Dagur - 11.11.1989, Page 6

Dagur - 11.11.1989, Page 6
6 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1989 Krístniboðastarfið í Afríku er ekld ósvipað preststarfinu í gamla daga á íslandi - spjallað við sr. Kjartan Jónsson kristniboða í tilefni af kristniboðsdeginum Kristniboðsdagurinn er á sunnudaginn, 12. nóvember. Séra Kjartan Jónsson, kristni- boði, messar í Hallgrímskirkju í tilefni dagsins, og er það útvarpsguðsþjónusta. Sr. Kjartan var á ferð á Akureyri fyrir skömmu. Hann hefur dvaiið um átta ára skeið í Kenya við kristniboðsstörf, og greip blaðamaður tækifærið tii að spyrja hann nokkurra spurninga. Sr. Kjartan er innfæddur Reykvíkingur. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1974 og fór eftir það í eitt ár í biblíuskóla til Noregs. Að því búnu settist hann í guðfræðideild Háskóla íslands, þaðan útskrifaðist Kjartan árið 1980. „Að því búnu fór ég til Eng- lands og lagði stund á enskunám til áramóta. I janúar vorum við hjónin vígð; ég til prestsstarfa en kona mín, Valdís Magnúsdóttir kennari, tók kristniboðavígslu. Skömmu eftir vígsluna lögðum við hjónin land undir fót og héld- um til Nairobi í Kenya, þar sem við tókum að læra ríkismálið, Swahili. Swahili-námið var erfitt, þetta tungumál er gjörólíkt öllum tungumálum sem við þekkjum." - Var þetta einhver skyndi- ákvörðun hjá ykkur að fara til Afríku til kristniboðsstarfa? „Nei, því fer fjarri. Ég var búinn að velta því fyrir mér í mörg ár hvort ég ætti að fara í þetta, og undir lokin var spurn- ingin orðin sú hvort ég ætti að velja að verða kristniboði eða gerast prestur úti á landi. Það má segja að ég hafi leynt og ljóst stefnt að kristniboðsstarf- inu með öllu mínu námi.“ Swahilinám og kristniboðsstarf - Hvað tók við eftir að Swahili- náminu lauk? „Þá fórum við til kristniboðs- stöðvarinnar í Chepareria, þetta var 1. maí árið 1981. Þetta er þéttbýl smábændabyggð, og byggðarlagið þéttist með hverju árinu, því fólkið sækir þangað frá þurrari stöðum í leit að mat. Því er þannig varið með kristniboðsstarf að maður veit aldrei hvað maður er að fara út í fyrirfram. Þetta er eins og að stökkva fram af hengiflugi og vona að lendingin verði góð. Mestu máli skiptir að trúa því að Guð muni leiðbeina manni og varðveita. En segja má að bæði Afríka og starfið hafi komið mér á óvart. Starfið fólst í því að koma á fót söfnuði og kirkjulegu starfi. Fyrst var að koma sér upp heimili og ljúka við húsbyggingu, en að því loknu tók starfið við. Ég fór m.a. Kjartan Jónsson, kristniboði. inn á svæði þar sem ekkert kristniboð hafði áður verið, ræddi við fólkið um kirkjubygg- ingu o.s.frv. Heimsóknir og fundir til fólksins þróuðust yfir í reglulegar samkomur. Kristniboði verður að skipta sér af ýmsum félagslegum þáttum, og oft byrja innfæddir á að biðja um félagslega aðstoð. Kona mín skipulagði starf meðal kvenna á staðnum, fullorðins- fræðsluhópar voru stofnaðir og þar sinnti hún m.a. lestrar- kennslu fyrir fullorðna." - Er hlutverk kristniboðans ekki ólíkt hlutverki prestsins á íslandi? „Það er kannski líkara hlut- verki prestsins í gamla daga. Presturinn er frumkvöðull að mörgum velferðarmálum, ekki er einungis urn að ræða hið boðaða Orð heldur að ástunda Orðið í verki. Við erum yfirleitt beðnir um að byggja skóla eða sjúkra- skýli. Því miður höfum við ekki mannskap eða fjárráð til að sinna öllum beiðnum, en við erum í samstarfi við Norðmenn sem starfrækja tvö sjúkraskýli í héraðinu, en íslenska kristniboð- ið starfrækir 5 skóla.“ Kristniboðsstarfíð þarf að tengjast safnaðarstarfínu betur - Hvað tekur við hjá ykkur? „Sem stendur er ég starfsmað- ur Kristniboðssambandsins. Ég kom aftur til landsins í júlí, og í vetur mun ég vinna að kynningu kristniboðsstarfsins, heimsækja kirkjur, söfnuði og skóla, pred- ika í kirkjum og á samkomum. Við hjónin munum síðan halda utan til starfa á ný.“ - Það hefur tíðkast að taka á móti gjöfum til kristniboðsins á kristniðboðsdaginn í kirkjum landsins. Eru slík framlög mikil- væg fyrir starfið? „Já. Það er líka mikilvægt að kristniboðið verði eðlilegur þátt- ur í safnaðarstarfi hér á landi. Mér finnst ekki rétt að takmarka umræðu um kristniboð við þenn- an eina dag, heldur á það að vera fastur þáttur í starfi hvers kristins safnaðar. Kristniboðið mætir vaxandi skilningi, er óhætt að segja. En sá sem er ekki kristinn hlýtur alltaf að hafa efasemdir og getur tæpast skilið hvers vegna við erum í þessu starfi. Kristniboðið hefur tvímæla- laust komið mörgu góðu til leið- ar, annars værum við ekki starf- andi. Sé dæmi tekið af Konsó þá er allt þróunar- og framfarastarf í héraðinu komið frá kristniboð- inu, sem starfað hefur í 35 ár þar. Ríkið hefur nánast ekki gert neitt fyrir íbúa héraðsins. í Konsó er gróðrarstöð, hjúkrunarstarf, þróunarhjálp við landbúnaðinn, skólahald, fræðslustarfsemi og svo mætti lengi telja. í Kenýa má segja það sama, þar væru afar fáir skólar ef kristniboðsins hefði ekki notið við. Frá sjónarmiði trúarinnar er starfið líka gott. í kristniboðs- stöðinni í Chepareria koma 80 til 100 manns til messu á hverjum sunnudegi. í nágrenninu eru fjór- ir söfnuðir, alls eru þetta um 600 safnaðarmeðlimir, og ég er viss um að þetta þætti ágæt kirkju- sókn víða á íslandi.“ EHB -4 kvikmyndarýni Umsjón: Jón Hjaltason Móðir fyrir rétti Sam Neill og Meryl Streep, í hlutverkum hjónanna, gleðja fjölmiðlafólk með mynd af dóttur sinni. Móðir fyrír réttí er áfall fyrir fjölmiðla, dómskerfí og mig og þig; mynd sem á erindi til okkar allra. í Borgarbíó: Móðir fyrir rétti (A Cry in the Dark). Leikstjóri: Fred Schepisi. Helstu leikarar: Meryl Streep og Sam Neill. Handrit: Robert Caswell og Fred Schep- isi. Warner Bros 1989. Móðir fyrir rétti byggir á harm- leik sem átti sér stað í Ástralíu á öndverðum þessum áratugi. Hjónin Midiael og Lindy (Sam Neill og Meryl Streep) fara í sumarleýfi með syni sína tvo og nýfædda dóttur. Á einum áning- arstaðnum hendir það áð kvöld- lagi að villihundur kemst í tjald þeirra hjóna og nemur dóttur þeirra á braut. Eftir þetta spyrst ekkert til barnsins en fataræflar af því finnast í auðninni. En þeg- ar ein báran rís er önnur vís. Bráðlega kvikna sögusagnir um að hjónin hafi myrt dóttur sína djöflinum til dýrðar eða sjálfum sér til ánægju. Málið kemur fyrir undirrétt þar sem dómarinn sýknar þau en síðar er móðirin dæmd til ævilangrar þrælkunar- vinnu og faðirinn fær 18 mánaða fangelsisdóm. Þetta er að minnsta kosti myndin sem Fred Schepisi bregð- ur upp af þessu einu umtalaðasta dómsmáli Ástrala. Það fer aldrei framhjá áhorfandanum að hjónin eru saklaus sem er raunar í takt við staðreyndir því að í fyrra var dómurinn yfir þeim ógiltur og þau sýknuð. Móðirin hafði þá þegar afplánað fimm ár en fang- elsisvistina hóf hún með því að fæða stúlkubarn. Móðir fyrir rétti er áhrifamikil mynd og það sem meira er, hún að minnsta kosti virðist trúverð- ug. Enginn dýrðarljómi er látinn leika um hjónin. Þvert á móti eru þau ekki laus við að vera svolítið óviðfelldin, sérstaklega framan af. Að minnsta kosti finnst mér það alltaf heldur óviðkunnanlegt þegar kristnu fólki dettur í hug að hörmungar þess séu guði að kenna, prófraun er hann kýs að leggja á þau sjálfum sér til dýrðar. Mér er gjörsamlega hulið hvers vegna algóður guð velur að sýna velþóknun sína á einstakl- ingi með því að leggja á hann þrengingar og ástvinamissi. Gæti þetta verið tilbúningur manna sem leita sér huggunar hjá því óþekkta? „Ég á að vísu bágt hérna í þessum táradal en vísa sæluvist hinum megin grafar.“ Enn ógeðfelldari verður þessi hugsun þó þegar viðkomandi hleypur með hana í fjölmiðla, að vísu undir rós, með því að upp- hefja gæsku skaparans og vísdóm orðs hans. í kjölfar dótturhvarfs- ins verða Michael og Lindy tíðir gestir á síðum dagblaða og á sjónvárpsskjáum. Þau játast und- ir að verða leiksoppar fjölmiðla og enda nánast sem fórnarlömb þeirra. Þau vilja opinbera öllum staðfestu sína í trúnni, hvernig guð hjálpar þeim að þola dótt- urmissinn, en fjölmiðlafólkinu tekst næstum því að ganga af guði dauðum. Móðir fyrir rétti er harður áfellisdómur yfir blaða- og fréttamönnum. Fred Schepisi kemur ekki að- eins góðu höggi á fjölmiðlana heldur einnig og ekki síður allan almenning, mig og þig. Við og við skýtur hann inn stuttum myndskeiðum af slúðurfólki og nær þannig eðli alls slúðurs, margföldunareiginleikum þess og hryllingsauka. Á hinn bóginn finnst mér eins og eitthvað vanti inn í réttarhöldin sjálf. Fyrir bíófarann er það deginum ljósara að hjónin eru saklaus, framburð- ur vitna tekur af allan vafa þar um. Þrátt fyrir þetta dæmir kvið- dómur þau sek og eina skýringin sem Schepisi gefur eru dylgjur um pólitíska hagsmuni. I ljósi þeirrar myndar sem bíómyndin dregur upp af réttarhöldunum, ekki sjálfu dótturhvarfinu, er dómurinn óskiljanlegur. Það kemur heldur ekki fram hvernig pólitík gat haft áhrif á framgang málsins, nema Ástralir hafi tengt trúarsannfæringu hjónanna við stjórnmál. Móðir fyrir rétti útskýrir hins vegar ekki hvernig það hefur mátt gerast.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.