Dagur - 05.12.1989, Page 11
bœkur
Þriðjudagur 5. desember 1989 - DAGUR - 11
Af lífi og sál
- Endurminningar Þóru
Einarsdóttur í Vernd
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur
sent frá sér bókina Af lífi og sál,
endurminningar Þóru Einars-
dóttur í Vernd.
Þóra hefur alla tíð unnið „af
lífi og sál“ og fátt látið sér óvið-
komandi. Prestsmaddaman á
Kálfafellsstað var strax tilbúin að
láta að sér kveða, og hikaði ekki
við að rífa upp gamlar hefðir með
rótum ef hún taldi að breytinga
væri þörf.
Til að auka þekkingu sína á
félagslegri þjónustu og þá sér-
staklega þjónustu við fanga
stundaði hún nám í Danmörku
og heimsótti síðan mörg helstu
fangelsi Evrópu. Hún fann strax
að heima á íslandi var mikil þörf
fyrir slíka þjónustu, bæði meðan
menn voru innan múra og ekki
síst þegar þeir reyndu að samlag-
ast þjóðfélaginu á ný, og hún
stofnaði Vernd.
Þóra sá strax að fangar voru
mismunandi á sig komnir, sumir
voru sjúklingar sem áttu enga
samleið með öðrum föngum, þeir
þurftu læknisaðstoð og hælisvist.
Hún kom sumum inn á stofnanir
í Noregi og lýsir í bókinni öllum
þeim erfiðleikum sem sigrast
þurfti á til þess að það tækist.
Þóra ferðaðist til Indlands og
sá eymdina í sinni dekkstu mynd,
sá þörfina fyrir aðstoð, og hún
tók til starfa. M.a. starfaði hún
meðal holdsveikra sem eru allt að
því útskúfaðir. Með þrotlausu
starfi og mikilli fórnfýsi tókst
henni að koma upp meðferðar-
heimili fyrir holdsveikar stúlkur
og skapa þeim aðstöðu til vinnu.
Heimili þetta er rekið í nafni
íslands og á sitt undir aðstoð héð-
an að heiman og þá sérstaklega
harðfylgi Þóru.
Nú þegar þessi bók kemur út,
er Þóra Einarsdóttir enn á leið til
Indlands. Farin á heilsu og orðin
76 ára gömul segir hún að þetta
sé sín síðasta ferð. Hún ætlar að
reyna að tryggja hópi barna sem
koma frá fjölskyldum holds-
veikra, skólavist, en það er við
margvíslegan vanda að fást.
„Af lífi og sál“, gefur nokkra
innsýn í margvísleg störf Þóru
Einarsdóttur. Bókin á erindi til
allra sem láta sig manneskjuna
skipta.
Aldnir
hafa orðið
- Lokabindi
Bókaflokkurinn „Aldnir hafa
orðið“ varðveitir hinar merkileg-
ustu frásagnir eldra fólks af
atburðum löngu liðinna ára og
um það sjálft, atvinnuhættina,
siðvenjurnar og bregður upp
myndum af þjóðlífinu, örum
breytingum og stórstígum fram-
förum, þótt ekki sé um samfelld-
ar ævisögur að ræða.
Með hinum öldnu, sem kveðja,
r—
hverfur jafnan mikill fróðleikur
og lífsviska, sem betur er geymd-
ur en gleymdur.
Fólk það, sem segir frá í þess-
ari bók og fyrri bókum í þessum
bókarflokki, er úr ólíkum jarð-
vegi sprottið og starfsvettvangur
þess fjölbreyttur, svo og lífs-
reynsla þess. Frásagnirnar spegla
þá liðnu tíma, sem á öld hraðans
og breytinganna virðast nú þegar
orðnir fjarlægir. En allar hafa
þær sögulegt gildi þótt þær eigi
fyrst og fremst að þjóna hlutverki
góðs sögumanns, sem á fyrri tíð
voru aufúsugestir.
ALDNIR
HAFA
ORÐIÐ
Með útkomu þessa bindis, sem
er hið 18. lýkur þessum merki-
lega bókaflokki. í þessum bókum
hefur verið rætt við á annað
hundrað einstaklinga, úr flestum
þjóðfélagsstéttum og öllum
landshlutum, þessar bækur eru
því saga fólksins í þessu landi.
Þessi segja frá í lokabindinu:
Bjarni Jóhannesson, skipstjóri
frá Flatey; Eiríkur Björnsson,
bóndi og oddviti frá Arnarfelli;
Einar Malmquist, fyrrv. útgerð-
armaður; Ketill Þórisson, bóndi í
Baldursheimi; Guðný Péturs-
dóttir, hjúkrunarkona, Snælandi
í Kópavogi; Þórður Oddsson,
læknir í Reykjavík og Þorsteinn
Guðmundsson bóndi á Skálpa-
stöðum.
Höfundur Aldnir hafa orðið er
sem fyrr Erlingur Davíðsson.
Unaður kynlífs
og ásta
Bókaútgáfan Skaldborg hefur
sent frá sér bókina Unaður kyn-
lífs og ásta, eftir dr. Andrew
Stanway, í þýðingu Gissurar Ó.
Erlingssonar. í kynningu útgef-
anda segir m.a.:
„Dr. Stanway ræðir kynferðis-
málin í samhengi við ást og róm-
antík ekki síður en á tæknisvið-
inu - og er það sannarlega
ánægjulegt viðhorf á þessum tím-
um kynferðislegra áhyggjuefna.
Víðtæk reynsla dr. Stanways
sem læknis og ráðgjafa í málum
sem varða hjónaband og kyn-
ferðismál hefur leitt í ljós að
mörg ef ekki flest hjón eða sam-
býlisfólk nú á dögum hefur aldrei
átt neitt raunverulegt tilhugalíf.
Hann telur að tími sé kominn til
að hverfa aftur til hinna „úreltu“
unaðssemda biðlunar, innileika
og ástleitni, nauðsynlegt sé að
UNAÐLJR
KYNLÍFS
KYNFHRÐISLEC
SAMSKIPTI í
NÝJU LJÓSI
DR ANDREW STANWAY
bæta næmleika okkar gagnvart
ástarhótum og atlotum ef við eig-
um að geta stofnað til ástúðlegrar
og kynferðislega fullnægjandi,
ævilangrar sambúðar.
í unaði kynlífs og ásta, opin-
berar dr. Stanway tæpitungulaust
hvernig við getum endurvakið
kynferðislega örvun og eftirvænt-
ingu í sambúð okkar. Einn kafli
bókarinnar er helgaður túlkun á
kynlíkama okar og ráðleggingum
um ástarhót bæði með og án sam-
ræðis og í svefnherberginu og
utan þess. Rætt er um gildi kyn-
ferðislegra hjálpartækja og fjall-
að er ítarlega um getnaðarvarn-
ir.“
Fjölmargar litmyndir eru í
bókinni. Formála bókarinnar rit-
ar Jóna Ingibjörg Jónsdóttir,
kynfræðingur.
Hvers vegna elska
karlmenn konur
- Hvers vegna yfirgefa
karlmenn konur?
Skaldborg hf. hefur sent frá sér
bókina Hvers vegna elska karl-
menn konur, hvers vegna yfir-
gefa karlmenn konur? eftir dr.
Connel Cowan og dr. Melvyn
Kinder. í fyrrihluta bókarinnar,
„Hvers vegna yfirgefa karlmenn
konur?“ fjalla höfundarnir um
þau viðhorf og athafnir kvenna
sem gera karlmenn þeim frá-
hverfa og tefla sambúð karla og
kvenna í tvísýnu. Til dæmis kom-
ast konur að því við lesturinn að
sé of mikið gefið geti það bælt
ástina fremur en lyft henni á
hærra stig, að kona geti óviljandi
girt fyrir innileika og ýtt manni
frá sér, að ágeng ástleitni geti
haft þveröfug áhrif við það sem
ætlað var, og augu þeirra opnast
fyrir alltof algengu og ömurlegu
misræmi milli karls og konu þeg-
ar ástarhitinn krefst mestrar sam-
stillingar.
í síðari hluta bókarinnar,
„Hvers vegna elska karlmenn
konur?“ veita höfundarnir innsýn
í atferli sem vekur ástríka og já-
kvæða svörun hjá karlmönnum.
Gagnstætt því sem margar konur
halda eru karlmenn fúsir til að tjá
ást sína, þeir laðast venjulega að
sterkum konum sem standa þeim
jafnfætis, og þeir hafa oft ótjáða
en þó ríka þörf fyrir vináttu.
Þýðandi bókarinnar er Gissur
Ó. Erlingsson.
Gestapo
Út er komin spennusagan Gestapo
eftir Sven Hassel.
Sven Hassel er þekktasti
stríðsbókahöfundur í heiminum í
dag. Hann hefur skrifað fjórtán
bækur um seinni heimsstyrjöld-
ina. Hann skrifar sögu herflokks
sem hann kallar „Hersveit hinna
fordæmdu", en í þeirri hersveit
eru alls konar misindismenn sem
hefur verið safnað saman og eru
ætíð í fremstu víglínu. Þeir þurfa
að taka að sér verkefni sem eng-
inn annar fæst til að vinna enda
er öllum sama um örlög þeirra.
En þeir hafa tilfinningar undir
hrjúfu yfirbragði og Sven Hassel
tekst að koma öllu þessu til skila.
Höfundurinn gekk sjálfur í
þýska herinn 1937, og segir að
það hafi verið af stráksskap ein-
göngu, hann hafi ekki gert sér
ljóst hvað hann var að gera.
Hann tók þátt í hildarleiknum
sjálfur og veit því hvað hann er
að skrifa um.
f þessari bók fjallar hann um
þýsku herlögregluna sem var
skelfileg ógnun alls staðar sem
hún starfaði. Þessi bók er ósvikin
Sven Hassel bók. Útgefandi er
Skjaldborg hf.
HOTEL NORÐURLAND
Geislagötu 7 • Akureyri • Sími 22600
Verslunarferðir
í desember
Aðeins kr. 1.500,-*
HÓTEL NORÐURLAND
— notalecjt Hótel —
'Innifalið: Veið á mann miðað við tvo í herbergi, með baði,
sjónvarpi (Stöð 2, Eurosport, Sky), útvarpi, síma og mínibar.
10%
jólaafsláttur til jóla
Rúllukragabolir á börn verð 590,-
Skíðahanskar í neonlitum verð frá 1705,-
Moonboots st. 24-39 verð frá 1895,-
Flauelsbuxur á 2-5 ára verð 880,-
Drengjaskyrtur verð 1690,-
Drengjaslaufur svartar verð 260,-
Jólatilboð
Herraskyrtur m/bindi verð aðeins 2.350,-
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 6.185.503.-
2. 10 119.243.-
3. 4af5 332 6.195.-
4. 3af 5 11.238 427.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARl 681511 - LUKKULÍNA 991002