Dagur - 11.11.1989, Qupperneq 1
72. argangur
Akureyri, laugardagur 11. november 1989
217. tölublað
Framleiðsla á laxi og silungi um 2000 tonn á þessu ári:
Helmingi minni framleiðsla en áætlað var
Nú stefnir í að framleiðsla á
laxi og silungi hjá fiskeldis-
stöðvum á þessu ári verði um
tvö þúsund tonn. Þetta er
helmingi minni framleiðsla en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Mið-
að var við að framleidd yrðu
4000 tonn af Iaxi á árinu og 400
tonn af silungi. Framleiðsla á
laxi mun hins vegar verða um
1800-2000 tonn og 200 tonn af
silungi.
Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva, seg-
ir að fyrir þessu séu margar
ástæður. Hann nefnir í fyrsta lagi
að menn hafi dregið slátrun fram
yfir áramót og sé áætlað að 1000
tonn, sem með réttu áttu að
koma til slátrunar á þessu ári,
færist fram yfir áramót. Skýring-
una á þessari tilfærslu segir Frið-
rik m.a. vera þá að menn geti
frekar vænst hagstæðra verða fyr-
ir laxinn á fyrstu þrem mánuðum
ársins. í öðru lagi segir Friðrik
skýringu á helmingi minni fram-
leiðslu en gert var ráð fyrir vera
þá að vegna þeirra erfiðu skilyrða
sem fiskeldinu hafi verið búin
hafi fiskeldismenn oft leitað
ódýrustu leiða í eldinu. Það hafi
síðan leitt til þess að verðmæti
hafi farið í súginn. „í örvæntingu
sinni grípa menn stundum ódýr-
ustu lausnina á hverjum tíma sem
aftur leiðir til mikilla affalla." í
þriðja lagi nefnir Friðrik að haf-
beitin hafi skilað mun minna af
laxi á þessu ári en gert var ráð
fyrir.
Heimildamenn Dags segja skýr-
ingu á helmingi minni framleiðslu
á þessu ári vera að nokkru leyti
þá að menn hafi algjörlega van-
metið vöxt íslenska eldisstofns-
Raufarhöfn:
Rauðinúpur á
tvo túra eftír
Rauðinúpur ÞH-160, togari
Jökuls hf. á Raufarhöfn, er að
fara á veiðar á ný eftir að hafa
komið með frekar rýran afla
að landi úr síðasta túr. Að
sögn Hólmsteins Björnssonar,
framkvæmdastjóra Jökuls,
endist kvóti Rauðanúps út
þennan mánuð, eða í tvo túra,
en síðan verður hann tekinn
upp til viðgerða í desember.
Hólmsteinn bjóst við að hægt
yrði að halda uppi vinnslu í
Fiskiðju Raufarhafnar í desem-
bermánuði, en það færi auðvitað
eftir tíðinni. Atlinúpur, báturinn
sem Jökull festi kaup á, hefur
verið á línu að undanförnu og
veitt þokkalega.
Nokkrir erfiðleikar voru með
Atlanúp í fyrstu, sérstaklega í
spilbúnaði, en að sögn Hólm-
steins hefur útgerð bátsins gengið
ágætlega eftir að hann fór á línu.
Vonir eru bundnar við að hann
sjái Fiskiðjunni fyrir nægilegu
hráefni til að hægt sé að halda
uppi viðunandi vinnslu. SS
Áætlanir miðuðust við framleiðslu 4400 tonna af eldisfiski á þessu ári. Nú
stefnir hins vegar í um 2000 tonna framleiðslu.
Þrotabú Vinkils sf. á Akureyri:
Ákvörðun um áframhaldandi
rekstur tekin um helgina
„Það verður væntanlega tekin
ákvörðun um það nú um helg-
ina hvort og þá hvernig rekstri
Vinkils verði aftur komið af
stað. Til greina kemur að
þrotabúið reki þetta eitthvað
áfram eða að aðrir aðilar leigi
reksturinn,“ segir Asgeir
Björnssson, bústjóri þrotabús
Vinkils á Akureyri.
Ásgeir segist hafa af því spurn-
ir að á svæðinu sé áhugi fyrir
áframhaldandi rekstri trésmiðj-
unnar. „Ef ákvörðun verður tek-
in um að halda áfram starfsemi
fyrirtækisins er ég hlynntur því
að, það verði eftir sem áður á
Akureyri,“ segir Ásgeir.
Þrotabússtjóri segir að ekki
liggi fyrir hversu stórt gjaldþrot
sé um að ræða en ljóst sé að það
sé nokkuð stórt. Stærð gjald-
þrotsins mun ekki verða ljóst fyrr
en að afloknum kröfulýsinga-
fresti, sem er tveir mánuðir frá
auglýsingu. Gjaldþrotið leggst af
fullum þunga á tvo einstaklinga á
Akureyri.
Að sögn Ásgeirs eru næstu
skref í málinu að ákveða hvort
framhald verði á starfsemi fyrir-
tækisins og hvort eignir þrotabús-
ins skuli seldar, í heild sinni eða í
hlutum. Ásgeir segir að ekkert sé
því til fyrirstöðu að selja eignirn-
ar en það verði að vera háð sam-
þykki stærstu kröfuhafa. óþh
S-Þingeyjarsýsla:
Kindur heimtast af ijalli
r Á ■■ __ i L .2 2 . ■ « ...
í síðustu viku náöust þrjár
kindur í Timburvalladal í S-
Þingeyjarsýslu en þær höföu
orðið eftir á fjalli í göngum í
haust. Rjúpnaskyttur urðu
varar við féð og létu vita í
byggð og náðust kindurnar
fljótt.
Að sögn Hermanns Herberts-
sonar á Sigríðarstöðum í Ljósa-
vatnsskarði var ærin og lömbin
tvö vel á sig komin enda lítill
snjór á dalnum og nóg beit.
Hermann segir nokkuð al
gengt að fé verði eftir í göngun
en fátítt sé að það náist ekki fyr
en komið er fram undir miðjai
nóvembermánuð. „Við eigum þc
eftir að fara í lokaleitir, t.d. i
Bleiksmýrardal, en bíðum aðal
lega eftir því núna að nægur snjó
komi til að þangað verði fært i
snjósleðum,“ segir Hermann.
JÓF
ins. Þessi fullyrðing var borin
undir Friðrik og sagði hann að
eitt mikilvægasta verkefni í upp-
byggingu á íslensku fiskeldi væri
að bæta það hráefni sem við
hefðum til eldis. „Stór hluti þess
fisks sem nýttur er í dag er lítið
kynbættur, t.d. varðandi vaxt-
arhraða, fallþunga og kynþroska-
hlutfall. Það hlýtur því að verða
eitt aðalverkefnið að aðlaga ís-
lenskan eldisfisk betur að þeim
aðstæðum sem eru í fiskeldi á
kostnað þeirra aðstæðna sem eru
í náttúru villtra laxastofna.“
Friðrik leggur á það áherslu að
eldi margra eldisstöðva hafi
gengið mjög vel. Þannig hafi t.d.
líffræðilegi þátturinn í eldi
Islandslax hf. gengið mjög vel og
framleiðsluaukning fyrirtækisins
frá fyrra ári hafi verið í samræmi
við áætlanir. „Það sem hins vegar
var að hjá íslandslaxi eins og öll-
um öðrum fiskeldisfyrirtækjum
var að fyrirtækinu voru ekki búin
eðlileg ytri skilyrði.“ óþh
Akureyri:
Tvö innbrot
í fyrrinótt
í gærmorgun var rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri til-
kynnt um tvö innbrot sem
framin voru í fyrrinótt. Brot-
ist var inn í Smurstöð Shell og
Matvörumarkaðinn í Kaup-
angi. I báðum innbrotunum
var stolið talsverðum pening-
um.
Að sögn Daníels Snorrason-
ar, hjá rannsóknarlögreglunni
eru bæði þessi innbrot óupplýst.
Hann vildi á þessu stigi ekki úti-
loka að um sömu aðila gæti ver-
ið að ræða í báðum tilvikum.
Sjúkraflutningabifreið Slökkvi-
liðsins á Akureyri var kölluð að
húsi við Byggðaveg á Akureyri
laust fyrir hádegi í gær. Þar
hafði kona dottið í stiga og
meiðst á fæti. Hún var flutt í
sjúkrahús. JÓH
Helgarveðrið:
Snýstísuiuian-
átt á morgun
Norðiendingar ættu ekki að
þurfa að kvíða veðrinu um
helgina þrátt fyrir að í dag
geti á cinstöku stað gengið á
með éljum. Vindur verður að
norðan í dag en er á morg-
undaginn líður snýst vindátt
til suðurs.
Hætt er við éljagangi við
ströndina í dag og vel er líklegt
að þessi él nái inn á austanvert
Norðurland. Gera má ráð fyrir
frosti. Á morgun snýst í sunnan-
átt og léttir þá til en frost verður
áfram. Ekki er að búast við að
hitasúlan komist upp fyrir frost-
markið fyrr en á mánudag.
JÓH