Dagur - 11.11.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1989
Böm og gamalmeimi
em stofnanamatur
Góðan daginn, æruverðugu
lesendur. Eftir því sem aldur-
inn færist yfir mig á ég æ erfið-
ara með að skilja ungdóminn
nú til dags. Samt er ég ákaflega
víðsýnn maður, umburðar-
lyndur og þolinmóður með
afbrigðum. Þetta getur konan
mín góðfúslega staðfest, sé
hún pínd til sagna. En kyn-
slóðabilið er staðreynd. Þegar
ég var hnokki lék ég mér úti
öllum stundum. Ég átti bú með
leggjum og skeljum, ég rann-
sakaði gömlu rafstöðina við
Glerá, klifraði í Hrafnabjörg-
um, læddist inn í hermanna-
göngin sem voru fyrir ofan
Gefjun, skrapp upp á grísaból-
ið sem var við ofanvert Þing-
vallastræti, fór í jakahlaup eða
skautahlaup við Leirurnar, elt-
ist við kindur á bæjum þar sem
Síðuhverfi er nú, auk þess að
fremja alls kyns strákapör sem
ekki verða tíunduð hér. Þið
verðið að bíða þolinmóð eftir
ævisögunni - Stormasamt líf
Hallfreðs Örgumleiðasonar.
Væntanleg í bókaverslanir á
næstu áratugum.
Sjónvarpið var ekki til í þá
daga, ekki einu sinni í sauða-
litunum. Maður las bækur,
spilaði, tefldi eða hlýddi á
visku fullorðinna þá sjaldan
drengurinn fékkst til að vera
inni. Útvarpið var líka mikill
fróðleiksbrunnur en helstu
skemmtanirnar voru bíó og
leikhús. Mín kynslóð bar yfir-
leitt tilhlýðilega virðingu fyrir
fullorðnum og var hænd að
gamla fólkinu. Kynslóðabilið
var ekki óbrúanlegt. Ömmur
og afar voru fjölskyldumeðlim-
ir, ekki stofnanamatur. Mæður
voru heima þegar börnin komu
úr skólanum og tóku á móti
þeim með heitum mat, hlýju
og áhugasemi. Feður unnu
skikkanlegan vinnutíma og
sinntu fjölskyldunni þess á
milli. Já, hvað hefur orðið um
þessa blómatíma fjölskyldunn-
ar?
í dag er bókstaflega allt farið
úr skorðum. Börn og gamal-
menni þvælast á milli stofnana
þvi þessir þjóðfélagshópar
falla ekki að allsnægtarþjóðfé-
lagi fólks á aldrinum 25-50 ára.
Þetta er fólk á uppleið, fólk
sem hugsar um peninga og
munað, ekki börn sín eða for-
eldra. Sjónvarp og myndbönd
eru keypt til að hafa ofan af
fyrir börnum og gamalmenn-
um. Líf þeirra er einn allsherj-
ar stofnanaskjár. Kuldi,
mötun, útskúfun. Hvað geta
mörg börn gengið að foreldr-
um sínum heima þegar þau
koma úr skólanum? Hve marg-
ir foreldrar hafa tíma til að
sinna börnum sínum? Hve
mörg börn sitja stjörf yfir
ofbeldiskvikmyndum í frí-
stundum sínum?
Áleitnar spurningar kalla á
harkaleg viðbrögð. Nú rísa
margar úrvals mæður og fyrir-
myndarfeður upp og grýta
blaðinu í gólfið. „Bölvuð
ósvífni er þetta hjá karlfuglin-
um! Syni mínum líður vel.
Þetta er liðin tíð. Ofbeldismyndir á skjánuni hafa leyst móðurfaðminn af
hólmi og nú er svo komið að forcldrum þykir það mikil fórnfýsi að eyða
smátíma með börnum sínum.
matarkrókur
Réttír frá Islandi
og Indónesíu
Enn er krókurinn kominn
með fréttir, kætast þá halur
og drós. Bollur úr fiski og
framandi réttir, fljótlega
koma í Ijós. Já, ágœtu sæl-
kerar. Matarkrókurinn hefst
að þessu sinni með vísukorni
en hvort það fengi náð fyrir
brageyra Árna Björnssonar
er svo annað mál. Það sem
fyrir liggur er að bjóða ykkur
upp á fiskbollurétt, pottrétt
frá Indónesíu og eplaköku
með súkkulaðibitum. Sigmar
fær ábyggilega vatn í munn-
inn.
Fiskbollu-risotto
2 laukar
2 tsk. karrý
1-2 msk. smjörlíki
2 dl hrísgrjón
1 púrrulaukur
1-2 tómatar
1 dós fiskbollur (eða annar
fiskur)
4 dl fiskteningasoð
Saxið laukinn og steikið í smjör-
líki ásamt karrý. Bætið hrísgrjón-
unum og púrrusneiðum saman
við og sjóðið í teningavatni þar til
hrísgrjónin eru orðin mjúk. Setj-
ið þá fiskbollur og tómata út í og
hitið í fáeinar mínútur. Rétturinn
er borinn fram með kartöflum og
brauði. Fyrirtaks fiskréttur, ein-
faldur og ódýr.
Indónesískur pottréttur
500 g svínagúllas
salt, karrý, engifer, paprikuduft
1 laukur
2 gulrœtur
kjötkraftur
soyasósa
1 banani
1 epli
V4 l rjómi
Svínakjötið er brytjað í smátt og
steikt ásamt lauknum. Kryddað.
Soðið í kjötkraftsbættu vatni og
soyasósu. Smátt skornar gulrætur
settar með. Þetta er soðið í
u.þ.b. 40 mínútur. Þá er eplabit-
um, bananabitum og rjóma bætt
út í og soðið áfram í 15 mínútur
eða þar um bil. Borðið þennan
rétt með hrísgrjónum.
Eplakaka með súkkulaðibitum
300 g hveiti
IV2 tsk. lyftiduft
150 g sykur
150 g smjörlíki
2 egg
Fylling:
4 rifin epli
2 msk. sykur
60 g rúsínur
60 g súkkulaði (í bitum)
30 g hnetur (saxaðar)
1 tsk. kanill
Byrjið á því að hnoða deigið.
Setjið síðan % af deiginu í smurt
kringlótt mót og þrýstið deiginu
upp í barmana. Blandið öllu sam-
an sem fer í fyllinguna og setjið
ofan á deigið. Afgangurinn af
deiginu er flattur út, skorinn í
ræmur sem settar eru ofan á fyll-
inguna. Kakan er bökuð við
meðalhita í 30-40 mínútur. Að
sjálfsögðu er gott að hafa þeyttan
rjóma með volgri eplakökunni.
Verði ykkur að góðu. SS
Hann fær góðar einkunnir í
skólanum og við förum stund-
um á völlinn saman. Ég veit
ekki betur en við heimsækjum
ömmu hans einu sinni í mán-
uði þannig að það er allt í stak-
asta lagi hjá okkur.“
Jú, þetta eru ekki ósennileg
viðbrögð. Margir foreldrar líta
á það sem aðdáunarvert örlæti
ef þeir eyða fáeinum klukku-
stundum á viku með börnum
tæknivæddur að sögur frá tím-
um sjálfsþurftarbúskapar fá
engan hljómgrunn. í þriðja
lagi verða foreldrarnir vitlausir
ef ég yrði á börn þeirra því nú
til dags er fullorðinn maður
sem skiptir sér af börnum álit-
inn andlega veill. í fjórða lagi
má síðan nefna að fólk á ekk-
ert af börnum lengur, það er
ekki tími eða pláss fyrir þau í
þjóðfélaginu.
Hallfreður
Örgumleiðason:
sínum. Klukkustundum sem
hægt væri að eyða í sjálfan sig.
Hvílík fórnfýsi, hvílík óeigin-
girni! Einstaka feður sýna jafn-
vel þá drengskaparlund að lesa
bækur fyrir börnin þegar
myndbandstækið er í hreinsun.
Miðað við þetta uppeldi er
ekki undarlegt þótt mér gangi
illa að skilja ungdóminn. Ég
reyni oft að tala við börn, segja
þeim sögur frá því í gamla
daga og innprenta þeim guðs-
ótta og góða siði. Það mistekst
hrapallega. í fyrsta lagi tala
börnin ekki íslensku lengur
þannig að tungumálaerfiðleik-
ar koma oft í veg fyrir gagn-
kvæm tjáskipti. I öðru lagi er
barnshugurinn orðinn svo
Þetta fer að verða ágætt hjá
mér. Gamansemin hefur alveg
gleymst í pistli mínum en hún
verður stundum að víkja þegar
alvarleg vandamál steðja að.
Þjóðfélagið er að fara til and-
skotans og ekki get ég breytt
því. Þess vegna er best að líta á
björtu hliðarnar og gera grín
að öllu saman. Háðið er beitt-
asta vopnið, eða svo sagði
Gestur Pálsson. Ég vil því
beina því til launþega sem eru
að missa vinnu sína, húsbyggj-
enda sem eru að missa aleig-
una, hjóna sem eru að missa
ástina og allra annarra fórnar-
lamba þjóðfélagsins að hæðast
rækilega að öllu saman. Takk
fyrir.
Fiskbollu-risotto er einfaldur, ódýr og góður matur, sem hentar jafnt á
mánudögum sem öðrum dögum.