Dagur - 17.01.1990, Síða 9
Fædd 9. ágúst 1916 - Dáin 7. janúar 1990
Frænka okkar Freyja Þorsteins-
dóttir var jarðsett á Dalvík 13.
janúar síðastliðinn. Hún var
fædd á Hamri í Svarfaðardal 9.
ágúst 1916 og fluttist með for-
eldrum sínum í Efstakot á Dalvík
árið 1918. Foreldrar hennar voru
Kristrún Friðbjörnsdóttir frá
Efstakoti og Þorsteinn Antons-
son útvegsbóndi frá Hamri.
Við systkinabörnin sem ætlum
að minnast frænku okkar með
örfáum orðum, munum hana
best eftir að hún er flutt til
Reykjavíkur. Þar kynntist hún
eiginmanni sínum Sigurði Hjart-
arsyni en þau giftu sig árið 1952.
A heimili þeirra hjóna að
Hvassaleiti 59, vorum við öll allt-
af jafn velkomin, bæði við sem
bjuggum nærri og komum oft og
hin sem vorum fjær og komum
sjaldnar. Alltaf var húsrými,
einnig tími til að greiða götu
hvers og eins sem þangað leitaði.
Leið okkar flestra frændsystkin-
anna frá Dalvík lá til Reykjavík-
ur til náms. Var þá ætíð auðsótt
að fá að hafa vetursetu í Hvassa-
leitinu. Það var mikill styrkur fyr-
ir okkur óþroskaða unglina sem
komum að norðan að fá að búa á
heimili sem því er Siggi og Freyja
áttu að finna það öryggi og þá
hlýju sem þar ríkti. Gátum við
þar einnig lært mörg snör hand-
tökin og það að vera ekki lengi
að taka ákvarðanir því ekki var
hún frænka okkar að hika við
hlutina. Kunnum við það vel að
meta.
Saumaskapur fórst Freyju sér-
staklega vel úr hendi. Margar
kennslustundir fengum við stelp-
urnar í þeim fræðum sem hefur
nýst okkur mjög vel í gegnum
árin. Þær eru ekki fáar flíkurnar
sem Freyja hefur saumað á
afkomendur sína og frændfólk.
Fannst okkur það með ólíkindum
hversu stuttan tíma það tók að
fullvinna hverja flík.
Freyja átti sterkar rætur til átt-
haganna og kom á hverju sumri
heim í Efstakot. Munum við
glöggt þegar Freyja, Siggi og
krakkarnir, Kristrún, Hjörtur og
Þorsteinn Óli voru að koma
norður til lengri eða skemntri
dvalar. Það var tilhlökkunarefni,
því Freyju fylgdi gleði og kraftur
svo allir hrifust með. Þá var von á
tilbreytingu, því Freyja vildi
gjarnan ferðast lengra eða styttra
og fóru þá oft margir saman.
Hvað skemmtilegastar voru ferð-
irnar heim að Hrísum en þangað
!á leið hennar oft til frændfólks-
ins sem þar bjó.
I nafni systkinabarna Freyju
langar okkur að lokum að þakka
henni fyrir einstaka hjartahlýju
og hjálpsemi í okkar garð. Við
erum sterkari eftir að hafa notið
umsjár þessarar þróttmiklu og
lífsglöðu konu.
Elsku Siggi og frændsystkin,
megi minningin um Freyju verma
hjarta ykkar og styrkja.
Jóhanna og Anna Bára.
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að skipa nefnd:
Á að kanna hvort rétt sé að setja lög
eða koma á reglum um skoðanakannanir
Menntamálaráðherra hefur
ákveðið að skipa nefnd er kanni
hvort rétt sé að setja lög eða
koma á reglum um skoðanakann-
anir.
Leitað verður eftir tilnefning-
um í nefndina frá eftirtöldum
aðilum:
Dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, Félagsvísindadeild Háskóla
íslands, Heimspekideild Háskóla
íslands - þar er óskað sérstaklega
eftir að tilnefndur verði kennari í
siðfræði, Blaðamannafélagi ís-
lands og Gallup á íslandi.
Ákvörðun ráðuneytisins byggir
á eftirfarandi þingsályktun sem
samþykkt var á Alþingi 11. maí
1988:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að skipa nefnd er
kanni hvort rétt sé að setja lög
eða koma á reglum um skoðana-
kannanir.
Nefndin skal jafnframt kanna
hvort fullnægjandi sé að koma á
fót samstarfi þeirra sem fást við
gerð skoðanakannana og tryggja
að þeir setji sér starfs- og siða-
reglur sem eftir verði farið án
þess að lagasetning komi til.“
Happdrætti Sjálfsbjargar:
Vinningsbílliim í Bessastaðahrepp
Á aðfangadag var dregið í happ-
drætti Sjálfsbjargar. Nýlega var
einn af vinningunum, bifreið af
gerðinni Toyota Corolla 1300 st.
Hachbachback, afhent vinnings-
hafa, Fjólu Einarsdóttur, Bessa-
staðahreppi.
Á meðfylgjandi mynd er vinn-
ingshafi að taka við bifreiðinni.
Frá vinstri: Tryggvi Gunnarsson,
sölumaður hjá Toyota umboð-
inu, vinningshafi, Fjóla Einars-
dóttir, Trausti Sigurlaugsson,
forstöðumaður happdrættisins og
Tryggvi Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
Kynning
á virðisaukaskatti
Laugardaginn 20. janúar nk. höldum við kynningu
á virðisaukaskatti fyrir viðskiptaaðila okkar.
Kynningunni verður skipt upp eftir atvinnugreinum.
Frummælandi verður Ólafur Nilsson
löggiltur endurskoðandi og leiðbeinendur
starfsmenn Endurskoðunar Akureyri hf.
Kynningin verður haldin í Verkmennta-
skólanum á Akureyri og hefst kl. 10.30.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu okkar
í síma 26600 fyrir föstudag 19. janúar.
Þátttökugjald verður kr. 1.000,-
□□□□ Endurskoðun Akureyri hf.
Glerárgötu 24, Akureyri.
Sími 96-26600 Simfax 96-26601.
LV - ............................. ...............
- -
Vantar strax í VallargerS blaðbera )i og í einbýlishús í Gerðahverfi 2. m
DAGUR
óskar eftir að ráða
íþróttafréttamann
í fullt starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
20. febrúar nk.
Góð íslensku- og vélritunarkunnátta og góð
almenn menntun áskilin.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.
—
AKUREYRARBÆR
Fasteignagjöld 1990
Unnið er að álagningu fasteignagjalda á Akureyri
1990 og verða álagningarseðlar sendir út í lok
mánaðarins ásamt gíróseðlum vegna fyrstu
greiðslu gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 1. febrúar, 1.
mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní.
í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar hefir fast-
eignaskattur af eigin íbúðarhúsnæði ellilífeyris-
þega, sem verða 70 ára og eldri á þessu ári, verið
lækkaður um allt að kr. 15.000,- Lækkunin er
færð inn á gjaldseðlana.
Samsvarandi lækkun verður veitt örorkulífeyris-
þegum miðað við tekjumörk, sem bæjarstjórn
setur. Tilkynnt verður um lækkunina þegar fram-
töl hafa verið yfirfarin síðar í vetur.
Akureyri, 15. janúar 1990.
Bæjarritari.
f