Dagur - 17.01.1990, Side 7

Dagur - 17.01.1990, Side 7
6 - DAGUR - Miðvikudagur 17. janúar 1990 Miðvikudagur 17. janúar 1990 - DAGUR - 7 Bridge Bridge Undankeppni Bridgesambands Norðurlands eystra, fyrir íslandsmót (sveitakeppni) verður spiluð á Akureyri dagana 26.-28. janúar. Spilað verður í Verkmenntaskólanum á Eyrar- landsholti. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Kristins Kristinssonar í síma 24477 á daginn og 22693 á kvöldin fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn 24. janú- ar. Þátttökugjald fyrir sveit er kr. 7.500,- Fyrirkomulag tilkynnt síðar. ^mm^mmmmm^mmmmmmmmmmmm^^mm^mi IúttÍí| ÍÞRÓTTADEILD 11l LÉTTIS N.AKwny' Félagsfundur verður haldinn í Skeifunni, fimmtudaginn 18. janúar kl. 20.30. Fundarefni: fþróttahátíð, kynning. Önnur mál. Félagar hvattir til að mæta. Stjórnin. Útsalan er hafin ★ Mjög góður afsláttur ★ Veríð velkomin HAGKAUP Akureyri Evrópuráðsstyrkir á sviði félagsþjónustu Evrópuráðið veitir starfsmönnum stofnana og sam- taka á sviði félagsþjónustu styrki vegna kynnisferða til aðildarríkja ráðsins á árinu 1991. Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Félagsmálaráðuneytið, 11. janúar 1990. Reisulegt timburhúsí miðbæ .jFyrir mig hefur þetta mikið gildi,“ segir Orn Viðar Erlendsson, einn fjögurra eig- enda hússins, um endurbæturnar. Myndir: KL og þá hafi það verið í því ásig- komulagi sem suðurhliðinni hef- ur nú verið komið í. Húsið hafi því látið á sjá á mjög skömmum tíma. Fyrir mig hefur þetta mikið gildi „Ég er kannski frekar að segja að Akureyringar hafa ekki tekið við sér í viðhaldi gömlu húsanna fyrr en núna. Þessi tilhneiging hefur ekki komið fyrr en á seinustu árum, mun seinna en í Reykja- vík. Dæmi um þetta eru mörg hús í Innbænum sem nú er verið að lagfæra. Tilhneiging til við- gerða á gömlu húsunum er að vaxa. Mér finnst þetta hús okkar verða hreint gull þegar búið verð- ur að koma því í gott ástand með tilheyrandi lóð,“ segir Örn. Sú spurning vaknar þegar rætt er um gömul hús og endurbætur á þeim hvort þetta yfirleitt borgi sig. Er þetta ekki alltof dýrt? „í svona tilfellum verður mað- ur að velta þeirri spurningu fyrir sér hvað maður er að borga fyrir. Ef maður hugsar eingöngu um að koma sér þaki yfir höfuðið og þykist ekki finna til menningar- legs gildis hússins eða sögu, þá er þetta auðvitað spurning. Fyrir mig hefur þetta mikið gildi, svo ekki sé nú talað um hve mikið gildi það hefur fyrir bæinn að svona hús standi og fái að njóta sín enda er nóg til af nýju húsun- um. Á sumrin hefur verið stans- laus straumur af fólki sem mynd- ar húsið og maður hefur stundum velt því fyrir sér hvort það sé vegna þess að það er svona hrör- legt eða vegna þess að húsið er merkilegt en hrörlegt. Reynslan verður að skera úr um það næsta sumar hvort það var lélegt ástand þess sem fólk var að mynda eða hvort það var allt þetta mikla skrautverk sem fólk sóttist eftir. Ég hallast einmitt að því að þetta skrautverk hafi dregið að enda hefur þjóðminjavörður látið hafa eftir sér að þetta sé ein fallegasta húshlið á landinu og þá má minna vera,“ segir Örn. Húsið verður ekki friðað Örn segist gera ráð fyrir að húsið verði ekki friðað. Friðun hafi vissa ókosti í för með sér fyrir eigendurna en kosti fyrir menn- ingu bæjarins þar sem því megi ekki breyta. „Þar sem húsfriðun- arsjóður greip ekki inn í málið með styrk þegar það var erfiðast fyrir okkur þá friðum við það ekki,“ segir hann. Um áframhaldið á viðgerð hússins segir Örn að allt húsið verði málað í gula og græna litn- um næsta sumar. Hann segir við- brögð fólks í bænum við þessum endurbótum mjög góð. „Það er alveg merkilegt að fólk lítur á þetta sem glataðan hlut þegar húsið er svona illa farið en verður síðan snortið þegar búið er að gera eitthvað fyrir það. Mér finnst eins og fólk gefi sér ekki þann möguleika að hægt sé að gera við svona lagað." Örn segist kannast við að ekki hafi allir verið sammála um þessa gulu og grænu liti sem eigendurn- ir völdu á húsið. Gulur litur var í eina tíð á húsinu en Örn segir að þessi litur hafi verið valinn, ekki síst með það fyrir augum að lyfta húsinu upp úr „þessari litlausu lægð sem verið hefur. Þess vegna er guli liturinn eins og hann er. Þetta á ekki að fara framhjá nein- um,“ bætir hann við. JÓH Akureyrar fær á sig uppruna- lega mynd Suðurhlið hússins við Hafnarstræti 86 á Akureyri. Þetta er ein fallegasta húshlið á landinu að mati þjóðminjavarðar en viðamikilli viðgerð á henni lauk sl. haust. Xlúsið verður gull þegar þessu verður lokið - segir Örn Viðar Erlendsson, einn flögurra eigenda Þetta er stórmerkilegt hús. Þaö er byggt árið 1903 og í því var rekin til margra ára verslunin EyjaQörður, sem margir kannast viö. Þetta er norskt timbur- hús sem hingað var flutt og er eigin- lega að mörgu leyti eins og bjálkahús, þ.e. þetta er ekki panell að innan og utan eins og mörg þessi timburhús eru heldur er þetta gegnheil fura. Það er því mikið timbur í þessu húsi,“ segir Örn Viðar Erlendsson, einn Qögurra eigenda húsins við Hafnarstræti 86 á Akureyri. í haust lauk stórum áfanga í endurbótum þessa húss í miðbæ Akur- eyrar þegar lokið var við viðgerð á suðurhlið hússins. Eigendur þess máluðu síðan hliðina gula og græna og stingur húsið því verulega í stúf við næstu hús. „Raunverulega er húsið ekki illa farið heldur hefur umgerðin um húsið drabbast niður í gegn- um tíðina. Eigendaskipti hafa verið tíð og fyrir vikið hefur þarna búið alls konar fólk en við- haldinu hefur lítið verið sinnt. Þegar ég keypti hluta hússins fyr- ir fimm árum síðan sat ég nánast agndofa yfir því að ekkert hafði verið gert fyrir húsið því ég er viss um að ef þetta hús stæði í miðborg Reykjavíkur þá væri búið að gera við það fyrir löngu síðan.“ Suðurhliðin á þriggja ára áætlun „Ég byrjaði því á að fikta í viðn- um hér og þar í húsinu og komst að því að fúa var ekki að finna nema á einstaka stað og þá þar sem hægt var að bæta á mjög ein- faldan hátt,“ segir Örn Viðar. Mjög fljótlega var gerð áætlun um endurbætur hússins og þá fyrst viðgerð á suðurhliðinni. Samkvæmt áætluninni átti við- gerð hennar að taka þrjú ár og Ijúka síðastliðið haust, sem og varð raunin. „Hliðin var illa farin og hefur nú kostað okkur eigend- ur hússins 1,9 milljónir króna. Við höfum fengið styrk frá þjóðminjaverði upp á 90 þúsund krónur á ári í þessi þrjú ár sem framkvæmdirnar hafa staðið. Frá Akureyrarbæ höfum við ekkert fengið í styrk en húsfriðunarsjóð- ur veitti okkur einnar milljónar króna lán til sjö ára svo suður- hliðinni yrði lokið samkvæmt áætlun." Örn Viðar segir að nauðsyn- legt hafi reynst að gera áætlun um viðgerðina og taka hana í áföngum. Hann segist ekki gagn- rýna Akureyringa fyrir að hugsa illa um húsin sín en brenna vilji þó við að þegar á annað borð sé kominn tími til að huga að við- haldi þá líði of langur tími þar til hafist sé handa. Því sé ástandið í flestum tilfellum orðið slæmt þegar loks er farið af stað. Örn segist hafa séð mynd af húsinu við Hafnarstræti 86 frá árinu 1958 STAÐGREÐSIA 1990 STAÐGREIÐSLA AF HLUNNINDUM Ferðalög, fœðl, falnaður, húsnœði, orka. Dagpeningar til greiðslu á gistingu, fæði og fargjöldum (þó ekki milli landa) erlendis eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Noregurog NewYork Annars Svfþjóð borg staðar Almennirdagpeningar 190SDR 180SDR 155SDR Dagpeningar vegna ; þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa 120SDR 115SDR 100SDR Dagpeningar innanlands eru staðgreiðsluskyldir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Gisting og fœði í einn sólarhring 6.090kr. Gisting í einn sólarhring 3.01 Okr. Fœði hvem heilan dag, minnst iOklstferðalag 3.080kr. Faeði f háifan dag, minnst 6 tíma ferðalag 1.540kr. Almennir dagpeningar vegna ferðalaga erlendis reiknast þannig, að 50% eru vegna gistingar, 35% vegna fæðis og 15% vegna annars kostnaðar. Hafi gisting erlendis verið greidd frá þriðja aðila reiknast staðgreiðsla af greiddri upphæð ferðafjár þegar 50% af fullri flárhæð dagpeninga hefur verið dregin frá. Auk þess er heimilt að draga fjárhæð sem samsvarar mati á gistingu í eina nótt frá slíku ferðafé. Fái launamaður greidda dagpeninga fýrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunarmörkin lækka um 635 kr. fyrir hvem dag umfram 30. Fæði sem launamanni (og fjölskyldu hans) er látið í té endurgjaldslaust er staðgreiðsluskylt og skal metið þannig til tekna: Fulit fœði fullorðins 635 kr. á dag Fullt fœði bams yngra enl2ára 509kr.ádag Fœðiaðhlula 254kr.ádag Greiði launamaður laegri fjárhæð fyrir fæði hjá launagreiðanda hans en mat ríkisskattstjóra segir til um skal telja mismuninn til staðgreiðsluskyldra tekna launamanns. Fæðispeninga í stað fulls fæðis eða að hluta ber að telja til tekna að fullu. FATNAÐUR Falnaðursem ekki telstlil einkennisfatnaðar eða nauðsynlegs hlífðarfatnaðar skal talinn til tekna á kostnaðarverði og eru þœr tekjurstaðgreiðsluskyldar. Ávalltskal reikna staðgreíðslu afallri greiðslu launagreiðanda til launamanns til kaupa á fatnaði. Endurgjaldslaus afnot af íbúðarhúsnæði sem launagreiðandi lætur launamanni í té eru staðgreiðsluskyld og skulu þannig metin til tekna: Fyrirársafnotreiknast2,7% affasteígnamati húsnœðisins, þmt. bílskúrs og lóðar. Sé endurgjald greitt að hluta skal reikna mismuninn til tekna upp að 2,7% af gildandi Idsteignamatl. __________________Húsaleigusfyrk ber að reikna að fullu til tekna._______________ Ef búseta í húsnæði er kvöð sem fylgir starfi launamanns er heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu á næsta ári eftir staðgreiðsluár. Orkukostnaður launamanns, greiddur af launagreiðanda, skal reiknast að fullu til tekna á kostnaðarverði. RÍKISSKATTSTJÓRI i 8

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.