Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar 1990 fréffir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra við opnun sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri: „Menntim í sjávarútvegi hefur verið vanrækt undanfama áratugi“ í ferð sinni norður notuðu gestir tækifærið og skoðuðu Fiskeldi Eyjafjarðar. Frá vinstri á myndinni eru Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar, Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jóhannes Geir Sigurgeirsson þingmað- ur. Mynd: KL Haraldur Bessason, háskóla- rektor, sagði við opnun sjávar- útvegsdeiidar Háskólans á Akureyri í gær að starfshópur hefði verið skipaður að til- stuðlan Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, til að efla deildina og stuðla að sam- vinnu milli hennar og Sjávarút- vegsstofnunar Háskóla Is- lands. Auk þess verður unnið að samvinnu milli deildarinnar og útibús Rannsóknastofnun- ar fiskiðnaðarins á Akureyri og flutningi útibús Hafrann- sóknastofnunar frá Húsavík til Akureyrar. í starfshópnum eiga sæti Grím- ur Valdemarsson forstjóri Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, Jakob Jakobsson forstjóri Haf- rannsóknastofnunar og Árni Kol- beinsson ráðuneytisstjóri. Halldór Ásgrímsson óskaði í ávarpi sínu til fundarins öllum hlutaðeigandi til hamingju með þennan merka áfanga. Mikið gleðiefni væri fyrir sjávarútveg- inn í heild að jafnmikill áhugi væri fyrir fræðslu og menntun á þessu sviði og raun bæri vitni. „Þessi þáttur hefur verið van- ræktur í þjóðlífi okkar á undan- förnum árum og áratugum, án þess að neinum sérstökum sé um að kenna. Við þurfum á því að halda að efla menntun í þessum greinum, ekki aðeins á háskóla- stigi heldur jafnframt á grunn- skólastigi og framhaldsskólastigi. Pað hlýtur að vekja virðingu fyrir atvinnugreinum sjávarútvegs og hvetja ungt fólk til að fara inn á þessar brautir. Því miður er það svo í dag að áhugi er ekki nægilega mikill fyrir því að starfa við sjávarútveg. Við heyrum það oft hjá ungu fólki að eitt það versta sem fyrir það gæti komið væri að vinna í frystihúsi eða hjá öðrum fyrirtækjum sjáv- arútvegs. Hér er um mikinn mis- skilning að ræða, því þessi störf eru bæði mikilvæg og góð víða í samfélaginu. Þjóðélagið byggir að miklum hluta á þessari grein. Öllum hlýtur að vera ljóst að til lítils er að setja á stofn háskóla sem ekki byggir að verulegu leyti á rannsóknastarfsemi. Það er jafnframt Ijóst að rannsókna- starfsemi í þjóðfélaginu er alltof lítil og of litlu fé varið til hennar. Það eru hagsmunamál Háskólans og stofnana 'sjávarútvegsins í heild að tengjast saman böndum, og því viljum við af heilum hug tengja þessar stofnanir Háskól- anum á Akureyri,“ sagði Halldór Ásgrímsson, og benti á að ofan- greindar stofnanir gætu í sam- vinnu við Háskólann og Fiskeldi Eyjafjarðar byggt upp öfluga rannsóknastarfsemi í sjávarút- vegi á Eyjafjarðarsvæðinu á næstu árum. Háskólanum á Akureyri bárust margar gjafir og góðar kveðjur í gær, m.a. sérstakar heillaóskir frá rektor Háskóla íslands. EHB Góðar gjafir til Útsteins og Háskólans Við vígslu Útsteins, stúdenta- garðs við Skarðshlíð á Akur- eyri, sl. haust tilkynnti Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, að bær- inn myndi síðar færa Félags- stofnun stúdenta á Akureyri listaverk eftir Ragnheiði Þórs- dóttur til varðveislu í Útsteini. Forseti bæjarstjórnar, Sigurð- ur J. Sigurðsson, afhenti í gær Sigurði P. Sigmundssyni, for- manni stjórnar Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri listaverk Ragnheiðar, sem ber heitið „Uppgangur." Sigfús Jónsson, bæjarstjóri, greindi fyrir hönd bæjarsjóðs frá ákvörðun um 250 þúsund króna fjárframlag til bókakaupasjóðs Háskólans á Akureyri. Þá lét bæjarstjóri þess getið að bærinn hefði hafið herferð í að hvetja fyrirtæki á Akureyri til að láta fé af hendi rakna til bókakaupa- sjóðsins. Við sama tækifæri færði Gunn- ar Ragnars, fyrir hönd Útgerðar- félags Akureyringa hf., bóka- kaupasjóði HÁ 200 þúsund krón- ur að gjöf. Haraldur Bessason, háskólarektor, tók við þessum peningagjöfum um leið og hann þakkaði þann góða hug sem bæjarsjóður og Útgerðarfélagið sýndu Háskólanum með þeim. Á mynd KL eru Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórn- ar, Sigurður P. Sigmundsson, formaður stjórnar Félagsstofnun- I konan Ragnheiður Þórsdóttir. ar stúdenta á Akureyri, og lista- | óþh Útvarp Norðurlands: Eyjólfur maður ársins Eyjólfur Sverrisson, knatt- spyrnumaður frá Sauðárkróki, var valinn maður ársins á Norðurlandi í Útvarpi Norður- lands í vikunni. Eyjólfur stóð sig mjög vel á árinu með liði sínu Tindastóli, sem og lands- liðinu í knattspyrnu U-21. Þá gerði hann undir lok ársins samning við þýska stórliðið Stuttgart. Eyjólfur verður í helgarviðtali Dags á morgun og ræðir þar m.a. um atvinnu- mennskuna í Þýskalandi. Eyjólfur fékk 49 atkvæði í kjörinu en næstur honum kom Þorvaldur Örlygsson með 30 atkvæði. Þriðja sæti náði Geir- mundur Valtýsson en 14 manns greiddu honum atkvæði. Meðal þeirra sem fengu atkvæði í kjörinu voru: Ingunn Svavarsdóttir, Daníel Á. Daníels- son, Valgerður Sverrisdóttir, Luca Kostic, Valur Ingimundar- son, Finnbogi Baldvinsson, Hall- björn Hjartarson, Kristinn Björnsson, Stefán Magnússon, Gestur Einar Jónasson, Alfreð Gíslason, Stefán Gunnlaugsson og Samherjamenn. JÓH Formaður kj ördæmisstj órnar Borgaraflokks: Guðmundur er ekki talsmaður flokksíns Vegna fréttaskýringar í Degi í gær um undirbúning bæjar- stjórnarkosninga á Akureyri vill Ásvaldur Friðriksson, for- maður kjördæmisstjórnar Borgaraflokks í Norðurlands- umdæmi eystra, taka fram eft- irfarandi: „Guðmundur Lárusson, sem blaðamaður Dags hafði samband við fyrir hönd Borgaraflokks, hefur lítið sem ekkert komið nálægt starfi Borgaraflokksins frá síðustu kosningum og er hreint ekki málsvari Borgaraflokksins á Akureyri. Varðandi framboð til bæjar- stjórnar á Akureyri reikna ég fastlega með að Borgaraflokkur- inn verði með í þeim slag. Um þessi mál hefur auðvitað verið fundað. Þessi mál báru á góma á aðalstjórnarfundi flokks- ins í nóvember en engar ákvarð- anir teknar. Síðan munum við funda í janúar eða febrúar þar sem endanleg ákvörðun verður tekin um þessi mál.“ óþh O JQ ö> ö> ö d> > DC • <S < U) C m ö> c 3 ■< 5P 00 O co z r- 00 c (O Jr c\i :0 ío Q c £ c ± m Oí c l-f </) 2 C £ <n ® <0 g. "ö m DC § V IV S| <| o ^ Q. O (/> 15 • U) — c E C0 .= > s a DC ■ mtm ™ o => (0 <0 c m (0 Q < • * g 3 E <C -J

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.