvæmdastjóri og var ákveð- ið að óska eftir því að fá þing- menn kjördæmisins á fund með þessum aðilum. Að sögn Hákonar Hákonarson- ar verður lögð áhersla á að fara yfir þá þróun sem verið hefur undanfarin ár varðandi nýsmíðar í skipasmíðaiðnaðinum. VG fé til byggingarinnar. Ollum íbúðunum hefur verið ráðstaf- að. Útboðin voru í húsið fokhelt, frágengið að utan og lóð. Stefnt er að því að íbúðirnar verði til- búnar til notkunar í lok árs 1990. Kostnaðaráætlun nam 10.491.966 kr. Sex tilboð bárust í byggingu hússins og er hið lægsta frá Jóni Ingólfssyni byggingameistara og fleirum, 8.093.469 eða 77,14% af kostnaðaráætlun. Norðurvík hf. bauð 9.093.864 kr. sem eru 86,67% af áætlun. Fjalar hf. bauð 9.225.041 kr., 87,92% af áætlun. Borg hf. bauð 9.284.915 kr., 88,50% af áætlun. Trésmiðjan Rein var með tilboð uppá 9.832.984 kr., sem eru 93,72% af áætlun og hæsta tilboðið kom frá Trésmiðju Jónasar og Eggerts 10.021.670 og nam það 95,52% af kostnaðaráætlun. IM Héldu hlutaveltu til styrktar Þór Fyrir skömmu héldu þrír ungir Pórsarar, hlutaveltu við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð á Akureyri, til styrktar félagsheimilisbyggingu Þórsara. Alls söfnuðu þeir 13.300 kr. sem þeir afhentu Aðalsteini Sig- urgeirssyni formanni íþróttafélags Þórs, framan við Hamar, félagsheimili Þórsara. Aðalsteinn notaði tækifærið og færði strákunum Þórsveifur að gjöf í þakklætisskyni. F.v. Steindór Steindórsson, Sigur- björn Gunnarsson, Grétar Jónsson og Aðalsteinn Sigurgeirsson. Mynd: kk Greiðslustöðvun ÚNÞ á Þórshöfn: „Steftian er nú sett á framtíðarlausn“ - segir Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri „Stakfclliö var einfaldlega rek- iö of lengi með tapi. Það er skýringin á þessum málum. Á svona tímamótum þegar menn neyðast til að leita á náðir hins opinbera þá þarf að fara yfir öll þessi mál og skipuleggja fyrir framtíðina þannig að sú lausn sem finnst verði framtíð- arlausn en ekki skammtíma- lausn sem kemur síðan til kasta Aðalfundur Foreldrafélags Blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri, veröur haldinn 14. nóvember nk. kl. 20.30 í Lóni, Hrísalundi 1. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Starf komandi vetrar. 3. Önnur mál. Foreldrar nýliðanna eru sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórnin. sjóðakerfísins fljótt aftur. Stefnan er sett á framtíðar- lausn á þessum málum,“ segir Sigurður Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Útgeröarfélags Norður-Þingeyinga en um síð- astliðin mánaðamót fékk félag- ið greiðslustöðvun til þriggja mánaða. „Við ætlum okkur á þessum þriggja mánaða tíma að reyna að fá einhverja fyrirgreiðsiu og leggja línurnar um franthaldið. Þar þurfum við að gera okkur grein fyrir að hve miklu leyti við teljum okkur fært að koma inn í atvinnulífið á Þórshöfn með því að landa þar hluta úr árinu. Framtíðaráætlanirnar verða síð- an að standast og vera þannig að reksturinn skili hagnaði. Á litlum stað eins og Þórshöfn er ekki til fjármagn til að styðja við bakið á dýru fyrirtæki sem ekki er rekið með hagnaði. Staðurinn þolir ekki að halda uppi taprekstri. Við verðum að ganga eins langt eins og hægt er í því að landa ísfiski á Þórshöfn en skipið verð- ur að fá svigrúm til að ná sér í tekjur með frystingu,“ segir Sig- urður. Hann segir að skapa verði ein- hug og samstöðu um að málum verði svo fyrir komið nú að ekki sé stöðugt spurning um hvort fyrirtækið lifi eða deyi. Þó fyrir- tækinu verði komið á rekstrarleg- an grunn verði sá grunnur ekki þannig að öllum aflanum verði landað sem ísfiski á Þórshöfn. Þörfin á því sé heldur ekki til staðar nema yfir hörðustu vetrar- mánuðina þegar minni bátar geti lítið aðhafst. „Frumskilyrði fyrir áframhaldandi rekstri skipsins er að það geti fryst stóran hluta ársins. Ég hef trú á að menn séu búnir að átta sig á því,“ segir Sigurður. Stakfellið liggur nú bundið við bryggju á Þórshöfn og mun svo verða þar til nýtt kvótaár hefst um áramót. JÓH Tilboð í frágang sundlaugar við Sólborg: Pan hf. átti lægsta tilboðið Trésmiðjan Pan hf. á Akureyri átti lægsta tilboð í frágang sundlaugar við Vistheimilið Sólborg en tilboð voru opnuð í gær. Tilboð Pans hf., 6,7 millj- ónir króna, nam 94,8% af kostnaðaráætlun. Fimm aðilar á Akureyri buðu í verkið. Að öllu óbréyttu verður geng- ið til samninga við Pan hf. um verkið og segir Magnús Ingólfs- son hjá Pan að gert sé ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fljótlega. Samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu lokið fyrir fyrir 1. apríl á næsta ári. óþh U.M.F. Skriðuhrepps Fundarboð Almennur félagsfundur verður haldinn að Melum, Hörgárdal, fimmtudaginn 9. nóvember og hefst kl. 20.30 stundvíslega. Mætum öll kát og hress. Stjórnin. Hestamenn Eyjafirði og Þingeyjarsýslum Hrcssaræktarsamband Eyfirðinga og Þingeyinga hef- ur koi.ást að samkomulagi við Jóhannes Haraldsson, Rauðuskriðu, að hann taki í hagagöngu og fóðrun, óvanaða ungfola. Peir sem vilja nota sér þessa þjónustu hafi samband við Jóhannes í síma 43504. Stjórnin. „Geirmundur Valtýsson í syngjandi sveiflu“ á markaðinn um 20. nóvember: „Þijú róleg lög - hitt allt stuð“ - segir eldhress Geirmundur Valtýsson „Það eru þrjú róleg lög á þessari plötu, hitt er allt stuð,“ segir Geirmundur Valtýsson, liinn síungi hljómlistarmaður á Sauðár- króki, sem sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu, „Geirmund- ur Valtýsson í syngjandi sveiflu“ síðar í þessum mán- uði. Skífan gefur plötuna út og ef allar áætlanir standast kemur hún á markaðinn um 20. þessa mánaðar. Á plötunni eru fjórtán lög og eru þau að sjálfsögðu öll eftir Geirmund. Að einum undan- skildum eru textar eftir Skag- firðinga. Séra Hjálmar Jónsson á þar af fimm texta á plötunni. Átta laganna hafa aldrei heyrst áður, tvö hafa áður komið út á plötu en lítið heyrst. Þá er óget- ið fjögurra „Júróvisjón“-laga Geirmundar, sem öll verða á plötunni. Hljóðfæraleikarar eru ekki af lakara taginu. Fyrstan skal frægan tclja Magnús Kjartans- son á hljómborð, einnig Vil- hjáim Guðjónsson gítarleikara, Kristin Svavarsson á saxafón, Harald Þorsteinsson á bassa og Gcirniundur Valtýsson. Gunnlaug Briem á trommur. Söngvarar auk Geirmundar eru Helga Möller, Eva Ásrún Albertsdóttir, Ari Jónsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Anna Pála Árnadóttir og ung og efni- leg söngkona frá Borgarnesi, Erla Friðgeirsdóttir. Þá má ekki gleyma flytjendum „Júróvisj- ón"-laganna, en fyrri upptökur af þeim verða á plötunni. „Ég geri mér enga hugmynd um sölu á plötunni. Hún þarf að seljast í 3000 eintökum til þess að borga sig. Þrátt fyrir það er ég bjartsýnn og mér þykir gott til þess að vita að þeir hjá Skíf- unni eru ánægðir með útkom- una og bjartsýnir á sölu. Ég vona að fólk verði ekki fyrir vonbrigðum, ég trúi því að fólk geti hlustað á plötuna út í gegn án þess að hlaupa yfir eitthvað leiðinlegt," segir Geirmundur. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.