Dagur - 11.11.1989, Blaðsíða 11

Dagur - 11.11.1989, Blaðsíða 11
10 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1989 Laugardagur 11. nóvember 1989 - DAGUR - 11 „Samkeppni er góð þegar þú vinnur hana u Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss hf. í helgarviðtali Úr prjónadeild. meö að Sovétmenn muni enda- laust kaupa ullarvörur frá ís- landi, eingöngu vegna þess að þær eru íslenskar? „Samkeppni er góð þegar þú vinnur hana, en þegar þú tapar er hún ekki góð. Rússar eru sjálf- sagt glerharðir kaupsýslumenn eins og aðrir, og þeir eru ekki að versla við okkur af neinni misk- unnsemi. Þeir fá góða vöru á sanngjörnu verði, þeir versla við áreiðanlegt fyrirtæki þar sem Álafoss er. Mörg fyrirtæki í þess- um iðnaði fara á hausinn ár hvert í heiminum og ntikið er um vinnu- og gæðasvik. Álafoss er rómaður fyrir mikil gæði og því sjá Sovétmenn sér hag í að eiga viðskipti við okkur.“ - En Sovétmenn borga ekki hátt verð fyrir vöruna? „Þeir gera það ekki en í stað- inn kaupa þeir mikið magn, og hafa oft lagt inn pantanir á tím- um sem eru heppilegir fyrir okkur, eins og ég sagði áðan. Sovétmenn eru ennþá miklir og góðir viðskiptavinir, ég ntinni í því sambandi á fyrirtækin Sojuz og Razno. Rétt er að benda á að ýmsir hafa af því áhyggjur hversu mikil viðskipti okkar eru við Sovétrík- in. Það þýðir ekki að við eigum að minnka þau viðskipti, við eig- urn þvert á móti að reyna að auka þau. En við eigum líka að auka viðskiptin við önnur lönd til að ná jafnvægi." - Stór hluti þessara viðskipta er í formi vöruskipta. Gera þau málin ekki flókin oft á tíðum? „Satt er það, vöruskiptin eru flókin og þar er margt að varast." „Heinianmundurinn var ekki öflugur“ - Nú velta rnargir því sjálfsagt fyrir sér hvaða breytingar þú áformir í þessu starfi. „Já. við munum sjálfsagt gera ýmsar breytingar, eins og gengur og gerist. Rétt er að benda á að ekki eru nema eitt og hálft ár frá því fyrirtækin sameinuðust. Þau Yfirlitsmynd yfir „verksmiðjurnar“. Talsvert af fasteignum hefur verið selt eða er á söluskrá, m.a. Austurhús Gefjunar. Ekki var þörf fyrir allt gamla húsnæðið lengur. sameinuðust ekki af kærleika eða af þeirri hugsun að menn vildu sameinast heldur gerðist þetta af neyð. Fyrirtækjunum var þrýst til að sameinast. Heimanmundurinn var ekki öflugur. Fyrirtækið fór af stað með alltof miklar fjárfestingar sem tekjurnar stóðu ekki undir. Þetta hefur að hluta verið leiðrétt með fjárhagslegri endurskipu- lagningu Álafoss, en við santein- ingu tveggja fyrirtækja breytist margt, og aðlögun að breyttum aðstæðum kemur til með að halda áfram. En þetta er ekki allt, því aðstæðurnar knýja okkur til enn meiri breytinga. Skammtímabreytingar eru aðhald í rekstri; mikill samdrátt- ur í föstum kostnaði þar sem við höfum nú sagt upp starfsfólki, 38 manns, bæði sunnan og norðan heiða, að uppistöðu til í stjórnun- ar og skrifstofustörfum. Viö þurf- unt að ná eölilegu rekstrarjafn- vægi í fyrirtækinu, og í framhaldi af því munum viö skipuleggja markaðssókn til langs tíma." - Nú er Álafoss með rekstur á mörgum stöðum; ullarþvotta- stöðin er í Hveragerði, spuna- deildin í Mosfellsbæ og fatadeild- in- og vefdeild á Akureyri ásamt aðalstöðvunum. Er ekki mjög erfitt að hafa reksturinn svo dreifðan? „Eðlilega væri lang þægilegast að hafa allt undir einu þaki, slíkt myndi spara vinnu og tíma. En hvert fyrirtæki þarf á mörgum þáttum að halda og einn sá mikil- vægasti er gott vinnuafl. Því höf- um við á að skipa á öllum stöðun- um, það er hluti af styrk okkar og hann þurfum við að nýta. Styrk- urinn er meiri cn veikleikinn við að vera með rekstur á þremur stöðum." „Breytingar verða gerðar af styrkleika, ekki veikleika“ - Það er þá ekki stefnan í dag að færa allan reksturinn á einn eða tvo staði? „Við þurfum að skipuleggja okkar rekstur í framhaldi af sam- einingunni, eins ogég minntist á áðan. Þá er mikilvægast að átta sig á því hvar eigi að byrja og hvar aö halda áfrant. Allar breyt- ingar sem við munum gera verða gerðar af styrkleika, ekki veik- leika. Þar af leiðandi væri mjög rangt að byrja á að flytja skrif- stofur eða verksmiðjur fram og til baka, aðalatriðið er að við- skiptasamböndum verði komið á hreint og salan efld og aukin. Þetta er aðalmarkmið okkar, og það sem við þurfum að gera. Hvort menn ætla að sitja við þetta skrifborð eða hitt eða nota eitt húsið eða annað er ekki aðal- atriðið í dag. - Samdrátturinn í ullariðnaði hefur vcrið mikil undanfarin ár og menn minnast þess þegar blómaskeiðið var í þessum iðnaði á Akureyri. Koma þessir tímar aldrei aftur? „Þegar menn ræða um blóma- skeið verksmiðjanna hér á Akur- eyri verða þeir að gera sér grein fyrir að urn margt annað var að ræða en ullariðnað eigöngu. Hér var Hekla, Gefjun, gallabuxna- framleiðsla, skógerð sem ennþá starfar o.s.frv. Ullariðnaðurinn er ekki það eina sem hefur dreg- ist saman, liann stendur enn. Ólíklegt er að svokallað ullar- ævintýri komi til með að endur- taka sig, en markmið okkar er að fullnýta vélar, tæki og fólk. Auð- vitað vonumst við til að hér verði í framtíðinni meira og blómlegra starf en hingað til." - Hvernig horfir þú til næstu eins eða tveggja ára í þessum rekstri? „Næstu tvö ár eru langt í burtu, finnst mér. Ég horfi með áhuga og ákveðinni spennu fram í tímann, en þetta er mikil vinna. Mikil vinna hefur aldrei gcrt nokkrunt manni mein, og það verður mikil vinna hjá okkur í Álafossi, mikil barátta. Ég vil líkja þessu við kappleik, honum i'ylgir bæði kvíði, spenna en um leið baráttuvilji." EHB ekki sagt um fatadeildina." - Mikið hefur verið rætt um offjárfestingu í þjóðfélaginu. Hefur verið offjárfest í ullariðn- aði? „Já, það er augljóst. Fyrir u.þ.b. átta árum fóru rnenn að fjárfesta verulega, sérstaklega í bandframleiðslu. Þá var fjárfest í mjög einhæfum vélum um fjög- urra ára skeið. Þetta voru vélar sem geta aðeins framleitt eina tegund bands. Bandið er einnig fremur gróft og hentar eingöngu í ákveðinn fatnað. Innkaupamynstur hefur breyst mikið frá því þetta gerðist, fata- framleiðendur í dag vilja bjóða upp á heilsársfatnað úr mörgum bandtegundum, hvort sem band- ið er nú spunnið úr bómull, hör eða ull. En á meðan þetta gerist sitjum við uppi með einhæfan vélabúnað, sem hentar eingöngu í þröngt afmarkaða vörutegund. Þegar samkeppnin eykst og möguleikar fyrirtækisins til að breyta um vörutegundir eru litlir eða engir, auk þess sem salan minnkar, getum við vissulega tal- að um offjárfestingu. Þegar ákvörðunin um fjárfestingar í þessum vélum var tekin hefur hún eflaust verið rétt í huga þeirra sem tóku hana. Þeir hafa álitið að um mikla sölumöguleika væri að ræða. Viðkomandi stjórnendur hafa sjálfsagt gert ráð fyrir að þetta gullaldarskeið myndi halda áfram. Það er því ekki rétt að sakast við þá." Var það besta nógu gott? - Er erfitt að aðlaga fyrirtæki eins og Álafoss að kröfum ólíkra markaða, eins og t.d. Sovétmark- aðarins annars vegar og Banda- ríkja- og Evrópumarkaðarins hins vegar? „Það held ég ekki, það er not- að sama hráefnið fyrir þessa markaöi og santi vélakostur og vinnsluaðferðir. Meira er lagt í Evrópuntarkaðinn og meiri tími fer í að vinna hverja flík. Hönnunin er fyrst og fremst mis- munandi þegar horft er til þess- ara markaða, Það er mjög hættulegt fyrir hvaða fyrirtæki sem er að hafa einn stóran kúnna sem getur meira og minna ráðið örlögum fyrirtækisins. En ef við hefðum ekki Sovétmarkaðinn þá væri illa fyrir okkur komið. Sovétmenn eru mjög tryggir og góðir kaup- endur, þeir hafa keypt mikið magn og oft lagt inn pantanir á tímum þegar lítið er að gera í framleiðslu fyrir Evrópu- og Ameríkumarkaðinn. Þeir hafa því verið okkur ómetanleg stoð." - Fyrir allmörgum árum heyrðist sú gagnrýni bæði á Ála- foss og Iðnaðardeild SÍS að svo mikil áhersla væri lögð á að fram- leiða fyrir Sovétmarkað að það stæði vöruþróun og markaðssetn- ingu á Evrópu- og Bandaríkja- markaði fyrir þrifum. Var þetta réttmæt gagnrýni? „Ég skal ekki meta það. Ég held að fyrirtækin liafi gert það besta sem þau gátu, en hvort það besta var nóg er aftur á móti spurning. Það er alltaf einfalt að gagn- rýna án þess að þurfa að fylgja því eftir sem sagt er.“ „Sovétmenn eru ekki að versla við okkur af neinni miskunnsemi“ - Nú hefur orðið stefnubreyting í viðskiptum við Sovétmenn með ullarvörur, þar sem cinstök lýð- veldi eru orðin sjálfstæðari í við- skiptum sínum viö erlend ríki. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir Álafoss? „Opnun þessara lýövelda er mikið tækifæri fyrir Álafoss, en á sama tíma er það jafnframt ógn- un við Álafoss. Mesta ógnin sem okkur stafar er af samkeppni frá löndum sern hafa miklu lægri framleiðslu- kostnað og geta því boðið vöruna á lægra verði." - Við getum þá ekki reiknað Ólafur Ólafsson tók við forstjórastarfi Álafoss hf. fyrir tveimur mánuðum. Hann tekur við fyrirtækinu á tímamót- um, rúmu einu og hálfu ári eftir samruna Iðnaðardeildar Sambandsins og Álafoss í eitt fyrirtæki. Miklir erfiðleikar hafa steðjað að ullariðnaði eins og mörgum öðrum útflutningsgreinum, erfiðleikar sem enn er ekki séð fram úr. í þessu við- tali segir Ólafur frá ævi og störfum, og ræðir stöðu ullariðnaðarins og Álafoss hf. Ólafur er sonur hjónanna Ólafs Sverrissonar og Önnu Inga- dóttur, einn fimm systkina. Kona Ólafs heitir Ingibjörg Kristjáns- dóttir og eiga þau eina dóttur, Önnu Rakel, 4 ára. „Ég fæddist í Kópavogi en ólst upp á Blönduósi til ellefu ára aldurs. Þaðan flutti fjölskyldan til Borgarness, árið 1974. Nám stund- aði ég í Samvinnuskólanum og lauk framhaldsdeild hans. Þá lá leiðin í viðskiptafræði í Háskóla íslands, þaðan lauk ég prófi árið 1984 og hef verið að mestu er- lendis eftir það. Ég rak um tíma eigið fyrirtæki. Icewear, en það er útflutningsfyr- irtæki sem ég stofnaði árið 1978. Meginviðfangsefnið var útflutn- ingur á íslenskum fatnaði. Vorið 1984 seldi ég tvo þriðju hluta í Icewear og fór ásamt öðrum út í stofnun Árbliks hf. Störf í Bandaríkjunum Árið 1985, eftir að hafa verið hálft ár í Frakklandi, var ég beð- inn um að taka við starfi fram- kvæmdastjóra Santband Industri- es, sem var dótturfyrirtæki Sam- bandsins og seldi vörur fyrir Iðn- aðardeild Sambandsins í Banda- ríkjunum. Þar vann ég þar til Álafoss hf. var stofnaður með samruna gamla Álafoss og Ullariðnaðar- deildar SÍS. Þá tók ég við starfi framkvæmdastjóra sölufyrirtækis þess í Bandaríkjunum og hef ver- ið það síðan, allt þar til nú að ég tek við starfi forstjóra Álafoss. - í hverju var starf þitt fólgið? „Það var að sjá um að vörum væri dreift og þær seldar, bæði vörum framleiddum af Álafossi og eins vörum sem framleiddar voru og hannaðar vestra, en vör- ur í síðarnefnda flokknum voru þó í miklum minnihluta. í framhaldi af þeim aðgerðum sem urðu í kjölfar sameiningar fyrirtækjanna var starfsfólki\ fækkað úr sextán manns niður í átta. Iðnaðardeildin hafði verið með höfuðstöðvar í Ohio, en við stofnun hins nýja Álafoss var allt flutt til New York. Auk þeirra átta starfsmanna sem ég nefndi vorum við með 30 sölumenn á okkar snærum, en þeir seldu fyrir umboðslaun. Ég var eini íslendingurinn sem vann þarna, en það var síður en svo neitt erfiðara að vinna með Ameríkönum en íslendingum." - Þú þekkir því vel til aðstæðna á erlendum mörkuðum af eigin raun. Ólafur Ólafsson, forstjóri. „Ég var búinn að vera bæði í Bretlandi og Frakklandi, og vann áður við markaðsmál ullar- vara á Norðurlöndunum og Bret- landi, og var hálft ár við uppsetn- ingu fyrirtækis í Bandaríkjunum. Þá ætlaði ég reyndar að hætta á þessu sviði og fór til Frakklands og ætlaði að læra frönsku ásamt konu minni, en vann jafnframt fyrir Árblik við markaðs og sölu- störf, til vorsins 1986. Þá fór ég til Bandaríkjanna. Ég er því búinn að starfa alls firnrn ár erlendis, þar af þrjú og hálft ár í Bandaríkjunum." Miklar breytingar voru gerðar á vcrksmiðjunni á Akureyri í kjölfar stofnunar Álafoss hf. Bandvinnsla var lögð niður á Akureyri, kembivélar, spunavélar og önnur tæki ýmist seld eða flutt til verksmiðjunnar í Mosfellsbæ. Á innfelldu myndinni sést Inga Jóhannsdóttir vinna við spuna, myndin er tekin í mars 1980. Offjárfesting í ullariðnaði og einhæfar vélar til bandframleiðslu - Mikið hefur verið rætt og ritað um erfiðleika ullariðnaðar und- anfarin ár? „Já, þetta hefur verið erfiður tími og verður það sjálfsagt eitthvað áfram. Erfiðleikarnir stafa af ýmsum ástæðum, ekki bara í fyrirtækjunum sjálfum heldur ekki síður aðstæðum í ytra umhverfi þeirra. Gríðarleg samkeppni ríkir á mörkuðum með ullarvörur, og íslensk fyrir- tæki hafa haft fremur veika stöðu og lítil tækifæri til að bregðast við breyttum aðstæðum." - Hverjar hafa þessar breyttu aðstæður fyrst og fremst verið? „Framleiðslan hefur breyst, við erum með mjög einhæfar verksmiðjur, hvort sem við lítum til bandframleiðslunnar eða prjónaverksmiðjunnar. Við ‘get- um framleitt mikið magn af ein- hæfri vöru, en þegar eftirspurn breytist og minnkar eftir vörum okkar þá standa verksmiðjur okkar sem hálfgerð náttröll í morgunskímunni." - Hefur stefnan þá verið að fjöldaframleiða einhæfa vöru? „Ég veit ekki hvort hægt er að kalla þetta stefnu, þetta er í sjálfu sér ekki nein fjöldafram- leiðsla hér hjá okkur. Verksmiðj- ur Álafoss eru kannski stórar á íslenskan mælikvarða, en á heimsmælikvarða eru þær síður en svo stórar. Spunadeildin er að vísu stór, en það sama verður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.