Dagur - 05.01.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 5. janúar 1990
ÁRLAND
myndosögur dags 1
ANDRÉS ÖND
Hvað ertu L/ Búa til )
að gera? ^ista yfir það
iy tsem
Þetta er langur listi! Þú
verður að fara að byrja
Vá einhverju!
V
3 mi YTKrr > 1
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
Gera varðmenn og hunda hættulausa ..
aftengja neyðarbjöllur og rafmagnsgirðing-
una... finna sönnun um brot á umhverfis-,
lögum ... Auðveldara sagt en gejt
tj-w-n Og umfram allt, komast út aftur
v nm m iiimii'
# Sófadýr
í dægurmálaútvarpinu á
Rás 2 má stundum heyra
hinn ágætasta þátt um
gæludýr. Er þar fjallað um
hinar ýmsu skepnur er fólk
heldur í híbýlum sínum, sér
til félagsskapar og ánægju.
Skepnur þessar eru flestar
litlar og loðnar, hreistrugar
eða fiðraðar. Um jólin, er
dagskrárgerðarmenn voru í
jólaskapi, var fjallað um það
sem talið var uppáhalds-
gæludýr kvenna, karl-
manninn. Það er rétt, að
margar konur hafa frekar
lagt i það að fá sér karlmann
sem sófadýr, heldur en
hund eða kött. Og jafnvel
hafa sumar konur komist
upp með það að halda bæðí
hund og kall, og hafa þá get-
að sent annan hvorn út að
labba með hinn þegar þeir
gerast þreytandi. Það held-
ur aftur að mörgum við að fá
sér gæludýr að ekki er alltaf
hlauplð að þvf að losna við
það aftur og dýrin geta ekki
séð um sig sjálf. Þessu er
ögugt farið með karlmenn-
ina, því ef þeir fara að verða
sóðalegir og leiðinlegir má
alltaf henda þeim út, í von
um að þeir bjargi sér sjálfir.
# Jólafiskar
Það eru gerðar kannanir á
öllu mögulegu víða um lönd
og í gæludýraþættinum rétt
fyrir jól var sagt frá könnun,
í einhverju landi, á því hvort
gæludýraeigendur héldu að
dýrin vissu að það væru að
kóma jól. Þetta er alveg satt.,
Og í könnuninni kom fram
að 11% gullfiskaeigenda í
þessu ágæta landi voru
vissir um að fiskarnir þeirra
vissu að það væru jól.
# Demantsólar
í gærmorgun, þegar verið
var að lesa úr dagblöðunum
á Rás 2, rákust sunnan-
menn á frásögn af dekruð-
um köttum, sem forrík kerl-
ing úti í heimi æli á humri og
rjóma, og ekki nóg með það
heldur hefði hún nýlega
keypt demantshálsólar á
dýrin. Líklega hafa útvarps-
mennirnir öfundað kettina
og fundist nær að kellingin
næði sér i íslenska kalla
sem sófadýr, og eflaust
gæti kellingin fengið sér
íslenska karla, bara ef hún
vildi fekar ala þá en kettina.
Margrét Blöndal var fyrir
norðan og las úr Degi og
hún lét ekki sunnanmenn
eiga neitt hjá sér frekar en
venjulega. í lok þáttarins
sögðust þeir ekki vita um
hjúskaparstöðu hennar og
þá svaraði hún snögg upp á
lagið: „Ég er allavega ekki
með neina demantsól um
hálsinn."
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 5. janúar
17.50 Tommi.
(Dommel)
Nýr belgískur teiknimyndaflokkur fyrir
börn, sem hvarvetna hefur orðið feikivin-
sæll. Hér segir frá kettinum Baltasar og
fleiri merkispersónum.
18.25 Að vita meira og meira.
Bandarískar barnamyndir af ýmsu tagi
þar sem blandað er gamni og alvöru.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Blástur og sveifla.
(Sass and Brass)
Bandarískur jassþáttur.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Landsleikur íslendinga og Tékka í
handknattleik.
Síðari hálfleikur.
Bein útsending.
21.10 Annáll íslenskra tónlistarmynd-
banda.
21.55 Derrick.
22.55 Flugleiðin til Kína.
(High Road to China)
Bandarísk kvikmynd frá árinu 1983.
Aðalhlutverk: Tom Selleck, Bess Arm-
strong og Jack Weston.
Ung kona fær fyrrum herflugmann til að
hafa upp á föður sínum sem er í höndum
mannræningja.
00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 5. janúar
15.35 Skuggi rósarinnar.
(Specter of the Rose.)
Skuggi rósarinnar er um ballettflokk sem
leggur upp í sýningarferð.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Dvergurinn Davíð.
18.15 Sumo-glíma.
18.40 Heimsmetabók Guinness.
Lokaþáttur.
19.19 19.19.
20.30 Ohara.
21.20 Sokkabönd í stíl.
21.55 Ólsen-félagarnir á Jótlandi.#
(Olsen-Banden í Jylland.)
Þremenningarnir Egon, Benny og Kjeld
hafa fengið það verkefni að hafa upp á
fjársjóði sem talið er að Þjóðverjar hafi fal-
ið við vesturströnd Jótlands á sínum
tíma.
Aðalhlutverk: Ove Sprogoe, Morten
Grunwald og Poul Bundgaard.
23.25 Löggur.
(Cops.)
Framhaldsmyndaflokkur í sjö hlutum.
Fyrsti hluti.
00.15 Sonja rauða.#
(Red Sonja.)
Ævintýramynd sem segir frá stúlkunni
Sonju sem verður fyrir þeirri skelfilegu
lífsreynslu að missa alla fjölskylduna sína
í bardaga sem Gedren drottning stendur
fyrir. Henni er nauðgað og hún strengir
þess heit að ná sér niðri á drottningunni
og hennar mönnum. En drottningin er
með djarfari og háskalegri áætlanir á
prjónunum og óvíst hvort Sonja stenst
henni snúninginn.
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger,
Birgitte Nilsen og Sandahl Bergman.
Bönnuð börnum.
01.45 Fríða og dýrið.
(Beauty and the Beast.)
02.35 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 5. janúar
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
- Sólveig Thorarensen.
Fréttayfirht kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Mörður Árnason talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Lítil saga um
litla kisu" eftir Loft Guðmundsson.
Sigrún Björnsdóttir les (4).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Að hafa áhrif.
Umsjón: Haraldur Bjarnason.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Kíkt út um kýraugað.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Auglýsingar • Tónlist.
13.00 í dagsins önn - Á sjötta degi.
Umsjón: Steinunn Harðardóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Samastaður í til-
verunni“ eftir Málfríði Einarsdóttur.
Steinunn Sigurðardóttir les (17).
14.00 Fréttir.
14.03 Ljúfiingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 Sjómannslíf.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Á dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Stravinsky og
Prokofiev.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Ávettvangi.
18.30 Tónlist • Auglýsingar.
18.45 Veðurfrei jnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsinfcar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Gamlar glæður.
21.00 Kvöldvaka.
a. Þjóðsögur í jólalokin.
Síðasti þáttur, tekinn saman af Ágústu
Björnsdóttur. Lesarar: Ingibjörg Haralds-
dóttir og Kristján Franklín Magnús.
b. íslensk tónlist.
c. Fyrsti vélsleðinn á íslandi.
Frásöguþáttur eftir Einar B. Pálsson.
Gerður Steinþórsdóttir les.
Umsjón: Gunnar Stefánsson.)
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins •
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Danslög.
23.00 Kvöldskuggar.
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan - „Den ydeste ö."
Poul Kern les ljóð eftir William Heinesen
við undirleik tónhstar eftir Kristian Blak.
Umsjón: Signý Pálsdóttir.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 5. janúar
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
í ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið.
9.03 Morgunsyrpa.
Eva Ásrún Albertsdóttir og Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir.
Neytendahorn kl. 10.03 og afmæliskveðj-
ur kl. 10.30. „Hvað er svo glatt...?" Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir spjallar um kynlíf.
Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur kl.
11.03 og gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur-
eyri.)
14.03 Hvað er að gerast?
Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem
er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl-
miðlum.
14.06 Milli mála.
Árni Magnússon leikur nýju lögin.
Stóra spurningin. Spurningakeppni
vinnustaða, stjórnandi og dómari Dagur
Gunnarsson kl. 15.03.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars-
dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn
J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00 og
stjórnmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
. 19.32 „Blítt og létt...“
Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög.
20.30 Á djasstónleikum.
Úrval frá helstu djasstónleikum síðasta
árs.
21.30 Kvöldtónar.
22.07 Kaldur og klár.
Óskar Páll Sveinsson með allt það nýjasta
og besta.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
2.00 Fróttir.
2.05 Rokk og nýbylgja.
3.00 „Blítt og létt...“
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værðarvoð.
4.30 Veðurfregnir.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Blágresið blíða.
7.00 Úr smiðjunni.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 5. janúar
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Föstudagur 5. janúar
07.00 Sigursteinn Másson og Haraldur
Kristjánsson.
Föstudagsumferðin.
09.00 Páll Þorsteinsson.
Vinir og vandamenn kl. 9.30 og uppá-
haldsmataruppskriftin rétt fyrir hádegi.
12.00 Hádegisfréttir.
12.15 Trúlofunardagur á Bylgjunni.
Valdís Gunnarsdóttir trúlofar í beinni út-
sendingu.
15.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Kvöldfréttir frá kl. 18-18.15.
19.00 Hafþór Freyr Sigmundsson.
Helgin framundan.
22.00 Næturvaktin.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 5. janúar
17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger-
ast um helgina á Akureyri.
Stjómandi er Axel Axelsson.
Fréttir kl. 18.00.