Dagur - 11.11.1989, Page 2

Dagur - 11.11.1989, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1989 Böm og gamalmeimi em stofnanamatur Góðan daginn, æruverðugu lesendur. Eftir því sem aldur- inn færist yfir mig á ég æ erfið- ara með að skilja ungdóminn nú til dags. Samt er ég ákaflega víðsýnn maður, umburðar- lyndur og þolinmóður með afbrigðum. Þetta getur konan mín góðfúslega staðfest, sé hún pínd til sagna. En kyn- slóðabilið er staðreynd. Þegar ég var hnokki lék ég mér úti öllum stundum. Ég átti bú með leggjum og skeljum, ég rann- sakaði gömlu rafstöðina við Glerá, klifraði í Hrafnabjörg- um, læddist inn í hermanna- göngin sem voru fyrir ofan Gefjun, skrapp upp á grísaból- ið sem var við ofanvert Þing- vallastræti, fór í jakahlaup eða skautahlaup við Leirurnar, elt- ist við kindur á bæjum þar sem Síðuhverfi er nú, auk þess að fremja alls kyns strákapör sem ekki verða tíunduð hér. Þið verðið að bíða þolinmóð eftir ævisögunni - Stormasamt líf Hallfreðs Örgumleiðasonar. Væntanleg í bókaverslanir á næstu áratugum. Sjónvarpið var ekki til í þá daga, ekki einu sinni í sauða- litunum. Maður las bækur, spilaði, tefldi eða hlýddi á visku fullorðinna þá sjaldan drengurinn fékkst til að vera inni. Útvarpið var líka mikill fróðleiksbrunnur en helstu skemmtanirnar voru bíó og leikhús. Mín kynslóð bar yfir- leitt tilhlýðilega virðingu fyrir fullorðnum og var hænd að gamla fólkinu. Kynslóðabilið var ekki óbrúanlegt. Ömmur og afar voru fjölskyldumeðlim- ir, ekki stofnanamatur. Mæður voru heima þegar börnin komu úr skólanum og tóku á móti þeim með heitum mat, hlýju og áhugasemi. Feður unnu skikkanlegan vinnutíma og sinntu fjölskyldunni þess á milli. Já, hvað hefur orðið um þessa blómatíma fjölskyldunn- ar? í dag er bókstaflega allt farið úr skorðum. Börn og gamal- menni þvælast á milli stofnana þvi þessir þjóðfélagshópar falla ekki að allsnægtarþjóðfé- lagi fólks á aldrinum 25-50 ára. Þetta er fólk á uppleið, fólk sem hugsar um peninga og munað, ekki börn sín eða for- eldra. Sjónvarp og myndbönd eru keypt til að hafa ofan af fyrir börnum og gamalmenn- um. Líf þeirra er einn allsherj- ar stofnanaskjár. Kuldi, mötun, útskúfun. Hvað geta mörg börn gengið að foreldr- um sínum heima þegar þau koma úr skólanum? Hve marg- ir foreldrar hafa tíma til að sinna börnum sínum? Hve mörg börn sitja stjörf yfir ofbeldiskvikmyndum í frí- stundum sínum? Áleitnar spurningar kalla á harkaleg viðbrögð. Nú rísa margar úrvals mæður og fyrir- myndarfeður upp og grýta blaðinu í gólfið. „Bölvuð ósvífni er þetta hjá karlfuglin- um! Syni mínum líður vel. Þetta er liðin tíð. Ofbeldismyndir á skjánuni hafa leyst móðurfaðminn af hólmi og nú er svo komið að forcldrum þykir það mikil fórnfýsi að eyða smátíma með börnum sínum. matarkrókur Réttír frá Islandi og Indónesíu Enn er krókurinn kominn með fréttir, kætast þá halur og drós. Bollur úr fiski og framandi réttir, fljótlega koma í Ijós. Já, ágœtu sæl- kerar. Matarkrókurinn hefst að þessu sinni með vísukorni en hvort það fengi náð fyrir brageyra Árna Björnssonar er svo annað mál. Það sem fyrir liggur er að bjóða ykkur upp á fiskbollurétt, pottrétt frá Indónesíu og eplaköku með súkkulaðibitum. Sigmar fær ábyggilega vatn í munn- inn. Fiskbollu-risotto 2 laukar 2 tsk. karrý 1-2 msk. smjörlíki 2 dl hrísgrjón 1 púrrulaukur 1-2 tómatar 1 dós fiskbollur (eða annar fiskur) 4 dl fiskteningasoð Saxið laukinn og steikið í smjör- líki ásamt karrý. Bætið hrísgrjón- unum og púrrusneiðum saman við og sjóðið í teningavatni þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk. Setj- ið þá fiskbollur og tómata út í og hitið í fáeinar mínútur. Rétturinn er borinn fram með kartöflum og brauði. Fyrirtaks fiskréttur, ein- faldur og ódýr. Indónesískur pottréttur 500 g svínagúllas salt, karrý, engifer, paprikuduft 1 laukur 2 gulrœtur kjötkraftur soyasósa 1 banani 1 epli V4 l rjómi Svínakjötið er brytjað í smátt og steikt ásamt lauknum. Kryddað. Soðið í kjötkraftsbættu vatni og soyasósu. Smátt skornar gulrætur settar með. Þetta er soðið í u.þ.b. 40 mínútur. Þá er eplabit- um, bananabitum og rjóma bætt út í og soðið áfram í 15 mínútur eða þar um bil. Borðið þennan rétt með hrísgrjónum. Eplakaka með súkkulaðibitum 300 g hveiti IV2 tsk. lyftiduft 150 g sykur 150 g smjörlíki 2 egg Fylling: 4 rifin epli 2 msk. sykur 60 g rúsínur 60 g súkkulaði (í bitum) 30 g hnetur (saxaðar) 1 tsk. kanill Byrjið á því að hnoða deigið. Setjið síðan % af deiginu í smurt kringlótt mót og þrýstið deiginu upp í barmana. Blandið öllu sam- an sem fer í fyllinguna og setjið ofan á deigið. Afgangurinn af deiginu er flattur út, skorinn í ræmur sem settar eru ofan á fyll- inguna. Kakan er bökuð við meðalhita í 30-40 mínútur. Að sjálfsögðu er gott að hafa þeyttan rjóma með volgri eplakökunni. Verði ykkur að góðu. SS Hann fær góðar einkunnir í skólanum og við förum stund- um á völlinn saman. Ég veit ekki betur en við heimsækjum ömmu hans einu sinni í mán- uði þannig að það er allt í stak- asta lagi hjá okkur.“ Jú, þetta eru ekki ósennileg viðbrögð. Margir foreldrar líta á það sem aðdáunarvert örlæti ef þeir eyða fáeinum klukku- stundum á viku með börnum tæknivæddur að sögur frá tím- um sjálfsþurftarbúskapar fá engan hljómgrunn. í þriðja lagi verða foreldrarnir vitlausir ef ég yrði á börn þeirra því nú til dags er fullorðinn maður sem skiptir sér af börnum álit- inn andlega veill. í fjórða lagi má síðan nefna að fólk á ekk- ert af börnum lengur, það er ekki tími eða pláss fyrir þau í þjóðfélaginu. Hallfreður Örgumleiðason: sínum. Klukkustundum sem hægt væri að eyða í sjálfan sig. Hvílík fórnfýsi, hvílík óeigin- girni! Einstaka feður sýna jafn- vel þá drengskaparlund að lesa bækur fyrir börnin þegar myndbandstækið er í hreinsun. Miðað við þetta uppeldi er ekki undarlegt þótt mér gangi illa að skilja ungdóminn. Ég reyni oft að tala við börn, segja þeim sögur frá því í gamla daga og innprenta þeim guðs- ótta og góða siði. Það mistekst hrapallega. í fyrsta lagi tala börnin ekki íslensku lengur þannig að tungumálaerfiðleik- ar koma oft í veg fyrir gagn- kvæm tjáskipti. I öðru lagi er barnshugurinn orðinn svo Þetta fer að verða ágætt hjá mér. Gamansemin hefur alveg gleymst í pistli mínum en hún verður stundum að víkja þegar alvarleg vandamál steðja að. Þjóðfélagið er að fara til and- skotans og ekki get ég breytt því. Þess vegna er best að líta á björtu hliðarnar og gera grín að öllu saman. Háðið er beitt- asta vopnið, eða svo sagði Gestur Pálsson. Ég vil því beina því til launþega sem eru að missa vinnu sína, húsbyggj- enda sem eru að missa aleig- una, hjóna sem eru að missa ástina og allra annarra fórnar- lamba þjóðfélagsins að hæðast rækilega að öllu saman. Takk fyrir. Fiskbollu-risotto er einfaldur, ódýr og góður matur, sem hentar jafnt á mánudögum sem öðrum dögum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.