Dagur - 18.11.1989, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. nóvember 1989 - DAGUR - 3
og íbúðarkaup
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað eru húsbréf ?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hvemig fam íbúðarkaup fram?
-v \ Greiðslumat.
_____A Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
Skrifleg umsögn.
.....\ Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
/ik \ Kaupsamningur undirritaður -
“Vi_\ fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl. og eiqa
lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hiutaðeigandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
C§3
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI ■ 696900
Kaupandinn lætur þinglýsa
L kaupsamningnum.
X^Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
Seljandi skiptir á fasteigna-
i veðbréfi fyrir húsbréf.
Greiðslur kaupanda hefjast.
Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.