Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 5. desember 1989 233. tölublað
JMI
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
LACOSTE
Peysur ★ bolir
sloppar
Leysingar í Köldukinn:
Umflotin húsin
sluppu óskenund
- skemmdir á túnum, vegi,
girðingu og heyi
Klakastifla myndaðist í Skjálf-
andafljóti, skammt neðan við
bæinn Árteig, er fljótið ruddi
sig á laugardagsmorgun. Stíflan
hlóð sig upp að Skálárósi og þá
flæddi fljótið úr farvegi sínum
yfir vesturbakkann. Vegasam-
bandslaust varð við 10 íbúðar-
hús, og tvö þeirra umflotin
vatni, er vegur fór í kaf á 3-4
km kafla. Það slapp til með að
ekki flæddi inn í íbúðarhúsin
og verkstæði við Árteig, en
vatn komst í flugskýli austan
við bæinn. Ekki urðu skemmd-
ir á flugvél sem þar er geymd
en ókannað er hvort rafalar í
skýlinu hafí skemmst. Tölu-
verðar skemmdir urðu á
túnum, girðingum og heyi, en
vegurinn skemmdist lítið, þó
eitthvað hafí runnið úr honum.
hafa áhrif þar á. Flugvöllur við
Árteig varð ófær í flóðinu og á
hann barst mikið af jökum.
„Þetta var mjög fljótt að ske og
fólk hér vissi ekki hvað mikið
yrði úr þessu,“ sagði Arngrímur
Jónsson, vélvirki í Árteigi,
aðspurður um hvort heimafólk
hefði orðið óttaslegið við þessar
náttúruhamfarir. Arngrímur
sagði að aðeins hefði liðið um
klukkutími frá því það fór að
flæða og þar til allt var orðið um-
flotið. Tveir heimamanna frá
Árteigi gistu í Ártúni aðfaranótt
sunnudags og fólk frá Björgum
fékk gistingu á Syðri-Leikskálaá,
þar sem það komst ekki heim
vegna vatnavaxtanna fyrr en á
sunnudagsmorgun. Messufall
varð í Þóroddsstaðarkirkju á
sunnudag vegna flóðanna. IM
Vegurinn fór í sundur sunnan við Árteig og voru tvö íbúðahús umflotin þar. Til vinstri á myndinni eru bæimir
Granastaðir, Fitjar og Ártún. Mynd: IM
Flóðið hafði sjatnað mjög í gær
og var vegurinn orðinn fólksbíla-
fær, en hann var jeppafær á
sunnudag eftir að flóðið fór að
sjatna aðfaranótt sunnudags.
Menn muna ekki eftir slíku flóði
í fljótinu síðan 1948, en þá var
ekki búið að byggja íbúðarhúsin
tvö að Árteigi, sem umflotin
voru, og verkstæðishúsið, sem
slæmt hefði verið að fá vatn í. Þar
smíða feðgarnir í Árteigi túrbín-
ur, m.a. til útflutnings.
Skemmdir á túnum og girðing-
um eiga eftir að koma í ljós, en
skemmdir urðu við Árteig bæði
af vatnselg og jakahlaupi, reynt
var að bægja jökum frá girðing-
um með vinnuvélum. Pakkaðar
heyrúllur frá Syðri-Leikskálaá
voru á túnum niðri við fljóið og
urðu einhverjar skemmdir á hey-
inu, bæði lentu rúllur með vatns-
flaumnum, jakar rifu plastið á
rúllum og eitthvað mun hafa
blotnað í fleiri rúllum. Ekki er
útséð með hvaða afleiðingar það
hefur á túnin að fá á sig vatnselg-
inn á þessum árstíma, en veður-
far á næstu dögum og vikum mun
Bæjarstjórn Akureyrar ræðir um tekjuliðina:
Fasteignaskattur hækkar um 37%
miöað við óbreyttar forsendur
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær var rætt um hækkun fast-
eigna- og aðstöðugjalda fyrir
næsta ár og má búast við að
þessi mál verði tekin til
umræðu á fundi bæjarstjórnar
í dag. Fasteignamat íbúða hef-
ur hækkað um 18% milli ára
og mat atvinnuhúsnæðis um
5% og miðað við óbreyttar
álagningarforsendur kemur
fasteignaskattur til með að
hækka um 37% mOli ára, sem
er mun meira en almenn
hækkun verðlags.
Fasteignaskatturinn skilaði
bæjarsjóði rúmum 164 milljónum
kr. á árinu 1989 en 37% hækkun
þýðir að skatturinn mun skila
Norðurland eystra:
HáJfdrættingur á við
Suðumes í fólksfjölgun
Atvinnuleysi er hlutfallslega
meira á Norðurlandi en íbúa-
hlutfall þess af þjóðarheUd
segir tU um. Þetta kemur fram
í frétt frá Fjórðungssambandi
Norðlendinga vegna könnun-
ar, sem sambandið gerði í byrj-
un nóvember, á atvinnuástandi
í 22 þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi.
Niðurstaða könnunarinnar er
sú að miðað við sama tíma í fyrra
er atvinnuástand gott í tfu þess-
ara sveitarfélaga, sæmilegt í níu
en bágborið í þremur. Þegar
spurt var um framtíðarhorfur
kom í ljós að hjá 13 sveitarfélög-
um var útlit fyrir tímabundið eða
viðvarandi atvinnuleysi.
í frétt Fjórðungssambands
Norðlendinga er einnig vakin
athygli á alvarlegum horfum í
búsetuþróun á þessum áratug. Á
árunum 1980-1988 fjölgaði þjóð-
inni um 22.503 íbúa. Þar af var
fjölgun á höfuðborgarsvæðinu
89,94% allrar þjóðaraukningar á
þessum árum. Norðurland eystra
er ekki nema hálfdrættingur á við
Suðurnesin, hvað fólksfjölgun
varðar og íbúum Norðurlands
vestra hefur fækkað á þessu tíma-
bili.
Sjá nánar bls.5
hátt í 225 milljónum í kassann
árið 1990, sem er aukning upp á
um 60 milljónir. Þá er miðað við
sömu álagningarforsendur, ekk-
ert álag á fbúðarhúsnæði en 25%
álag á atvinnuhúsnæði.
Samkvæmt heimildum Dags er
ekki ólíklegt að reynt verði að
stemma stigu við þessari hækkun
fasteignaskatts, t.d. með hrein-
um afslætti af fasteignaskatti
íbúðarhúsnæðis.
Þegar lóðarleigu, holræsagjaldi
og vatnsskatti hefur verið bætt
við fasteignaskattinn þá námu
fasteignagjöld ársins 1989 sam-
tals tæplega 306 milljónum króna
á Akureyri. Óbreyttar álagning-
arforsendur þýða að bæjarsjóður
mun fá um 398 milljónir í gegn-
um fasteignagjöld árið 1990.
Þarna verður að taka tillit til
nýrrar reglugerðar um holræsa-
gjald. Þetta gjald var 0,08% af
fasteignamati en verður nú
0,12%. Verði gjaldið áfram með
50% álagi þýðir þetta að tekjur
bæjarins af holræsagjaldi verða
63.7 milljónir á næsta ári í stað
39.8 milljóna í ár. Þetta er í
kringum 60% hækkun.
Annað mál sem menn velta
fyrir sér er útsvarsprósentan.
Hún er nú 7,2% á Akureyri en
heimilt er að hafa hana allt upp í
7,6%. Á Akureyri þýðir hækkun
um hvert 0,1% í kringum 10
milljóna króna tekjuauka fyrir
bæjarsjóð.
Loks eru það aðstöðugjöldin.
Hlutfallið á Akureyri er 1,3% í
þjónustu, 1,0% í iðnaði, 0,65% í
fiskvinnslu og 0,33% í útgerð.
Líklegt er talið að lægsta stigið
verði fellt niður og aðstöðugjöld-
in verði 0,65% bæði í útgerð og
fiskvinnslu sem þýðir tekjuauka
upp á 5-7 milljónir.
Ekki náðist í Sigurð J. Sigurðs-
son, forseta bæjarstjórnar, eftir
fund bæjarráðs í gær en búast má
við miklum umræðum um þessi
gjöld á fundi bæjarstjórnar í dag.
SS
UKE Hrísey:
Öllum skipveijum
Snæfells sagt upp
- Verður togarinn seldur?
Öllum skipverjum frystítogar-
ans Snæfells EA 740, alls 30
manns var sagt upp störfum
um síðustu mánaðamót. Snæ-
fellið er í eigu Kaupfélags Ey-
fírðinga og hefur verið gert út
frá Hrísey.
Kristján Ólafsson sjávarút-
vegsfulltrúi KEA á Dalvík stað-
festi við Dag í gær að mönnunuin
hafi verið sagt upp. Hann vildi
hins vegar ekkert tjá sig um
ástæður uppsagnanna. Upp-
sagnafrestur skipverjanna er mis
langur og fer eftir störfum og
starfsaldri.
Samkvæmt heimildum Dags
eru ástæðurnar fyrir uppsögnun-
um þær, að selja eigi skipið.
Kristján vildi heldur ekki tjá sig
um hvort þær sögur ættu við rök
að styðjast. VG
Kemur Vmardrengja-
kórínn til Akureyrar?
Góðar líkur eru á því að hinn
þekkti Vínardrengjakór syngi
á tónleikum í Akureyrarkirkju
í byrjun júní á næsta ári.
Ákveðið er að kórinn komi á
Listahátíð í Reykjavík 1990 og
er nú unnið að því að fá hann
til Akureyrar.
Að sögn Ingólfs Ármannsson-
ar, skóla- og menningarfulltrúa
Akureyrarbæjar, er búist við að í
næstu viku liggi fyrir hvort af
þessu getur orðið.
Sigurður Bjömsson á sæti í stjóm
Listahátíðar og er hann nú í Vín
til að ganga frá samningum um
komu kórsins á hátíðina. Sigurð-
ur er með í farteskinu beiðni
Akureyrarbæjar um heimsókn
kórsins til Akureyrar. Að sögn
Ingólfs mundi bærinn bera fjár-
hagslega ábyrgð af hingaðkomu
kórsins. óþh