Dagur - 08.11.1989, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 8. nóvember 1989 - DAGUR - 5
Húsavík:
Tölvunámskeid
Bygendanámskeið
Töflureíknlrnm MULTIPLAN 4.
Kennd verður uppsetning á töílum og notkun til-
búinna rciknilíkana.
Námskeiðið hefst 14. nóvember og er haldið á
k\c)klin.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í sírna
27899.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34, IV. hæð, sími 96-27899.
Tölvunámskeið
Byrjendanámskeið
Ritvinnslan WordPerfect 5,0.
Kennd vcrður uppsetning á brcfum og farið í
helstu skipanir forritsins.
Námskeiðið hefst 15. nóvember og er haldið á
kvöldin.
Verslunin Búrfell 5 ára
- afmæliskaffi hjá Sólrúnu og Sidda
Verslunin Búrfell á Húsavík
átti fimm ára afmæli 1. nóv. og
í tilefni dagsins var viðskipta-
vinum boðið upp á kaffi og
meðlæti í búðinni. Eigendur
verslunarinnar eru hjónin Sól-
rún Hansdóttir og Sigurður
Kr. Friðriksson. Búrfell er
matvöruverslun og sagði Sól-
rún að reksturinn hefði gengið
framar vonum og Sigurður
sagði að verslun sem yki velt-
una ár frá ári hlyti að vera á
uppleið. í byrjun var tvö og
hálft starf við verslunina en nú
vinna þar sjö manns, en að
vísu ekki allir í fullu starfi.
Sólrún sagði Búrfell staðsett
við þétta og góða íbúðabyggð,
jöfn dagleg verslun væri í búðinni
þó helgarnar væru alltaf bestar.
Sögðust þau hjónin hafa eignast
persónulega vini í búðinni, fólk
sem gjarna liti innfyrir og spyrði
hvort heitt væri á könnunni.
„Þetta er fólk sem ekki er alltaf
endilega að eltast við krónuna en
vill frekar persónulega og góða
þjónustu," sagði Sólrún. Þau
sögðust hafa verið mjög heppin
með starfsfólk á þessum fimm
árum. Á myndinni eru f.v.
Sólrún, Alma Lilja Ævarsdóttir,
Þóra Jónsdóttir og Sigurður, en
auk þeirra starfa Erla Hreiðars-
dóttir, Þórey Sigurðardóttir og
Friðrik, sonur Sigurðar og Sól-
rúnar, við verslunina. IM
Arni Logi framan við byssuúrvalið í verslun sinni.
Að læra meðferð byssu án verklegrar kennslu:
„Eins og að taka
bflpróf í bréfaskóla"
- segir Árni Logi Sigurbjörnsson í Skotfæraþjónustunni
Breytingar og endurbætur
voru gerðar á verslun Skot-
færaþjónustunnar á Húsavík í
haust, eftir að fyrirtækið tók
við umboðum sem KÞ hafði,
en kaupfélagiö hefur nú hætt
yerslun með skotveiöivopn.
Árni Logi Sigurbjörnsson, eig-
andi verslunarinnar, segist
ætla að kappkosta að vera með
vörur fyrir alla veiðimenn,
bæði þá sem stunda skotveiði
og stangveiði.
Árni Logi segir að mjög mikið
hafi verið að gera í versluninni og
mikið selst af byssum, en flestir
kaupenda séu að endurnýja
byssueign sína. Árni verslar
einnig með varahluti í byssur og
annast byssu- og sjónaukavið-
gerðir. Sagðist hann vilja brýna
fyrir skotveiðimönnum að hirða
skotvopnin vel og fara gætilegá
með þau - illa hirtar byssur væru
hættulegar og byssur í höndum
óvanra manna gætu einnig verið
hættulegar. Sagðist Árni gjarnan
vilja koma því á framafæri við
menn að fara varlega, sérstaklega
vill hann beina þessu til þeirra
sem eru að byrja, og jafnvel til
byrjenda sem sótt hafa nám-
skeið, því að læra meðferð byssu
á námskeiði, án verklegrar
kennslu, væri eins og að taka
bílpróf í bréfaskóla. IM
Allur nánari upplýsingar eru veittar í síma
27899.
Tölvufræðslan Akureyrl hf.
Glerárgötu 34, IV. hæð, sími 96-27899.
Karlakóramenn
Akureyri og nágrenni
Ákveðin hefur verið Luciuhátíð um miðjan des-
ember.
Æfingar verða á mánudögum og miðvikudögum kl.
'20.30 í Lóni.
Fjölmennum í kvöld miðvikudag 8. nóv. kl. 20.30
stundvíslega.
Nánari upplýsingar í síma 23289 (Hreiðar) og 23072
(Ingvi).
JVý/r féiagar velkomnir.
Undirbúningsnefnd.
A VEROBREFA-
MARKAÐNUM
WBMM
FROÐLEIKSMOLAR
HLUTABRÉF FYRIRTÆKJA
Nú fer í hönd sá tími ársins sem eftirspurn eftir hlutabréfum
eykst vegna skattaívilnana sem einstaklingar njóta við slík
kaup. Þegar hefur orðið vart við vöntun hlutabréfa í ákveðn-
um fyrirtækjum og hefur gegni þeirra því hækkað nokkuð að
undanförnu.
HÚSBRÉF
Nú fer að styttast í það að húsbréfakerfið taki gildi, en áætlað
er að það fari af stað um miðjan nóv. n.k. Fróðlegt verður að
fylgjast með hverjar breytingar verða á fasteignamarkaði í
kjölfar þessa.
Sölugengi verðbréfa þann 8. nóvember.
Einingabréf 1 4.387,-
Einingabréf 2 ........... 2.421,-
Einingabréf 3 ........... 2.880,-
Lífeyrisbréf ............ 2.206,-
Skammtímabréf ............ 1,503
' ' .................
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
• V'
5g®
■