Dagur - 11.11.1989, Síða 1

Dagur - 11.11.1989, Síða 1
72. argangur Akureyri, laugardagur 11. november 1989 217. tölublað Framleiðsla á laxi og silungi um 2000 tonn á þessu ári: Helmingi minni framleiðsla en áætlað var Nú stefnir í að framleiðsla á laxi og silungi hjá fiskeldis- stöðvum á þessu ári verði um tvö þúsund tonn. Þetta er helmingi minni framleiðsla en áætlanir gerðu ráð fyrir. Mið- að var við að framleidd yrðu 4000 tonn af Iaxi á árinu og 400 tonn af silungi. Framleiðsla á laxi mun hins vegar verða um 1800-2000 tonn og 200 tonn af silungi. Friðrik Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, seg- ir að fyrir þessu séu margar ástæður. Hann nefnir í fyrsta lagi að menn hafi dregið slátrun fram yfir áramót og sé áætlað að 1000 tonn, sem með réttu áttu að koma til slátrunar á þessu ári, færist fram yfir áramót. Skýring- una á þessari tilfærslu segir Frið- rik m.a. vera þá að menn geti frekar vænst hagstæðra verða fyr- ir laxinn á fyrstu þrem mánuðum ársins. í öðru lagi segir Friðrik skýringu á helmingi minni fram- leiðslu en gert var ráð fyrir vera þá að vegna þeirra erfiðu skilyrða sem fiskeldinu hafi verið búin hafi fiskeldismenn oft leitað ódýrustu leiða í eldinu. Það hafi síðan leitt til þess að verðmæti hafi farið í súginn. „í örvæntingu sinni grípa menn stundum ódýr- ustu lausnina á hverjum tíma sem aftur leiðir til mikilla affalla." í þriðja lagi nefnir Friðrik að haf- beitin hafi skilað mun minna af laxi á þessu ári en gert var ráð fyrir. Heimildamenn Dags segja skýr- ingu á helmingi minni framleiðslu á þessu ári vera að nokkru leyti þá að menn hafi algjörlega van- metið vöxt íslenska eldisstofns- Raufarhöfn: Rauðinúpur á tvo túra eftír Rauðinúpur ÞH-160, togari Jökuls hf. á Raufarhöfn, er að fara á veiðar á ný eftir að hafa komið með frekar rýran afla að landi úr síðasta túr. Að sögn Hólmsteins Björnssonar, framkvæmdastjóra Jökuls, endist kvóti Rauðanúps út þennan mánuð, eða í tvo túra, en síðan verður hann tekinn upp til viðgerða í desember. Hólmsteinn bjóst við að hægt yrði að halda uppi vinnslu í Fiskiðju Raufarhafnar í desem- bermánuði, en það færi auðvitað eftir tíðinni. Atlinúpur, báturinn sem Jökull festi kaup á, hefur verið á línu að undanförnu og veitt þokkalega. Nokkrir erfiðleikar voru með Atlanúp í fyrstu, sérstaklega í spilbúnaði, en að sögn Hólm- steins hefur útgerð bátsins gengið ágætlega eftir að hann fór á línu. Vonir eru bundnar við að hann sjái Fiskiðjunni fyrir nægilegu hráefni til að hægt sé að halda uppi viðunandi vinnslu. SS Áætlanir miðuðust við framleiðslu 4400 tonna af eldisfiski á þessu ári. Nú stefnir hins vegar í um 2000 tonna framleiðslu. Þrotabú Vinkils sf. á Akureyri: Ákvörðun um áframhaldandi rekstur tekin um helgina „Það verður væntanlega tekin ákvörðun um það nú um helg- ina hvort og þá hvernig rekstri Vinkils verði aftur komið af stað. Til greina kemur að þrotabúið reki þetta eitthvað áfram eða að aðrir aðilar leigi reksturinn,“ segir Asgeir Björnssson, bústjóri þrotabús Vinkils á Akureyri. Ásgeir segist hafa af því spurn- ir að á svæðinu sé áhugi fyrir áframhaldandi rekstri trésmiðj- unnar. „Ef ákvörðun verður tek- in um að halda áfram starfsemi fyrirtækisins er ég hlynntur því að, það verði eftir sem áður á Akureyri,“ segir Ásgeir. Þrotabússtjóri segir að ekki liggi fyrir hversu stórt gjaldþrot sé um að ræða en ljóst sé að það sé nokkuð stórt. Stærð gjald- þrotsins mun ekki verða ljóst fyrr en að afloknum kröfulýsinga- fresti, sem er tveir mánuðir frá auglýsingu. Gjaldþrotið leggst af fullum þunga á tvo einstaklinga á Akureyri. Að sögn Ásgeirs eru næstu skref í málinu að ákveða hvort framhald verði á starfsemi fyrir- tækisins og hvort eignir þrotabús- ins skuli seldar, í heild sinni eða í hlutum. Ásgeir segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að selja eignirn- ar en það verði að vera háð sam- þykki stærstu kröfuhafa. óþh S-Þingeyjarsýsla: Kindur heimtast af ijalli r Á ■■ __ i L .2 2 . ■ « ... í síðustu viku náöust þrjár kindur í Timburvalladal í S- Þingeyjarsýslu en þær höföu orðið eftir á fjalli í göngum í haust. Rjúpnaskyttur urðu varar við féð og létu vita í byggð og náðust kindurnar fljótt. Að sögn Hermanns Herberts- sonar á Sigríðarstöðum í Ljósa- vatnsskarði var ærin og lömbin tvö vel á sig komin enda lítill snjór á dalnum og nóg beit. Hermann segir nokkuð al gengt að fé verði eftir í göngun en fátítt sé að það náist ekki fyr en komið er fram undir miðjai nóvembermánuð. „Við eigum þc eftir að fara í lokaleitir, t.d. i Bleiksmýrardal, en bíðum aðal lega eftir því núna að nægur snjó komi til að þangað verði fært i snjósleðum,“ segir Hermann. JÓF ins. Þessi fullyrðing var borin undir Friðrik og sagði hann að eitt mikilvægasta verkefni í upp- byggingu á íslensku fiskeldi væri að bæta það hráefni sem við hefðum til eldis. „Stór hluti þess fisks sem nýttur er í dag er lítið kynbættur, t.d. varðandi vaxt- arhraða, fallþunga og kynþroska- hlutfall. Það hlýtur því að verða eitt aðalverkefnið að aðlaga ís- lenskan eldisfisk betur að þeim aðstæðum sem eru í fiskeldi á kostnað þeirra aðstæðna sem eru í náttúru villtra laxastofna.“ Friðrik leggur á það áherslu að eldi margra eldisstöðva hafi gengið mjög vel. Þannig hafi t.d. líffræðilegi þátturinn í eldi Islandslax hf. gengið mjög vel og framleiðsluaukning fyrirtækisins frá fyrra ári hafi verið í samræmi við áætlanir. „Það sem hins vegar var að hjá íslandslaxi eins og öll- um öðrum fiskeldisfyrirtækjum var að fyrirtækinu voru ekki búin eðlileg ytri skilyrði.“ óþh Akureyri: Tvö innbrot í fyrrinótt í gærmorgun var rannsóknar- lögreglunni á Akureyri til- kynnt um tvö innbrot sem framin voru í fyrrinótt. Brot- ist var inn í Smurstöð Shell og Matvörumarkaðinn í Kaup- angi. I báðum innbrotunum var stolið talsverðum pening- um. Að sögn Daníels Snorrason- ar, hjá rannsóknarlögreglunni eru bæði þessi innbrot óupplýst. Hann vildi á þessu stigi ekki úti- loka að um sömu aðila gæti ver- ið að ræða í báðum tilvikum. Sjúkraflutningabifreið Slökkvi- liðsins á Akureyri var kölluð að húsi við Byggðaveg á Akureyri laust fyrir hádegi í gær. Þar hafði kona dottið í stiga og meiðst á fæti. Hún var flutt í sjúkrahús. JÓH Helgarveðrið: Snýstísuiuian- átt á morgun Norðiendingar ættu ekki að þurfa að kvíða veðrinu um helgina þrátt fyrir að í dag geti á cinstöku stað gengið á með éljum. Vindur verður að norðan í dag en er á morg- undaginn líður snýst vindátt til suðurs. Hætt er við éljagangi við ströndina í dag og vel er líklegt að þessi él nái inn á austanvert Norðurland. Gera má ráð fyrir frosti. Á morgun snýst í sunnan- átt og léttir þá til en frost verður áfram. Ekki er að búast við að hitasúlan komist upp fyrir frost- markið fyrr en á mánudag. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.