Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar 1990 hvað er að gerast ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (iþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: Rl'KARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SIMFAX: 96-27639 Aðeins ein leið skilar raunverulegum kjarabótum Nú standa fyrir dyrum samningar um kaup og kjör á almennum vinnumarkaði og hófust viðræður fyrir nokkru. Aðilar beggja vegna borðsins, vinnuveit- endur og verkalýósforystan, virðast gera sér grein fyrir því að svigrúm til launahækkana er lítið, þar sem þjóðarframleiðslan mun að öllum líkindum dragast enn nokkuð saman á þessu ári, þriðja árið í röð. Við slíkar aðstæður er svigrúm til launahækk- ana lítið. Þess vegna má fullyrða að verði gerðir óraunhæfir kjarasamningar nú, sem taka ekki tillit til aðstæðna í þjóðarbúskapnum, fylgi ný efnahags- kollsteypa í kjölfarið. Þá mun verðbólguhjólið snú- ast hratt að nýju og sá árangur sem þegar hefur náðst í efnahagslífinu verða að engu á skammri stundu. Þjóðin hefur margsinnis fengið að kynnast afleiðingum svokallaðra verðbólgusamninga, sem hafa ávallt fært launþegum fleiri en jafnframt verðminni krónur en þeir höfðu áður. Slíka samn- inga vill enginn. Smám saman hefur verið að myndast almenn samstaða um það að fara nýja leið við gerð kjara- samninga að þessu sinni. í stað þess að hækka launin og síðan verðlagið og vextina í kjölfarið, ræða aðilar vinnumarkaðarins það í fullri alvöru að beita niðurfærslu. Forvígismenn beggja fylkinga, launþega og atvinnurekenda, hafa lýst þeirri skoð- un sinni að það sé sameiginlegur hagur þeirra að verðbólga minnki og vextir lækki. Þeim virðist jafn- framt ljóst að ef gerðir verða óraunhæfir kjara- samningar nú, mun þróun efnahagsmála hér á landi næstu mánuði gagna þvert gegn þessum sameiginlegu hagsmunum. Þá mun verðbólga vaxa og vextir hækka. Þótt því sé oft haldið fram að ríkið eigi ekki að blanda sér í samninga á vinnumarkaði, hlýtur sú skylda að hvíla á stjórnvöldum að þau leggi sitt að mörkum til að greiða fyrir gerð raunhæfra kjara- samninga. Það er fullkomlega eðlilegt að ráðandi öfl í þjóðfélaginu vinni sameiginlega að því að ná svo mikilvægu markmiði. Ríkisstjórn hefur enda þegar lýst yfir vilja sínum til samvinnu, m.a. með því að fresta gjaldskrárhækkunum ýmissa opinberra stofnana, þrýsta á um lækkun vaxta og hafa mjög strangt eftirlit með verðlagi. Með þessu hafa stjórn- völd þegar greitt verulega fyrir því að skynsamlegir samningar geti tekist. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar og Verkamannasambands íslands, hefur lýst því yfir að eins og málum er nú háttað, felist einu hugsanlegu kjarabæturnar í niðurfærsluleið- inni. Ef farin verði hefðbundin leið í samn- ingaviðræðunum fari allt á versta veg. Undir þau orð skal tekið. BB. I Leikklúbburinn Saga: Fúsi froskagleypir snýr aftur Leikklúbburinn Saga hóf 13. leikár sitt með frumsýningu þann 9. desember síðastliðinn á barna- leikritinu Fúsa froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í þýðingu Olgu Guðrúnar Árnadóttur og með tónlist eftir Jóhann Morá- vek, Arnar Tryggvason og Frið- þjóf Sigurðsson. Höfundur söng- texta er Ólafur Haukur Símonar- son en mikið er sungið í leikritinu við undirleik sex manna hljóm- sveitar. Sex sýningar voru á leikritinu fyrir jól en nú verða teknar upp sýningar að nýju og verður 7. sýning 7- janúar kl. 17, 8. sýning verður að kvöldi þriðjudagsins 9. janúar og tvær síðustu sýningar á leikritinu eru fyrirhugaðar laug- ardaginn 13. janúar og sunnudag- inn 14. janúar kl. 17. Leikritinu hefur verið mjög vel tekið og aðsókn góð. Alls taka 23 leikarar þátt í sýningunni á aldr- inum 13-22ja ára. Leikstjórar eru þau Jakob Bjarnar Grétarsson og Steinunn Ólafsdóttir. Leikritið fjallar um óþokkann Fúsa froskagleypi sem pínir litlu strákana sem skortir vöðva en ekki vit því þeir leika Fúsa oft grátt. Smiðurinn sér svo um að flengja Fúsa og frú Ólsen skammar alla, fleiri skemmtileg- ar persónur eiga heima í bænum hans Fúsa. Einn daginn kernur svo sirkus í bæinn og þá fara hlut- irnir að gerast og í ljós kemur að verstu skúrkar geta verið hinir nýtustu þjóðfélagsþegnar. Akureyringar og nágrannar eru hvattir til að missa ekki af Fúsa froskagleypi. Leikritið er sýnt í félagsmiðstöðinni í Dyn- heimum við Hafnarstræti. bridds íþróttafélagið Þór: Glæsfleg þrettóndagleði - Halli og Laddi, Bjartmar og Jóhann Már Hin árlega þrettándagleði Þórs verður haldin nk. laugardag, 6. janúar, á félagssvæði Þórs í Gler- árhverfi. Að þessu sinni hefst skemmtunin kl. 17 síðdegis. Þar verða hefðbundin skemmtiatriði, álfakóngur, álfadrottning, tröll, púkar og ýmsar kynjaverur koma fram. Dansflokkur skemmtir og þá troða hinir sívinsælu Halli og Laddi upp. Bjartmar Guðlaugs- son spilar og syngur og Jóhann Már Jóhannsson þenur radd- böndin af alkunnri snilld. Brenn- an mun loga glatt og glæsileg flugeldasýning er rúsínan í pylsu- endanum. Ódýrir flugeldar verða til sölu í Hamri, félagsheimili Þórs, frá kl. 13 á laugardaginn. Miðaverð á þessa umfangsmiklu og vönduðu þrettándagleði er 500 kr. en börn 6 ára og yngri fá ókeypis aðgang. Um kvöldið verður Þórsurum og stuðningsmönnum boðið á brennuball í Húsi aldraðra. Hús- ið verður opnað kl. 21 og þar munu Halli og Laddi og Bjartmar Guðlaugsson koma fram. Kvennadeildin býður upp á girni- legt miðnætursnarl og Þórsarar lofa góðri kvöldstund, laugardag- inn 6. janúar er jólin verða kvödd. Bikarkeppni Norðurlands í Bridds: Dregið í 8 liða úrslit Bikarkeppni Norðurlands í sveitakeppni, stendur yfir og er nú komið að 8 liða úrslitum. Dregið var á skrifstofu Bridge- sambands Islands um hvaða sveitir spili saman og á fyrr- nefnda sveitin heimaleik. 1. Örn Einarsson Akureyri- Grettir Frímannsson Akur- eyri. 2. Kristján Guðjónsson Akur- eyri-Jón Örn Berndsen Sauð- árkróki. 3. Gylfi Pálsson Eyjafirði-Guð- mundur H. Sigurðsson Hvammstanga. 4. Hermann Tómasson Akur- eyri-Dagur Akureyri/Guð- laugur Bessason Húsavík. Eins og fyrr eru spiluð 4x10 spil í hverjum leik og skal þessari umferð lokið fyrir 5. febrúar n.k.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.