Dagur - 05.12.1989, Síða 7
Þriðjudagur 5. desember 1989 - DAGUR - 7
Óvænt úrslit í körfmni:
Þórsarar skelltu Njarðvíkingum
- Releford rekinn í bað - Fyrsta tap UMFN í vetur
„Þetta var frábær sigur liðs-
heildarinnar,“ sagði Dan
Kennard ánægður þjálfari
Þórs eftir að lið hans hafði lagt
Njarðvíkinga að velli í „Ljóna-
gryfjunni“ í Njarðvík 96:85 í
Urvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. Þess má geta að þetta er
fyrsti tapleikur Njarðvíkinga í
körfunni í vetur.
Sigur Þórsara var óvæntur en
sanngjarn. Liðið var yfir meiri-
hlutann af leiknum og Akureyr-
ingarnir náðu að halda haus þrátt
fyrir að heimapiltarnir næðu yfir-
höndinni undir lok fyrri hálfleiks.
En það gekk mikið á í íþrótta-
húsinu í Njarðvík og voru ekki
allir sáttir við frammistöðu Krist-
ins Albertssonar dómara í leikn-
um. Um miðjan fyrri hálfleik var
brotið á Patric Releford þjálfara
heimamanna og lét hann einhver
vel valin orð falla við dómarann.
Kristinn dæmdi þá tæknivíti á
Bandaríkjamanninn en hann lét
ekki segjast og sagði nokkur orð
sem mamma hans hefði ekki vilj-
að að hann myndi láta út úr sér.
Dómarinn var ekki heldur of
ánægður með orðbragðið og vís-
aði þjálfaranum umsvifalaust úr
húsinu.
Þá var staðan 32:31 fyrir Þór
en mikill fítonskraftur greip
Njarðvíkinga er Releford var
rekinn í bað. Þeir keyrðu upp
hraðann og komust yfir rétt fyrir
leikhlé 50:44.
í síðari hálfleik sýndu Þórsarar
mikinn styrk og náðu forystu
fljótlega aftur. Þrátt fyrir villu-
vandræði héldu þeir forystunni
allt til leiksloka og sigruðu 96:85,
eins og áður sagði.
Dan Kennard átti frábæran
leik fyrir Þór bæði í sókn og vörn.
Það var ekki nóg að hann skoraði
mikið af stigum og hirti óteljandi
fráköst í vörninni heldur var
hann einnig grimmur í sóknar-
fráköstunum og náði fjölmörgum
þeirra. Jóhann Sigurðsson átti
einnig mjög góðan leik og skor-
aði dýrmæt stig, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Ágúst Guðmunds-
son var í byrjunarliði og stóð sig
vel. Síðan var liðsheildin góð hjá
Þór og var að sjálfsögðu kátt á
hjalla í herbúðum Þórsara eftir
þennan óvænta en sanngjarna
sigur.
Njarðvíkingar áttu ekkert svar
við stórleik Þórsara. Þrátt fyrir
að Releford hefði verið rekinn út
af er liðið það sterkt að sigur Þórs
var ekki sjálfsagður. Teitur
Örlygsson var einna bestur heima-
manna en þeir voru að vonum
svekktir eftir þetta óvænta tap.
Dómarar voru þeir Leifur
Garðarsson og Kristinn Alberts-
son. Leifur dæmdi ágætlega en
ekki voru allir ánægðir með
dómgæslu Kristins.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjömsson
14, Teitur Örlygsson 14, Kristinn Einars-
son 14, ísak Tómasson 14, Friörik Ragn-
arsson 10, Friðrik Rúnarsson 8, Patric
Releford 8 og Georg Birgisson 3.
Stig Þórs: Dan Kennard 38, Jóhann
Sigurðsson 11, Jón Örn Guðmundsson
10, Konráð Óskarsson 9, Ágúst Guð-
mundsson 8, Davíð Hreiðarsson 7, Guð-
mundur Bjömsson 4. EG/AP
KSÍ-þing:
Eggert formaður
- 3. deildar tillagan kolfelld
Eggert Magnússon var kosinn
formaður KSÍ á ársþingi sam-
bandsins í Reykjavík um helg-
ina. Hann sigraði Gylfa Þórð-
arson fyrrverandi varaformann
örugglega í kjöri, 100:47. Eitt
af aðalumræðuefnum þingsins
var tillaga um að breyta 3.
Eggert Magnússon, hinn nýi for-
maður KSI.
deildinni í sitt upprunalega
form, þ.e. tvo riðla, en það var
fellt með miklum mun, 54:26.
í heild var þetta rólegt þing.
Nokkur umræða varð um kvenna-
knattspyrnu og sagðist hinn nýi
formaður ætla að beita sér fyrir
eflingu íþróttarinnar meðal kven-
þjóðarinnar. Á þinginu var
ákveðið að taka upp keppni í 4.
flokki kvenna og einnig var
ákveðið að ef fá lið yrðu í 2. deild
kvenna gæti mótanefnd fært þau
upp í þá fyrstu.
Dalvíkingurinn Snorri Finn-
laugsson var kosinn í varastjórn
KSI en nýir menn í stjórn KSÍ
eru Jón Gunnlaugsson frá Akra-
nesi, Guðmundur Pétursson frá
KR og Sigmundur Stefánsson frá
Selfossi.
Nokkrar breytingar voru
kynntar á dómaramálum á þing-
inu og verður m.a. dómarahóp-
urinn sem dæmir í 1. deildinni á
næsta ári skorinn niður. Nánar er
fjallað um það mál á blaðsíðu 8.
Jóhann Sigurðsson átti mjög góðan leik gegn Njarðvíkingum eins og reyndar allir leikmenn Þórsliðsins. Mynd: tlv
Knattspyma:
Kjartan kemur í KA
Kjartan Einarsson knatt-
spyrnumaöur frá Keflavík
hefur ákveðið að ganga til
liðs við KA á næsta keppnis-
tímabili. Kjartan varð annar
markahæsti maður 1. deildar-
innar og er honum ætlað að
fylla í skarð Antonys Karls
Gregory I framlínu íslands-
meistaranna.
Kjartan mun flytja til Akur-
eyrar í lok mars en þangað til
mun hann æfa með þeim leik-
mönnum KA sem búsettir eru í
Reykjavík.
Kjartan er mjög fljótur og
skotfastur leikmaður og kom
svo sannarlega á óvart á
íslandsmótinu síðasta sumar
með því að skora 9 mörk. En
það verður erfitt að fylla skarð
Antonys í sókninni en Kjartan
hefur alla burði til þess að
standa sig með KA-liðinu.
Allir aðrir leikmenn KA-liðs-
ins hafa ákveðið að leika áfram
með liðinu og munu þeir eins og
undanfarin ár vera með æfingar
í Reykjavík. Guðjón Þórðarson
mun skjótast yfir til Reykjavík-
ur við og við til þess að fylgjast
með leikmönnunum.
Af öðrum KA-fréttum er það
helst að frétta að Ron Fenton
aðstoðarframkvæmdastj óri
Nottingham Forest og Þorvald-
ur Örlygsson leikmaður félags-
ins koma hingað til lands í
kvöld. Á morgun miðvikudag
verður síðan skrifað undir
samning um félagaskipti Þor-
valdar úr KA í þetta fræga
enska lið.