Dagur - 08.11.1989, Síða 12
Jólakort með þínum myndum
^Peáíomyndir^
\S
★ Sérstakt tilboð
í nóvember Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
...................Illill......
Ómar Pctursson og Vigdís Rafnsdóttir, umsjónarmcnn þáttar Eyfírska sjónvarpsfélagsins „Staður og stund" sem
sendur verður út í kvöld kl. 21.55, mátuðu útsendingarstólana í Stúdíói Samvers í gærkvöld. Maðurinn á bak við
myndavélina heitir Sigurður Hiöðversson. Mynd: KL
Trésmiðja Kára Lárussonar á Skagaströnd:
Tekur rúma viku að
gera við Amarborg
- næsta stora verkefni er smábátabryggja
„Mér sýnist að viðgerð á bátn-
um taki rúma viku,“ sagði Kári
Lárusson, framkvæmdastjóri
Trésmiðju Kára Lárussonar á
Skagaströnd, þegar hann var
inntur eftir gangi viðgerðar á
Arnarborg HU-11.
Arnarborgin, sem er 70 tonna
trébátur í eigu Hólaness hf. á
Skagaströnd, valt á hliðina þegar
átti að sjósetja hann sl. föstudag.
Báturinn var tekinn upp og er nú
hafin viðgerð á honum hjá
Trésmiðju Kára Lárussonar. Að
sögn Kára Lárussonar þarf að
skipta um tvö borð í bátnum og
segir hann að sú viðgerð eigi að
verða tiltölulega auðveld.
Kári segir að engin stærri verk-
efni séu fyrirsjáanleg hjá
slippnum. „Hugsanlega eiga tveir
til þrír bátar eftir að koma í slipp-
inn til áramóta," sagði Kári.
Hann sagði að önnur verkefni
væru að hefjast. Stærst þeirra
nefndi Kári byggingu smábáta-
bryggju fyrir Höfðahrepp. „Pað
voru reknir niður staurar fyrir
bryggjuna í sumar og næsta skref
er að byggja dekkið ofan á
hana.“ óþh
Hjalteyrin Akureyri:
Skipverjinn
„Staður og stund“ Eyfirska sjónvarpsfélagsins:
Sagan á bak við þessa frétt
bfrtist á sjónvarpskjá í kvöld
- Samversmenn fylgdu fréttinni eftir hjá Degi og Dagsprenti
„Staður og stund“ er yfirskrift
þáttar undir stjórn Ómars Pét-
urssonar og Vigdísar Rafns-
dóttur sem Eyfirska sjónvarps-
félagið sýnir í kvöld kl. 21.55
og stendur í tæpa klst. Sem
fyrr verður þátturinn sendur út
á dreifikerfi Stöðvar 2. Að
þessu sinni verður „Staður og
stund“ að hluta til helgaður
útgáfu dagblaðs á landsbyggð-
inni, sem er eins og allir vita
aðeins eitt, dagblaðið Dagur á
Akureyri.
„Okkur þótti forvitnilegt að
skyggnast á bak við hvernig
dagblað verður til. Fólki þykir
ákaflega notalegt áð fá blaðið að
morgni en það hugsar sjaldan út í
hve mikil vinna liggur á bak við
hvert tölublað," segir Ómar Pét-
ursson, annar stjórnenda „Staður
og stund“.
Þátturinn byggir á viðtölum og
þá er einni frétt fylgt eftir í gegn-
um öll vinnslustig, frá því hún
verður til í hugskoti blaðamanns
og þar til hún skríður inn um
bréfalúguna á síðum Dags. Svo
skemmtilega vill til að fréttinni,
sem þú lesandi góður ert nú að
lesa, var fylgt eftir í gær frá tölvu
blaðamanns áfram til útlitsteikn-
ara, þaðan í setningu og áfram til
prófarkalesara. Þaðan lá leiðin í
umbrot og ferðinni var áfram
haldið í filmu- og plötuvinnslu og
niður í prentvél. Síðasti spölur
fréttarinnar í hendur lesenda,
dreifingin, var fest á filmu í
gærkvöld.
„Staður og stund“ var síðast
sendur út miðvikudaginn 18.
október og með þættinum í kvöld
má segja að vetrardagskrá
Eyfirska sjónvarpsfélagsins sé
hafin. Að sögn Bjarna Hafþórs
Helgasonar, sjónvarpsstjóra,
verður þátturinn „Staður og
stund“ með breyttu sniði í vetur
miðað við liðinn vetur. Efnisval
verður annað og uppbygging
þáttanna allt önnur. Pá verða
tveir stjórnendur þáttanna í
vetur, Ómar Pétursson og Vigdís
Rafnsdóttir.
Þátturinn verður 40 mínútur í
vetur í stað 20 mínútna sl. vetur.
Lögð verður áhersla á fleiri efnis-
þætti í hverri útsendingu og þá
segir Bjarni Hafþór að frétta-
tengdu efni verði gefið meira
rými í þáttunum. óþh
á batavegi
Meiðsli skipverja af Hjalteyr-
inni frá Akureyri, sem þyrla
Landhelgisgæslunnar flutti á
Borgarspítalann í Reykjavík
að morgni sl. laugardags, eru
ekki eins alvarleg og óttast var.
Slysið um borð í Hjalteyrinni
bar að með þeim hætti að vír
slóst í manninn þegar hann var
að vinna á dekki með þeim af-
leiðingum að hann skall harka-
lega á höfuðið. Við þetta fékk
skipverjinn heilahristing og var
óttast að höfuðkúpa hans hefði
brotnað. Við myndatöku á Borg-
arspítalanum kom í ljós að svo
var ekki. Skipverjinn liggur nú á
Borgarspítalanum og er á bata-
vegi. óþh
Framkvæmdir í Hafnarstræti 97 stöðvaðar:
Aðilar úr Reykjavík hafa sýnt
áhuga á kaupum á öllu húsinu
Byggingafélagið Lindin, sem
undanfarna tvo mánuði hefur
staðið fyrir byggingafram-
kvæmdum í Hafnarstræti 97 á
Vandi skipasmíðaiðnaðar ræddur í Bæjarstjórn Akureyrar:
Bæjarstjóm skorar á stjómvöld
Miklar umræður urðu á fundi
Bæjarstjórnar Akureyrar í gær
vegna atvinnumála í bænum,
og var samþykkt að skora á
stjórnvöld að móta stefnu í
málefnum skipasmíðaiðnaðar-
ins.
Ályktunin bæjarstjórnarinnar
hljóðar þannig: „Atvinnumála-
nefnd og Bæjarstjórn Akureyrar
skora á stjórnvöld að móta stefnu
í málefnum skipasmíða. Nauðsyn-
legt er að viðhalda og auka þá
þekkingu sem þegar er í landinu
á þessu sviði. Tafarlaust þarf að
endurskoða þær reglur sem snúa
að skipasmíðaiðnaði, þannig að
þær tryggi innlendum fyrirtækj-
um samkeppnisgrundvöll bæði
hvað varðar nýsmíðar og við-
gerðir."
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
Bæjarstjórnar Akureyrar, hélt
ræðu um atvinnumál á fundinum.
Hann rakti atvinnuástand undan-
farinna ára og sagði m.a. að sann-
færing sín væri sú að atvinnu-
ástandið á Akureyri væri síst
verra en víða um landið. Stað-
reyndin væri sú að um 2% af
vinnufærum mannafla t' landinu
væri atvinnulaus, og þótt alvar-
legar blikur væru á lofti vegna
atvinnuástandsins á Akureyri
væri ekki hægt að kenna bæjar-
stjórnarmeirihlutanum um það á
neinn hátt, eins og bæjarfulltrúar
væru sammála um.
Sigurður Jóhannesson sagðist
vera sammála þessum skoðunum
forseta bæjarstjórnar. Hann
minnti um leið á að sjálfstæðis-
menn væru sjálfum sér tæpast
samkvæmir, miðað við þann
málflutning sem viðhafður var í
kosningabaráttunni fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar af þáver-
andi minnihluta bæjarstjórnar,
sem nú myndar meirihluta. „Það
er ánægjulegt til þess að vita að
menn vilji ekki beita sér ekki fyr-
ir pólitískum rógsherferðum eins
og þeim sem tíðkuðust í bænum
fyrir fjórum árum,“ sagði Sigurð-
ur. EHB
Akureyri, er nú aö undirbúa
að stöðva framkvæmdir þar
sem sala á húsinu hefur gengið
illa. Búið er að steypa upp
gólfplötu 1. hæðar. A þessari
stundu er óvíst um framhaldið
en aðilar úr Reykjavík hafa
sýnt því áhuga að kaupa allt
húsið. Oformlegar viðræður
um slíka sölu hafa farið fram.
„Stöðvuninni á framkvæmdum
veldur hve illa gengur að selja og
að margir þeirra sem búnir voru
að sýna því áhuga að kaupa hluta
í húsinu hafa kippt að sér
höndum. Það er því ekkert vit í
öðru en stöðva framkvæmdirn-
ar,“ segir Pálmi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri byggingafélagsins.
Pálmi segir að selja þurfi 70%
af tveimur fyrstu hæðum hússins
til að hægt verði að halda fram-
kvæmdum áfram. Nokkuð vanti
á að svo mikið sé selt þannig að
bið verður á að- framkvæmdir
hefjist á ný.
„Þeir sem þarna höfðu áhuga á
að kaupa koma aðallega úr versl-
unargeiranum og ég býst við að
almennur samdráttur valdi því að
þeir draga sig til baka. Um fram-
haldið veit enginn á þessari
stundu,“ segir Pálmi. JÓH
Atvinnumál á Akureyri:
Borgarafundur
síðar í
mánuðinum
Atvinnumálanefnd Akureyrar-
bæjar ákvað í gærmorgun að
boðað verði til borgarafundar
um atvinnumál í Sjallanum á
Akureyri miðvikudaginn 22.
nóvember n.k.
Til stóð að fundurinn yrði
haldinn í næstu viku en sökum
fjarveru bæjarstjóra var fundin-
um seinkað um viku. Til þessa
lundar verður boðið bæjarfull-
trúum á Akureyri, öllum þing-
mönnum Norðurlandskjördæmis
eystra svo og öllum áhugamönn-
um um atvinnumál á Akureyri.
JÓH