Dagur - 17.01.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 17. janúar 1990
----------------------------------------i
Viðgerð á Strákagöngum á áætlun næsta vetur:
fréttir
Á dagskránni er nýtt gólf, frárennsli og regnfóðring
- kostnaður er áætlaður 50-70 milljónir króna
Að öllu óbreyttu verður ráðist
í viðgerð á Strákagöngum við
Siglufjörð veturinn 1990/1991.
Aætlanir gera ráð fyrir viðgerð
á gólfi, fóðrun í lofti ganganna
og afrennslislögnum og er
áætlaður kostnaður á núvirði
50-70 milljónir króna.
Jónas Snæbjörnsson, umdæm-
isverkfræðingur Vegagerðar rík-
isins á Sauðárkróki, segir að við-
gerð á Strákagöngum sé á áætlun
og við það sé miðað að ráðist
verði í verkið næsta vetur. „Gólf
ganganna er illa farið og nauð-
synlegt er að skipta um það. Þá
þarf um leið að lagfæra frárennsl-
ið. Væntanlega verður einnig sett
upp einskonar regnfóðring innan
í göngin þannig að vatn sem
drýpur úr berginu verður leitt út
til hliðanna. Til þess verður not-
að plastfrauð, svipað efni og gert
er ráð fyrir að fóðra Ólafsfjarðar-
göngin með,“ segir Jónas.
Hafist var handa við gerð
Strákaganga árið 1965 og voru
þau formlega vígð 10. nóvember
1967. Að sögn Jónasar hefur lítið
verið gert við göngin á þessum
tíma og því ekki vanþörf á að lag-
færa þar ýmislegt.
Til greina kemur að bjóða
verkið út í heilu lagi eða hlutum.
Jónas segir að ekki liggi fyrir nein
ákvörðun um þetta. Þá-befur
ekki verið gengið frá áætlun um
kostnað, en hann gæti numið á
STAÐGREÐSLA 1990
SKArTHLUTfm OG
PERSÓNUAFSIÁTTUR
ÁRÐ 1990
ALMENNT SKATTHLUTFALL
ER39,79%
Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný
skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber
hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar
við útreikning staðgreiðslu.
Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttar sem
fram kemur á skattkorti hans.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
bilinu 50-70 milljónum króna.
Inn í þessari tölu er ekki ný hurð
fyrir vestari munna ganganna, en
Jónas segir nauðsynlegt að fá þar
nýja hurð. óþh
Snjómokstur:
20 mílljóna
króna munur
ámilli ára
- í umdæmi Vegagerð-
arinnar á Sauðárkróki
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar var um 20 milljóna1
króna munur á kostnaði vegna
snjómoksturs á milli áranna
1988 og 1989.
Að sögn Jónasar Snæbjörns-
sonar umdæmisstjóra Vegagerð-
arinnar, þá er aðal snjómoksturs-
tíminn frá janúar og fram í maí.
Allt árið í fyrra var 34 milljónum
varið í snjómokstur þar af 28
fyrri hluta ársins en aðeins tæp-
um 6 milljónum seinni hlutann.
Árið 1988 var 10 milljónum varið
í mokstur fyrri hluta árs en 5
milljónum seinni hlutann.
Þarna sést munur á milli ára
upp á um 20 milljónir. Aðal-
ástæðan fyrir því sagði Jónas vera
páskahretið sem kom í fyrra en
það mun hafa hreyft vel við sjóð-
um Vegagerðarinnar.
í Skagafirði einum nam beinn
snjómoksturskostnaður tæpum
þrem milljónum í fyrra en rúm-
lega fjórum milljónum árið 1988.
kj
Skautasvæði
opnuð hjá
KA og Þór
Fyrir nokkru síðan var vélfrysta
skautasvell Skautafélags Akur-
eyrar opnað almenningi á vissum
tímum. Nú hefur verið bætt um
betur og skautasvæði opnuð bæði
á félagssvæði KA við Lundar-
skóla og á félagssvæði Þórs við
Glerárskóla.
Hér eftir ættu unnendur
skautaíþróttarinnar því að eiga
auðvelt með að finna sér stað til
þess að sýna listir sínar.
, ÁV,
3
Bifhjólamenn
hafa enga heimild
til aö aka hraðar