Dagur - 17.01.1990, Síða 1

Dagur - 17.01.1990, Síða 1
73. árgangur Akureyri, miðvikudagur 17. janúar 1990 11. tölublað Altt: -fynrir- herrana Bæjarstjórn Sauðárkróks: Frestun gjaldskrár- hækkunar samþykkt meirihlutinn lenti í minnihluta Eins og flestum er kunnugt fór Iðnaðarráðuneytið fram á það við sveitarstjórnir landsins að þær frestuðu hækkunum á gjaldskrám hitaveitna þangað til niðurstaða væri komin í við- ræður launþega og vinnuveit- enda um kjarasamninga. Björn Sigurbjörnsson fulltrúi Alþýðuflokks í bæjarstjórn lagði fram tillögu þess efnis á fundi bæjarstjórnar fyrr í vik- unni. Bæjarstjórn Sauðárkróks fór fram á 10% hækkun gjaldskrár og fékk heimild til þess. í kjölfar erindis Iðnaðarráðuneytisins lagði Björn fram tillögu þess efn- is að hækkun gjaldskrár yrði frestað. Þessi tillaga var sam- þykkt naumlega með 5 atkvæð- um gegn 4. Það sem helst vakti athygli við atkvæðagreiðslu þessa var að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og K-lista sem saman mynda meirihluta ásamt Alþýðuflokki, greiddu atkvæði gegn tillögunni en Framsóknarmenn og fulltrúi Alþýðubandalags greiddu tillög- unni atkvæði ásamt flytjanda hennar. Allsnarpar umræður spunnust um þessa tillögu og lýsti fulltrúi K-lista Hörður Ingimarsson því yfir að honum fyndist eðlilegast eins og staðan væri, að fulltrúi Útgerðarfélag KEA: Selur Eyfell EA tíl Snæfellsness Alþýðuflokks annaðist gerð fjár- hagsáætlunar með Framsókn- armönnum sem þó eru í minni- hluta. Þá sté Björn Sigurbjörns- son í pontu og spurði Hörð hvort hann væri með þessum orðum sínum að reka sig úr meirihlutan- um. Síðar kom það í ljós er Knútur Aadnegard fulltrúi Sjálf- stæðisflokks sté í ræðustól að ákveðið hefði verið innan meiri- hlutans að menn hefðu óbundnar hendur gagnvart þessari tillögu og gætu því greitt atkvæði eftir sinni sannfæringu. En að lokum var tillagan sam- þykkt eins og áður sagði með 5 atkvæðum gegn 4. En það má eiginlega segja að meirihluti bæjarstjórnar hafi lent í minni- hluta í þetta skipti. kj „Viltu nammi, væna?“ Mynd: KL Stjórn Byggðastofhunar saiji- þykktí sfyrkveitingu til H.O. Stjórn Byggðastofnunar sam- þykkti á fundi á Akureyri í gær styrkveitingar til nokkurra sjávarútvegsfyrirtækja og er Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf. eitt þeirra samkvæmt heimild- um Dags. Ekki er um að ræða styrk frá Byggðastofnun, held- ur ákvað ríkisstjórnin á haust- dögum að fela stofnuninni að úthluta 50 milljónum króna til fyrirtækja sem standa höllum fæti og hafa notið fyrirgreiðslu úr Atvinnutryggingasjóði Hlutafjársjóði. og Fjárhagsleg endurskipulagning Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. hefur staðið yfir um nokkurra mánaða skeið og er nú farið að sjá fyrir endann á þeirri vinnu. Samkvæmt heimildum Dags verður umræddur styrkur nýttur til að lækka skuldastöðu fyrir- tækisins og reyna að styrkja stoð- ir þess enn frekar. Málefni fiskeldisfyrirtækja voru til ítarlegrar umræðu á stjórnarfundinum í gær. Stjórnin ákvað afgreiðslu lána til tveggja fiskeldisfyrirtækja á Norður- landi, Miklalax hf. í Fljótum og Silfurstjörnunnar í Öxarfirði. Þá komu málefni fiskeldisfyrirtækis- ins Árlax hf. til umræðu og kom m.a. fram áhugi heimamanna á áframhaldandi rekstri, seiðaeldi í Ártungu og áframhaldandi eldi á Kópaskeri. Fram kom að aðilar á Austurlandi hefðu sýnt því áhuga að fara í samstarf við heimamenn um áframhaldandi eldi í sjókví- um á Austurlandi. Málefni Útgerðarfélags Norð- ur-Þingeyinga komu til umræðu á fundinum. Fram kom það álit manna að gjaldþrot útgerðarfé- lagsins væri dýrasti kosturinn í stöðunni. Guðmundi Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar, var falið að skrifa bréf til ríkisstjórn- arinnar og gera henni grein fyrir stöðu ÚNÞ og hvaða möguleikar væru í erfiðri stöðu þess. óþh - heldur þó eftir 650 Fyrsta ferð Saga-Reisen til Akureyrar 4. júlí: Svisslendíngar skeiða beint á Vmdheimamela - forstjóri Saga-Reisen segir mikinn áhuga á Norðurlandsflugi Ferðaskrifstofan Saga-Reisen í Sviss hefur ákveðið að gangast fyrir beinu flugi á milli Zurich í Sviss og Akureyrar næsta sumar. Aætlaðar eru sjö bein- ar ferðir milli staðanna og verður fyrsta ferðin 4. júlí í tengslum við Landsmót ís- lenskra hestamanna á Vind- heimamelum. mörg ár, hafi kvartað undan því að þurfa að fljúga til Keflavíkur þegar Norðurland hafi verið að- almarkmið ferðar þeirra. „Ég hef trú á því að þessi nýj- ung eigi eftir að auka enn ferða- mannastrauminn til Norður- lands. Þessi landshluti býður upp á óteljandi möguleika fyrir nátt- úruunnedur, en það eru einkum slíkir ferðamenn sem sækja í þessar íslandsferðir," sagði Beat ' Iseli forstjóri Saga-Reisen í Sviss. Saga-reisen stendur fyrir þess- um ferðum í samvinnu við Ferða- skrifstofu Akureyrar, Bílaleigu Akureyrar, Ferðaskrifstofuna Nonna og bæjaryfirvöld á Akur- eyri og verður flogið með Boing 737 vélum. AP Miklilax í Fljótum: Sýnishom mælist vel fyrir erlendis tonna þorskígilda botnfiskkvóta Útgerðarfélag Kaupfélags Eyflrðinga hefur selt Krist- jáni Guðmundssyni útgerðar- manni á Rifl á Snæfellsnesi, Eyfell EA 140, bát sem félag- ið tók upp í sölu Snæfellsins EA til Þorbjarnar hf. í Grindavík fyrir skömmu. Eyfell EA sem áður hét Sigurður Þorieifsson GK 256, er 167 tonna stálskip smíðað á Akureyri árið 1973 og var það aflient nýjum eigendum um helgina. Að sögn Magnúsar Gauta Gautason kaupfélagsstjóra, fylgja bátnum síldarkvóti og 40 tonn af rækju en félagið heldur cftir 650 tonna þorskígilda botnfiskkvóta. „Með þessari sölu er búið að tryggja meira hráefni fyrir frystihúsið í Hrísey en það hafði áður en farið var út í að selja Snæfellið. Á þessarí stundu er ckki ákveðið hvað verður gert í framhaldi af sölu Eyfellsins en ákvörðun uin það verður tekin mjog fljótlega," sagði Magnús Gauti ennfremur. -KK Að sögn Beat Iseli forstjóra Saga-Reisen er mikill áhugi á þessum ferðum hjá Svisslending- um og reyndar í öllum þýskumæl- andi löndunum. „Við höfum þeg- ar fengið margar pantanir þrátt fyrir að við séum varla farnir að auglýsa þessar ferðir,“ sagði for- stjórinn í samtali við Dag. Ástæðuna fyrir því að ferða- skrifstofan ákveður að fljúga beint til Akureyrar segir sviss- neski forstjórinn vera þá að margir farþega þeirra til Islands undanfarin ár, en Saga-Reisen hefur staðið fyrir íslandsferðum í Fiskeldisfyrirtækið Miklilax hf. í Fljótum hefur fengið afar jákvæð viðbrögð við sýnis- hornum sem send hafa verið til Þýskalands og Hollands. Roðflett og fryst flök ásamt frystum flökum hafa verið send til þessara landa og ráða- gerðir eru um að senda sýnis- horn til Frakklands á næst- unni, m.a. reyktan lax. Reynir Pálsson, framkvæmda- stjóri, segir að margar fyrirspurn- ir hafi borist frá erlendum aðilum varðandi framleiðsluvörur Mikla- lax. Miklar vonir eru bundnar við Frakklandsmarkaðinn en þar er starfandi sérstakur umboðsmað- ur fyrirtækisins. Slátrun hefst hjá Miklalaxi í lok mars eða byrjun apríl, en að sögn Reynis skiptir höfuðmáli að geta boðið upp á 3 kg fisk. Fyrir þann þyngdarflokk fæst hærra verð en fyrir léttari fisk, auk þess sem hentugra er að reykja lax sem er 3 kg eða þyngri. Fyrirhugað er að slátra 200 tonnum frá því snemma í vor þar til í ágúst. Frá og með nóvember verður hægt að slátra stöðugt all- an ársins hring í stöðinni. „Ég sé ekki annað en að bjart sé yfir rekstrinum. Aðalatriðið er að menn nái að framleiða, nógir eru um að selja vöruna,“ segir Reyn- ir. EHB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.