Dagur - 11.11.1989, Side 5

Dagur - 11.11.1989, Side 5
Laugardagur 11. nóvember 1989 - DAGUR - 5 -i fréffir F Fjarvinnustofur næsti möguleiki í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni?: Fábreytnin í atvinnumálum bitnar fyrst og fremst á konum Þingmenn Kvennalistans hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt- unartillögu um notkun nútíma tölvu- og fjarskiptatækni til að flytja verkefni á vegum ríkis- stofnana og annarra aöila frá höfuðborgarsvæðinu til ann- arra landshluta. Alþingi feli rikisstjórninni að kanna sér- staklega möguleika á að nýta þessa tækni til að koma á lagg- irnar fjarvinnustofum í því skyni að fjölga störfum og auka fjölbreytni í atvinnulífinu á landsbyggðinni. Þingmenn Kvennalistans benda á að aukin verkaskipting og hin mikla hlutdeild höfuð- borgarinnar í þjónustugreinum valdi því að fábreytni í atvinnulífi á mörgum stöðum á landinu verði tilfinnanleg. Sú fábreytni sé ein ástæða fólksflutninga á Faxa- Ólafur Eggertsson heldur á borvélinni sem Sindra stál hf. gaf VMA. Verkmenntaskólaniim gefiiar gjafír á sýningu Lagnafélags íslands Verkmenntaskólanum á Akur- eyri bárust góðar gjafir á tæknisýningu Lagnafélags Islands, en sýningin fór fram í tengslum við fræðslufund félagsins í húsakynnum VMA á Eyrarlandsholti laugardaginn 4. nóvember. Lagnafélag íslands er ungt að árum, stofnað árið 1986. í félag- inu eru pípulagningamenn, blikksmiðir, tæknifræðingar, verkfræðingar, söluaðilar og aðr- ir sem tengjast vinnu, hönnun eða verslun með vörur og hluti til lagna. í félaginu eru 400 meðlim- ir, auk 120 styrktaraðila. Verkmenntaskólanum bárust ýmsar góðar gjafir að sýningunni lokinni. Sindra Stál hf. gaf skólanum afar fullkomna tölvu- stýrða borvél, og afhenti Ólafur Eggertsson hana. Blikksmiðjan - Tæknideild O. Johnson & Kaaber hf. og Blikkrás hf. á Akureyri gáfu uppsett sýnishorn af þakrennum, niðurföllum og samsetningarhlutum, og afhenti Friðþjófur Johnsen þá gjöf. Héð- inn hf. í Reykjavík gaf sundur- skorna ofnloka af ýmsum gerðum 'frá Danfoss, til notkunar sem kennslutæki, og afhenti Gísli Jóhannsson gjöfina. Rafn Jens- son, vélaverkfræðingur, gaf skólanum þrjú myndbönd sem fjölluðu um umhverfismengun og lofthreinsun. Vatnsvirkinn hf. gaf skólanum ýmsar gerðir af lok- um á vatnsleiðslur og annan lagnabúnað, Gísli Erlendsson afhenti þá gjöf f.h. fyrirtækisins. Bernharð Haraldsson, skóla- meistari VMA, þakkað gefend- unum fyrir þessar gjafir, sem munu koma að góðum notum við kennslu í stofnuninni. EHB Aðalfundur Leikfélags Húsavíkur: Ása Gísladóttir formaður - mikið og skemmtilegt starf framundan Aðalfundur Leikfélags Húsa- víkur var haldinn 8. nóv. sl. A fundinum var rætt um ýmis málefni leikfélagins, þar á meðal æfingar á verkinu Land míns föður eftir Kjartan Ragn- arsson. Uppsetning þessa verks er heilmikið fyrirtæki og hefur Sigurður Hallmarsson, leikstjóri, þegar hafið undir- búningsvinnu. Æfíngar munu hefjast á næstu vikum en frum- sýnig verður að öllum líkind- um I febrúar. Ása Gísladóttir var kjörin for- maður félagsins en María Axfjörð gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Aðrir í stjórn voru endurkjörnir en það eru; Stefán Örn Ingvars- son, Steinunn Áskelsdóttir, Ein- ar H. Einarsson og Jóhannes Geir Einarsson. Leikfélagið á við heilmikið vandamál að stríða hvað varðar geymslur fyrir búninga og leik- myndir. Sagði María að forsvars- menn stofnana í bænum hefðu sýnt leikfélaginu ótrúlega mikla þolinmæði og lipurð við geymslu á þessum munum, en búningar hafa verið geymdir í Barnaskólan- um og leiktjöld í Hvammi. Heil- mikið mál yrði fyrir leikfélagið að koma sér upp geymslu fyrir leik- munina og mundi þá fleira verið látið lianga á spýtunni um leið, þar sem alla aðstöðu vantar til smíði leiktjalda og betri aðstöðu til sauma á búningum. Engar ákvarðanir um byggingafram- kvæmdir voru teknar á fundinum en mjög brýnt er fyrir félagið að leysa þennan vanda á viðunandi hátt. Á fundinum var rætt um íyrir- hugað starf leikfélagsins með börnum, og það er ýmislegt á döfinni hjá leikfélagsmönnum. Leikfélagið hefur tekið að sér að annast 50 mín. útvarpsþátt sem útvarpað verður á rás 1 á nýjárs- nótt. IM Erlendar skyttur að fá áhuga á Islandi: Danskir og þýskir vilja í ijúpnaveiði í Skagafirði „Nei, við höfum ekki fengið útlendinga til okkar í haust en vitum að það eru Danir og Þjóðverjar að velta fyrir sér að koma til rjúpnaveiða,“ segir Helga Þórðardóttir, húsfreyja á Mælifellsá í Skagafirði en þar eru nú seld leyfi til rjúpna- veiða. „Hér voru Ameríkanar í fyrra og árið þar á undan en þeir koma ekki hingað til að skjóta niður rjúpur í stórum stíl eins og íslendingar. Þeir skjóta hana allt- af á flugi og þeirra keppikefli er ekki að ná 10 eða 20 heldur gera þeir sig ánægða með 2 eða 3. Fyr- ir þeim er þetta ekta sport,“ segir • Helga. Hún segir að skilningur á gjaldtöku fyrir rjúpnaskytterí fari vaxandi meðal veiðimanna. Að sama skapi fari það vaxandi að landeigendur taki gjald af veiði- mönnum. Áhugi útlendra skotveiði- manna á íslandi virðist fara vax- andi. Skipulegar veiðiferðir útlendinga eru að verða algeng- ar, bæði í gæsaveiði á haustin og síðan rjúpnaveiði er líða tekur á vetur. Vitað er um nokkra hópa sem komu til Norðurlands í haust og þegar hefur verið spurst fyrir hjá norðlenskum ferðaskrifstof- um fyrir næsta haust. JÓH flóasvæðið á undanförnum árum. Bent er á í greinargerð með til- lögunni að sú þróun haldi áfram á næstunni að ný störf verði fyrst og fremst til í þjónustugreinun- um. Frekari þensla í þjónustunni á höfuðborgarsvæðinu sé hins vegar ekki æskileg. „Skortur á fjölbreytilegum störfum bitnar fyrst og fremst á konum á landsbyggðinni. Þær eiga oft ekki annara kosta völ en flytja til þéttbýlisstaða í leit að atvinnu. Stóraukin atvinnuþátt- taka kvenna og breytt staða þeirra í fjölskyldunni skiptir miklu í þróun byggðamála og tímabært að taka mið af þeirri staðreynd,“ segja þingmenn Kvennalistans. JÓH jO. SJÓNVARPIÐ SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSSTÖÐVA EVRÓPU 1990 Ríkisútvarpið-Sjónvarp, auglýsir hér með eftir sönglagi til þátttöku í Söngvakeppni sjónvarps- stöðva í Evrópu 1990, sem fram fer í Júgóslavíu 5. maí. Undankeppnin fer fram í Reykjavík í janúar og febrúar. Skilafrestur er til 15. desember 1989 Þátttökuskilyrði: Þátttaka er öllum opin. Laginu skal skila á nótum eða hljóð- snældu. Frumsaminn texti á íslensku skal fylgja. Lagið má ekki taka nema þrjár mínútur í flutningi. Lagið skal ekki hafa komið út á nótum, hljómplötum, snældum eða myndbönd- um, og það má ekki hafa verið leikið í útvarpi eða sjónvarpi. Nótur, snælda og texti skulu merkt heiti lagsins og dulnefni höfundar. Rétt nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer skulu fylgja með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni. Sendi höfundur fleiri en eitt lag skulu þau send inn, hvert fyrir sig og hvert undir sínu dulnefni. Sjónvarpið leggur til útsetjara, hljómsveit og hljómsveitar- stjóra. Ríkisútvarpið áskilur sér einkarétt til flutnings laganna í útvarpi og sjónvarpi meðan á keppninni stendur. Kynning laganna: Dómnefnd velur 12 lög til áframhaldandi þátttöku. Þegar þau hafa verið valin verða umslögin með dulnefnum höf- unda opnuð, og nöfn þeirra tilkynnt. Lögin 12 verða síðan útsett og flytjendur valdir í samráði við höfunda og kynnt í tveim sjónvarpsþáttum í lok janúar. Sex lög verða kynnt í hvorum þætti. Áhorfendur í sjónvarpssal velja þrjú lög úr hvorum þætti til áframhaldandi keppni. Úrslit: Þau sex lög sem þannig hafa verið valin verða síðan flutt í beinni útsendingu úr sjónvarpssal, þar sem sigurlagið 1990 verður valið. Verðlaun verða 200 þúsund krónur fyrir sigurlagið og ferð fyrir höfund lags og texta til Júgóslavíu á úrslitakeppnina 5. maí 1990. Séu höfundar tveir eða fleiri skiptast verðlaunin milli þeirra eins og úthlutunarreglur STEFS segja til um. Sigurlagið verður fulltrúi íslenska Sjónvarpsins í „Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu 1990". Nánari upplýsingar um tilhögun keppninnar veitir ritari dag- skrárstjóra Innlendrar Dagskrárdeildar Sjónvarpsins, sími 693731, Laugavegi 176, Reykjavík. Utanáskrift: Ríkisútvarpið-sjónvarp, „Söngvakeppni" Laugavegi 176, 105 Reykjavík.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.